Morgunblaðið - 25.10.2018, Blaðsíða 40
40 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2018
skilið spurningar rannsóknarlögregl-
unnar. Mun hann þó tala frönsku
reiprennandi.
Kom ekki orði upp sjálfur
Eftir tveggja vikna réttarhöld yfir
Janowski og níu öðrum einstakling-
um sem hlut áttu að dauða frú Pastor
kom lögmaður og verjandi heiðurs-
konsúlsins öllum á óvart með því að
lýsa skjólstæðing sinn sekan af því að
hafa búið henni banaráð. Kom yfir-
lýsingin eins og þruma úr heiðskíru
lofti.
„Þessi fáu orð sem þið vilduð heyra
frá honum mæli ég úr mínum munni.
Hann reyndi að segja þetta, hann
vildi gera það sjálfur en var ófær um
það,“ sagði verjandinn Eric Dupond-
Moretti þriðjudaginn í síðustu viku.
Streymdu tárin fram og runnu niður
kinnar Janowskis þar sem hann sat á
bekk sakamanna í dómhúsinu í Aix er
lögmaður hans skýrði frá játningu
hans. Sex stundum síðar voru dómar
kveðnir upp yfir Janowski og sam-
verkamönnum hans.
Dupond-Moretti hélt því fram að
Janowski hefði verið að reyna að
vernda sambýliskonu sína, Sylviu
Ratkowski, fyrir móður hennar sem
búið hefði henni eymdarlíf. Harðneit-
aði hann því að Janowski hefði skipað
leigumorðingjunum tveimur að ráða
bílstjóra frú Pastor líka af dögum.
Gegn því stóð framburður fyrrver-
andi einkaþjálfara heiðurskonsúlsins,
Pascals Dauriacs, sem einnig var
ákærður í málinu. Kvaðst hann hafa
fengið það hlutverk hjá Janowski að
útvega morðingjana tvo og fela þeim
að myrða bílstjórann einnig og stela
handtösku ekkjunnar til að svo liti út
að um ránstilraun hefði verið að
ræða.
Janowski, óaðfinnanlega klæddur á
sakamannabekknum, var sagður hafa
lofað leigumorðingjunum 140.000
evrum fyrir dauða Helene Pastor og
20.000 evrum til viðbótar fyrir líf bíl-
stjóra hennar. Hann hafði verið grun-
aður um græsku frá upphafi en ætíð
þrætt fyrir aðild, uns hann brotnaði
saman í réttarsalnum og játaði morð-
in á sig.
Leit tengdasoninn hornauga
Allt þar til í síðustu viku hélt Jan-
owski sakleysi sínu fram. „Sýnið mér
sönnunargögnin,“ sagði hann kok-
hraustur við saksóknara á fyrsta degi
réttarhaldanna. Þeir héldu því fram
að velklæddi kaupsýslumaðurinn
hefði ekki verið eins snjall í við-
skiptum og hann vildi vera láta. Hefði
fyrir honum vakað að komast yfir arf-
inn sem væntanlega hefði komið í
hlut konu hans eftir dauða móður
hennar. Hefði það knúið hann áfram
að hann óttaðist að krabbameinið
myndi draga Sylviu til dauða áður en
arfurinn félli henni í skaut, en það
hefði sjálfkrafa þýtt að fjárstreymi til
hans myndi stöðvast. Mun frú Pastor
hafa lagt dóttur sinni til um 500.000
evrur í mánuði hverjum í vasafé. Er
Janowski sagður hafa sogað til sín
hluta þessa fjár til að borga leigu-
morðingjunum. Hafi því peningar
ekkjunnar í raun verið notaðir til að
greiða banamönnunum og sagði sak-
sóknari fyrir dómi það „viður-
styggilegt“.
Við rannsókn málsins kom í ljós að
frú Pastor hafði snemma fengið
ímugust á sambýlismanni dóttur
hennar, pólska heiðurskonsúlnum í
Mónakó. Réð hún einkaspæjara til að
fylgjast með honum í um áratug.
Lagðist hún alla tíð gegn hjónabandi
dótturinnar og Janowskis og kom
nær 30 ára mótspyrna hennar í veg
fyrir vígslu sambýlinganna. Varð það
aðeins til að auka á hatur hans á
tengdamóður sinni.
Lögregla komst fljótt á slóð leigu-
morðingjanna sem höfðu ekki djúp-
hugsað hvernig þeir gætu falið spor
sín. Sáust þeir vel í öryggismynda-
vélum er þeir tóku sér stöðu á gang-
stéttum beggja vegna útkeyrslunnar
frá spítalanum. Báðir svartklæddir
en annar með rauða kollhúfu. Sá stóð
vörð fyrir félaga sinn og mætti
nokkrum mínútum á undan. Hinn
vopnaði kom í leigubíl á vettvang rétt
áður. Helene Pastor var enn inni á
spítalanum en bíll hennar birtist von
bráðar. Sást þá maðurinn ganga að
bílnum, draga fram afsagaða hagla-
byssu og hleypa af tveimur skotum.
Sápubrúsi leysti þrautina
Upptökur úr myndavélunum
dugðu ekki til að bera kennsl á tilræð-
ismennina en fljótlega fann lögreglan
vísbendingar. Sömu menn sáust í ör-
yggismyndavélum lestarstöðvarinnar
í Marseille, í báðum tilvikum eins
klæddir og tilræðismennirnir. Athug-
un á leigubílastöðvum leiddi í ljós að
þar höfðu morðingjarnir keypt
óskráða farsíma samdægurs að
morgni.
Leigubílstjórinn sem ók hinum
vopnaða að spítalanum gat og gefið
greinargóða lýsingu á honum. Þá
hleraði lögregla síma einkaþjálfarans
Pascals Dauriacs og gat á grundvelli
þess leyst glæpamálið. Netið þrengd-
ist jafnt og þétt og það sem varð
mönnunum svo endanlega til falls var
að þeir skildu eftir sig sápubrúsa á
hótelherbergi í Nice sem þeir gistu í.
Á honum fundust lífsýni sem stað-
festu á endanum erfðalykil þeirra,
DNA.
Dauriac sagði að Janowski hefði
fyrst fært málið í tal við sig 2012 og
svo aftur 2013 þegar Sylvia veiktist,
en í millitíðinni hefur hún læknast af
krabbameini.
„Þetta getur ekki haldið áfram,
heilsu Sylviu hefur hrakað. Við verð-
um að losa okkur við gömlu konuna.
Getur þú hjálpað mér?“ segir Dauriac
að Janowski hafi spurt sig. Hafi hann
bætt því við að hann myndi gera Syl-
viu mikinn greiða með því að losa
hana úr viðjum grimmúðugrar móður
sinnar. Játaði þjálfarinn hlutdeild
sína áður en málið var sent til dóm-
stóla. Var orðið við kröfu saksóknara
og hann dæmdur í 30 ára fangelsi.
Dauriac sagði Janowski hafa hlaðið
sig gjöfum til að ná á sér tökum. Á
endanum hefði hann gefið eftir og
beðið mág sinn, Abdelkader
Belkhatir, í grannbænum Marseille,
að hjálpa sér að finna einhvern til
„stórvirkis“ sem gefa myndi 140.000
evrur í aðra hönd, um 19 milljónir
króna. Einkaþjálfarinn sagði að mág-
urinn hefði fundið tvo menn til verks-
ins – Al Hair Hamadi, sem lá á gægj-
um og léti skotmanninn Samine Said
Ahmed vita ef ekki væri óhætt að
ráðast til atlögu.
Marseille-tengingin
Sakborningar í máli þessu sem
dregnir voru fyrir rétt voru tíu tals-
ins. Lýsti ákæruvaldið hópnum sem
hluta af „neti“ sem teygði sig frá
„glæsilegri dýrðinni í Mónakó til fá-
tækrahverfa Marseille“ en þangað
voru leigumorðingjarnir sóttir.
Janowski var sakaður um að hafa
sólundað stórum skerf af því fé sem
Helene Pastor gaf dóttur sinni gegn-
um árin. Janowski gerði lítið úr mál-
flutningi einkaþjálfarans fyrrverandi
á rannsóknarstigi og fyrstu dögum
réttarhaldanna í Aix. Hélt hann því
meir að segja fram að Dauriac hefði
verið aðalmaðurinn í plottinu gegn
ekkjunni auðugu. Hefði hann ógnað
fjölskyldunni auðugu og krafist fjár
fyrir að verja hana. Spilaborg Jan-
owskis hrundi með eftirminnilegri
játningu sem hann gat þó ekki mælt
úr eigin munni heldur varð að fá einn
frægasta verjanda Frakklands til
þess.
Hann er 64 ára og þar sem svo
langt er í að hann geti sótt um
reynslulausn þykja líkur á að hann
komi aldrei aftur lifandi úr steininum.
Seildist um of í arfinn
Friðsæld ríkir í smáríkinu Mónakó og glæpir ekki daglegt brauð Allra síst stórglæpir eins
og aftaka ríkustu konu dvergríkisins, Helene Pastor Líktist það helst uppgjöri í ítölsku mafíunni
AFP
Í réttarsalnum Teikning sýnir Wojciech Janowski, tengdason Helene Pastor, í réttarsalnum í Aix-en-Provence.
Dóttirin Sylvia Ratkowski, dóttir Hel-
ene Pastor, lá um tíma undir grun.
SVIÐSLJÓS
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Tiltöluleg friðsæld ríkir í smáríkinu
Mónakó við Miðjarðarhaf og glæpir
ekki daglegt brauð, allra síst stór-
glæpir eins og aftaka ríkustu konu
dvergríkisins, hinnar 77 ára gömlu
ekkju, Helene Pastor. Líktist það
helst uppgjöri í ítölsku mafíunni. Við
sögu kom tengdasonur hennar, sem
jafnframt var kaupsýslumaður og
heiðurskonsúll Póllands í Mónakó
þegar morðin áttu sér stað. Réð hann
tengdamóður sinni bana vegna ótta
við að missa ella af arfinum vegna
banvæns sjúkdóms eiginkonu sinnar
og dóttur ríku ekkjunnar. Hugðist
hann ná auðæfum hennar undir sig
áður en kona hans, Sylvia Ratkowski,
dæi. Eftir því sem örvænting hans við
að fá ekki krónu úr búinu eftir dag
eiginkonunnar jókst sá hann sem
einu leiðina að ráða ekkjuna vellauð-
ugu af dögum. Fékk hann leigumorð-
ingja til ódæðisins fyrir milligöngu
einkaþjálfara síns.
Dómsmáli vegna morðanna lauk
fyrir dómstóli í Aix-en-Provence í
Frakklandi í vikunni sem leið. Var
tengdasonurinn, Wojciech Janowski,
dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að
hafa bruggað konunni launráð. Var
hann fundinn sekur um dauða Helene
Pastor svo og bílstjóra hennar, Mo-
hammeds Darwich, sem lést fjórum
dögum seinna af sárum sem hann
hlaut í fyrirsát sem þeim var gerð 6.
maí 2014 í borginni Nice á frönsku
Rivíerunni, skammt frá Mónakó.
Leigumorðinginn og samverkamaður
hans voru einnig dæmdir í lífstíðar-
fangelsi.
Aftaka um hábjartan dag
Skotárásin átti sér stað um há-
bjartan dag fyrir framan sjúkrahúsið
l’Archet en frú Pastor var að koma
frá þeirri daglegu iðju sinni að heim-
sækja veikan 47 ára son sinn Gildo,
sem þar lá vegna heilablóðfalls.
Morðin ollu uppnámi í furstadæminu
Mónakó. Þar hafði Pastor-fjölskyldan
auðgast mjög á kaupum og sölu fast-
eigna. Hafði hún byggt upp gríðar-
legt fasteignaveldi sem taldi um 4.000
íbúðir. Ríkidæmi ekkjunnar var met-
ið á um 12 milljarða evra – jafnvirði
um 1.620 milljarða íslenskra króna –
er hún var vegin. Mun hún hafa átt
einn sjötta allra fasteigna í Mónakó.
Meðan á lögreglurannsókn stóð
játaði Janowski í fyrstu að hafa
skipulagt banatilræðið gegn Helene
Pastor. Hann dró þá játningu síðar til
baka á þeirri forsendu að hann hefði
ekki haft nægt vald á frönsku og mis-
Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is
Frábær smurefni sem einangra, verja
og koma í veg fyrir tæringu eins og
verkfæra o rafma nsvara.
100% eins árs RAKAVÖRN
Reyktur lax
í brunchinn
Söluaðilar:
10-11, Hagkaup, Iceland verslanir,
Kvosin, Melabúðin, Nettó, Samkaup,
Sunnubúðin, Pure Food Hall flug-
stöðinni Keflavík.
Með því að velja
hráefnið af kostgæfni,
nota engin aukaefni og
hafa verkhefðir fyrri tíma
í hávegum, framleiðum við
heilnæmar og bragðgóðar
sjávarafurðir.