Morgunblaðið - 31.10.2018, Page 2

Morgunblaðið - 31.10.2018, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2018 PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is skotbómulyftara AG línan frá Manitou býður meðal annars upp á nýtt ökumannshús með góðu aðgengi og útsýni. HANNAÐUR TIL AÐ VINNA VERKIN NÝ KYNSLÓÐ • DSB stjórntakkar • JSM stýripinni í fjaðrandi armi • Stýrð stjórnun og hraði á öllum glussahreyfingum • Virk dempun á bómu Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. land mun gegna formennsku í nefndinni á næsta ári. Í formennskuáætlun Íslands er megináhersla lögð á þrjú lykilatriði sem lúta að ungu fólki, sjálfbærri ferðamennsku og málefnum hafsins, með sérstakri áherslu á bláa lífhag- kerfið. Jafnrétti kynjanna, hug- myndafræði sjálfbærrar þróunar og stafræn væðing fléttast jafnframt inn í formennskuverkefnin auk heimsmarkmiða Sameinuðu þjóð- anna. Norrænt samstarf á sviði velferð- armála og umhverfismála, samstarf um bætt nýsköpunarumhverfi fyr- irtækja og aukinn hreyfanleiki innan Norðurlandanna verða einnig áhersluatriði formennsku Íslands og ræddi forsætisráðherra sérstaklega um nauðsyn þverfaglegs samstarfs milli Norðurlandanna á sviði velferð- armála, þar sem nýjar áskoranir blasi við hinu norræna velferðar- módeli. Sigurður Ingi Jóhannsson, sam- starfsráðherra Norðurlandanna, fundaði með norrænu samstarfs- ráðherrunum í gærmorgun þar sem ákveðið var að halda áfram og bæta norrænt samstarf. Í dag fundar hann með forsætisnefnd Norður- landaráðs. Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Útganga Bretlands úr Evrópusam- bandinu var efst á baugi á tvíhliða fundi Katrínar Jakobsdóttur for- sætisráðherra og Theresu May, for- sætisráðherra Bretlands, á þingi Norðurlandaráðs í Ósló í gær. „Það var sérstakt fagnaðarefni að það var skýr vilji hjá May, og mér líka, að óháð því hvaða lausn finnst á Brexit þá verða réttindi borgara okkar ríkja tryggð. Þau verða óbreytt hvort sem það eru Íslend- ingar búsettir í Bretlandi eða Bretar á Íslandi,“ sagði Katrín í samtali við Morgunblaðið að fundi loknum síð- degis í gær. Sagði hún að samningur yrði gerður þar að lútandi óháð því hvernig útgöngu Breta úr Evrópu- sambandinu verður háttað. Katrín segist hafa gert May grein fyrir að Íslendingar hafi fylgst mjög náið með útgöngu Breta úr Evrópu- sambandinu og Íslendingar séu und- ir það búnir enda skipti það Ísland miklu máli að halda góðum sam- skiptum við Breta enda sé Bretland mikilvægt viðskiptaland Íslands og sterk pólitísk tengsl milli ríkjanna tveggja. „Það hafa ýmsir verið að ræða hvort Bretar komi inn í EFTA eða verði aðili að EES. Mér fannst hún ekki gefa þeirri hugmynd undir fót- inn,“ sagði Katrín. „[May] talaði meira um að þau væru að stefna að tvíhliða samningum,“ segir Katrín en hún átti sömuleiðis tvíhliða fundi með Ernu Solberg, forsætisráðherra Noregs, og Juha Sipilä, forsætisráð- herra Finlands, í gær þar sem mál- efni hafsins og Norðurskautsráðið bar á góma ásamt málum tengdum Brexit, Evrópusambandinu og EES- samningnum. Ísland tekur við formennskunni May var stödd í Noregi vegna málþingsins Northern Future For- um (NFF) þar sem forsætisráð- herrar Norðurlandanna, Eystra- saltsríkjanna og Bretlands eiga sæti en fulltrúar frá atvinnulífi og há- skólasamfélagi landanna níu voru einnig viðstaddir málþingið. Þetta er í sjötta sinn sem boðað er til funda undir merkjum NFF. Að loknu NFF var Norður- landaráðsþing sett, en þar kynnti Katrín formennskuáætlun Íslands í Norrænu ráðherranefndinni en Ís- Ljósmynd/Johannes Jansson Norðurlandaráðsþing Forsætisráðherra kynnti formennskuáætlun Íslands á Norðurlandaráðsþingi í gær. Réttindi Íslendinga og Bret- lands tryggð í báðum ríkjum  Katrín Jakobsdóttir og Theresa May ræddu samskipti ríkjanna eftir Brexit Ljósmynd af vefsíðu forsætisráðuneytisins Forsætisráðherrar Katrín Jakobsdóttir og Theresa May áttu fund í Ósló í gær. Katrín gerði May grein fyrir mikilvægi góðra milliríkjasamskipta. „Ef menn eru að kaupa fyrirtæki í skuldsettum yfirtökum, og ætla sér síðan að blóðmjólka þau í framhald- inu til að greiða kaupverðið – það er eitthvað sem ég get ekki séð að við í lífeyrissjóðunum munum sætta okk- ur við,“ segir Sverrir Mar Alberts- son, framkvæmdastjóri Afls starfs- greinafélags, í samtali við 200 mílur á mbl.is en félagið greindi í gær frá því að 11 starfsmönnum Granda hf. í frystihúsi félagsins á Vopnafirði hefði verið sagt upp störfum. Áður hefði þremur starfsmönnum verið sagt upp og loks eru tveir starfs- menn sagðir vera að hætta af öðrum ástæðum og verður ekki ráðið í stað þeirra. Sverrir Mar segir að þeir sem sitji í stjórnum lífeyrissjóða fyrir verka- lýðsfélögin eigi að beita sér harðar fyrir því að fyrirtæki og stjórnendur þeirra axli meiri ábyrgð. „Við munum beita okkur innan stjórna lífeyrissjóðanna fyrir að setja auknar kröfur á fyrirtækin um að þau axli samfélagslega ábyrgð,“ segir Sverrir. Hann bendir á að hann sitji í stjórn lífeyrissjóðsins Stapa. Þar muni hann taka málið upp. Í frétt á vef Afls kom eftirfarandi fram í gærkvöldi: „Stjórnendur hjá HB Granda höfðu samband við AFL undir kvöld og mótmæltu því að ver- ið væri að stöðva uppbyggingu frystihússins á Vopnafirði en sögðu að unnið væri að breytingum á fyr- irkomulagi á vinnslu á bolfiski og rekstri hússins á milli uppsjávarver- tíða.“ Ellefu sagt upp  Breytingar hjá HB Granda á Vopna- firði  Afl vill beita sér í lífeyrissjóðum Ekki er gert ráð fyrir heilbrigðis- þjónustu utan ríkisstofnana í drög- um að nýrri heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Heilbrigðisráðherra hefur boðað til heilbrigðisþings á Grand hóteli á föstudaginn þar sem drögin verða kynnt og rædd. Sér- fræðilæknar fengu kynningu á drögunum á fundi í síðustu viku. „Þeir sem starfa á sjálfstæðum stofum og sinna þriðjungi heilbrigð- isþjónustunnar fyrir sex til sjö pró- sent rekstrarfjár hennar eru ekki spurðir álits. Við búum í heimi þar sem spítalaþjónusta minnkar stöð- ugt og færist yfir á göngudeildir, dagdeildir og stofur lækna. Það skýtur skökku við að synda á móti straumnum og fara í öfuga átt,“ segir Ragnar Freyr Ingvarsson sem starfar bæði hjá hinu opinbera og sjálfsætt, annars vegar sem læknir á bráðalyflækningadeild Landspítalans og hinsvegar sem sérfræðilæknir á sviði gigtlækninga hjá Klíníkinni. Leggja þjónustuna niður? „Síðustu misseri hefur þjónusta sjálfstætt starfandi verið færð yfir til hins opinbera,“ segir Ragnar. „Til dæmis Karitas sem sinnti deyj- andi krabbameinssjúklingum í heimahúsi fyrir ótrúlega lítið fé var færð á hendur hins opinbera og samningnum sagt upp. Það stefnir í að það verði meira af þessu, ódýrum úrræðum fórnað á altari opinberrar heilbrigðisþjónustu sem gjarnan er dýrari í rekstri. Mér sýnist það vera stefnan að reyna af öllum mætti að leggja niður þjónustu sjálfstætt starfandi sama hversu góð, ódýr eða skilvirk hún er, til þess eins að færa hana á hendur hins opinbera.“ Styrkja opinbera kerfið Svandís Svavarsdóttir heilbrigð- isráðherra segir ekki markmið í sjálfu sér að vinna gegn einka- rekstri í heilbrigðisþjónustu. „Markmiðið er að styrkja opinbera heilbrigðiskerfið enda er það grund- völlur öflugrar heilbrigðisþjónustu, sterkt opinbert kerfi,“ segir Svan- dís. Hún bendir á að stefnan sé langt frá því að vera tilbúin og þing- ið á föstudag sé liður í mótun stefn- unnar. „Mest aðkallandi verkefnið hjá okkur er að tryggja að stefnan sé heildstæð, örugg og hagkvæm og að það ríki jöfnuður í aðgengi að þjónustunni.“ ash@mbl.is Drögin boða ríkis- rekstur  Heilbrigðisstefna til 2030 í mótun Heiðveig María Einarsdóttir, sem tilkynnt hafði framboð til formanns Sjómannafélags Íslands, hefur verið rekin úr félaginu. Frá þessu greindi Heiðveig á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi. „Nú er ég endanlega orðlaus, ég vissi að þeir myndu ganga langt! En að reka mig úr félaginu er eitthvað sem mig hafði ekki getað órað fyrir að gæti gerst, að minnsta kosti ekki í okkar heimshluta!“ segir Heiðveig í færslu sinni. „Ég fékk bréf nú í dag frá formanni Sjómannafélagsins þar sem hann rak mig úr félaginu á grundvelli samþykktar trúnaðar- mannaráðs eftir kröfu fjögurra full- trúa hins sama ráðs!“ segir hún og birtir afrit af umræddu bréfi. Rekin úr Sjómanna- félaginu  Heiðveig birtir bréf

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.