Morgunblaðið - 25.10.2018, Page 37

Morgunblaðið - 25.10.2018, Page 37
FRÉTTIR 37Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2018 Kringlunni 4c – Sími 568 4900 ÚLPUDAGAR FIMMTUDAG TIL MÁNUDAGS 20% AFSLÁTTUR AF ÚLPUM OG REGNKÁPUM Íslandspóstur býður til opins fundar um breytingar í póstþjónustu og leiðir til þess að tryggja framtíð hennar á Íslandi. DAGSKRÁ Ávarp Bjarni Jónsson, stjórnarformaður Íslandspósts Lagaumgjörð póstþjónustu Andri Árnason, hrl. Mat á alþjónustubyrði Íslandspósts Sofia Nyström, Copenhagen Economics Rekstrargrundvöllur póstþjónustunnar á Íslandi Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts Verkefni eftirlitsaðila á fallandi markaði Cathrine Grimseid, Norwegian Communication Authority Þróun póstþjónustunnar: Staða og möguleg viðbrögð Henrik Ballebye, Copenhagen Economics Vinsamlegast skráið ykkur hjá irisa@postur.is eða í síma 580 1000 Fundurinn verður haldinn í Rímu, fundarsal á 1. hæð í Hörpu, þriðjudaginn 30. október, kl. 14:00 - 16:30. Þorsteinn Ásgrímsson thorsteinn@mbl.is Annað undirbúningsréttarhald fyrir aðalmeðferð málsins gegn Thomasi Møller Olsen fór fram í Landsrétti í gær. Thomas Møller Olsen var sem kunnugt er sakfelldur fyrir að hafa myrt Birnu Brjánsdóttur í janúar í fyrra. Í Landsrétti í gær kom fram að Møller Olsen mun ekki þurfa að máta úlpu við aðalmeðferð sem hefst í Landsrétti á mánudag, en deilt er um hvort hann hafi getað klæðst henni. Er hún meðal sönnunargagna, en blóð úr Birnu Brjánsdóttur fannst í úlpunni. Thomas var dæmdur í 19 ára fangelsi í héraðsdómi fyrir að hafa myrt hana í janúar í fyrra. Mátaði Thomas úlpuna hjá lögreglu og verða myndir af því lagðar fyrir dóminn. Við undirbúningsréttarhaldið var deilt um framlagningu ýmissa gagna og vitnaskýrslur við þinghaldið. Björgvin Jónsson, verjandi Thom- asar, hafði óskað eftir að leiða tvö grænlensk vitni fyrir dóminn. Annar var skipverji á Polar Nanoq og hafði meðal annars verið farþegi í bíl með Thomasi fyrr um daginn. Seinni mað- urinn er vinur Nikolajs Olsens, sem einnig var handtekinn á sínum tíma en ekki ákærður og hefur vörn Thom- asar gengið út á að Nikolaj hafi ráðið Birnu bana. Hringdi Nikolaj í þennan mann nóttina afdrifaríku. Sagði Björgvin nauðsynlegt að fá vitnin fyr- ir dóm til að meta trúverðugleika þeirra. Dómari hafnaði því að fá vitnin til landsins, en tekin verður af þeim símaskýrsla. Hafði saksóknari meðal annars bent á að vörnin hefði ekki tal- ið þörf á að fá vin Nikolajs þegar mál- ið var tekið fyrir í héraðsdómi og þá væri mikið óhagræði fólgið í því að fá vitnin til landsins, sérstaklega í ljósi þess að þau hefðu ekki verið bein vitni að neinum atburði sem tengdist málinu. Verjandinn hefur einnig látið út- búa þrívíddargreiningu á myndefni sem tekið var við golfskála GKG í Hnoðraholti. Segir verjandinn að myndefnið sýni að enginn maður hafi verið í farþegasæti bílsins þegar ekið var við golfskálann. Sigríður Frið- jónsdóttir, ríkissaksóknari og sak- sóknari málsins, sagðist hins vegar hafa efasemdir um þetta gagn og að myndbandsupptakan sjálf væri of ógreinileg. „Þetta er þarflaust gagn sem mun ekki segja neitt um sakar- efnið, sagði hún. Dómari féllst hins vegar á að leggja mætti gagnið fyrir og að um það yrði tekist á í málflutn- ingi. Þá hafði verjandi einnig lagt fram myndir af instagramreikningi unn- ustu Nikolajs þar sem hann sést meðal annars í bifreið. Heldur verj- andinn því fram að þetta sýni fram á að Nikolaj sé kunnugur akstri þótt hann sé ekki með ökuréttindi. Þá var einnig mynd af honum á bát haldandi um stýrið. Sigríður sagði myndina í bílnum ekki sýna neitt, enda væri ekki ljóst hvort hann væri að keyra eða ekki. Dómari heimilaði að myndirnar væru hluti af gögnum málsins, en tók fram að aðrar myndir frá instagram- reikningnum sem einnig höfðu komið með beiðni verjandans ættu ekki er- indi. Hafði saksóknari reyndar haft hörð orð um að verjandi skyldi leggja þær myndir fram. „Þetta eru prívat- myndir. Hvaða erindi eiga þessar myndir inn í morðmál?“ sagði hún. Mega ekki senda beint út Umfjöllun fjölmiðla frá aðalmeð- ferð verður takmörkuð þegar vitna- leiðslur fara fram. Dómsformaður málsins sagði að eins og venjulega í dómsmálum væru myndatökur og hljóðupptökur bannaðar í dómsal. Þá sagði hann að þeir sem væru við- staddir aðalmeðferðina yrðu skikk- aðir til að senda ekki fréttir beint út meðan skýrslutökur yfir vitnum færu fram. Vísaði dómari í reglur í saka- málarétti um að vitni fengi ekki upp- lýsingar um það sem önnur vitni segðu. Munu fjölmiðlar hins vegar geta fjallað um skýrslutökurnar eftir að allar hafa farið fram og um dóms- málið að öðru leyti. Lögmaður foreldra Birnu sagði að það væri ósk foreldranna að réttar- haldið yrði lokað af virðingu við Birnu ef myndbirtingar færu fram. Sagði hún að umfjöllun fjölmiðla í héraðsdómi þar sem efni hefði verið varpað beint á netmiðla hefði verið tillitslaus gagnvart ættingjum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Í héraðsdómi Í Landsrétti í gær kom fram að Møller Olsen mun ekki þurfa að máta úlpu við aðalmeðferð sem hefst í Landsrétti á mánudag. Deilt um myndir í Landsrétti  Aðalmeðferð í máli Thomasar Møller að hefjast  Umfjöllun takmörkuð Aðalmeðferð í Landsrétti í næstu viku » Aðalmeðferð í máli Thom- asar Møller Olsen fyrir Lands- rétti hefst á mánudag. » Møller Olsen var sakfelldur fyrir morðið á Birnu Brjáns- dóttur í héraðsdómi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.