Morgunblaðið - 25.10.2018, Síða 48

Morgunblaðið - 25.10.2018, Síða 48
48 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2018 Nú eru um tvö ár síðan fyrsti heildstæði þjónustusamningur ríkisins við hjúkr- unarheimili landsins var undirritaður. Samningurinn, sem staðfestur var 16. október 2016, var af- urð um 20 mánaða viðræðna milli Sjúkra- trygginga Íslands (SÍ), Samtaka fyrirtækja í velferð- arþjónustu (SFV) og Sambands ís- lenskra sveitarfélaga. Fram að þeim tíma hafði ríkið ekki verið með neinn samning um þjónust- una, heldur greitt einhliða svo- nefnd daggjöld til rekstraraðila heimilanna. Sú framkvæmd hafði verið átalin um árabil af hálfu Rík- isendurskoðunar og fleiri aðila, enda greiðir ríkið árlega marga milljarða króna til reksturs hjúkr- unarrýma. Hjúkrunarheimilin aðþrengd eftir hrun Við upphaf samningaviðræðna í janúar 2015 var fjárhagsstaða hjúkrunarheimila mjög erfið, enda höfðu fjárveitingar til heimilanna verið skornar mjög niður í kjölfar efnahagshrunsins. Öll heimilin höfðu þurft að draga úr þjónustu, flest voru rekin með tapi og þó- nokkur stefndu í gjaldþrot eins og glöggt mátti lesa í skýrslu sem Ríkisendurskoðun gaf út árið 2014. Á meðan viðræðurnar stóðu yfir fengu stjórnir Hrafnistu og Grund- ar óháðan þriðja aðila til að kostn- aðargreina rekstur hjúkrunarheim- ilis sem stæði undir þeim kröfum og viðmiðum sem opinberir aðilar höfðu lagt á starfsemina, svokall- aða kröfulýsingu, sem framfylgt er í úttektum þeirra á þjónustunni. Niðurstaðan var sú að það vantaði um 30% upp á fjárhæð daggjalds hjúkrunarheimila til að hægt væri að standa undir kröfum og við- miðum hins opinbera. Að miklu leyti vegna þessarar staðreyndar tók samningaferlið langan tíma. Að endingu var sérstaklega um það rætt og gert skriflegt samkomulag þess efnis að rekstrarframlög rík- isins yrðu aukin og að á samnings- tímanum yrði skoðuð betur fjár- mögnun rammasamningsins og rekstur hjúkrunarheimila almennt. Einnig voru reistar nokkrar „vörð- ur“ varðandi einstaka þætti sem skoða átti á samningstímanum, t.a.m. varðandi húsnæðiskostnað. Nú, þegar um tíu vikur eru eftir af gildistíma samningsins er ekki komin niðurstaða í neinn þessara þátta. Ríkið rekur hjúkrunarrými á öðrum rekstrargrunni Vegna mikils fráflæðisvanda og skorts á hjúkrunarrýmum starf- rækir ríkisvaldið, eða Landspítal- inn í umboði þess, hjúkrunarrými á Vífilsstöðum og Landakoti enda þótt það sé lögum samkvæmt ekki hlutverk sjúkrahússins að vera rekið sem öldrunarstofnun eins og forsvarsmenn spítalans hafa marg- bent á. Okkur sem erum í forsvari fyrir SFV og samninganefnd í við- ræðum við ríkið finnst samt sem áður rétt að benda á að raunkostn- aður Landspítalans á árinu 2015 vegna reksturs Vífilsstaða var um 50 þúsund krónur á dag, fyrir hvert rými. Raunkostnaður spítal- ans sama ár vegna reksturs Landakots var tæpar 67 þúsund krónur á dag. Á sama tíma námu greiðslur ríkisins til hjúkrunar- heimila að meðaltali 27 þúsund krónum á dag. Það sér því hver maður að greiðslur ríkisins til hjúkrunarheimilanna eru allt, allt of lágar. Samkvæmt hinni óháðu úttekt sem nefnd var hér að ofan hefðu greiðslur til hjúkrunarheim- ilanna átt að vera rúmlega 41 þús- und krónur á dag á verðlagi ársins 2016. Áform um frekari niðurskurð Rammasamningur SÍ fyrir þjón- ustu hjúkrunarheimila rennur út um áramótin. Samningaviðræður um framlengingu samnings hófust í júlí eftir ítrekaðar beiðnir SFV þess efnis. Á gildistíma ramma- samningsins hefur því miður ein- ungis verið skorið niður í fram- lögum til hjúkrunarheimila og bætt við íþyngjandi opinberum kröfum, t.d. varðandi persónu- vernd án þess að fjármagn fylgdi. Þá er áformað að skerða fjár- framlög til hjúkrunarheimila sam- kvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2019, 2020 og 2021 þrátt fyrir að í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segi orðrétt: „Einnig verður hugað að því að styrkja rekstrargrund- völl hjúkrunarheimila ...“. Engar rekstrarlegar forsendur liggja að baki fyrirhuguðum skerðingum. Óvissa um framlengingu Erfitt er að sjá hvernig samn- ingsaðilar eiga að ná saman um framlengingu rammasamningsins undir þessum kringumstæðum sem að framan er lýst. Samningurinn er sá stærsti sem Sjúkratrygg- ingar Íslands hafa gert, en greidd- ir voru tæpir 27 milljarðar á grundvelli samningsins árið 2017. Hætta er á að samningurinn renni út þann 31. desember nk. og að fullkomin óvissa blasi við þeim 45 hjúkrunarheimilum sem starfa samkvæmt samningnum. Við skor- um því eindregið á stjórnvöld að þau endurmeti fyrirhuguð framlög til öldrunarstofnana sem kynnt eru í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2019 og standi við þau fyrirheit sem forystumenn flokkanna lýstu í kosningabaráttunni og sem hnykkt er á í stjórnarsáttmála ríkisstjórn- arinnar. Hillir undir lok þjónustusamnings við hjúkrunarheimili landsins Eftir Björn Bjarka Þorsteinsson og Ey- björgu Hauksdóttur »Raunkostnaður LSH af rekstri Vífilsstaða var um 50 þús. krónur á mann á dag árið 2015. Ríkið greiðir hjúkr- unarheimilunum 27 þús. krónur á dag. Björn Bjarki Þorsteinsson Höfundar eru varaformaður og framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Eybjörg Hauksdóttir Réttilega hafa skapast miklar um- ræður um Braggann við Nauthólsveg 100. Það gríðarlega sukk sem hefur verið með fjármuni borgarbúa er sorglegt dæmi um þá miklu óstjórn sem er í Reykjavík. Því miður er Bragginn aðeins eitt dæmi um þá fjármálaóreiðu sem viðgengist hefur. 800 milljóna króna framúrkeyrsla hefur orðið á þremur verkefnum: Bragganum, Írabakka og Hlemmi mathöll. Þetta eru aðeins þrjú af fjölmörg- um verkefnum. Það væri hægt að gera mikið fyrir leik- og grunn- skóla eða heimilislausa fyrir þess- ar 800 milljónir. Engan skyldi undra að allir skattar og gjöld séu í hámarki og ekki hafi tekist að greiða niður skuldir. Fjármálaóstjórn Staðreyndin er sú að skuldir borgarsjóðs hafa aukist nálægt milljarði á mánuði síðastliðin fjög- ur ár. Það eru um fjörutíu millj- arðar. Þetta er að gerast í lengsta og mesta tekjugóðæri sem skapast hefur. Hvernig má það vera, það er eins og óstjórn ríki þegar kem- ur að fjármálum borgarinnar. Við erum með borgarstjóra sem á að stjórna líkt og framkvæmdastjóri í fyrirtæki. Gæluverkefni virðast ganga fyrir uppbyggingu á grunn- þjónustu. Ef þeir sem sitja í skipstjóra- stólnum, líkt og borgarstjóri, vita ekkert um mál eins og Braggann, til hvers erum við þá með borgar- stjóra og kjörna fulltrúa? Það er borgarstjóri ásamt sínum meiri- hluta sem á að bera ábyrgð á rekstri Reykjavíkur- borgar. Borgarstjóri er ekki bara til þess að brosa framan í myndavélar á tyllidög- um. Við erum að reka eitt af stærstu fyrir- tækjum landsins með skattpeningum borg- arbúa. Ef ekki er hægt að gera það með gagnsæi og af virð- ingu við þá sem borga brúsann er illa komið fyrir okkur öllum. Leiðindamál sem virðist vera óþarfi að svara fyrir Þetta er allt hið vandræðaleg- asta mál og eftir því sem kafað er dýpra ofn í það því furðulegra verður það. Það undarlegasta er þó að núverandi meirihluti vill sem minnst ræða um málið, því hefur verið skotið til innri endur- skoðunar Reykjavíkurborgar, á meðan á ekki að ræða það nema um það að hugsanlega hafi mistök átt sér stað. Það síðasta sem ég hugsa um er orðið mistök þegar ég hugsa um Braggann, Írabakka og Hlemm mathöll. Það geta allir gert mistök og þau er hægt að fyrirgefa, en það að fara fram úr áætlunum svo hundruðum milljóna skiptir er ekki mistök, það er mun alvar- legra en svo. Hvers vegna þurf- um við borgarstjóra eða borgarstjórn? Eftir Valgerði Sigurðardóttur Valgerður Sigurðardóttir » Það að fara fram úr áætlunum svo hundruðum milljóna skiptir er ekki mistök, það er mun alvarlegra en svo. Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks. Allt um sjávarútveg LAGER- HREINSUN Á LAUGAVEGI 61 Gull, demantar og vönduð úr 50-70%AFSLÁTTUR Laugavegur 61 | Kringlan | Smáralind | sími 552 4910 | www.jonogoskar.is Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.