Morgunblaðið - 25.10.2018, Page 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2018
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Á lóðinni Geirsgata 11, á besta stað á
Miðbakka við Gömlu höfnina Reykja-
vík, stendur gömul vöruskemma, að
mestu ónotuð. Lóðarhafar hafa á und-
anförnum árum kynnt hugmyndir um
niðurrif hússins og uppbyggingu á lóð-
inni en ekki haft erindi sem erfiði.
Á síðasta fundi stjórnar Faxaflóa-
hafna var samþykkt, að tillögu skipu-
lagsfulltrúa hafnarinnar, að bíða með
framkvæmdir og uppbyggingu á Mið-
bakka þar til framkvæmdum við Aust-
urhöfn lýkur og ljóst með hvaða hætti
skipulag umferðar um Austurbakka
og starfsemi á jarðhæð verði. Á því
svæði sé nú mikið álag vegna bygging-
arframkvæmda. Þá megi einnig
vænta þess að framkvæmdir hefjist
norðan Mýrargötu í Vesturbugt, sem
einnig kunna að hafa áhrif á umhverfi
og starfsemi í Gömlu höfninni.
Í minnisblaði Halldóru Hrólfsdótt-
ur skipulagsfulltrúa kemur fram að
lóðarhafinn, sem er Guðmundur
Kristjánsson útgerðarmaður, kennd-
ur við Brim, nú forstjóri HB Granda,
hafi fengið PKdM arkitekta til að
vinna hugmyndir að uppbyggingu lóð-
arinnar.
Byggingar verða 1-6 hæðir
Nýr Miðbakki muni taka mið af
sögulegu samhengi við gamla hafnar-
svæðið, gömul pakkhús, vöruhús og
fiskvinnslu. Einnig við samhengi nýrr-
ar byggðar framúrstefnulegrar bygg-
ingarlistar og verði því órjúfanleg
heild miðborgarinnar. Gert er ráð fyr-
ir 1-6 hæða byggingum á lóðinni
Geirsgötu 11. Samkvæmt tillögunni er
gert ráð fyrir mjög miklu byggingar-
magni á lóðinni eða allt að 14.500 fer-
metrum ofanjarðar (nýtingarhlutfall
3,0) og 4.805 fermetrum neðanjarðar.
Lóðin Geirsgata 11 er alls 4.805 fer-
metrar og byggingarmagn í dag 2.573
fermetrar (nýtingarhlutfall 0,5).
Miðbakkinn getur tekið á móti um
170 metra löngum skipum og er í raun
meginviðlegubakki Gömlu hafnarinn-
ar fyrir stærri skip. „Því verður að
gæta þess vel að ekki verði gengið of
mikið á baksvæði bakkans ef hann á
að þjóna áfram hlutverki sínu. Með
miklu byggingarmagni og þeirri um-
ferð sem það hefur í för með sér
myndu afnot bakkans skerðast. Þá
myndu 5 og 6 hæða byggingar svo
framarlega á hafnarbakkanum
skyggja mikið á útsýni yfir höfnina,“
segir m.a. í minnisblaði skipulagsfull-
trúa. Eins og komi fram í „Gátlista
vegna hækkaðrar sjávarstöðu“ sé ekki
ráðlegt að vera með kjallara svo ná-
lægt sjónum og því þyrfti að finna aðr-
ar lausnir á bílastæðamálum en bíla-
kjallara.
Í maí á þessu ári tók umhverfis- og
skipulagsráð Reykjavíkur neikvætt í
tillögu Geirsgötu 11 ehf. um upp-
byggingu á Miðbakka. Samkvæmt
þeirri tillögu var byggingamagn
27.760 fermetrar og var það talið of
mikið. Árið 2014 kom lóðarhafinn
fram með hugmynd um að gera húsið
upp, byggja við það og opna þar fisk-
vinnslu, sýningarsal, fiskmarkað og
veitingahús. Ekkert varð af þeim
áformum.
Húsið við Geirsgötu 11 var byggt
árið 1982 úr forsteypt einingum og er
varðveislugildi þess ekki talið mikið.
Þar voru fyrst vörugeymslur Ríkis-
skipa, en síðar var þar fiskvinnsla
Jóns Ásbjörnssonar hf. og Fisk-
kaupa hf. sem seldu Brimi hf. húsið.
Tölvuteikning/PKdM arkitektar
Tillagan Gerir ráð fyrir allt að 20 þús. fm. byggingum.
Uppbyggingu lóðar
á Miðbakka hafnað
Beðið verður þar til framkvæmdum við Austurhöfn lýkur
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Skemmtiferðaskip Ocean Diamond, eitt þeirra leiðangursskipa sem leggj-
ast að Miðbakka þar sem farþegaskipti fara fram. Það siglir allt sumarið.
Geirsgata 11 Var byggt 1982 og er nú að mestu ónotað.Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Það hefur ekki þótt heppilegt að
álagning og innheimta í ólíkum
myndum sé á sömu hendi. Í frum-
varpsdrögunum virðist því kveða við
alveg nýjan tón.
Þetta segir m.a. í umsögn
Sýslumannafélags Íslands um frum-
varp sem felur í sér að innheimta op-
inberra gjalda í Reykjavík færist frá
Tollstjóra til Ríkisskattstjóra frá og
með næstu áramótum. Undir um-
sögnina ritar Ásdís Ármannsdóttir
formaður félagsins.
Frumvarpsdrögin voru til um-
sagnar á samradsgatt.is og bárust
þrjár umsagnir. Umsagnarfresti er
lokið.
Sýslumenn láta efni frumvarps-
draganna til sín taka þar eð þeir eru
innheimtumenn ríkisins í héraði.
Þeir segja að þótt ekki séu lagð-
ar til breytingar nú á fyrirkomulagi
innheimtu opinberra gjalda, sem
sýslumenn annist, hafi með frum-
varpinu verið lögð drög að breyttri
skipan ríkisinnheimtu. Alger óvissa
ríki því um frekari breytingar og
forsendur slíkrar tillögurgerðar í
„næstu áföngum“ sem nefnd um
aukna skilvirkni í skattframkvæmd,
álagningu og innheimtu opinberra
gjalda kann að boða. Þykir Sýslu-
mannafélaginu miður að þessi nefnd
hafi ekki haft samráð við inn-
heimtumenn ríkissjóðs í héraði við
störf sín.
Sýslumenn segja að í skipulags-
breytingum, sem átt hafi sér stað
síðari ár hjá hinu opinbera, hafi þess
jafnan verið gætt að þær séu ekki til
þess fallnar að stuðla að aukinni
áhættu með tilliti til vanhæfissjón-
armiða og óheppilegrar samtvinn-
unnar. Hér kveði því við alveg nýjan
tón.
„Sýslumannafélag Íslands legg-
ur áherslu á að rafrænar lausnir,
gagnvirkni og samnýting upplýs-
ingakerfa núverandi álagningar- og
innheimtuaðila verði þróaðar, í stað
þess að sett verði á fót hið tvöfalda
kerfi innheimtu opinberra gjalda á
landsvísu sem frumvarpsdrögin
virðast miða að,“ segir m.a. í um-
sögninni.
KPMG ehf, skilaði umsögn og
lýsti undrun á að Ríkisskattstjóra sé
aðeins ætlað að taka yfir innheimtu-
hlutverki Tollstjóra en ekki sýslu-
manna.
Sýslumenn
ósáttir við flutn-
ing innheimtu
RSK tekur við hlutverki Tollstjóra
Morgunblaðið/Ófeigur
Tollstjóri Innheimtan mun færast
til Ríkisskattstjóra um áramótin.
Mikil aukning hefur orðið í
fjölda farþegaskipa við Gömlu
höfnina á undanförnum árum.
Leiðangursskip eru farin að
auka komur sínar og skipta þau
um farþega við Miðbakka. Þetta
eru skip sem sigla hringinn í
kringum landið allt sumarið,
með fjölda viðkomustaða.
Að Miðbakka komast aðeins
skip sem eru 170 metrar að
lengd og minni. Þessi skip taka
yfirleitt ekki fleiri en 500 far-
þega og miðast afköst bakkans
við þann fjölda.
„Gera þarf ráð fyrir að far-
þegar þurfi að komast í rútur
og/eða önnur farartæki fyrir
farþegaflutninga,“ segir í um-
sögn skipulagsfulltrúans.
Af þeim sökum er ekki talið
ráðlegt að þrengja að hafnar-
starfseminni með byggingum
meira en orðið er.
Miðbakkinn
mikilvægur
SKEMMTIFERÐASKIP
Seltjarnarnesbær, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
og Neyðarlínan ohf. hafa undirritað samning um
verklag við kaup, uppsetningu og rekstur öryggis-
myndavélakerfis á Seltjarnarnesi.
Öryggismyndavélakerfinu er eingöngu ætlað að
þjóna þörfum lögreglu og annarra neyðaraðila og fer
notkun þess og aðgangur að gögnum úr kerfinu sam-
kvæmt reglum lögreglu og Persónuverndar, að því er
fram kemur í frétt á heimasíðu bæjarins.
Um nokkurra ára skeið hafa verið öryggismynda-
vélar á tveimur stöðum, við bæjarmörk Seltjarn-
arness og Reykjavíkur. Þeim vélum verður nú skipt
út og settar upp nýjar og mun tæknilegri myndavélar.
Að auki verða settar upp öryggismyndavélar við
skólabyggingar og ýmis opin svæði á Seltjarnarnesi
en staðsetningarnar verða ákveðnar af lögreglu í
samráði við Seltjarnarnesbæ og Neyðarlínuna. Fram-
kvæmdinni verður hraðað eins og hægt er. sisi@mbl.is
Öryggismyndavélum fjölgað á NesinuTil sölu
Iðnfyrirtæki
Til sölu er vel rekið skuldlaust iðnfyrirtæki, sem hefur
sterka markaðsstöðu á sínu sviði og góðan orðstý.
Velta 150m. EBITDA 28m.
Nánari upplýsingar eru veittar á trúnaðarfundi
hjá Firma Consulting. Sími 896 6665