Morgunblaðið - 25.10.2018, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 25.10.2018, Blaðsíða 67
DÆGRADVÖL 67 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2018 Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Fallegar vörur Æðisleg húsgögn frá Recor Fáanleg í eik og hvítu háglans Veggfastur skenkur: Verð 176.700 kr. Hár skápur: Verð 179.900 kr. Hilla: Verð 52.000 kr. fyrir heimilið Sendum um land allt Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú glímir við vandamál sem veldur þér miklum heilabrotum. Sýndu aðgæslu í fjármálum og farðu ekki út í neinar skuldbind- ingar nema þú sért með allt á hreinu. 20. apríl - 20. maí  Naut Sumum hlutum fær enginn breytt. Veltu öllum lausnum fyrir þér, kannski ganga þær og kannski ekki. Slettu stundum úr klauf- unum. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það getur reynst nauðsynlegt að koma að málum úr ólíkum áttum og er raunar lykillinn að því að skilja þau og brjóta til mergjar. Gefðu þér tíma til þess að hvílast inn í milli. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Farðu í skemmtiferð eða nýttu þér kvikmyndir og/eða íþróttir til að gera daginn ánægjulegan. Sittu stundum auðum höndum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú átt auðvelt með að sjá í gegnum aðra en vertu sanngjarn því aðrir geta líka séð í gegnum þig. Afgreiddu deilumál sem fyrst. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þig langar að brjóta af þér hlekki van- ans. Hvað tefur? Nú er að hrökkva eða stökkva. Einhver slær þér gullhamra. 23. sept. - 22. okt.  Vog Reyndu að verja sem mestum tíma með börnum og líttu um leið til barnsins í þér sjálf- um. Einhver er þögull sem gröfin um framtíð- arplön sín. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú þarft að hafa gætur á óþol- inmæðinni og finna þér eitthvað til dundurs. Það renna á þig tvær grímur þegar þú færð boð í brúðkaup. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Reyndu að láta ekki alla skapaða hluti hafa svona mikil áhrif á þig. Biddu um hjálp ef þú þarft. Einhver sem þú ert nýbú- in/n að kynnast siglir undir fölsku flaggi. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú ert svo upptekin/n af ákveðinni hugmynd í vinnunni að þú getur ekki með nokkru móti sleppt henni. Hlustaðu á þinn innri mann þegar kemur að því að meta ást- arsambandið. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Láttu ekki deigan síga þótt menn sýni hugmyndum þínum takmarkaðan áhuga. Með góðri skipulagningu tekst þér að láta allt ganga upp, enda ertu snillingur í að skipu- leggja. 19. feb. - 20. mars Fiskar Farðu varlega í hverju því sem þú tek- ur þér fyrir hendur í dag. Ef þú getur ekki samglaðst öðrum ættirðu að fara á nám- skeið. Jón B. Stefánsson sendi mértölvupóst sem mér þótti vænt um: „1. Það var eitt sumarið um viku af júní að ég var einn á bæ. Sat ég í makindum við stofugluggann og fylgdist með fénu tínast úr túninu með lömbin því öll hlið stóðu opin og kvisturinn orðinn grænn sem var merki um að óhætt væri að sleppa fénu í úthagann. Málarar voru ný- búnir að mála öll þök rauð og vega- gerðarmenn að rykbinda veginn með salti og sóttu kindur í það. Þá varð þessi litla vísa til: Glingra ég við græna pyttlu og geri bæinn rauðan. Á vegasalti lömbin litlu leika sér við dauðann. 2. Þessi vísa varð til þegar ég var með seinni skipunum að skila fram- talsgögnum til endurskoðandans: Letin mér um treður tær og telst það varla borgun að það sem átti að gera í gær ég geri kannski á morgun. 3. Konan mín var í sumar- bústaðnum með nokkrum bekkjar- systrum úr MR og ákváðu þær að framlengja dvölina og bað hún að sér yrði send ginflaska með tilfall- andi ferð. Ég brást vel við en sendi með flöskunni þessa vísu. Sem á glóðum ganga skalt þá glóir vín. Ég vel það þekki, vinan mín, að vandi er að gæta sín.“ Ólafur Stefánsson yrkir með sól- skinskveðjum frá sólarlöndum: Uppi í tungum, ofar svarta flóa allt of snemma fór að kafasnjóa Börnin af kæti sér kunn’ ekki læti og í fátinu fótbraut sig tófa. Mér finnast þessar vísur Jónasar Hallgrímssonar alltaf jafn skemmtilegar: Bósi! geltu, Bósi minn! En bíttu ekki, hundur! ella dregur einhver þinn illa kjaft í sundur. Hafðu ekki á þér heldra snið höfðingja, sem brosa, en eru svona aftan við æru manns að tosa. Þessi staka Guðmundar Arn- finnssonar er undragóð: Ég þarf ekki að grafa gull, glitrar lífsins straumur. Tilveran er töfrafull en tíminn alltof naumur. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Bréf að austan og fréttir af tófu „AF HVERJU KEMURÐU TIL MÍN? FARÐU OG ÞEFAÐU UPP VANDAMÁL HJÁ EINHVERJUM ÖÐRUM.“ „ER MÖGULEGT AÐ FÁ SMÁ ÞJÓNUSTU HÉRNA?“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að hjúfra sig upp við arineldinn með þér. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÞAÐ ER SAGT AÐ LÍFIÐ SÉ EINS OG ÞJÓÐVEGUR JÁ, ÞAÐ ER SATT OG MÁNUDAGAR ERU HOLURNAR Í VEGINUM ÞÚ ÞARFT AÐ TAKA ÞESSAR PILLUR Á HVERJUM DEGI ÞAÐ SEM ÞÚ ÁTT ÓLIFAÐ! ÆTTI ÉG AÐ HAFA ÁHYGGJUR AF AUKA- VERKUNUM? BARA EF ÞÚ HEFUR ÁHYGGJUR AF GJALDÞROTI! Sjónvarpsþættirnir „Making aMurderer“, sem sýndir eru á Netflix-streymisveitunni, vöktu um- talsverða athygli þegar þeir komu út rétt um jólin 2015, en þeir greindu frá lífshlaupi Stevens Avery, manns frá Wisconsin sem þurfti að dúsa á bak við lás og slá í 18 ár fyrir nauðg- un, en í ljós kom að hann hafði verið tekinn fyrir af fógetaembættinu í sýslunni sinni og setið saklaus inni. Um það leyti sem hann var að fara að fá dæmdar skaðabætur fyrir það var hann hins vegar handtekinn fyr- ir morð og dæmdur til lífstíðarfang- elsis. x x x Þegar þættirnir komu fyrst útvöktu þeir mikið umtal, enda virtist sem ýmislegt hefði verið brogað við rannsókn seinna málsins, og jafnvel sterkur grunur um að menn tengdir viðkomandi fógeta- embætti hefðu tekið höndum saman til þess að gulltryggja það að sönnunargögnin bentu á Avery. Þrátt fyrir það var enn hægt að velta fyrir sér hvort hann væri sekur eða saklaus. x x x Nú er komin önnur sería af sömuþáttum, sem fylgist með til- raunum Averys og lögfræðings hans, Kathleen Zellner, til þess að tryggja honum önnur réttarhöld, en hún er sannfærð um að Avery sé saklaus. Er í seinni seríunni farið nokkuð vel í það hvernig Zellner rífur í sig hvert sönnunargagnið gegn Avery á fætur öðru og reynir að sá efa í huga áhorf- andans. Og tekst býsna vel. x x x Ekki síður áhugavert er að fylgjastmeð örlögum frænda Averys, Brendan Dassey, sem dæmdur var fyrir sama glæp í lífstíðarfangelsi. Sá dómur byggðist hins vegar ein- göngu á játningu Dasseys, sem virð- ist nokkuð augljóslega hafa verið fengin með kúgun lögreglumann- anna sem yfirheyrðu hann þegar hann var 16 ára að fjarstöddum lög- manni eða forráðamanni. Að áhorfi loknu virðist nokkuð ljóst að hér hef- ur verið framið dómsmorð, og að það er eitthvað verulega mikið að banda- rísku réttarfari. vikverji@mbl.is Víkverji Jesús mælti: Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi. (Jóh: 11.25)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.