Morgunblaðið - 25.10.2018, Blaðsíða 34
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2018
arnir byrja, liðinu er stillt upp og
það myndað og Snapchat, Insta-
gram og Facebook birta svo ham-
ingjuna. Að ógleymdum væmnu
„Elska þig“ statusunum og því
öllu,“ svarar hann óhikað.
„Svo er það neikvæðnin,
grimmdin í kommentum með per-
sónuníði og leiðindum. Að fletta
þessu sýgur í raun úr manni
orkuna. En svo fann ég nokkrar
síður þar sem mikið af gríni og
skemmtilegri afþreyingu var að
grípa mig, en áhuginn á pólitík og
leiðinda kommentum var enginn.
Þetta er greinilega víða notað sem
klósett fyrir neikvæðar tilfinn-
ingar, öllu sturtað niður og það
látið dynja á „vinunum“,“ bætir
hann við.
Sveitastrákur
Annars kveðst hann bara vera
sveitastrákur úr Berufirðinum,
elstur af fimm systkinum.
„Ég er búinn að taka hringinn,
lærði til smiðs á Höfn, tók sveins-
próf þar 1994 eða 1995, fór til
Reykjavíkur í meistaraskóla 1996,
útskrifaðist meistari 1998, bjó
syðra til ársins 2002, átti konu og
barn með henni, sem er 19 ára í
dag. Ég rak fyrirtækið Hörðuból
ehf. þar með félaga mínum, frá
1999-2002, flutti svo til Akureyrar
og bjó þar í ár og flutti þaðan til
Egilsstaða með núverandi konu,
sem ég er búinn að eignast þrjú
börn með síðan. Í júní 2003 stofn-
uðum við Og Syni ehf., sem var og
er verktakafyrirtæki, og höfum
rekið það síðan.
Ég stofnaði svo Ertingu eignar-
haldsfélag ehf. með félaga mínum
2005, sem á og rekur fasteignir á
leigumarkaði, Ofurtólið ehf.,
áhaldaleigu, sem var stofnuð 2007;
það félag varð svo Og Synir / Of-
urtólið ehf. árið 2009. Aðalstarfs-
semi okkar er á Nesbraut 2–6 á
Reyðarfirði.
Og það er meira en nóg að gera
eins og staðan er fyrir þá 12
starfsmenn sem eru hjá okkur
núna.“
Austfirski gleðigjafinn á Facebook
Var búinn að fá nóg af því sem netsamfélagið hafði upp á að bjóða Ákvað að vinna fremur með
það skemmtilega Þorsteinn dælir frá sér bröndurum eins og enginn væri morgundagurinn
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Fær menn til að brosa Þorsteinn Erlingsson hefur fengið margan Facebook-notandann til að brosa og gerir enn.
VIÐTAL
Sigurður Ægisson
sae@sae.is
Facebook hefur í gegnum tíðina
verið brúkuð til ýmissa hluta, enda
tilheyra víst rúmir tveir milljarðar
Jarðarbúa þessu 14 ára gamla net-
samfélagi. Sumir, og líklega all-
flestir, nota aðganginn til að vera í
nánari tengslum við fjölskyldu og
vini en ella er hægt, sem oft búa
víðs fjarri, aðrir baknaga í lok-
uðum hópi náunga sinn og líkar
það vel og enn aðrir gera svo eitt-
hvað allt annað.
Þorsteinn Erlingsson, bygging-
armeistari á Reyðarfirði, er í
þriðju grúppunni. Hann á um 1.000
Facebook-vini og ekki síst vegna
þess sem hann lætur frá sér í
hverri viku, en það eru óborgan-
lega fyndnar gamansögur, lengri
og styttri. Blaðamaður veit til þess
að ónefndur kvenprestur, sem
hafði fengið að líta sýnishorn af
þessu fyrir nokkrum árum, en
þekkti manninn ekki neitt, bað um
að fá að gerast vinur hans bara til
að fá að sjá oftar og meira.
Reyndar slæðast með annað
veifið nokkrir brandarar sem eiga
það til að hleypa roða fram í kinn-
ar sómakærra einstaklinga, en það
er aukaatriði í stóru myndinni;
hinir allir, þessir birtingarhæfu,
létta nefnilega fólki daginn og
gönguna um veginn svo um munar.
Og ekki veitir af.
Sýgur úr manni orkuna
En hvernig byrjaði þetta allt og
hver er þessi eldhressi náungi sem
kallar fram öll þessi bros með hin-
um vel þegnu orðsendingum sínum
að austan?
„Jú, kveikjan að þessu hjá mér
var að ég var alveg kominn að því
að æla yfir mig við að fletta Face-
book. Það voru ekkert nema
myndir af börnum að gera eitthvað
sem börn hafa gert öldum saman
og ekki hefur þótt merkilegt og er
ekki merkilegt, eins og þegar skól-
Ég stytti mér leið í gærkvöldi og gekk í gegnum
kirkjugarð. Tvær unglingsstúlkur spurðu mig hvort
þær mættu labba við hliðina á mér þar sem þær væru
svo myrkfælnar og hálf hræddar. „Sjálfsagt,“ sagði ég
og bætti við: „Ég var sjálfur myrkfælinn þegar ég var
á lífi.“ Aníta Hinriksdóttir hefði verið stolt af þeim
hraða sem þær náðu þegar þær hlupu í burtu.
Hver er munurinn á manni sem kaupir lottómiða og
manni sem er að rífast við konu sína?
Jú, þessi sem keypti lottómiðann á smá möguleika
á að vinna.
Írsk saga:
Læknirinn: „Ég á erfitt með að greina nákvæmlega
hvað hrjáir þig, Murphy, en mig grunar að það gæti
stafað af of mikilli drykkju.“
Murphy: „O, hafðu ekki áhyggjur, læknir. Ég kem
bara seinna þegar þú ert edrú.“
Kæri Póstur!
Mig vantar svar við vandamáli, en þannig er að kon-
an mín vinnur oft lengur en hún þarf og kemur heim
seint og angar þá af rakspíra. Hún brjálast ef ég
skoða farsímann hennar og fær oft dularfull símtöl í
heimasímann sem hún neitar að segja frá. Hún er
stundum úti á kvöldin og er þá keyrð heim af
ókunnum vini.
Einu sinni ætlaði ég að njósna og gá hver þessi
óþekkti maður væri, svo rétt áður en hún kom heim,
læddist ég út og faldi mig bak við mótorhjólið mitt.
Þá sá ég olíuleka frá hjólinu. Og nú spyr ég, kæri
Póstur, er eðlilegt að það komi leki á hjól sem er að-
eins búið að keyra um 20.000 km?
SÝNISHORN AF BRÖNDURUNUM:
Gildir til 15. nóvember
VINAHÓPSAFSLÁTTUR
af Kungs
rúðusköfum
30%
Lykil- og korthafar Olís og ÓB eru sjálfkrafa
meðlimir í Vinahópnum og njóta afsláttarkjara
þegar greitt er með lykli eða korti.
Styrktarfélagið Göngum saman af-
henti nýverið 10 milljónir króna í
rannsóknarstyrki til vísindamanna
á sviði grunnrannsókna á brjósta-
krabbameini. Með þessari styrk-
veitingu hefur Göngum saman út-
hlutað alls rúmum 90 milljónum
króna til styrkja á þessu sviði frá
stofnun félagsins árið 2007.
Þau sem fengu styrk voru Anna
Karen Sigurðardóttir, doktorsnemi
í líf- og læknavísindum við Háskóla
Íslands, Arsalan Amirfallah, dokt-
orsnemi í líf- og læknavísindum við
Háskóla Íslands, Bylgja Hilmars-
dóttir, náttúrufræðingur á meina-
fræðideild Landspítalans, Hildur
Knútsdóttir, nýdoktor við Johns
Hopkins háskólann, Marta S. Alex-
dóttir, meistaranemi í líf- og
læknavísindum við Háskóla Ís-
lands, Ólöf Gerður Ísberg, dokt-
orsnemi í lyfjavísindum við HÍ, og
Snædís Ragnarsdóttir, meist-
aranemi í lífeindafræði við Háskóla
Íslands.
Upphæð styrkjanna var frá 1-2
milljónum króna.
Styrkþegar Gunnhildur Óskarsdóttir, formaður Göngum saman, Anna Kar-
en Sigurðardóttir, Ólöf Gerður Ísberg, Marta S. Alexdóttir, Hildur Knúts-
dóttir, Kolka Jónasdóttir, f.h. móður sinnar, Bylgju Hilmarsdóttur, Arsalan
Amirfallah og Anna Karen Sigurðardóttir við styrkveitinguna.
10 milljónir frá
Göngum saman