Morgunblaðið - 25.10.2018, Page 52

Morgunblaðið - 25.10.2018, Page 52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2018 FALLEG OG VÖNDUÐ LEIKFÖNG Kíktu á netverslun okkar bambus.is Borgartún 3, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14 úr náttúrulegum efnivið, tré og silki LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 AIR OPTIX® COLORS Linsur í lit Guðrún Selma Sigurjónsdóttir gudrunselma@mbl.is Íris Hrund Stefánsdóttir hársnyrtir á Manhattan er ein af þeim sem hafa tileinkað sér það að fasta. Íris Hrund fastar ekki til þess að léttast heldur segir sér einfaldlega líða bet- ur þegar hún fastar og lítur á föst- una sem skipulag á mataræði sínu. „Ég ákvað að prófa að fasta fyrir nokkrum mánuðum. Ég hef alltaf verið sú týpa sem borðar ekki morgunmat en borða mikið seinni- partinn. Mér fannst þetta henta mér virkilega vel því ég hef alltaf verið að fasta ómeðvitað. Ég byrjaði hægt og lengdi tímann alltaf meira með hverjum deginum. Byrjaði markvisst að spá í klukkan hvað fyrsta máltíð mín var, hætti að setja mjólk í morgunkaffið, hætti að fá mér kvöldsnarl þegar ég þurfti þess ekki og þess háttar,“ segir Íris Hrund. Íris Hrund hættir að borða klukkan átta á kvöldin og fastar fram að hádegi. Hún æfir crossfit flest alla morgna og fer því fastandi á æfingu. Þá daga sem hún æfir ekki fastar hún aðeins lengur og borðar aðeins í fimm, sex tíma á dag. Íris Hrund segir þá klukku- tíma sem hún borðar vera alveg nægan til þess að fá allar kaloríur sem hún þarf yfir daginn. „Ég er ekki að nota föstuna til að léttast. Mér líður einfaldlega betur þegar ég fasta daglega og leyfi lík- amanum að melta það sem ég borð- aði yfir daginn,“ segir Íris Hrund sem leyfir sér skyndibita og nammi þegar hún vill þó svo að hún tími ekki oft að „sóa“ máltíð í hamborg- aratilboð. Það er töluvert síðan að Íris Hrund tileinkaði sér vegan- lífsstíl og með því minnkaði óholl- ustan enda ekki mikið sukk í boði. Undafarið hafa valmöguleikar fólks á vegan-mataræði stóraukist og segist Íris Hrund því stundum fá sér vegan-skyndibita. Íris Hrund ólst upp sem kjötæta en segir margt hafa batnað eftir að hún breytti lífsstílnum fyrir þremur árum. „Ég ákvað að hætta að neyta dýraafurða og hef aldrei verið heil- brigðari. Ég er með mjólkuróþol, var hrikalega lág í járni, d-vítamíni og b12 sem er allt búið að lagast. Einnig er ég með PCOS og breytt mataræði hafði hrikalega góð áhrif. Eftir að ég byrjaði að fasta þá hafa einkennin skánað enn meir.“ Íris Hrund segist einnig hafa prófað sa- fakúr en reynslan af því var ekki jafn góð og af vegan-mataræðinu og föstunni. Hún segist hafa verið sí- svöng á því. Frekar fastar hún með því að drekka vatn í stað safa. Mörgum finnst erfitt að breyta matarvenjum sínum en Íris Hrund segir það ekki hafa verið erfitt að byrja að fasta þegar hún er spurð hver galdurinn sé. „Galdurinn við það að gefast ekki upp á að fasta er einfaldlega sá að þetta er ekki mataræði. Þetta er lífsstíll. Þú tekur meðvitaða ákvörð- un um að borða á ákveðnum tíma og ef þú ert sáttur við það þá bætirðu einni klukkustund við. Þetta snýst ekki um að fasta í nákvæmlega 16 klukkustundir, þetta snýst um að gera sitt besta og að vera meðvit- aður um hvað þú ert að láta ofan í þig. Ef þú átt nokkra tíma eftir af föstutímanum en þú ert að fara í matarboð þá er allt í lagi að stytta föstutímann aðeins. Ef þetta er strangt og erfitt, þá er þetta ekki rétta leiðin fyrir mann og maður þarf að venja líkamann.“ Fastar ekki til að léttast Íris Hrund Stefánsdóttir fastar frá átta á kvöldin fram að hádegi. Íris Hrund er líka vegan og líður mun betur eftir að hún hætti fyrst að borða kjöt og síðan eftir að hún byrjaði að fasta. Morgunblaðið/Eggert Vellíðan Íris Hrund breytti um lífsstíl. Hún er vegan og svo fastar hún líka. Marta María mm@mbl.is Smartland fjallaði um eignina 14. ágúst en húseignin er ákaflega glæsileg á allan hátt. Fiskibeina-parket er á gólfum og innrétt- ingar ákaflega vandaðar. Úr húsinu er gott útsýni yfir á Bessastaði eða allavegar þegar það er heiðskírt og ekki skafrenningur. Það mun því ekki fara illa um fjölskyld- una þar sem vítt er til veggja, bjart og fal- legt um að litast innandyra. Hægt er að skoða húsið nánar inn á www.smartland.is Helga Sverrisdóttir og Bjarni Ármannsson keyptu fasteignina Ægisíðu 78. Bjarni og Helga keyptu 504 fm við Ægisíðu Bjarni Ármannsson fjárfestir og Helga Sverrisdóttir hjúkrunarfræðingur hafa fest kaup á fasteign við Ægisíðu í Reykjavík. Um er að ræða 504 fm einbýli sem byggt var 1953. Bjarni Ármannsson og Helga Sverrisdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.