Morgunblaðið - 25.10.2018, Side 72
72 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2018
HA
PPATALA
•
D
AGSINS
ER
•72
TIL HAMINGJU - ÞÚ HEFUR FUNDIÐ HAPPATÖLUNA!
Farðu inn ámbl.is/fimmtudagur, fylltu út upplýsingar um þig og sláðu inn Happatöluna.
Vinningshafar verða dregnir út í þættinum Ísland vaknar á K100 í fyrramálið.
Að sjálfsögðu hvetjum við þig til að taka þátt á hverjum fimmtudegi, því það er til mikils að vinna.
VIÐTAL
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Japanir eru músíkalskir og það er
gott að spila fyrir þá. Ég kem mjög
oft fram í Japan, sem er að verða
eins og mitt annað heimili. Í Japan
spilaði ég í fyrsta sinn árið 1965 og
þar líður mér vel. Þegar mér var
boðið að halda tónleika með Sinfón-
íuhljómsveit Íslands í Japan þáði ég
það auðvitað,“ segir Vladimar
Ashkenazy, aðalheiðurshljómsveit-
arstjóri Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands, þegar blaðamaður hitti hann
og Þórunni eiginkonu hans í Hörpu
að lokinni æfingu með Sinfóníu-
hljómsveitinni.
Spilar tærar en sjáandi
Í Japansferðinni leikur píanóleik-
arinn Nobuyuki Tsujii með hljóm-
sveitinni.
„Nobu, sem er blindur frá fæð-
ingu, er einstaklega góður píanó-
leikari sem spilar tærar en margur
annar sem hefur fulla sjón. Nobu er
harðduglegur, hann elskar tónlist
og helgar sig henni ásamt því að
vera góður félagi. Ég er viss um að
Sinfóníuhljómsveit Íslands á eftir
að slá í gegn með Nobu í heimalandi
hans, Japan,“ segir Vladimir Ash-
kenazy sem stjórnar Sinfóníu-
hljómsveitinni í Japan og á tón-
leikum í Hörpu í dag kl. 18.
Uppselt er á tónleikana en þeir
verða teknir upp í mynd og streymt
beint af vef Sinfóníuhljómsveitar-
innar og útvarpað beint á Rás 1.
Efnisskrá tónleikanna í dag er sú
sama og flutt verður í Japan. „Það
er að mörgu að hyggja þegar efnis-
skráin er ákveðin. Ég hef áhuga á
að flytja ákveðin verk, píanóleikar-
inn óskar eftir að spila önnur og
tónleikahaldarar hafa óskir um efn-
isval. Ég var ákveðinn í því að flytja
verkið „Jökulljóð“ sem ég bað vin
minn Þorkel Sigurbjörnsson að
semja árið 1998 en hann fór allt of
snemma frá okkur. Við minnumst
þess að Sigurbjörn hefði orðið átt-
ræður á árinu,“ segir Ashkenazy og
bætir við að Japanir hafi viljað
heyra tónverk frá Rússlandi þaðan
sem hann er ættaður og fyrir valinu
varð píanókonsert nr. 2 eftir Sergei
Rakhmanínov.
„Þriðja verkið sem við flytjum í
kvöld er sinfónía nr. 2 eftir finnska
tónskáldið Jean Síbelius. Í Japans-
ferðinni flytjum við einnig píanó-
konsert nr. 2 eftir pólska tónskáldið
Frédéric Chopin en það verk flutt-
um við ásamt Nobu í Eldborg í apríl
síðastliðnum,“ segir Ashkenazy sem
stjórnaði Sinfóníuhljómsveit Íslands
í fyrsta sinn árið 1972 og var í vor
sæmdur stórriddarakrossi hinnar
íslensku fálkaorðu fyrir framlag sitt
til íslensks tónlistar- og menningar-
lífs.
Gott að spila í Japan
Sinfóníuhljómsveit Íslands verður
á ferðalagi í þrjár vikur og ferðast
vítt og breitt um Japan. Hljóm-
sveitin heldur 12 tónleika í 11 borg-
um á sinni fyrstu tónleikaferð til
Asíu en tvö ár eru síðan ákveðið var
að fara ferðina.
„Það er einstaklega gott að spila í
Japan. Þar er klassísk vestræn
músík í hávegum höfð og aðbúnaður
fyrir tónlistarmenn og tónlistarhald
mjög gott auk þess sem japanskir
hlustendur eru frábærir,“ segir
Ashkenazy og bætir við að Japanir
séu mjög skipulagðir og kurteisir.
Ashkenazy er íslenskur ríkis-
borgari en hefur búið ásamt eigin-
konu sinni í Sviss síðastliðin 40 ár.
Hann kemur reglulega til Íslands
og stjórnar Sinfóníuhljómsveitinni.
Hann segir ekki miklar breytingar
á sveitinni en hún sé alltaf verða
betri og betri og hann sé þess alveg
viss að hljómsveitin slái í gegn í
Japan.
„Fyrir 50 árum vissu fáir í Japan
eitthvað um Ísland en nú þekkja
flestir landið og vita hvar það er.
Það er mikil tilhlökkun fyrir komu
sveitarinnar til Japan,“ segir
Ashkenazy og bætir við að það auki
enn á tilhlökkunina að Nobuyuki
Tsujii, sem sé þekktur í Japan og
hafi komið fram í öllum helstu tón-
leikahöllum heims, sé einleikari tón-
leikaraðarinnar. Nobu sé stór-
stjarna í Japan og hafi unnið til
gullverðlauna í Van Cliburn-
píanókeppninni árið 2009.
Ashkenazy hlakkar til upphit-
unartónleikanna fyrir Japansferð-
ina í kvöld og ferðalagsins með Sin-
fóníuhljómsveitinni í byrjun
nóvember.
„Góður svefn, gott mataræði og
að gera enga vitleysu gerir það að
verkum að ég kvíði því ekki að fara í
langt og strangt ferðalag um Japan
heldur hlakka til að takast á við
verkefnið,“ segir Ashkenazy, sem
fagnaði 81 árs afmæli í sumar.
Blindur einleikari með Sinfóníunni
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Upphitun Vladimar Ashkenazy og Nobuyuki Tsujii á æfingu með Sinfóníuhljómsveitinni fyrir tónleika kvöldsins.
Upphitun fyrir Japansferð í kvöld 12 tónleikar í 11 borgum Ashkenazy segir Nobu einstaklega
góðan píanóleikara Japanir miklir músíkantar Jökulljóð Þorkels Sigurbjörnssonar með í för
Stundum ströggla lista-menn allan sinn feril viðað finna nákvæmlega úthverjir þeir eru, og fyrir
hvað þeir standa. Mjög margir
komast aldrei að því og bregða
sér því í margra kvikinda líki eft-
ir því hvað er í tísku þá og þá
stundina, í von
um að fá hlust-
un, fá spilun, fá
athygli. Allir
vilja vera sér-
stakir svo þeir
standi út úr, en
samt ekki of
sérstakir. Það eru nefnilega svo
margir í þessum heimi ægilega
spéhræddir og í raun þora þeir
ekki að vera þeir sjálfir. Þannig
er því alls ekki farið með Bjarney
Önnu Jóhannesdóttur, öðru nafni
Fnjósk, sem var að senda frá sér
sína fyrstu plötu undir því nafni.
Hún hittir naglann beint á höfuðið
með nafni plötunnar og fyrsta lag-
inu sem jafnframt er titillagið,
„Who are you?“. Lagið er gríp-
andi og í textanum er fólk beðið
um að líta í eigin barm og finna út
hvert það sjálft sé. Það er líklega
næstmikilvægasta spurning sem
mannkynið getur velt fyrir sér,
strax á eftir „Er guð til?“.
Þetta titillag er frábær opnun á
plötunni en er svo bara alls engin
undantekning, því á eftir fylgja
sjö lög sem öll eru jafnstórkost-
leg. Þau eru misgrípandi, fyrsta
og síðasta lagið, „Enough“, eru
með bestu krækjurnar og maður
fær þau fyrst á heilann, en hvert
eitt og einasta lag er spennandi,
flókið, og með djúpum pælingum í
textunum. Samt hljóma lögin oft
sakleysisleg, en það er sko bara á
yfirborðinu.
Bjarney tæklar einelti, óöryggi
og alls kyns vandamál í textum
sínum en gerir það með svo mik-
illi gleði og sköpunarkrafti að það
er einhvern veginn allt í lagi að
hugsa um öll þessi málefni. Text-
arnir enda líka flestir vel. „Movie
Monster“ er til dæmis um ein-
hvern sem horfir á skrýmsla-
hryllingsmyndir til að takast bet-
ur á við hryllinginn sem hefur átt
sér stað í alvörunni, og bendir á
hið augljósa: Það er hægt að
slökkva á hryllingnum í myndinni
hvenær sem er, en í lífinu heldur
sársaukinn áfram, því við menn-
irnir erum alvöru skrýmslin.
Þetta er svo svakalega djúpt en
samt líka alveg augljóst þegar
maður hefur komið auga á það.
Bjarney Anna er alvöru lista-
maður með endalaust mikið að
gefa heiminum. Hún er frumleg í
lagasmíðum sínum og textagerð,
og útsetningar laganna eru á þeim
stórkostlegu mörkum þegar eitt-
hvað er svo flókið að það hljómar
einfalt. Mér dettur stundum í hug
hljóðheimur listamanna frá sjö-
unda og áttunda áratugnum, eins
og Beach Boys eða fyrri plötur
David Bowie. Það er listræna
þarna, það eru ævintýraleg stef
sem skreiðast að manni úr öllum
áttum en passa samt öll akkúrat
þar sem þau eru.
Rödd Bjarneyjar er há og tær
og hljómar eins og ekkert annað í
þessum heimi, og það er líka það
sem hún stendur fyrir. Hún er
hún, rétt eins og ég er ég og þú
ert þú og öll erum við fullkomin
eins og við erum og eigum ekkert
að vera að reyna að vera einhver
annar.
Til hamingju, Bjarney, að hafa
uppgötvað þetta svona snemma á
þínum ferli. Maður getur farið að
hlakka til allra platnanna sem hún
mun gefa okkur. Þessi fyrsta
Fnjósk-plata er að minnsta kosti
stórfenglegt listaverk!
Hver ert þú?
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Stórkostleg Bjarney Anna Jóhannesdóttir gengur undir listamannsnafninu
Fnjósk. Fyrsta breiðskífa hennar er stórkostlegt listaverk, að mati rýnis.
Popp
Fnjósk – Who are you bbbbb
Fnjósk gefur út átta laga diskinn Who are
you. Lagasmíði, söngur og hljóðfæra-
leikur: Bjarney Anna Jóhannesdóttir. Upp-
tökustjóri, hljóðfæraleikari og galdrakall:
Kristján Edelstein. Hljóðblöndun og mast-
ering: Styrmir Hauksson.
RAGNHEIÐUR
EIRÍKSDÓTTIR
TÓNLIST