Morgunblaðið - 25.10.2018, Síða 28

Morgunblaðið - 25.10.2018, Síða 28
Ljósmynd/Guðlaugur Ottesen Karlsson Heimsókn Mogul vakti mikla athygli í Faxaflóa í sumar. Á myndinni sést haus sléttbaksins, blástursopin tvö hægra megin og grá-gulleit hrúðrin sem eru búsvæði krabbadýra, ofan á hausnum. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Sléttbakur er talinn í bráðri útrým- ingarhættu og er eina hvalateg- undin sem á eða hefur átt heim- kynni við Ísland, sem þannig er flokkuð. Alls eru sléttbakar í heim- inum aðeins tald- ir vera um 450 talsins og eru heimkynni þeirra að mestu við austurströnd Norður-Ameríku. Við flokkun á ný- útkomnum vá- lista spendýra fyrir Ísland var sléttbakurinn upphaflega talinn til flækinga við Ísland. Þessi flokkun hefur nú verið end- urskoðuð með það í huga að fyrr á öldum voru helstu heimkynni í kringum Ísland og dýrið hefur einnig gengið undir heitinu Íslands- sléttbakur var ákveðið að festa lög- heimili hans og telja sléttbakinn með dýrum við Ísland. Nú orðið sést sléttbakur ekki oft við landið, en einn slíkur dvaldi í nokkra daga í Faxaflóa í sumar og hafði sléttbakur þá ekki sést hér við land í fimm ár. Ferðamenn í hvalaskoðun fengu að fylgjast með ferðum og blæstri dýrsins í nokkr- um ferðum í júlí í sumar og það var myndað í bak og fyrir. Gísli Vík- ingsson, hvalasérfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, gerði nokkr- ar tilraunir til að sjá sléttbakinn í Faxaflóa, en án árangurs. Hann hafði síðan samstarf við hvalaskoð- unarfyrirtækið Eldingu um að senda myndir af dýrinu til Banda- ríkjanna þar sem margir hafa mikl- ar áhyggjur af framtíð stofnsins og náið er fylgst með hverju einasta dýri. Viðbrögðin létu ekki á sér standa. Mogul sonur Slalom „Í Ameríku er hvert dýr vel þekkt og nákvæmlega fylgst með ferðum þeirra,“ segir Gísli. „Við fengum strax upplýsingar um að hvalurinn væri tíu ára gamall, karl- kyns, og héti Mogul, mamma hans héti Slalom og hvað hann ætti af systkinum. Á og við hausinn er sléttbakur með heilu búsvæðin af smáum krabbadýrum af marflóaætt sem lifa góðu lífi í húðþykkildum eða hrúðrum. Munstur þessara sér- stöku búsvæða eru breytileg eftir dýrum og þannig er hægt að þekkja hvalina í sundur. Það er misgott að þekkja ein- staklinga þessara stóru hvalateg- unda, en hnúfubakurinn er auðveld- astur með rákir og litbrigði á sporðinum, sem hann veifar reglu- lega. Áður töldu menn að hrefn- urnar væru allar eins, en ef grannt er skoðað á myndum, sem stöðugt verða nákvæmari, er oft hægt að sjá einhver sérkenni. Menn eru því stöð- ugt að færa sig upp á skaftið í þess- um fræðum. Sléttbakurinn á í vök að verjast við austurströnd Norður-Ameríku og í fyrra er vitað að 17 dýr drápust fyrir utan þau sem ekkert fréttist af. Ýmist lentu sléttbakarnir í krabba- gildrum við Kanada eða urðu fyrir skipum, oft nálægt Boston. Á sama tíma er ekki vitað til þess að kálfur hafi fæðst. Menn eru því mjög á varðbergi vestan hafs og mikið í mun að þessar leifar af stofninum, sem þó er enn til staðar, deyi ekki út.“ Mið- að við aðra hvali er sléttbakur hæg- syndur og er það meðal annars talin ástæða þess hversu veiðimenn gátu gengið nærri stofninum fyrr á öld- um, m.a. Baskar, Hollendingar og Frakkar. Það var löngu áður en aðr- ir stofnar voru veiddir niður í kring- um aldamótin 1900. Sléttbakur hef- ur verið afar sjaldgæfur í Norður-- Atlantshafi í meira en eina öld. Hæg fjölgun steypireyða Ein tegund hvala, steypireyður, stærsta spendýr jarðar, flokkast „í nokkurri hættu“,. Í stofninum hefur verið hæg fjölgun og er talið að hann telji nú 1-2 þúsund dýr og er stofn- inn enn mun minni en var fyrir of- veiðar í kringum aldamótin 1900. Gisli segir að steypireyðarstofninn hafi sennilega aldrei verið mjög stór en þó mun stærri en nú er og er enn sennilega brot af því sem hann var fyrir tíma hvalveiðanna. Aðra sögu er að segja af langreyði sem flokkast sem „ekki í hættu“ (LC) á íslenska válistanum og senni- lega hefur stofninn í Norður- Atlantshafi aldrei verið stærri en um þessar mundir. Langreyði hefur fjölgað jafnt og þétt frá því að taln- ingar hófust árið 1987 og eru nú tal- in vera um 40 þúsund dýr í stofn- inum. Langreyðar aldrei fleiri Langreyðarstofninn hér við land (Mið-Norður-Atlantshafsstofn) hef- ur líklega náð sér að fullu eftir of- veiðarnar 1883-1915 sem eru taldar hafa höggvið stórt skarð í stofninn. Flokkun langreyðar sem „í hættu“ (EN) á alheimslista IUCN sam- kvæmt mati frá 2008 helgast ein- göngu af slæmu ástandi þeirrar deilitegundar sem lifir á suðurhveli jarðar, samkvæmt upplýsingum Gísla Víkingssonar. Hann segir að þó svo að hrefna sjáist ekki í sama mæli á grunnsævi við Ísland og fyrir rúmum áratug þá sé talið að stofn hrefnu sé sterkur og á honum hafi ekki orðið marktæk breyting. Hún hafi hins vegar fært sig um set og stofninn teygi sig nú norður fyrir Jan Mayen og meðfram Grænlandi. Veiðar hafa verið stundaðar á langreyði og hrefnu við Ísland á síð- ustu árum en auk þess var sand- reyður veidd fram til 1989. Allir eru stofnar þessara tegunda í góðu ástandi, að sögn Gísla. Áhyggjur af framtíð sléttbaks  Tegundin í bráðri útrýmingarhættu  Talið að aðeins séu um 450 sléttbakar eftir í heiminum  Hægt að þekkja einstaklingana  Mogul heimsótti Ísland í júlí  Steypireyður „í nokkurri hættu“ Af válista spendýra » Sléttbakur - í bráðri útrým- ingarhættu. » Steypireyður - „í nokkurri hættu. » Ekki í hættu - langreyður, sandreyður, hnúfubakur, hrefna, háhyrningur, marsvín (grindhvalur), hnýðingur, leift- ur og hnísa. » Flækingar og ekki flokkaðir - níu tegundir hvala. » Upplýsingar vantar og ekki flokkaðir - búrhvalur og andar- nefja.Gísli Víkingsson 28 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2018 Þegar síðustu geirfuglarnir voru drepnir í Eldey sumarið 1844 gætu yfir 200 ár hafa verið liðin frá því að síðasta sandlægjan drapst við Ísland. Gísli Víkingsson segir að litlar upplýsingar hafi lengi verið til um tegund- ina við Ísand og nánast eina heimildin verið lýsingar og teikningar í riti Jóns Guðmundssonar lærða (1574-1658): Ein stutt undirrietting um Ís- lands aðskilianlegar náttúrur. Síðar hafi fundist steingervingar og áþreif- anlegar sannanir fyrir því að hún hafi verið hér í Norður-Atlantshafi fyrr á öldum. Gísli segir að í raun sé ekki vitað hvað varð sandlægjunni að aldurtila hér við land, en líklegt sé að veiðar hafi komið þar við sögu. Á 17. öld hafi hún verið orðin útdauð í N-Atlantshafi. Sandlægja sækir fæðu sína nærri ströndum og lifir að mestu á botndýrum þannig að hún hefur verið veiði- mönnum auðveld bráð. Tegundina er nú einungis að finna í Kyrrahafi og eru þar tveir stofnar. Eftir miklar veiðar var tegundin friðuð 1946 en hef- ur fjölgað mikið síðan, þótt Vestur-Kyrrahafsstofninn sé enn í hættu. Sandlægja fyrir löngu útdauð NÆRRI STRÖNDUM OG VEIÐIMÖNNUM AUÐVELD BRÁÐ Rekaviðarhálsmen frá kr. 15.500 Teketill úr postulíni kr. 36.500 Smádúkur úr lífrænni bómull kr. 4.900 Íslensk hönnun - Íslenskt handverk Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990 www.kirs.is, Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17 Roðtöskur   þú það sem    á FINNA.is IÐNAÐARMENN VERSLANIR VEITINGAR VERKSTÆÐI BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA HNÚFUBAKAR SEM MERKTIR VORU MEÐ GERVIHNATTASENDI Annar hvalurinn sendir merki Annar hnúfubakanna sem merktur var með gervihnattasendi í Arnarfirði 27. september hefur ekki sent frá sér merki í vikutíma. Hann var þá í mynni Arnarfjarðar og hafði ekki farið út fyrir fjörðinn þann tíma sem merkið var virkt. Hinn hélt fljótlega norður fyrir Horn og inn í Húnaflóa, en sneri um helgina til baka. Hann hefur verið í Ísafjarðardjúipi síðustu daga og send- ir reglulega frá sér merki um staðsetningu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.