Morgunblaðið - 25.10.2018, Page 71

Morgunblaðið - 25.10.2018, Page 71
MENNING 71 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2018 Weleda hreinar náttúrulegar olíur Njóttu þess, að dekra við húðina ! Meiri ánægja, meiri næring, meiri vörn. Weleda olíurnar hafa áhrif á líkama og sál. Weleda olíurnar mýkja húðina með virkum náttúruefnum. Útsölustaðir: Apótek og heilsuverslanir Netverslun: heimkaup.is, heilsuhusid.is, lyfja.is, mstore.is Weleda.is HREIN OLÍA, HREIN ÁNÆGJA, HREIN UMHYGGJA VIÐTAL Árni Matthíasson arnim@mbl.is Horfið ekki í ljósið heitir nýútkomin skáldsaga Þórdísar Gísladóttur, hennar fyrsta skáldsaga, en hún hefur gefið út fjölmargar bækur aðrar. Í bókinni rifjar kona upp æsku sína og fram á fullorðinsár og fléttar saman við frásagnir af for- mæðrum sínum, en fljótlega áttar lesandinn sig á því að það er ekki öllu að treysta sem sagt er frá. — Þú hefur gefið út slatta af bók- um, ljóðabækur, barnabækur og átt þátt í tveimur mjög fínum unglinga- bókum með Hildi Knútsdóttur, en þetta er fyrsta skáldsagan. „Ég byrjaði reyndar að skrifa þessa bók fyrir fjórum árum og veit ekki hvers vegna, ég hef aldrei ákveðið að skrifa eitt frekar en eitt- hvað annað. Ég hef skrifað ljóða- bækur, barnabækur og kennslu- bækur en ég veit ekki af hverju ég hef ekki skrifað skáldsögu fyrr. Ég fékk svosem hvatningu frá útgef- anda mínum, en þetta var samt eitt- hvað sem bara byrjaði, en óx mjög hægt — ég byrjaði fyrir fjórum ár- um en í janúar á þessu ári var þetta ekki nema 25 vélritaðar síður. Ég var svolítið að strika út í nokkur ár.“ — Það er mikið svefnleysi í þess- ari bók, en sá tími þegar maður er vakandi en aðrir sofandi er mjög sérstakur. „Það er satt, það er einhver stemmning á svoleiðis tíma. Ég glími þó ekki við svefnleysi, en hef alltaf verið svefnstygg og verið and- vaka á tímabilum. Það er þó ekki eins alvarlegt og þessi kona.“ — Ég hef lesið tíst frá þér þar sem þú hefur kvartað yfir svefnleysi og velti því fyrir mér þegar ég las bókina hvort það hefði verið þú sem var að tísta eða hvort það var sögu- persónan. „Það var örugglega hún, en það hafa komið tímabil þar sem ég hef vakað aðeins of mikið.“ — Horfið ekki í ljósið snýst meðal annars um minni en, eins og þú seg- ir snemma í bókinni: „Við erum öll óáreiðanlegir sögumenn.“ „Þetta kom dáldið til af því að ég fann dagbækur sem ég hafði skrifað fram að því að ég var um tvítugt og fór að blaða í þeim. Ég er ekki búin að lesa þær mjög vel en ég hef skrif- að þær frá því ég var fimmtán eða sextán ára og þangað til ég var tutt- ugu og tveggja eða þriggja. Ég fletti þeim í gegn, las búta hér og þar, og þá komst ég að því að maður man margt vitlaust. Eitthvað sem ég hafði ímyndað mér að væri svona og svona var ekki rétt sam- kvæmt þessum bókum sem ég ætti að geta treyst af því ég skrifaði í þær einum til tveimur dögum eftir að atburðirnir gerðust. Sumt mundi ég nokkurn veginn, en annað ekki, mundi kannski að eitthvað hefði komið fyrir mig en það kom kannski fyrir vinkonu mína.“ — Minnið er náttúrlega ekki geymsla, það er vinnslustöð — við erum alltaf að búa til nýja og, von- andi, betri mynd af fortíðinni ... „ ... og setja þetta í samhengi. Svo skoðar maður einhverjar myndir og svo segir einhver eitthvað við mann að þetta hafi verið svona og hinseg- in — það er allavegana ekki hægt að treysta minningum.“ — Annað sem ég tók eftir er að í bókinni bregður varla fyrir karl- manni nema þá í aukahlutverkum, það er bara einn maður sem fær þokkalegt hlutverk í henni. „Það er satt hjá þér, þetta eru eiginlega bara konur, en það var ekkert endilega markmiðið hjá mér.“ — Amman á erfitt samband við karlmenn, mamman á kannski ekki erfitt, en óvenjulegt samband við karlmenn og svo er það sögukonan, sem á líka í óvenjulegu sambandi við karla, án þess ég vilji þó segja of mikið. „Það er svosem óljóst, þannig séð, hvert hennar samband er við karl- menn í nútímanum, þegar hún er að skrifa söguna, en hún á í fjöl- breyttum samskiptum. Kannski er partur af því sem ég er að reyna að segja í bókinni, einn þráðurinn, það hve það skiptir miklu máli hvernig fortíðin eltir fólk í gegnum kynslóðir, það sem börn upplifa fer með þeim. Þessi manneskja lærir það að konur þurfa ekki endilega karlmenn og þeir geta verið einhverskonar dragbítar.“ — Svo er það einsemdin; í bók- inni segir svo: „Það er til nístandi einsemd sem brýtur fólk niður en svo er líka til einsemd sem hægt er að njóta og læra að meta.“ „Það er stundum þægilegt að vera einn, hugsa um sjálfan sig og kannski er maðurinn alltaf einn,“ segir Þórdís og skellir uppúr. „Með- an fólki líður ekki illa í sinni ein- semd þá er alveg hægt að kunna að njóta þess, að vera einn eða ein í friði. Það er alltaf verið að tala um að fólk þurfi að vera með öðru fólki, en ég held að það mætti líka kenna fólki eða benda því á að stundum er bara gott að vera ein og hugsa sinn gang.“ — Þú dregur okkur áfram og fram og aftur í tíma en endir bókar- innar er óræður, þó ég vitni ekki í hann hér til að spilla ekki fyrir væntanlegum lesendum. „Mér finnst gaman að leika við lesandann, búa til óvæntar tenging- ar og vekja spurningar og þetta er líka svolítið eins og lífið er, það ger- ast óvæntir hlutir.“ „Við erum öll óáreiðanlegir sögumenn“  Fyrsta skáldsaga Þórdísar Gísladótt- ur kemur út  Hún fjallar meðal ann- ars um það hvernig fortíðin eltir fólk Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Óvænt Þórdísi Gísladóttur finnst gaman að leika við lesandann, búa til óvæntar tengingar og vekja spurningar. hann hugsar. Á tímabili óttast hann að typpið á honum detti af, svo oft þarf hann að fullnægja sér. Hann má ekki hugsa eina hugsun um fyrrverandi eiginkonu sína. Þjónustustúlkan má ekki vera í þröngum bol. Hann á erfitt með að komast aft- ur inn í hlutina á skrifstofunni og meðeigendurnir halda honum vilj- andi frá því sem máli skiptir. Það skilur Andreas ekki, en lesandinn skilur upp á tíu. Sagan af Andreasi er sæmilega skrifuð og léttlesin, en fær lesand- ann þó öðru hvoru til að staldra við. Honum er einnig haldið ágæt- lega við efnið með hæfilega ófyrir- sjáanlegri atburðarás. Líklega er sagan þó ekki besta verk Saalbach, en í Danmörku er hún margrómuð fyrir leikritaskrif sín. Léttlesin Sagan af Andreasi er sæmilega skrifuð og léttlesin, en fær lesand- ann þó öðru hvoru til að staldra við, segir m.a. um bók Astrid Saalbach.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.