Morgunblaðið - 25.10.2018, Síða 63

Morgunblaðið - 25.10.2018, Síða 63
MINNINGAR 63 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2018 ✝ Bergljót Har-aldsdóttir var fædd að Undir- vegg í Keldu- hverfi 6. desem- ber 1922. Hún lést á Sólvangi 15. október 2018. Foreldrar hennar voru Kristbjörg Stef- ánsdóttir, f. 15. október 1887 að Hrafnsstöðum í Bárðardal, lést 1922, og Haraldur Sig- urðsson, f. 9. júlí 1885 að Meiðavöllum í Kelduhverfi, lést 1963. Systkini Bergljótar eru: 1) Kristín Gunnþóra Har- aldsdóttir, f. 1913, lést 2004. dóttur og eitt barnabarn. 2) Jóhanna Margrét, f. 1945. Hún á einn son og þrjú barnabörn. 3) Markús, f. 1947. Hann á þrjú börn, átta barnabörn og eitt barnabarnabarn. 4) Jón Friðrik, f. 1947. Barnlaus. 5) Jökull, f. 1950, lést 1951. 6) Kristbjörg French, f. 1954. Hún á fjóra syni og fjögur barnabörn. 7) Ástríð- ur Halldóra, f. 1956. Hún á tvær dætur og sex barna- börn. Bergljót vann ýmis störf, t.d. framreiðslustörf í Val- höll á Þingvöllum, umönn- unarstörf á Bláa bandinu, vann á síldarplaninu á Raufarhöfn eitt sumar, vann í Ingólfskaffi og síð- ustu árin umönnunarstörf á Borgarspítalanum. Útför Bergljótar fer fram frá Háteigskirkju í dag, 25. október 2018, klukkan 13. 2) Sigurður Þór- arinn Haraldsson, f. 1916, lést 1995. 3) Drengur, f. 1918, lést 1918. 4) Jón Friðrik Har- aldsson, f. 1919, lést 1946. 5) Kristbjörg Har- aldsdóttir, f. 1922. Um tvítugt flutti Bergljót suður og kynntist mannsefni sínu Sigurd Evje. Þau fluttust að Svartagili í Þingvallasveit. Þar eignaðist hún sjö börn: Þau eru: 1) Hrafnhildur Erla, f. 1942, lést 2012. Hún á eina Það er skrítið og óendanlega sorglegt að setjast niður og skrifa minningargrein um elsku bestu Beggu ömmu. En ég veit að hún er hvíldinni fegin eftir langa og viðburðaríka ævi. Begga amma er af kynslóð sem fæðist á fyrra hluta seinustu aldar og er líklega með síðustu Íslendingum með alvöru víkinga- blóð í æðum sínum. Að hlusta á ömmu lýsa aðstæðum í uppvexti sínum eða þegar hún var ung móðir var eins og hún væri að lesa kafla úr Sjálfstæðu fólki eftir Halldór Laxness. Það var oft þröngt í búi og virkilega barist fyrir lífi sínu og sinna. Eljan í ömmu lýsti sér vel þeg- ar hún keypti íbúðina sína í Álfta- mýri í Reykjavík um miðja síð- ustu öld. Þá fór hún á fund bankastjórans og fékk lán upp á sinn drengskap og heiður. Vann svo hörðum höndum til að greiða það lán og missti aldrei úr greiðslu. Þetta er svolítið ólíkt þeirri skriffinnsku og greiðslu- mati sem ungt fólk þarf að eiga við á Íslandi í dag. Ég mun aldrei hætta að vitna í dugnað og aga Beggu ömmu í þeim heilsufyrirlestrum sem ég held reglulega fyrir landsmenn. Því þegar amma var rúmlega ní- ræð var hún enn að fara 2-3 ferðir á dag í stigaganginum í Álfta- mýrinni á veturna, því veður leyfði ekki útigöngur. Ég ætla að vera jafn mikil fyrirmynd í heilsueflingu og amma var þegar ég verð níræður. Prjónaskapur og pönnukökur er eitthvað sem óhjákvæmilega kemur upp í huga minn þegar ég hugsa um Beggu ömmu. Ég er enn að ylja mér á öllum þeim prjónaskap sem ég hef fengið í gjafir frá ömmu í gegnum tíðina og pönnsurnar hennar lands- frægar og nær frægð þeirra alla leið til sólarstranda Benidorm. Ég mun sakna ömmu mikið en mun um ókomna framtíð segja dætrum mínum sögur af henni og vona að ég nái að halda minningu hennar á lofti. Þær náðu nú sem betur fer allar þrjár að knúsa hana áður en Draumalandið kall- aði. Ef það er til himnaríki þá er amma þar að spila félagsvist við Binna afa, það eru pönnsur til handa öllum og harmónikkutón- list hljómar á fóninum. Lífs þá endar labb og stjá, léttur eins og hnöttur, upp til himins heimi frá hoppaðu eins og köttur. (Þórarinn Sveinsson frá Kílakoti) Hvíl í friði, elsku amma. Þinn, Geir Gunnar. Við eins árs aldur var ég orðin ansi fátæk af (lang)ömmum og öf- um og því var ágætt að þú, eina amman mín, værir með persónu- leika á við þrjár. Þú varst alltaf svo stolt af mér, sama hversu lít- ilfjörleg afrek mín voru, og lést mér ævinlega líða þannig að ég gæti vel sigrað heiminn ef mér sýndist svo. Nú þegar þú situr al- sæl og heilbrigð í blómabrekk- unni, búin að skilja við líkamann sem fjötraði þig síðustu æviárin, flæða minningar um þig fram í huga mér og hjarta. Minningar um kandísinn sem þú áttir alltaf þegar ég var lítil og að þú þóttist ekki taka eftir því þegar ég fékk mér mola í sjötta sinn. Allir sokk- arnir og vettlingarnir sem þú prjónaðir á mig og mína. Öll spilin og vinátta þín við afa Binna sem ég vildi svo gjarnan að yrði maðurinn þinn. Þá gætuð þið alltaf spilað og enginn þyrfti að vera einmana. Utanlandsferðirn- ar þínar sem voru, í barnshug- anum, stundum svo margar að ég hélt að þú myndir breytast í út- lending. Geta þín til að gera fólk gjörsamlega kjaftstopp, það hversu hrein og bein þú varst og brosið þitt sem reyndi stundum að ná allan hringinn. Jafnframt minnist ég allra áfallanna sem þú þurftir að þola á þinni löngu ævi og getu þinnar til að standa alltaf upp aftur. Næstsíðasta dag þinn í þessari jarðvist spilaði ég fyrir þig lag, Ömmulagið, og mér finnst viðeigandi að lofa texta þess að fylgja hér með. [...] Þegar þú ert dáin, gakktu út í bláinn þar sem bíður þráin eftir þér. Allt sem ekki máttir meðan lífið áttir mátt’ í allar áttir útí blánum trúðu mér. Þú mátt klífa tinda og þú mátt hlaup’ og synda og þú mátt vera þar sem sólin skín. Og þú mátt liggja dreymin og þú mátt svífa um geiminn og mála allan heiminn, allan heiminn amma mín. [...] Og ef til vill að ofan í gegnum blámann, roðann er útsýnið ögn öðruvísi en hér. Þú lítur yfir lífið, baráttuna, stríðið með söknuði og kannski líka þökk í hjarta þér. (Hljómsveitin Eva) Takk fyrir allt, elsku amma mín. Þín sonardóttir, Linda Björk. Elsku Beggan mín. Haustið 1995 kom Begga sem farþegi til Benidorm, Levante Club, þar sem einn af fararstjórum var undirritaður. Ekki grunaði mig að við ættum eftir að verða þeir góðu og traustu vinir sem raun varð á þrátt fyrir nokkurn ald- ursmun. Eitthvað tengdi okkur strax sem ekki er hægt að út- skýra. Begga var með á hreinu að ég væri ég gömul sál og við hefðum hist áður. „Svo ræðum við það ekki aftur,“ sagði hún og það stóð, Begga skynjaði mig og skildi alla tíð bæði í sorg og gleði, og einhvern veginn finnst mér að hún hafi alltaf fylgt mér og geri enn. Það var ekkert pláss fyrir leið- indi í dagsferðum okkar á Íslandi og alltaf var ég bílstjóri nema þegar hún keyrði eitt sinn stóra jeppann minn á strönd. Hún horfði að vísu undir stýrið og náði ekki á pedalana en það skipti ekki máli, hún var að keyra. Kveð elsku Beggu mína með þökk fyrir það sem hún hef- ur kennt mér um lífið og það er svo sannarlega gott veganesti. Geymi hjá mér allar minningar um okkar frábæru stundir sem við áttum saman. Þinn Ingólfur (Ingó). Það var sumarið 1964 að inn í þvottahúsið á Uppsalavegi 12 snaraðist hress kona á besta aldri með bros á vör. Er hún sá dóttur mína þriggja á gamla sagði hún „þetta er dóttir Sissu, hún er svo lík henni“. Þetta eru fyrstu kynni mín af Beggu frá Kílakoti. Bergljót og Kristbjörg tví- burasystir hennar voru fæddar 6. desember 1922. Móðir þeirra dó eftir fæðingu þeirra, Begga var tekin í fóstur í Kílakot en Dodda í Lón í Kelduhverfi. Þær systur voru gríðarlega ólíkar enda lífs- hlaup þeirra ólíkt. Begga fluttist ung suður, giftist og eignaðist sín börn og bjó í Svartagili í Þing- vallasveit. Við brunann í Svartagili og skilnað þeirra hjóna fluttist Begga til Reykjavíkur ásamt börnum sínum. Þegar blokkirnar við Álftamýri voru byggðar fór hún á fund borgarstjóra Reykja- víkur sem þá var Jóhann Haf- stein sem síðar varð forsætisráð- herra. Þau þekktust því Jóhann hafði verið í sveit í Kílakoti sem dreng- ur og sótti hún um tveggja her- bergja íbúð hjá borginni sem hún fékk, „út á andlit mitt og kunn- ingsskap“ eins og hún orðaði það ætíð sjálf, „ en ég stóð líka við mitt“ sagði hún eins og hún gerði ævinlega. Begga stóð svo sannarlega við sitt, lagði mikið á sig og vann langan vinnudag til að standa skil á sínu og skapa sér og sínum þetta fallega heimili. En nú skilja leiðir, Begga hef- ur fengið langþráða hvíld og skil- ið við þetta tilverusvið. Við sendum börnum og afkom- endum öllum okkar bestu sam- úðarkveðjur. Minnumst ógleymanlegra samverustunda og hlýrra mót- takna á heimili Beggu. Minnumst áratuga vináttu sem aldrei bar skugga á. Guð geymi þig. Þínir vinir, Gunnar og Sigríður, Akureyri. Bergljót Haraldsdóttir Árið 1999 fluttum við hjónin í nýtt hús á Dalbraut 16. Þar kynntumst við mörgu góðu fólki, þar á meðal Sigurjóni Ágústssyni og Grétu konu hans, en við þekktum þau lítillega áður í gegnum elsta son okkar, Ara, og tengdadóttur Guð- björgu Sesselju. Þau áttu sumarhús í nágrenni við Ara og fjölskyldu og eins Gísla bróður minn og hans fjöl- skyldu. Með okkur tókst fljótlega órjúfanleg vinátta. Þau voru afar ólík. Á þeim var 15 ára aldurs- munur sem Sigurjón kvað með vilja gert – hún myndi annast hann í ellinni. Minn maður andaðist árið 2001. Þegar við komum heim eft- ir að hafa vakað með honum síð- ustu nóttina kom Sigurjón með blómvönd til mín – slík var þeirra hugulsemi. Þegar leið að 80 ára afmæli Sigurjóns árið 2004 stakk Gréta upp á að ég kæmi með þeim til Færeyja með Norrænu og við tækjum „grænu Grétu“ með (bíl- Sigurjón Ágústsson ✝ SigurjónÁgústsson fæddist 4. ágúst 1924. Hann lést 6. október 2018. Útför Sigurjóns fór fram 16. októ- ber 2018. inn). Er ekki að orð- lengja það – þetta varð hin yndisleg- asta ferð – sól og blíða svo til alla dag- ana, bæði hér á landi og í Færeyj- um. Við höfðum tekið upp á þeim sið að drekka saman morgunkaffi og spila nokkra um- ganga af rommí og áttum við þrjú saman margar góðar stundir, sumarferðir og í raun vetrarferð- ir líka því við fórum alltaf í skóg- inn þeirra og sóttum jólatré á hverju ári. Þau hjónin voru miklar barna- gælur og nutu barnabörnin mín þess í ríkum mæli. Þetta voru yndisleg ár sem urðu þó allt of fá, Gréta veiktist og dó svo langt fyr- ir aldur fram. Við Sigurjón héldum áfram morgunspilamennskunni okkar svo lengi sem hans heilsa leyfði en síðustu árin dvaldi hann á hjúkrunarheimili. Og nú er Sigurjón vinur okkar allur. Slæmt þótti mér að geta ekki fylgt honum síðasta spölinn en hugga mig við að hann hafi fengið góðar viðtökur hinum megin. Ég sendi börnum þeirra og af- komendum innilegar samúðar- kveðjur. Anna Margrét Jafetsdóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORKELL SKÚLASON endurskoðandi, sem lést 13. október, verður jarðsunginn frá Hjallakirkju, Kópavogi, föstudaginn 26. október klukkan 13. Ólafía Katrín Hansdóttir Valdís Brynja Þorkelsdóttir Ingiríður H. Þorkelsdóttir Elsa Sigurveig Þorkelsdóttir Már Guðmundsson Indriði Þorkelsson Anna María Soffíudóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur faðir, tengdafaðir, bróðir, afi, og langafi, ÞORGRÍMUR Á. GUÐMANNSSON Lerkidal 20, Reykjanesbæ, áður Hraunbæ 108, Reykjavík, lést á heimili sínu miðvikudaginn 17. október. Útförin fer fram frá Áskirkju föstudaginn 26. október klukkan 13. Okkar innilegustu þakkir til allra sem sýnt hafa okkur samúð og hlýhug. Þorbjörg K. Þorgrímsdóttir Ragnar A. Gunnarsson Vilmundur A. Guðmannsson afa- og langafabörn Minn heittelskaði lífsförunautur, dóttir mín og systir okkar, JÓHANNA BJÖRG PÁLSDÓTTIR Mánatúni 1, verður jarðsungin frá Langholtskirkju mánudaginn 29. október klukkan 13. Þau sem vilja minnast hennar eru beðin um að láta Kattholt, Geitfjársetrið á Háafelli eða MS félagið njóta þess. Lana Kolbrún Eddudóttir Páll Brekkmann Ásgeirsson Svala Pálsdóttir Páll Pálsson Elskuleg systir okkar, BRYNDÍS KRISTÍN MCRAINY ÞORVALDSDÓTTIR Hampton VA, USA, er látin. Útförin hefur farið fram í Hampton, þar sem Bryndís bjó síðastliðin 60 ár. Systkini hinnar látnu Ástkær eiginkona, móðir, amma og langamma, ÁSTA KR. JÓNSDÓTTIR lést 11. október. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Guðmundur Þ. Agnarsson Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.