Morgunblaðið - 25.10.2018, Side 68

Morgunblaðið - 25.10.2018, Side 68
68 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2018 AF BÓKMENNTUM Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Barna- og unglingabókmenntaverð- laun Norðurlandaráðs verða afhent í sjötta sinn á þriðjudaginn kemur í óperuhúsinu í Ósló í tengslum við þing Norðurlandaráðs. Líkt og fyrri ár nemur verðlaunaféð 350 þús- undum danskra króna í hverjum verðlaunaflokki, sem samtals eru fimm, þ.e. á sviði bókmennta, tónlist- ar, kvikmynda og umhverfismála. Alls voru tólf bækur tilnefndar til verðlaunanna í ár eða jafnmargar og í fyrra. Tilnefndu bækurnar geta mest orðið fjórtán. Dómnefndir stóru málsvæðanna fimm (Noregs, Svíþjóðar, Danmerkur, Finnlands og Íslands) mega hver um sig til- nefna tvö verk sem komið hafa út á síðustu tveimur árum, en allar bæk- urnar komu út í fyrra. Dómnefndir minni málsvæðanna (Færeyja, Grænlands, Álandseyja og samíska tungumálasvæðisins) mega tilnefna eitt verk hver sem út hafa komið á seinustu fjórum árum, en færeyska bókin kom út 2017 og sú samíska 2014. Annað árið í röð var engin bók tilnefnd af hálfu Grænlendinga. Ein bókanna er bæði framlag Finna og Álendinga, sem ekki höfðu tilnefnt bók tvö ár í röð. Bak við ystu sjónarrönd Í blaðinu á morgun verður fjallað um framlag Dana, Norðmanna, Íslendinga og Sama, en í dag er sjónum beint að framlagi Færeyinga, Finna, Álend- inga og Svía. Svo skemmti- lega vill til að allar bæk- urnar fimm sem rýnt er í í þessum fyrri pistli eiga það sameiginlegt að fjalla með einum eða öðrum hætti um þrána – hvort heldur hún birtist sem forvitni fyrir hinu óþekkta, sköp- unarþrá eða græðgisleg löngun eftir auðæfum og völdum. Træið eftir Bárð Oskarsson er þriðja bók höfundar sem tilnefnd er til barna- og unglingabókmennta- verðlauna Norðurlandaráðs. Árið 2014 var hann tilnefndur fyrir Flata kanínan og 2016 fyrir Stríðið um tað góða grasið. Bárður Oskarsson hlaut fyrr í þessum mánuði barna- og ung- mennabókmenntaverðlaun Vest- norræna ráðsins 2018 fyrir Træið. Allar bera bækurnar þrjár skýr höf- undareinkenni, þar sem unnið er með stórar heimspekilegar spurn- ingar í mínimalískri útfærslu bæði hvað varðar myndefni og texta. Træið hefst á vangaveltum kanín- unnar Bob um hvað leynist hinum megin við tréð sem ber við sjóndeild- arhringinn, en Bob hefur aðeins einu sinni hætt sér í áttina að trénu áður en hundur hræddi hann í burtu. Stuttu síðar birtist Hilbert, vinur hans, sem segist oftsinnis hafa farið handan trésins og að þar sé ekkert spennandi – aðeins meira af því sama sem dýrin þekki nú þegar. Raunar segist Hilbert hafa flogið um allan heim, en nennir ekki að sýna Bob hvernig hann fer að því. Træið veitir engin skýr svör, en vekur lesendur til umhugsunar um það hverjum sé treystandi og hvort ómaksins vert sé að sjá og upplifa hlutina með eigin augum. Græðgin gleypir allt Næstu fjórar bækar eiga það sam- eiginlegt að stelpur eru í aðalhlut- verkum. Fyrst ber að nefna ævin- týraskáldsöguna Kurnivamahainen kissa (Kisan með garnirnar gaul- andi) eftir Magdalenu Hai sem Teemu Juhani myndskreytti, en Finnar tilnefnda ávallt eina bók á finnsku og aðra á sænsku. Sagan Kurni- vamahainen kissa, sem rýnir las í sænskri þýð- ingu Emils Joh- ansson, er sögð eins og ævintýri sem gerst hafi fyrir óralöngu í fjarlægu landi þar sem allt er af skornum skammti nema þurrkur og fátækt. Söguhetja bókarinnar er minnsta stúlkan í heiminum, en hún er minni en íkorni og með hendur á stærð við blóm smárans. Líkt og aðrir þegnar landsins lifir hún við matarskort, en auk þess er hún einmana og afskipt. Dag einn hittir hún risastóran svart- an kött með gaulandi garnir, sem hyggst éta stúlkuna í einum munn- bita, til að seðja hungur sitt. Stúlkan biður sér griða og þau komast að samkomulagi um að hún fái einn dag til að finna aðra fæðu fyrir köttinn. Á ferðalagi þeirra um ríkið hitta þau meðal annars íbúa sem gripið hafa til þess ráðs að borða eigin drauma og hugsanir til að halda lífi, þótt þau hafi þá ekkert lengur til að lifa fyrir. Smám saman kemst stúlk- an að því að ástæða þess að allt í heiminum er af skornum skammti stafar af því að kötturinn er hægt og rólega að verða búinn að éta allt sem fyrirfinnst, hvort heldur það eru dýr, korn, skóglendi eða vatn. Þrátt fyrir að með stúlkunni og kettinum takist góður vinskapur lendir hún að lokum einnig í maga hans. Þar hittir hún fyrir hinn illúðlega herra Ós Eðjandi og þarf að ráða niðurlögum hans í von um að bjarga jafnt vini sínum og heiminum öllum. Magdalena Hai skrifar heillandi táknsögu um græðgina og skelfileg- ar afleiðingar hennar sem auðveld- lega má heimfæra upp á samtímann. Á sama tíma er þetta saga um gildi vináttu og hugrekkis andspænis ógnvekjandi andstæðingi. Svart- hvítar teikningar Teemu Juhani gegna mikilvægu hlutverki í verk- inu. Þær eru fullar af lífi, húmor og fínlegum smáatriðum sem gaman er að rýna í. Dýrmæti perluvina Hin bókin sem Finnar tilnefna er jafnframt framlag Álendinga, en það er ævintýraskáldsagan Pärlfiskaren – legenden om ögonstenen (Perlu- kafarinn – sagan um augasteininn) eftir Karin Erlandsson. Um er að ræða fyrstu barna- og ungmennabók Erlandsson, sem fyrir hönd Álend- inga var tilnefnd til bókmenntaverð- launa Norðurlandaráðs 2015 fyrir skáldsöguna Minkriket. Höfundur skapar hér töfrandi fantasíu þar sem vinátta, forvitni og græðgi eru lykilþemu. Undirtitill bókarinnar vísar í perlu sem býr yfir þeim mætti að svala allri þrá þess sem finnur hana. Sögumaður er Mir- anda sem frá unga aldri hefur verið perlukafari og fórnað öðrum hand- leggnum í kjaft rósarhákarls í leit að verðmætum hafsins. Hverri kynslóð gefst eitt tækifæri til að leita auga- steins og nú er komið að Mir- öndu, sem líkt og fjöldi annarra barna og ung- menna er mun- aðarlaus vegna leitar foreldranna. Aðstæður haga því svo að hin talsvert yngri Syrsa, sem einnig hefur misst handlegg í hákarlskjaft, slæst í för með henni. Til að byrja með eru samskipti stúlknanna stirð, en þegar Syrsa lendir í höndum hinnar illgjörnu og gráðugu Iberis þarf Miranda að gera upp við sig hvort fjarlægur draumur sé meira virði en samkennd og vin- átta. Höfundur hefði að ósekju mátt undirbyggja ögn betur þá breytingu sem á Miröndu verður, en að öðru leyti er framvindan þétt. Þrátt fyrir að þræðir sögunnar séu dregnir saman í bókarlok leynir sér ekki að von er á framhaldi, enda ýmsu enn ósvarað. Frjáls eins og fuglinn Fågeln i mig flyger vart den vill (Fuglinn í mér flýgur hvert sem hann vill) eftir Söru Lundberg nefn- ist önnur tveggja bóka sem Svíar til- nefna í ár. Er þetta í annað sinn sem Lundberg er tilnefnd, því hún var til- nefnd 2013 fyrir myndabókina Vita streck och Öjvind. Nýja bókin henn- ar er ævisöguleg myndasaga um bernsku sænsku listakonunnar Bertu Hans- son sem fædd- ist 1910 og lést 1994. Hún ólst upp í sveit í Hammerdal í Jamtalandi, yngst fjög- urra systkina. Brauðstritið tekur alla orkuna í fátæku bænda- samfélagi og fáir sem skilja skap- andi þörf ungu stúlkunnar, allra síst faðir hennar – enda myndlistin ekki alvörustarf og alls ekki starf fyrir konu. Berklaveik móðir hennar styð- ur listsköpun dótturinnar og Berta er sannfærð um að teikningar henn- ar og leirfuglar hjálpi móðurinni að berjast fyrir lífi sínu. Þegar móðirin deyr missir Berta trúna á hæfileika sína um stund, en fær að lokum ekki afneitað sköpunarþránni og gerir þá táknræna uppreisn þegar hún lætur baunasúpuna viljandi brenna við meðan hún les bók í rólegheitum. Sara Lundberg er undir sterkum áhrifum frá Bertu Hansson í mynd- rænni útfærslu bókarinnar. Sköp- unargleði og frelsisþrá Bertu er miðlað með litsterkum myndum þar sem fuglar og trjáklifur gegna mikil- vægu hlutverki. Björtu litirnir víkja þegar drunginn og vonleysið taka yf- ir, en snúa aftur undir lok bókar þegar ljóst er orðið að faðir Bertu hyggst leyfa henni að mennta sig. Hér er um einstaklega fallega og eigulega bók að ræða. Ljóst er að vandað hefur verið til verka á öllum póstum og sem dæmi skrifar menn- ingarblaðamaðurinn Alexandra Sundqvist ljómandi eftirmála um ævi og list Bertu Hansson. Það er engin furða að Fågeln i mig flyger vart den vill hlaut bæði Augustpriset 2017 og myndabókaverðlaunin Snö- bollen. Gættu þess hvers þú óskar Skáldsagan Norra Latin eftir Söru Bergmark Elfgren er hitt framlag Svía þetta árið. Bókinni er best lýst sem ráðgátu eða fant- asíu á mörkum sakamálahefðar og hrollvekju þar sem galdrar og yfirnáttúrlegir atburðir gegna stóru hlutverki og frásagnar- gleðin er við völd. Af slíkri bók að vera er hún einstaklega vel plottuð frá höfundarins hendi, en hefði alveg þolað að vera stytt smá- vegis, enda tæpar 600 blaðsíður að lengd og verður ögn teygð á kafla. Táningsstúlkurnar Clea og Tamar skiptast á að segja söguna í fyrstu persónu, en þegar á bókina líður fær rödd úr fortíðinni sífellt meira vægi. Í upphafi bókar eru þær báðar að byrja á leiklistarbraut í mennta- skólanum Norra Latin í Stokkhólmi. Clea, sem er vinsæl og þegar búin að hasla sér völl sem leikkona, byrjar brátt með sætasta stráknum í skól- anum. Tamar er aftur á móti óörugg og feimin og gengur erfiðlega að eignast vini í bekknum, enda nýflutt í bæinn. Ekki bætir síðan úr skák að hún er skotin í Cleu. Nemendur Norra Latin eru sér meðvitaðir um dularfulla fortíð skól- ans, en 1949 hvarf unglingspilturinn Erling Jensen samtímis því sem einn kennari skólans lést. Síðan þá hafa nokkrir nemendur lent í dular- fullum slysum. Clea og Tamar sog- ast inn í atburðarás sem einkennist af valdagræðgi og forsögulegum kröftum og lesendum verður brátt ljóst að við þurfum að gæta þess hvers við óskum. Þótt fantasían sé í forgrunni vinnur höfundur afar vel úr lykilþemum á borð við vináttuna, einsemdina, einelti, ofbeldi í nánum samböndum og vanda þess að vera unglingur jafnt í fortíð og nútíð. Áskorun Litla stúlkan endar í maga svarta kattarins og kemst þá að því hvers vegna hungur hans er óseðjandi. Hvert leiðir þráin okkur? Berklaveik Berta er sannfærð um að teikningar hennar og leirfuglar hjálpi móðurinni að berjast fyrir lífi sínu. Fyrri umfjöllun Morgunblaðsins um verkin sem tilnefnd eru til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.