Morgunblaðið - 31.10.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2018
Loftpressur - stórar sem smáar
Styrmi Gunnars-syni er órótt:
Það mætti ætla,þegar farið er
inn á heimasíður
helztu stjórnmála-
flokka hér, að þeir
séu að taka upp
ensku í samskiptum
við fólk.
Einna verstir eruVinstri græn-
ir, sem bjóða upp á
„Calendar of events“, „Events for
October 2018“ o.s.frv.
Sjálfstæðisflokkurinn hvetur fólkenn til að hafa samband við sig
með áskoruninni: „Message us“.
Samfylkingin segir „load more“,þegar hún leiðbeinir fólki um
frekari upplýsingar.
Hvað á þetta að þýða? Hefurfólkið sem stjórnar þessum
flokkum engan metnað til þess að
standa vörð um íslenzkt mál?“
Og Þórarinn Eldjárn skáld skrif-ar í sinn pistil um andófið
gegn tungunni:
Ansi skýtur það því skökku viðað á sama tíma skuli birtast
afturgengið á Alþingi hið ein-
staklega óvandaða og ábyrgðar-
lausa frumvarp um afnám allra
reglna og viðmiða um mannanöfn á
Íslandi. Mannanöfn fyrr og síðar
eru snar þáttur tungunnar. Allar
þjóðir hafa komið sér upp reglum
þar um. Það er bábilja að slíkt sé
eintóm íslensk sérviska.“
Undir þetta skal tekið.
Styrmir
Gunnarsson
Heggur sá er …
STAKSTEINAR
Þórarinn Eldjárn
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Leiðbeinendur í grunnskólum
Hafnarfjarðar eru tæp 16% af
heildarfjölda þeirra sem sinna þar
kennslu. Stöðugildin eru 68 talsins
á móti 366 hjá kennurum. Lang-
flestir leiðbeinendur eru í Hraun-
vallaskóla og Víðistaðaskóla, eða
18 í hvorum skóla, sem er um
þriðjungur af þeim sem sinna þar
kennslu.
Þetta kemur fram í svari
fræðsluráðs Hafnarfjarðar við fyr-
irspurn Sigurðar Þ. Ragnarssonar,
bæjarfulltrúa Miðflokksins.
Þar kemur einnig fram að tæp
90% af starfandi leiðbeinendum í
grunnskólum Hafnarfjarðar hafa
háskólapróf, eða 63 talsins. Í
Hraunvallaskóla eru flestir leið-
beinendur án háskólaprófs, eða
fimm af átján. Tveir eru í Set-
bergsskóla og einn í Víðistaða-
skóla.
Ekki er vitað til þess að kennsla
hafi verið felld niður vegna kenn-
araskorts, að því er segir í svarinu.
„En í reynd má segja að það skorti
grunnskólakennara því verið sé að
ráða leiðbeinendur án kennslurétt-
inda í störf kennara með viðeig-
andi undanþáguferli þetta skólaár.
Leiðbeinendur eru ráðnir í eitt
skólaár í senn,“ segir í svarinu. Ný
ráðningarferli hefjist eftir skóla-
árið þar sem leitað verður að
grunnskólakennurum á nýjan leik.
Hlutfall leikskólakennara í leik-
skólum í Hafnarfirði er 29% en
þar er átt við stöðugildi. Sam-
kvæmt lögum um menntun og
ráðningu kennara og skólastjórn-
enda í leik-, grunn- og framhalds-
skólum, nr. 87/2008, eiga að lág-
marki 2/3 hlutar þeirra er starfa
við uppeldi og menntun í leikskóla
að hafa leyfisbréf til kennslu í leik-
skóla, eða 66,66%.
freyr@mbl.is
Réttindalausum fjölgar í Hafnarfirði
Leiðbeinendur við grunnskólakennslu eru tvöfalt fleiri nú en fyrir tveimur árum
Kjartan K. Steinbach
lést á krabbameinsdeild
Landspítalans 25. októ-
ber síðastliðinn, 68 ára
að aldri.
Kjartan fæddist í
Reykjavík 16. desember
1949, sonur hjónanna
Kjartans Steinbach og
Soffíu Loptsdóttur
Steinbach.
Kjartan lauk stúd-
entsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík
árið 1970 og prófi í raf-
magnstæknifræði frá
tækniháskólanum í Odense árið 1982.
Hann starfaði sem línumaður hjá
Rafmagnsveitu Reykjavíkur frá
1967-1972 og sem rafvirki frá 1972-
1977. Milli 1977 og 1978 var Kjartan
framkvæmdastjóri HSÍ. Að loknu
háskólanámi starfaði hann sem liða-
verndarsérfræðingur hjá Rafmagns-
veitum ríkisins til ársins 1988, þar til
hann stofnaði Verkfræðistofuna Afl
og Orku ásamt fleirum og rak hana
til dauðadags, þar sem starf hans
fólst aðallega í hönnun og efirliti á
raforkuvirkjunum, aðveitustöðvum
og tengivirkjum.
Kjartan innleiddi svonefnda KKS-
skráningu á Íslandi, sem er notuð í
öllum raforkuverum landsins og
stóriðjuverum.
Kjartan gegndi fjöldamörgum
nefndar- og trúnaðarstörfum á sviði
raforkumála, s.s. for-
mennsku í starfs-
mannafélagi RARIK,
stjórnarsetu í orku-
nefnd Sjálfstæðis-
flokksins, nefndarsetu
í staðlaráði og stjórn
Félags ráðgjafaverk-
fræðinga.
Kjartan var virkur í
íþróttum og félags-
málastörfum alla ævi.
Hann varð Íslands-
meistari með KR í
körfubolta, var í ung-
lingalandsliði í fót-
bolta og spilaði með meistaraflokki
Þróttar í handbolta þar til hann
sneri sér að dómgæslu í handbolta.
Kjartan sat í stjórnum og nefndum
HSÍ með hléum frá 1974 til dauða-
dags og hann var einn af lykil-
mönnum í að fá heimsmeistaramótið
í handbolta til Íslands. Árið 1996 var
Kjartan kjörinn forseti dómara- og
leikreglunefnar Alþjóðahandknatt-
leikssambandsins, IHF, og gegndi
hann því embætti ásamt því að sitja
í framkvæmdastjórn IHF til ársins
2004.
Eftirlifandi eiginkona Kjartans
er Marta Guðmundsdóttir kennari.
Börn þeirra eru Karólína, Brynjar
og Örvar, ásamt 3 barnabörnum.
Útför Kjartans fer fram frá Fella-
og Hólakirkju mánudaginn 5. nóv-
ember næstkomandi kl. 15.
Andlát
Kjartan K. Steinbach