Morgunblaðið - 25.10.2018, Qupperneq 64
64 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2018
Sigurður H. Svavarsson er hreinræktarður Dalamaður ogreyndar flestum fremur Haukdælingur en faðir hans er fráHömrum í Haukadal og móðir hans frá Vatni í sömu sveit.
En þú varst nú samt alinn upp í Reykjavík, Sigurður?
„Ja, svona kannski rétt yfir bláveturinn. En ég var öll sumur hjá
fóstra mínum og föðurbróður og konu hans, að Stóra-Vatnshorni í
Haukadal, fram yfir fermingu. Þar fékk ég sveitamennskuna beint
í æð sem og hestamennsku. Ég hélt upp á afmælið í Samskipahöll-
inni á laugardaginn var. Þar ilmaði allt af hrossalykt eins og vera
bar og ég var þar með Októberfest og sjálfur klæddur Lederhosen
að suður-þýskum sið – bauð upp á bradwurtz-pylsur og fleira í stíl
við þemað, enda var mikið sungið og dansað. Þarna kom fram í
máli manna að ég hafi farið 70 sinnum í göngur með Haukdælum.
Geri aðrir betur. Og ekki nema fimmtugur.“
Sigurður er kvæntur Þórlaugu Hildibrandsdóttur sem starfar
hjá Heildverslun Ásbjörns Ólafssonar og eru börnin þrjú. Sjálfur
er hann rekstrarstjóri Húsasmiðjunnar í Grafarholti.
Sigurður er ekki bara hestamaður heldur söngmaður og for-
maður Brokkkórsins, sem er kór hestamanna á höfuðborgarsvæð-
inu.
En kemur hann saman ferskeytlu, skammlaust?
„Ég er svo oft veislustjóri, að ég hef orðið að hnoða ýmsu saman
sem á að syngja við lagleg lög. En það verða auðvitað aðrir að
meta hvernig til hefur tekist hjá mér,“ segir þessi hrókur alls
fagnaðar.
Alvöru veisla Siggi og Þórlaug á Októberfestinu í Samskipahöllinni.
Hesta-, sveita- og söng-
maður af guðs náð
Siggi Svavars er orðinn fimmtugur
L
ára Björnsdóttir fædd-
ist á Stöðvarfirði
25.10. 1943 og ólst þar
upp til 11 ára aldurs:
„Þá var Stöðvar-
fjörður lítið sveita- og sjávar-
útvegspláss. Lífið snérist um fisk
og sauðfé, rófur, hænsni, fjalla-
grös og ber. Við börnin nutum
náttúrunnar, víðáttu og frelsisins
og eignuðumst snemma hlutdeild í
lífsbaráttu hinna fullorðnu.“
Vorið 1954 flutti fjölskyldan til
síldarbæjarins Siglufjarðar: „Ég
upplifði nýju heimkynnin sem
heimsborg. Þar var iðandi mannlíf
á sumrin, allstaðar af á landinu og
auk þess Norðmenn, Færeyingar,
Rússar og Hollendingar. Allir að
vinna í síld eða spekúlera í síld. Á
veturna færðist svo ró yfir plássið,
allt fór á kaf í snjó, heimamenn
tóku fram skíðin og undirbjuggu
nýja síldarvertíð á komandi sumri.
Stjörnubjört vetrarkvöldin á
Siglufirði eru ógleymanleg. Þar
voru góðir skólar sem lögðu
traustan grunn að frekari mennt-
un og ég eignaðist marga af mín-
um bestu vinum sem urðu sam-
ferða í MA og flestir lengur.“
Fjölskyldan flutti síðan á Egils-
staði 1961 er Lára var kominn í
MA.
Lára hafði að sjálfsögðu verið í
síldarsöltun á Siglufirði en vann
svo tvö sumur við að koma upp og
starfrækja söluskála Kaupfélags-
ins á Egilsstöðum.
Lára lauk stúdentsprófi frá MA
1963, lauk prófi í félagsráðgjöf frá
Danmark Sociale Højskole 1968
og lauk MA-prófi í Social and
Community Work frá University
Lára Björnsdóttir, fv. félagsmálastjóri – 75 ára
Gengið á Spáni Lára hefur gengið víða á erlendri grund. Hér er hún með hópi í göngu í Katalóní sl. september.
Lífsglaða amman syndir í
sjó og þrammar á fjöll
Á Bessastöðum Lára tekur við ridd-
arakrossi íslensku fálkaorðunnar.
Blönduós Gyða Dröfn
Þórðardóttir fæddist 10.
febrúar 2018 kl. 9.51. Hún
vó 4328 g og var 54 cm
löng. Foreldrar hennar eru
Rakel Ósk Pálmadóttir og
Þórður Ármann Lúthers-
son.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
USIN
Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl. 12-16Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050
Lúsíulestin komin
Verð kr. 15.900
Stærð 48x23 cm Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is