Morgunblaðið - 25.10.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 25.10.2018, Blaðsíða 30
Ljósmyndir/Skapti Hallgrímsson Fulllveldishátíð Vandræðaskáldin Sesselía og Vilhjálmur voru meðal listamanna sem komu fram. Málþingið „Á kafi í fullveldi“ var haldið í Sundlaug Akur- eyrar um síðustu helgi. Tilefnið var 100 ára afmæli full- veldisins Íslands. Prýðileg aðsókn var að málþinginu, sem stóð í þrjá tíma, og var frítt í sund á meðan. Tíu fræðimenn frá Háskólanum á Akureyri fluttu stutta framsögu um ýmsar hliðar fullveldisins í heitu pottunum á sundlaugarsvæðinu og fengu síðan sund- laugargesti til að tjá sig um málefnið. Gerður Kristný flutti nokkur ljóða sinna Vandræðaskáldin Sesselía Ólafsdóttir, leikkona og leikstjóri, og Vilhjálmur B. Bragason, leikskáld og rithöfundur, fluttu bálkinn Sull- veldi. Um annan tónlistarflutning á svæðinu sáu Ivan Mendes og systurnar Una og Eik. Listakonan Jónborg Sigurðardóttir dreifði plastbrúsum með áríðandi skila- boðum í einn heita pottinn og fjallaði um plastógnina. Í karlaklefanum talaði Hjalti Ómar Ágústsson um ábyrgð pungsins og í kvennaklefanum ræddi Sigga Dögg um fullveldi píkunnar. Háskólakennararnir sem lögðu sitt af mörkum voru Anna Soffía Víkingsdóttir, Finnur Friðriksson, Börkur Már Hersteinsson, Grétar Þór Eyþórsson, Arndís Bergsdóttir, Guðmundur Ævar Oddsson, Nanna Ýr Arn- ardóttir, Hjalti Ómar Ágústsson, Bigir Guðmundsson og Brynhildur Bjarnadóttir. Kynnir á viðburðinum var María Pálsdóttir leikkona. Á kafi í fullveldinu  Blautt málþing í Sundlaug Akureyrar í tilefni 100 ára fullveldisins  Vandræðaskáldin fluttu bálkinn Sullveldi Terta Starfsmenn og gestir sundlaugar gátu bragðað á dýrindis fullveldistertu sem bökuð var í tilefni dagsins. Byggjum betri heim er yfirskriftin á nýrri verkefnabók fyrir ungt fólk sem forsætisráðherra, Katrín Jak- obsdóttir, fékk afhenta í vikunni frá skátahöfðingja Íslands, Mörtu Magnúsdóttur, og þremur ungum skátum. Útgáfa þessa fræðsluefnis er liður í því að efla skátastarfið á Íslandi, segir í tilkynningu. Verkefnabókin er byggð á fræðsluefni sem danskir skátar létu gera, en efnið byggist á Heims- markmiðum Sameinuðu þjóðanna. Í verkefnabókinni er lögð áhersla á þrjú meginþemu; hugsa, þjóta og skapa. Síðan er efninu skipt niður í 17 undirflokka. Ítarlegar leiðbein- ingar fylgja með um það hvernig nýta megi efnið sem best innan skátahreyfingarinnar. „Við þurfum að efla nýliðun í skátahreyfinguna og þessi verk- efnabók er frábært verkfæri til þess að gefa ungum skátum tæki- færi til þess byggja upp betri heim. Verkefnabókin er mjög aðgengileg og til þess fallin að beina skáta- starfinu inn á uppbyggilega braut, strax við inngöngu í skátahreyf- inguna,“ segir Marta skátahöfðingi. Fræðsluefni um eflingu skátastarfs Skátar Katrín Jakobsdóttir tók við bókinni úr hendi Mörtu Magnúsdóttur, skátahöfðingja Íslands, og þriggja ungra skáta Þuríðar, Heiðbrár og Andra. 30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2018 Síðumúli 13 • 108 Reykjavík • 552 9641 • seimei.is seimeiisland • seimei.is Opið mánud.-fimmtud. kl. 12-18, föstud. og laugard. kl. 12-16 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Lýst er í ályktun nýlegs aðalfundar Íbúasamtaka miðborgar Reykjavík- ur vonbrigðum með að skipulags- yfirvöld og þar með talið borgarráð taki ítrekað ekki til greina athuga- semdir íbúa þegar gerðar séu skipu- lagsbreytingar sem skert geti hags- muni og lífsgæði. Í greinargerð með ályktun aðal- fundarins segir að nú ríki fram- kvæmdagleði í miðborginni og verið sé að reisa fjölda stórhýsa. Þessar breytingar á nærumhverfi þeirra séu þó illa kynntar og lítið tillit sé tekið til athugasemda þeirra. Svo virðist sem engar reglur gildi um viðbrögð, aðrar en að athugasemdir skuli virtar svars. Svörin séu hins vegar of oft í skötulíki eins og túlk- un skipulagsyfirvalda á því hvað teljist til meiriháttar breytinga í rekstri. Gististöðum verði ekki fjölgað Í ályktun íbúasamtakanna eru breyting á deiliskipulagi sem varða Barónsstíg 28 tekin sem dæmi um afgreiðslu skipulagsyfirvalda. Þar hafi staðið hús sem var byggt árið 1905 sem svo var fjarlægt og árið 2015 var gefið leyfi til að byggja fjölbýlishús þar. Árið 2016 var svo sótt um að breyta húsinu nýja í tíu eininga gististað, en þeirri ósk var hafnað af borginni. Sú krafa eig- enda reis aftur árið 2017 enda voru þeir byrjaðir að reka gististarfsemi í húsinu ólöglega. „Ekki er gott að sjá hversvegna léð var máls á breytingunni en skipulagsráð samþykkti hana þrátt fyrir fjölda athugasemda,“ segir í ályktuninni. Þar er undirstrikað mikilvægi þess að ákvarðanir stjórnvalds standi, sérstaklega ef það varðar búsetu því íbúðakaup séu stærsta fjárfestingin í lífi flestra. Gera verði þá kröfu til skipulagsyfirvalda í Reykjavík að þau framfylgi þeirri stefnu að gisti- stöðum og hótelum í miðborginni verði ekki fjölgað. Einnig að að um- sókn um gististarfsemi í umræddu húsi verði synjað og að það verði fjölbýlishús enn sem fyrr. Margir veitingastaðir eru fyrir Um Hallveigarstíg 1 segir að ný- lega hafi verið samþykkt sú breyt- ing á deiliskipulagi að útiveitinga- staður verði norðan við húsið. Í kring sé þétt íbúabyggð og þegar nágrannarnir fengu veður af þessari breytingartillögu fóru tuttugu þeirra fram á að hún yrði grenndar- kynnt vegna fyrirsjáanlegs ónæðis og ágangs. Þeirri beiðni hafi hins vegar ekki verið svarað. Þó hafi ekki verið nein knýjandi nauðsyn á því að opna veitingastað þarna, enda séu þeir margir fyrir. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Reykjavík Horft yfir Þingholt og Tjörnina úr turni Hallgrímskirkju. Samráð við mið- borgarbúa í skipu- lagsmálum sé virt  Miklar framkvæmdir ekki kynntar íbúum  Reglur um viðbrögð vantar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.