Morgunblaðið - 25.10.2018, Qupperneq 65
of Bradford á Englandi 1986.
Eftir nám í félagsráðgjöf var
Lára félagsráðgjafi við nýstofnaða
fjölskylduráðgjöf Kaupmannahafn-
arborgar og hóf störf hjá Reykja-
víkurborgar haustið 1969. Þá var
verið að stofna Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar sem sá um fé-
lagslega þjónustu og barnavernd.
Þar starfaði Lára sem félags-
ráðgjafi, deildarfulltrúi og loks yf-
irmaður fjölskyldudeildar til 1974.
Hún starfaði síðan á BUGL,
Kópavogshæli, hjá Styrktarfélagi
vangefinna, var framkvæmdastjóri
Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra
í Reykjavík og loks fram-
kvæmdastjóri Landssamtakanna
Þroskahjálpar 1990-94. Hún var
svo félagsmálastjóri Reykjavíkur-
borgar 1994-2006 og skrifstofu-
stjóri í Velferðarráðuneytinu 2008-
2014.
Frá opinberum starfslokum hef-
ur Lára sinnt margvíslegri ráð-
gjöf, handleiðslu og kennslu.
Lára hefur skrifað fjölda greina
og bókakafla og haldið ótal fyrir-
lestra.
Lára var sæmd gullmerki
Landssamtakanna Þroskahjálpar,
Rósinni, frá Minningarsjóði Ástu
B. Þorsteinsdóttur, er heiðurs-
félagi Átaks, félags fólks með
þroskahömlun, og riddarakrossi
hinnar íslensku fálkaorðu 2016.
Áhugamál Láru hafa löngum
snúist um hennar störf, barna-
börnin, náttúru landsins og sælu-
reitinn Mólæk í Hítardal sem
eiginmaður hennar kom upp fyrir
fjölskylduna. Hún er í fjölda
„systrasamlaga“, stundar göngu-
ferðir af kappi og fer nú reglulega
í sjósund.
Fjölskylda
Eiginmaður Láru var Ingólfur
Hjartarson, f. 7.9. 1942, d. 29.7.
2010, hrl. í Rvík. Foreldrar hans
voru Hjörtur Hafliðason, f. 13.7.
1913, d. 28.4. 2010, húsasmíða-
meistari í Reykjavík, og k.h., Guð-
björg Hólmfríður Einarsdóttir, f.
8.12. 1916, d. 21.4. 1998, húsfreyja.
Börn Láru og Ingólfs eru 1)
Jón, f. 6.12. 1967, tölvunarverk-
fræðingur en kona hans er Fjóla
Ósk Gunnarsdóttir fornleifafræð-
ingur og eru barnabörnin Halldór
Rúnar, f. 1991, Iðnunn, f. 1997, og
Elísabet, f. 2007; 2) Hildur Björg,
f. 5.8. 1973, sérfræðingur í heim-
ilislækningum en maður hennar er
Hákon Magnússon flugstjóri og
eru barnabörnin Ingólfur, f. 2014,
Rebekka Lára, f. 2003, Hekla, f.
2002, og Hákon, f. 1998 og 3)
Björn Freyr, f. 5.12. 1977, verk-
efnastjóri en kona hans er Birna
Hlín Káradóttir hdl. og eru barna-
börnin Húni Ingólfur, f. 2005,
Birnir Kári, f. 2008, og Kolbeinn
Uni, f. 2016.
Foreldrar Láru voru Þorbjörg
Jónína Einarsdóttir, f. 16.8. 1915,
d. 11.6. 2005, húsfreyja og verka-
kona, og Björn Stefánsson, f.
7.4.1910, d. 5.8. 1997, kaupfélags-
stjóri á Stöðvarfirði, Siglufirði og
hjá Kaupfélagi Héraðsbúa og síð-
ar erindreki Áfengisvarnaráðs í
Reykjavík. Þau bjuggu síðast á
Hóli í Stöðvarfirði.
Úr frændgarði Láru Björnsdóttur
Lára Björnsdóttir
Valgerður Björnsdóttir
húsfreyja í Rvík
Stefán Guðnason
verslunarmaður í Rvík
Valgerður Stefánsdóttir
forstöðumaður Samskipta-
miðstöðvar heyrnarlausra
Ástríður Stefánsdóttir
læknir og heimspekingur
Friðjón Stefánsson rithöfundur
Þorsteinn Stefánsson
rithöfundur í Kaupmannahöfn
Kristín Rósa Jónsdóttir
húsfreyja á Kirkjubóli
Erlendur Þorsteinsson
b. á Kirkjubóli í Stöðvarfirði
Guðbjörg Erlendsdóttir
húsfreyja á Ekru
Jónína Þorbjörg
Erlendsdóttir
húsfreyja á
Kirkjubóli
Björn Jónsson
skólastjóri í
Vík í Mýrdal
Þorbjörg Jónína Einarsdóttir
húsfreyja
Björn Einarsson tæknifræðingur í Kópavogi
Björn Björnsson dr. í líffr.
hjá Hafró, í Kópavogi
Eysteinn Björnsson rith. og kennari í Rvík
Guðbjörg Ólöf Björnsdóttir
hjúkrunarfr. og guðfr. í Svíþjóð
Einar Stefán Björnsson yfirlæknir í Rvík
Margrét Stefánsdóttir
húsfreyja í Dölum
Þorsteinn
Gíslason ritstjóri
og skáld í Rvík
Ingunn
Stefánsdóttir
húsfreyja í
Stærri-Árskógum
Vihjálmur
Þ. Gíslason
kólastjóri og
útvarpsstjóri
Þór Vilhjálmsson dómari
sAuður Eir
Vilhjálmsdóttir prestur
Gylfi Þ. Gíslason
prófessor og
ráðherra
Vilmundur Gylfason
alþm. og ráðherra Björn Stefánsson
b. í Dölum við Fáskrúðsfjörð
og kaupm. á Búðum
Ólöf Herborg Björnsdóttir
húsfreyja
Stefán Þorsteinsson
útvegsb. í Fáskrúðsf.,
á Nesi í Loðmundarf. í
Reyðarfirði, síðast í Rvík
Stefanía Jónsdóttir
húsfreyja á Eyri
Þorsteinn Lúðvíksson Kemp
b. á Eyri við Fáskrúðsfjörð
Björn Stefánsson
kaupfélagsstj. á Akranesi,
Stöðvarf., Sigluf. og hjá Kaupfélagi
Héraðsbúa á Egilsstöðum
Sveinn Benediktsson útvegsb.
á Búðum í Fáskrúðsfirði
Benedikt Sveinsson
trésmiður í Rvík
Áslaug Benediktsdóttir
kennari í Rvík
Björg Einarsdóttir starfsmaður
á tilraunastofunni á Keldum
Einar Benediktsson
útvegsb. og símst.stj. á Ekru
í Stöðvarfirði
Ragnheiður Jónsdóttir
húsfreyja í Hamarsfirði
Benedikt Benediktsson
b. í Hamarsfirði
ÍSLENDINGAR 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2018
Jón Guðlaugur Kristinn Eiríks-son fæddist í Garðhúsum íGerðahreppi, 25.10. 1902.
Hann var sonur Eiríks Guðlaugs-
sonar, útvegsbónda í Garðhúsum og
síðar á Meiðastöðum, og Guðrúnar
Bjarnadóttur húsfreyju.
Jón var tvíkvæntur. Fyrri kona
hans var Marta Jónsdóttir, dóttir
Jóns Diðrikssonar, bónda í Einholti
í Biskupstungum. Þau eignuðust
þrjár dætur og son, Guðfinnu, Eirík,
Guðrúnu og Huldu, en fóstursonur
Jóns var Guðmundur Agnar Er-
lendsson. Marta lést á besta aldri,
árið 1948. Seinni kona Jóns var
Ingibjörg Ingólfsdóttir, alþm. í
Fjósatungu í Fnjóskadal Bjarnar-
sonar.
Jón flutti með foreldrum sínum að
Meiðastöðum 1916 og átti þar heima
lengst af síðan. Hann og bræður
hans, Sumarliði og Guðlaugur, kall-
aðir Meiðastaðabræður, voru ötulir
athafnamenn, kirkjuræknir og söng-
menn góðir. Var til þess tekið að
mikið vantaði upp á kirkjusönginn í
Útskálakirkju ef þeir bræður for-
fölluðust.
Jón lærði ungur á harmoniku og
var jafnan fjölmennt er hann lék
fyrir dansi á Vatnsleysuströnd, í
Höfnum, Njarðvík, Keflavík, Garði
og Sandgerði.
Jón var bóndi og útgerðarmaður á
Meiðastöðum 1928-47 og gerði lengi
út bátinn Hákon Eyjólfsson, með
Guðlaugi, bróður sínum. Hann var
síðan kaupfélagsstjóri við Kaup-
félagið Ingólf í Sandgerði 1947-53
og stundaði síðan lengst af fisk-
verkun og fiskkaup á Meiðastöðum.
Jón sinnti ýmsum félags- og trún-
aðarstörfum í sínu byggðarlagi.
Hann var lengi sýslunefndarmaður
frá 1954, var gjaldkeri Búnaðar-
félags Gerðahrepps um árabil frá
1937, sat í skólanefnd Gerðahrepps
frá 1938 og í sóknarnefndinni frá
1944. Hann var mikill bindindis-
maður og gegndi trúnaðarstörfum
fyrir góðtemplara. Hann sat í áfeng-
isvarnanefnd frá 1944 og var æðsti-
templar í stúkunni Framför 1944-55.
Jón lést 14.12. 1983.
Merkir Íslendingar
Jón
Eiríksson
90 ára
Ástríður Elín Björnsdóttir
85 ára
Jón B. Hafsteinsson
80 ára
Anna Björk Guðbjörnsdóttir
Heba Guðmundsdóttir
Þórarinn Björn Gunnarsson
Þórdís Karlsdóttir
75 ára
Birna Bjarnadóttir
Eyrún Sigríður
Kristjánsdóttir
Kristín Björnsdóttir
Lára Björnsdóttir
Pétur V. Maack Pétursson
Þorgerður Arnórsdóttir
70 ára
Aida Lebunfacil Magnusson
Álfheiður Friðþjófsdóttir
Erling Ragnarsson
Ósk M. S. Guðlaugsdóttir
Reynir Pétur
Steinunnarson
Sigríður B.
Guðmundsdóttir
Sæmundur Jónsson
Valgerður Marinósdóttir
60 ára
Anna Þórný Annesdóttir
Árni Þorgilsson
Ásgeir Friðgeirsson
Baldvin Valdemarsson
Nicholas Anthony
Cathcart-Jones
Vilhelm Páll Pálsson
50 ára
Almario Misal Algarme
Ármann Guðmundsson
Árný Margrét Eiríksdóttir
Binh Chanh Ly
Einar Már Garðarsson
Gróa Halla Hákonardóttir
Hildur Fríða Þórhallsdóttir
Hrafnhildur Hreinsdóttir
Jaroslaw Grzegorz Sledz
Lóa Kristín
Guðmundsdóttir
Ra Ong Phumatphon
Sigurður H. Svavarsson
Sólveig H.
Sveinbjörnsdóttir
Stefanía Á. Bjarman
Valdís Eyja Pálsdóttir
40 ára
Anna Bryndís Blöndal
Arnór Hans Þrándarson
Christina Guenther
Dóra Björg Axelsdóttir
Ingibjörg Björnsdóttir
Ingvar Þrándarson
Jóhann G. Harðarson
Lauris Bremmers
Lilja Þorgeirsdóttir
Mariusz Slawomir Flak
Óli Már Ólason
Sára Patursson
Sigurður Freyr Bjarnason
Tomas Jatautas
Trausti Ásgeirsson
Þorsteinn J. Guðmundsson
Þórhildur Löve
30 ára
Arnar Jón Óskarsson
Dana Ýr Antonsdóttir
Einar Örn Einarsson
Gyða Guðmundsdóttir
Loreyn Torres Guzman
Natalía Anna Önnudóttir
Nick Ward
Óðinn Örn Sævarsson
Rebekka Rut Skúladóttir
Selma Dröfn Sigurðardóttir
Vífill Gústafsson
Þorgrímur Þórisson
Til hamingju með daginn
30 ára Vífill býr í Reykja-
vík, lauk BSc-prófi í við-
skiptafræði frá HÍ og er
fjárfestingaráðgjafi hjá er-
lendu fyrirtæki.
Maki: Tinna Laxdal
Gautadóttir, f. 1988, leik-
skólakennari.
Dætur: Efemía, f. 2008;
Ólivía, f. 2013, og Alex-
andra, f. 2017.
Foreldrar: Gústaf Vífils-
son, f. 1963, og Ragnheið-
ur Erla Rósarsdóttir, f.
1962.
Vífill
Gústafsson
30 ára Rebekka býr í
Reykjavík, lauk BSc-prófi í
hjúkrunarfræði frá HÍ, er
flugfreyja hjá Icelandair
og er nú í fæðingarorlofi.
Maki: Bergur Guðjóns
Jónasson, f. 1987, við-
skiptafr. hjá Air Atlanta.
Börn: Karitas Hanna, f.
2013; Bóas Skúli, f. 2015,
og Högni Freyr, f. 2018.
Foreldrar: Þórdís Jóna
Rúnarsdóttir, f. 1958, og
Skúli Guðmundsson, f.
1957.
Rebekka Rut
Skúladóttir
30 ára Dana ólst á Dalvík
og í Skagafirði, býr á Ak-
ureyri, lauk stúdentsprófi
í Svíþjóð og stundar nám í
skapandi tónlist við Tón-
listarskólann á Akureyri.
Synir: Sólon Eldur, f.
2012, og Sesar Máni, f.
2013.
Foreldrar: Inga María S.
Jónínudóttir, f. 1968, og
Anton Páll Níelsson, f.
1966, en þau eru bæði
reiðkennarar við Háskól-
ann á Hólum.
Dana Ýr
Antonsdóttir
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk.
s: 781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18
fös: 12-16
Þægindi
og hönnun