Morgunblaðið - 25.10.2018, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 25.10.2018, Blaðsíða 59
til stóð að færa lagnagrindina út og undir hús. Hannes var að ýta þungum hjólbörunum upp gras- brekku og fann þá að eitthvað var að heilsunni. Hann nýtti tím- ann vel með okkur nánustu og fór t.d. í langa bíltúra á slóðir sem hann vildi sjá og margt var spjallað. Ég er óendanlega þakklátur fyrir tímann með Hannesi og mun sakna hans sárt. Jón Einarsson. Elsku afi minn, Hannes. Það var alltaf notalegt að koma í heimsókn til afa og ömmu í sumarbústaðinn á Flúðum. Afi vildi hafa alla hjá sér og njóta þess að vera saman, syngja og dansa. Ég hafði oft orð á því við mömmu þegar ég var lítil, hvort við gætum farið í bústaðinn til afa, því þar væri alltaf svo mikið „stuð“. Afi kom oft í heimsókn, fékk sér kaffisopa og spjallaði. Oftast var hann, að koma úr verkfæra- búð, þar sem hann hafði keypt varahlut í það sem hann var að búa til í bílskúrnum þá stundina; bátinn eða fjórhjólið. Afi var ótrúlega laghentur. Ég gat alltaf leitað til hans ef eitthvað þurfti að gera við, þá fór hann í verkið. Hann gat allt. Elsku afi. Takk fyrir allar stundirnar saman, þær eru mér svo dýrmætar. Við Aron Snorri munum geyma minningarnar um þig í hjarta okkar. Helga Rut Snorradóttir. Hannes afi var yndislegur maður. Einstaklega hlý nærvera og lúmskur húmor litaði per- sónuleika hans – alltaf var stutt í bros og hlátur. Hann gat verið hnyttinn og gantaðist aðeins í manni, en hafði á sama tíma gaman af sjálfum sér. Afi var mikill hugsuður. Hann var uppfullur af fróðleik og sög- um sem hann hafði safnað að sér í gegnum tíðina og það var nán- ast hægt að tala við hann um allt. Og ef honum fannst hann ekki nógu vel að sér í einhverju, þá spurði hann og vildi læra meira. Afi var hæfileikaríkur maður. Allt lék í höndunum á honum – þá sérstaklega ef það viðkom vélum og farartækjum, og þó gat hann allt annað líka. Með þraut- seigju, þrjósku og þolinmæði náði hann sínu fram og kom öllu í verk sem hann vildi. Ef maður var í veseni með eitthvað gerði hann allt sem hann gat til að hjálpa og finna lausnir. Fram- kvæmdagleðin var mikil hjá afa og má segja að það hafi verið hans ástríða. Óteljandi minningar koma upp í hugann þegar við hugsum til allra dýrmætu stundanna sem við áttum með afa og hvað þær skildu alltaf mikið eftir sig. Elsku afi, minning þín lifir í hjörtum okkar allra og við erum óendanlega þakklát fyrir að hafa kynnst þér. Vonandi ertu á góð- um stað, umvafinn ljósi, kær- leika og friði. Við eigum minningar um brosið bjarta, lífsgleði og marga góða stund, um mann sem átti gott og göfugt hjarta sem gengið hefur á guðs síns fund. Hann afi lifa mun um eilífð alla til æðri heima stíga þetta spor. Og eins og blómin fljótt að frosti falla þau fögur lifna aftur næsta vor. (Guðrún Vagnsdóttir) Dagmar og Sigurjón. MINNINGAR 59 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2018 Það var erfitt og mikið högg þann 23. september þeg- ar mín kæra mág- kona hringdi til að láta mig vita að minn kæri bróðir hefði orðið bráðkvaddur um nóttina þar sem þau voru í fríi úti á Te- nerife. Það eru svo margar minn- ingar sem hrannast upp í huga mínum. Um okkur þrjú systkini, tvær systur og litla bróður (prinsinn okkar) hann Gunnar, í æsku á Kárastígnum þar sem við ólumst upp okkar fyrstu ár, mamma ung ekkja með börnin þrjú. Síðar fluttum við á Njáls- götuna þegar góður stjúpfaðir var kominn og lítil systir bættist í hópinn okkar. Gunnar var alltaf góður og mér traustur vinur alla tíð og kært á milli okkar. Hann var skemmtilegur, gat verið stríðinn og hló dillandi hlátri í fjöl- skylduboðum og vinahóp. Hann kynntist yndislegri Hröbbu sinni ungur að árum, þau áttu yfir 50 ár saman og seinni ár unnu þau líka saman í Verkfæralagernum sem þau stofnuðu fyrir mörgum árum af miklum dugnaði. Nú seinni ár ferðust þau til Þýskalands, Gunnar Brynjólfsson ✝ Gunnar Brynj-ólfsson fæddist 10. apríl 1947. Hann lést 23. sept- ember 2018. Gunnar var jarð- sunginn 16. októ- ber 2018. Spánar og fleiri staða, þessi sam- hentu hjón, einnig var farið í sum- arbústaðinn þeirra, þar var notalegt að vera. Ég á eftir að sakna símtala okk- ar Gunnars sem við áttum reglulega og spjölluðum um allt mögulegt, bara til að heyrast. Gunnar og Hrafnhildur eign- uðust einn son, Brynjólf, og barnabörnin Söru og Ölmu, gull- molana þeirra Gunnars og Hröbbu, sem þau dýrkuðu. Gunnar var einstaklega góður við öll börn, frændur og frænk- ur. Hann geislaði þegar hann talaði um sín barnabörn og stoltur var hann af syni sínum. Eftir alvarlegt hjartaáfall fyr- ir mörgum árum var heilsan hjá Gunnari orðin léleg og sérstak- lega núna seinni árin. Hrabba umvafði hann með natni og hlýju alla tíð, svo heppinn var Gunnar með sinn lífsförunaut sem hann mat mikils. Við áttum margar góðar stundir með fjölskyldunni í gegnum árin svo þín verður sárt saknað, elsku bróðir. Ég sé þig fyrir mér núna sprækan og hraustan í sól við sumarbústað og vatnsbakka með veiðistöng í hendi. Hvíl í friði, kæri bróðir. Megi góði guð styrkja Hrafnhildi, Binna, barnabörn og fjölskyldu í okkar sorg. Sigríður (Sidda). Kl. 17:00 AUKIN AÐSTOÐ – BÆTT ÞJÓNUSTA Elín Sigrún Jónsdóttir lögfræðingur og framkvæmdastjóri ÚK ræðir um reynsluna af nýrri, aukinni og persónulegri þjónustu. Kl. 17:15 HVAÐ MÁ OG HVAÐ MÁ EKKI? Sr. Guðrún Karls Helgudóttir spyr útfararstjórana Jón G. Bjarnason og Magnús Sævar Magnússon spjörunum úr. Kl. 17:30 KAMPAVÍN OG BALLÖÐUR Erum við að missa stjórn? Er það slæmt? Breytt samfélagsgerð kallar á nýja nálgun. Sigrún Óskarsdóttir guðfræðingur hjá ÚK fjallar um mikilvægi samtalsins og ólíkar þarfir aðstandenda við kveðjustund. Hefðin er sterk og rík en ekki meitluð í stein. Kl. 17:45 ÓSKALAGIÐ Katrín Halldóra Sigurðardóttir, söngkona. Undirleikur Hákon Leifsson, organisti. Kl. 18:00 HLÉ – Boðið upp á léttar veitingar. Kl. 18:15 AF HVERJU ÆTTI ÉG AÐ GERA ERFÐASKRÁ OG KAUPMÁLA? ER UNNT AÐ FÁ STYRKI VEGNA ÚTFARARKOSTNAÐAR? Sr. Grétar Halldór Gunnarsson spyr Kötlu Þorsteinsdóttir, lögfræðing og Emilíu Jónsdóttur, félagsráðgjafa ÚK út í ýmis mál sem honum liggja á hjarta. Kl. 18:30 EINSÖNGSLAGIÐ Gissur Páll Gissurarson, óperusöngvari. Undirleikur Hákon Leifsson, organisti. Kl. 18:40 AF SJÓNARHÓLI SYRGJANDANS „Þá grét Guðrún Gjúkadóttir“ Vilborg Davíðsdóttir, rithöfundur sat við dánarbeð fimm ástvina á fimm árum og stofnaði ásamt öðrum samtökin Ljónshjarta til stuðnings ungum ekkjum og ekklum. Hún deilir sýn sinni á útfararsiði sem hjálp í sorgarúrvinnslu aðstandenda og gildi sorgartjáningar sem er orðin æ algengari á samfélagsmiðlum síðustu misseri. Kl. 18:55 SAMANTEKT FUNDARSTJÓRA Sr. Arna Ýrr Sigurðar. FRÆÐSLUFUNDUR ÚTFARARSTOFU KIRKJUGARÐANNA Grafarvogskirkju 30. október frá kl. 17.00 til kl. 19.00 Hvað vil ég? AÐ LEIÐARLOKUM Elskulegur sonur okkar, bróðir, mágur og frændi, ÁRNI GRÉTARSSON, Gilstúni 9, Sauðárkróki, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri þriðjudaginn 16. október. Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 27. október klukkan 14. Grétar Jónsson Ingibjörg Árnadóttir Petrea Grétarsdóttir Margrét Grétarsdóttir Páll Sighvatsson Jóhanna Grétarsdóttir Jón Grétarsson Hrefna Hafsteinsdóttir og systkinasynir Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, STEINGERÐUR JÓNSDÓTTIR frá Húsanesi, síðar Hjallabraut 33, Hafnarfirði, lést á Hrafnistu sunnudaginn 21. október. Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 30. október klukkan 13. Sveinn Gunnlaugsson Sigríður Sigtryggsdóttir Pétur Pétursson Agnes Sigtryggsdóttir Siamack Atiabi barnabörn og barnabarnabörn Björg Jónsdóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Minningargreinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.