Morgunblaðið - 31.10.2018, Blaðsíða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2018
VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Danski leikarinn Jakob Cedergren
er vinalegur og afslappaður þegar
hann heilsar blaðamanni, ólíkt
manninum sem hann leikur í kvik-
myndinni Den skyldige eða Hinn
seki, sem frumsýnd var í Bíó Para-
dís 25. október sl. að honum við-
stöddum. Cedergren er í mynd all-
an tímann og koma aðrir leikarar
lítið við sögu fyrir utan þá sem
hann ræðir við í síma. Kvikmyndin
hefur hlotið einróma lof gagnrýn-
enda og á síðunni Metacritic var
hún með meðaltalseinkunnina 82 af
100 mögulegum í gær.
Í Hinum seka segir af yfir-
spenntum lögreglumanni, Asger,
sem þarf tilneyddur að vinna vaktir
hjá neyðarlínunni. Snemma myndar
kemur í ljós að hann þarf að mæta
fyrir rétt næsta dag og svara fyrir
einhverjar gjörðir sem síðar kemur
í ljós hverjar eru. Asger er upp-
stökkur og þungur í skapi, vill
ljúka vaktinni sem fyrst og komast
heim. Það breytist hins vegar þeg-
ar í hann hringir kona sem virðist
hafa verið rænt. Asger reynir allt
hvað hann getur að bjarga henni
frá mannræningjanum með símann
einan að vopni og fer í þeim til-
raunum langt út fyrir starfssvið
sitt.
Kvikmyndin er sú fyrsta í fullri
lengd sem Gustav Möller leikstýrir
og var frumsýnd á kvikmyndahátíð-
inni Sundance í ársbyrjun. Þar
hlaut hún áhorfendaverðlaun í
flokki alþjóðlegra kvikmynda og í
kjölfarið fylgdi fjöldi tilnefninga og
verðlauna á hinum ýmsu hátíðum.
Den skyldige er auk þess framlag
Dana til Óskarsverðlauna fyrir
bestu erlendu kvikmynd.
Stórkostlegur árangur
Cedergren er sammála blaða-
manni í því að þetta sé algjör
draumabyrjun hjá leikstjóranum
Möller. Hann segist ekki hafa
þekkt leikstjórann áður en hann fór
í prufur fyrir hlutverkið og hreppti
það. „Ég las handritið í þeirri út-
gáfu sem það var á þeim tíma-
punkti og sem betur fer vildi hann
fá mig í hlutverkið. Hópurinn sem
stóð að kvikmyndinni var saman í
kvikmyndaskóla og Gustav er stór-
merkilegur, ein nákvæmasta mann-
eskja sem ég hef kynnst.“
Cedergren er auðvitað hæst-
ánægður með viðtökurnar sem
kvikmyndin hefur fengið. „Ég vissi
alltaf að hún yrði góð en átti ekki
von á því að hún myndi fá mikla at-
hygli. Ég hafði að sjálfsögðu mikla
trú á henni og kunni vel að meta
hvernig sagan er byggð upp, út frá
rannsóknarvinnu, að hún væri ekki
hreinn skáldskapur,“ segir leikar-
inn, en handrit myndarinnar skrif-
aði leikstjórinn með handritshöf-
undinum Emil Nygård Albertsen.
Hugmyndina að sögunni fékk
Möller þegar hann sá myndband á
YouTube um mannrán í Bandaríkj-
unum. Kona hringdi í neyðarlínuna
og hvíslaði því að henni hefði verið
rænt. Mannræninginn tók ekki eft-
ir neinu og lögreglunni tókst á end-
anum að bjarga konunni. Þetta
varð Möller innblástur og einnig sú
staðreynd að lögreglumenn í Dan-
mörku eru stundum settir á
neyðarlínuvakt þegar þörf þykir á
að þeir taki sér frí frá hefð-
bundnum lögreglustörfum.
Litlu atriðin skipta máli
–Það er mikil spenna í þessum
manni sem þú leikur og í myndinni
ertu dálítið ógnvekjandi.
„Gott,“ segir Cedergren og glott-
ir. „Hann er ekki í góðu andlegu
ástandi, undir miklu álagi.“
–Lýsingin og myndatakan magna
líka upp þessa spennu, mikið lýst
ofan frá og nærmyndir tíðar. Klipp-
ingin sem þú ert með er líka út-
hugsuð og minnir á hermannaklipp-
ingu.
„Já, öll þessu litlu atriði skipta
máli og í Danmörku er svona klipp-
ing dálítið tengd úthverfunum og
gefur til kynna hvaðan menn eru,“
svarar Cedergren. Hann segir bæði
útlit og hegðun Asgers gefa til
kynna að þar fari mjög agaður
maður, vanur að fylgja reglum.
Cedergren segir að öll símtölin í
myndinni hafi átt sér stað í raun og
veru, leikararnir hafi talað við hann
í síma en ekki á staðnum sem skap-
aði nauðsynlega spennu og trúverð-
ugleika í tökum. Leikstjórinn hafi
búið til réttar aðstæður og gefið
leikurunum síðan algjört frelsi til
að vinna út frá þeim. „Hann vildi
hafa þetta eins raunverulegt og
mögulegt væri,“ útskýrir Ceder-
gren.
Eflir danska kvikmyndagerð
Kvikmyndin hlaut styrk úr New
Danish Screen, verkefni á vegum
Dönsku kvikmyndamiðstöðvarinnar
sem hefur þann tilgang að efla
ungt hæfileikafólk í listgreininni og
stuðla að nýsköpun. New Danish
Screen styrkir kvikmyndir sem
þykja ódýrar í framleiðslu og er
kvikmyndin Vinterbrödre, eða
Vetrarbræður, eftir leikstjórann
Hlyn Pálmason, þeirra á meðal.
Cedergren segir verkefnið afar
mikilvægt fyrir danska kvikmynda-
gerð. „Það tryggir að hæfileikafólk
geti gert sínar fyrstu kvikmyndir í
fullri lengd,“ segir hann. Danmörk
sé fámennt land og því sé styrkur
frá hinu opinbera til listgreina
nauðsynlegur og New Danish Cin-
ema tryggi líka nýsköpun.
Það er sjaldgæft í kvikmynda-
gerð því þar eru oft háar fjárhæðir
í spilinu sem setja fólki skorður.
Svona verkefni veitir algjört list-
rænt frelsi og maður fær auk þess
að vinna með náunga eins og Gust-
av. Ég vona innilega að hann fái
aftur svona tækifæri því hann
leysti þetta mjög vel af hendi. Þessi
mynd skipti hann miklu máli og
hún er nákvæmlega eins og hann
vildi hafa hana en væri það ekki ef
við hefðum haft úr þrefalt hærri
fjárhæð að spila.“
Hélt áfram að leika sér
Cedergren er fæddur árið 1973
og lauk leiklistarnámi á 24. aldurs-
ári. Hann segist hafa byrjað feril-
inn á leiksviði en sjónvarpsþættir
og kvikmyndir tóku fljótt við. Hann
leikur enn á sviði inni á milli sjón-
varps- og kvikmyndaverkefna.
En hvers vegna valdi hann sér
þetta starf, starf leikarans? „Ég
valdi það ekki, það valdi mig,“ segir
Cedergren og skellihlær að heldur
tilgerðarlegu svarinu. „Einhverra
hluta vegna hélt ég áfram að leika
þennan hlutverkaleik sem öll börn
stunda,“ bætir hann við og brosir.
Cedergren er að lokum spurður
að því hverja hann telji kosti og
galla starfsins. Hann hlær og segist
ekki vita hvar skuli byrja. „Það
besta við starfið er að fá að hitta
áhorfendur og vinna rannsóknar-
vinnu. Að hitta einhvern og upplifa
að það sem maður starfar við hafi
einhverja þýðingu fyrir hann,“ seg-
ir Cedergren og bætir við að hon-
um þyki starfið svo auðvitað
skemmtilegt.
En hverjir skyldu þá gallarnir
vera? „Fjölmiðlar. Maður þarf að
gæta sín á því hvað maður segir!“
svarar Cedergren og glottir stríðn-
islega. „Góður blaðamaður nær
góðu viðtali af því að hann er
traustsins verður. En aðalgallinn er
sumsé fjölmiðlaumfjöllun og að
veita viðtöl,“ segir Cedergren og
skellihlær en bætir við að ofan-
ritaður virðist vera ágætisnáungi
og því traustsins verður. Hafi leik-
arinn bestu þakkir fyrir.
Vissi að kvikmyndin yrði góð
Den skyldige er framlag Danmerkur til Óskarsverðlauna Yfirspenntur lögreglumaður reynir
að bjarga konu frá mannræningja með símann einan að vopni Byggð á raunverulegum atburði
Ljósmynd/Robin Skjoldborg
Reyndur Cedergren hefur leikið í fjölda kvikmynda og sjónvarpsþátta,
meðal annars þáttunum Forbrydelsen og kvikmyndunum Submarino og
Voksne mennesker en Dagur Kári Pétursson leikstýrði þeirri síðarnefndu.
Stressaður Cedergren í hlutverki lögreglumannsins Asger í kvikmyndinni Den skyldige, Hinn seki.
JÓN BERGSSON EHF
Kletthálsi 15 | 110 Reykjavík | Sími 588 8881 | www.jonbergsson.is | jon@jonbergsson.is
GARÐSKÁLAR Á HJÓLUM
Hentar þetta þínum garði, svölum,
rekstri eða sumarbústað?