Morgunblaðið - 25.10.2018, Síða 42
42 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2018
Sími 555 2992 og 698 7999
Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra
Gott fyrir:
• Maga- og þarmastarfsemi
• Hjarta og æðar
• Ónæmiskerfið
• Kolesterol
• Liðina
Læknar mæla með selaolíunni
Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð
Óblönduð
– meiri virkni Selaolía
Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en
konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika
í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð
að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar
breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið
niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað
áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var
með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir
að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og
húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað
Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni
bætta líðan og heilsu.
Guðfinna Sigurgeirsdóttir.
„Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga
á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Skoðanakannanir í Bandaríkjunum
benda núna til þess að líkurnar á því
að demókratar fari með sigur af
hólmi í þingkosningunum 6. nóv-
ember séu ekki eins miklar og þær
voru fyrir nokkrum mánuðum.
Demókratar eru enn taldir líklegir til
að bæta við sig þingsætum í full-
trúadeild þingsins en óvissa er um
hvort þeim tekst að ná meirihluta í
deildinni eins og þeir vonast til.
Repúblikanar eru með meirihluta í
báðum deildum þingsins, auk þess
sem þeir fengu forsetaembættið í
kosningunum fyrir tveimur árum
þegar Donald Trump náði kjöri þótt
hann hefði aðeins fengið 46% at-
kvæðanna en forsetaefni demókrata
48%. Repúblikanar eru með traustan
meirihluta í fulltrúadeildinni en
naumari í öldungadeildinni þar sem
þeir eru með 51 þingsæti af 100.
Þetta gæti breyst í komandi þing-
kosningum, á miðju kjörtímabili for-
setans, þegar kosið verður um öll 435
sæti fulltrúadeildarinnar og um
þriðjung sætanna í öldungadeildinni,
eða 35.
Stefnir í sigur repúblikana
í öldungadeildinni
Þótt meirihluti repúblikana í öld-
ungadeildinni sé naumari en í full-
trúadeildinni eru líkurnar á því að
demókratar felli hann minni, meðal
annars vegna þess að þeir þurfa að
verja 25 af sætunum 35 og nokkur
þeirra eru í ríkjum þar sem Trump
fékk fleiri atkvæði en forsetaefni
demókrata 2016.
„Demókratar virðast sífellt ólík-
legri til að sigra í öldungadeildinni,“
hefur fréttaveitan AFP eftir David
Lublin, prófessor í stjórnunardeild
American University í Washington.
Bandaríski vefurinn FiveThirty-
Eight, sem er þekktur fyrir tölfræði-
legar rannsóknir á stjórnmálabarátt-
unni, telur líkurnar á því að demó-
kratar fái meirihluta í öldunga-
deildinni aðeins vera 19%. Síðustu
kannanir benda jafnvel til þess að
repúblikanar auki meirihluta sinn í
deildinni um tvö sæti.
Telur 85% líkur á sigri
demókrata í fulltrúadeildinni
Til að fá meirihluta í fulltrúadeild-
inni þurfa demókratar að bæta við
sig 23 sætum. FiveThirtyEight telur
líkurnar á að þeim takist það vera
um 85% eins og staðan er núna.
Stjórnmálavefur Cook Political Re-
port telur líklegt að demókratar bæti
við sig 20 til 40 þingsætum og rekur
það einkum til óvinsælda Trumps í
mikilvægum kjördæmum og óvenju-
mikils áhuga meðal kjósenda demó-
krata á kosningunum. Munurinn á
fylgi flokkanna er þó lítill í 30 kjör-
dæmum og óvissan um niðurstöðu
kosninganna því enn mikil.
Á vef RealClear Politics kemur
fram að meðalfylgi demókrata í síð-
ustu könnunum sé 48,8% og repú-
blikana 41,1%. Í slíkum könnunum
eru þátttakendurnir spurðir hvort
þeir séu líklegir til að kjósa demó-
krata eða repúblikana í kjördæmum
sínum án þess að nöfn frambjóðend-
anna séu nefnd. Til að eiga mögu-
leika á að fá meirihluta í fulltrúa-
deildinni er talið að demókratar þurfi
að vera með verulegt forskot í slíkum
könnunum, eða um það bil sjö pró-
sentustig.
Lublin bendir á að þótt fylgi demó-
krata aukist í þingkosningunum,
einkum í borgum þar sem Trump er
óvinsæll, er ekki víst að það skili sér í
samsvarandi fjölgun þingsæta.
„Demókratar eru mjög sterkir í
borgunum og þéttbýlum svæðum en
hjá repúblikönum er dreifing fylgis-
ins jafnari,“ hefur AFP eftir Lublin.
Hann bendir einnig á að baráttan um
sæti í öldungadeildinni er tvísýnust í
ríkjum þar sem atkvæði kjósenda í
dreifbýli eru talin ráða úrslitum.
Stefnir í óvenjumikla kjörsókn
Kjörsóknin hefur yfirleitt verið lít-
il í kosningum á miðju kjörtímabili
Bandaríkjaforseta en kannanir
benda til þess að áhuginn á komandi
kosningum sé óvenjumikill meðal fé-
laga í báðum flokkunum. Í könnun
sem The Wall Street Journal birti
sögðust nær tveir af hverjum þrem-
ur skráðum kjósendum hafa mikinn
áhuga á kosningunum. Um 72%
demókrata og 68% repúblikana sögð-
ust vera mjög áhugasöm um kosn-
ingarnar. Talið er að áhuginn meðal
kjósenda repúblikana hafi aukist
verulega vegna deilunnar um Brett
Kavanaugh sem öldungadeildin skip-
aði í embætti hæstaréttardómara
fyrr í mánuðinum eftir mikið þref.
Demókratar njóta meiri stuðnings
en repúblikanar meðal óháðra kjós-
enda sem gætu ráðið úrslitum í bar-
áttunni um fulltrúadeildina. Um 41%
þeirra kvaðst styðja demókrata en
27% repúblikana í könnun The Wall
Street Journal. Um þriðjungur
þeirra hefur ekki gert upp hug sinn.
Óháðir kjósendur eru ekki eins lík-
legir til að mæta á kjörstað í kosn-
ingum á miðju kjörtímabili forsetans
og félagar í flokkunum tveimur. Að-
eins 46% óháðra kjósenda sögðust
hafa mikinn áhuga á kosningunum.
Könnunin bendir einnig til þess að
stuðningurinn við demókrata sé 25
prósentustigum meiri en við repú-
blikana meðal kvenna. 57% kvenna
sögðust vilja að demókratar fengju
meirihluta á þinginu en aðeins 32%
vildu frekar repúblikana. Um 52%
karla sögðust vilja að repúblikanar
fengju meirihluta en 38% vildu
demókrata.
Munurinn er enn meiri þegar kjós-
endurnir eru flokkaðir eftir því hvort
þeir búa í borgum eða dreifbýli.
Demókratar eru með 36 prósentu-
stiga forskot í borgunum en repú-
blikanar 31 stigs í dreifbýlum kjör-
dæmum. Munurinn var hins vegar
nánast enginn í útborgunum þar sem
óvissan er mest. Um 45% kjósend-
anna þar sögðust vilja að demókrat-
ar fengju meirihluta en 44% vildu
repúblikana.
Stuðningurinn við Donald Trump
hefur einnig aukist í síðustu könn-
unum. Að meðaltali eru 51,8%
óánægð með forsetann en 44,3%
ánægð, að því er fram kemur á vef
RealClear Politics.
Líkurnar á sigri demókrata minnka
Talið er að demókratar bæti við sig þingsætum í fulltrúadeild Bandaríkjaþings en óvíst er hvort
þeim tekst að ná meirihluta þar Repúblikanar gætu aukið meirihluta sinn í öldungadeildinni
Allar helstu kannanirnar í %, bláa línan (demókratar) og sú rauða (repúblikanar) sýna meðalfylgi flokkanna
Fylgi flokkanna samkvæmt könnunum
Heimild: RealClearPolitics
48,8
41,1
46.5
Repúblikanar
Demókratar
38.8
20
25
30
35
40
45
50
55
60
Okt.
2017
Nóv. Des. Jan.
2018
Febr. Mars Apríl Maí Júní Júlí Ágúst Sept. Okt.
2018
H
H
Hillary ClintonDonald Trump
Baráttusæti í öldungadeildinni
Sigurvegari í ríkinu 2016
INDÍANA
MONTANA
ARIZONA
NEVADA
FLÓRÍDA
TENNESSEE
V-VIRGINÍA
WASHINGTON
N-DAKÓTA
MISSOURI
Heimildir: 270towin, ballotpedia, AFP
Demókrati
Sitjandi þingmaður
Flokkur reynir að verja sæti í ríki þar sem hinn flokkurinn sigraði 2016
Repúblikani
Hóvissa er um úrslitin vegna þess að sitjandi þingmaður er ekki í framboði
eða
Fundu pakkasprengjur
» Grunur leikur á að reynt hafi
verið að senda Barack Obama,
fyrrverandi Bandaríkjaforseta,
og Hillary Clinton, fyrrverandi
forsetaefni demókrata, pakka
sem innihéldu sprengjur.
» Stofnun sem annast öryggi
núverandi og fyrrverandi
Bandaríkjaforseta og fjöl-
skyldna þeirra skýrði frá þessu
í gær. Pakkarnir fundust við
reglubundna leit tæknimanna.
» Tveimur dögum áður fannst
sprengja í pakka á heimili fjár-
málamannsins George Soros
sem bandarískar hægrihreyf-
ingar hatast við. Skrifstofa
CNN í New York-borg var rýmd
eftir að grunsamlegur pakki
fannst þar í gær.