Morgunblaðið - 31.10.2018, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2018
Hrekkjavaka verður á Árbæjar-
safni í dag frá kl. 17-19. Safnið
verður sveipað dulúðlegum blæ og í
rökkrinu má sjá bregða fyrir svip-
um fortíðar. „Markmiðið er að gest-
ir fái að kynnast fornum siðum há-
tíðarinnar og hver veit nema andar
fortíðarinnar verði á vegi þeirra,“
segir í tilkynningu. Aðgangur er
ókeypis fyrir börn og alla grímu-
klædda gesti. Börn 12 ára og yngri
koma í fylgd með fullorðnum.
Morgunblaðið/Hari
Hrekkjavaka Hér er hætta á ferðum.
Andar fortíðar munu
birtast í myrkrinu
Um síðustu helgi voru umhverfis-
verðlaun Skútustaðahrepps fyrir
árið 2018 afhent. Þau hlaut að
þessu sinni Birkir Fanndal Haralds-
son, vélstjóri og fréttaritari
Morgunblaðsins í Mývatnssveit. Í
umsögn umhverfisnefndar sveitar-
félagsins segir að með endurhleðslu
varða á Mývatnsöræfum hafi Birkir
sýnt umhverfinu áhuga og um-
hyggju í verki. Jafnframt hafi Birk-
ir komið fyrir gestabókum á fjalls-
toppum og áningarstöðum í
sveitinni. Þetta hafi aukið áhuga
fólks á umhverfinu og vörðurnar
dregið athygli vegfarenda að sögu
svæðisins.
Fékk umhverfisverð-
laun í Mývatnssveit
Umhverfisverðlaun Birkir Fanndal með
Dagbjörtu Bjarnadóttur, t.v., og Elísabetu
Sigurðardóttur sveitarstjórnarfulltrúum.
Íslenskt einangrunargler
í nýbygginguna, sumarbústaðinn
eða stofugluggann.
Fagleg ráðgjöf og öruggur afhendingartími.
Smiðjuvegi 2, Kópavogi – sími 4889000– samverk.is
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Við fararstjórn reynir ámargt, svo sem að þekkjalandið og finna réttar ogöruggar leiðir,“ segir
Helgi Jóhannesson lögmaður.
„Komi eitthvað upp á, svo sem slys
eða veikindi, er það fararstjórans að
bregðast við. Að fenginni þeirri
þekkingu sem ég fékk á námskeið-
inu finnst mér hreinlega óráð að
farið sé í lengri ferðir um óbyggðir
og öræfi nema kunna fyrstu hjálp.“
Tæplega tuttugu fararstjórar í
Ferðafélagi Íslands luku um síðustu
helgi átta daga námskeiði sem bar
yfirskriftina Fyrsta hjálp í óbyggð-
um. Námskeiðið, sem er á vegum
Björgunarskóla Slysavarnafélagsins
Landsbjargar, er alþjóðlegt og
kennt með líku lagi víða um lönd
undir yfirskriftinni Wilderness
First Responder. Farið var yfir fjöl-
mörg atriði á námskeiðinu, sem stóð
í alls átta daga. Leiðbeinendur voru
Ármann Höskuldsson, Tryggvi
Hjörtur Oddsson og Sigurjón Val-
mundsson.
Áhugi kennaranna smitaði
„Við höfðum frábæra kennara
sem hafa greinilega ástríðu fyrir
efninu. Áhugi þeirra á efninu smit-
aði sér til okkar sem þarna sátum á
skólabekk. Þarna var meðal annars
fjallað um bráðaofnæmi og viðbrögð
við því og það hvernig algengustu
lyf virka. Einnig var okkur kennt að
búa um slys og stöðva blæðingar,
sinna fólki sem fer úr lið eða bein-
brotnar, fær hjartaáfall og svo
framvegis,“ segir Helgi. „Já, ég hef
lent í ýmsum óvæntum og erfiðum
aðstæðum í mínum fjallaferðum
sem ég myndi bregðast öðruvísi við
í dag að fenginni þekkingu á nám-
skeiðinu. Fyrir mörgum árum var
ég með félaga mínum í mótorhjóla-
ferð inni við Hlöðufell, ofan við
Laugarvatn, þegar hann velti hjól-
inu og hlaut opið handleggsbrot.
Mín fyrstu viðbrögð – og kannski
skiljanleg – voru að komast í síma-
samband og kalla eftir aðstoð úr
byggð. Hins vegar gætti ég ekki að
því að úr opnu broti félaga míns
blæddi og var það nauðsynlegt að
stöðva og slíkt myndi ég gera í dag
fyrst af öllu. Leiðbeinendurnir á
námskeiðinu kenndu okkur einmitt
að stoppa slíkar blæðingar.“
Fjallafólkið er undirbúið
Á námskeiðinu var fólki kennt
hvernig búa á fólk til sjúkraflutn-
ings og sinna því áður en á vettvang
koma bráðaliðar – en námskeiðið
sem hér um ræðir er í raun
skemmri skírn af menntun þeirra.
„Fjallafólk á að vera mjög vel
undirbúið eftir þennan skóla og
mun nálgast hlutina öðruvísi en áð-
ur,“ segir Helgi Jóhannesson, sem
hefur stundað útivist um árabil og
sinnt fararstjórn til dæmis á jöklum
og Hornströndum; en á báðum stöð-
um er langt í bjargir.
Fararstjórarnir séu öruggir
Fyrsta hjálp í óbyggðum
var yfirskrift námskeiðs
sem fararstjórar FÍ sóttu.
Nú fer fremst í flokki í
ferðum fólk sem kann að
búa um sár, bregðast við
hjartaáföllum og fleiru
sem hent getur þegar
langt er í bjargir.
Morgunblaðið/Valli
Aðhlynning Á námskeiðinu lærði fólk að búa um slasaða og veika og búa til sjúkraflutnings. Leiðbeinendur komu
frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg en námsefnið og kennslan var skv. alþjóðlegri nálgun sem reynst hefur vel.
Slasaður Helgi Jóhannesson, lögmaður og fararstjóri, sést hér í hlutverki
sjúklings á námskeiðinu sem Ferðafélag Íslands sendi sitt fólk á.
Snorrastofa í Reykholti í Borgar-
firði býður til sýningar um
fullveldisárið í hátíðarsal Snorra-
stofu í héraðsskólahúsinu næst-
komandi laugardag 3. nóvember kl.
14.
Á sýningunni raðast saman mun-
ir og minningar; ljósmyndir, sendi-
bréf og önnur slík minningarbrot
sem skapa stemningu og tilfinn-
ingu fyrir tíðaranda ársins, segir í
tilkynningu. Brugðið er upp mynd-
um af bæjum og búendum, mennt
og menningu, lífsbaráttu og tóm-
stundum Borgfirðinga. Fréttir árs-
ins af borgfirskum málefnum eru
einnig fengnar úr prentuðum blöð-
um og mjög byggt á handrituðum
blöðum sem Þorsteinn Jakobsson
(1884–1967) skráði.
Óskar Guðmundsson rithöfundur
fylgir sögusýningunni úr hlaði með
fyrirlestri: 1918 – Borgfirðingurinn
í heiminum og heimurinn í honum.
Páll Guðmundsson á Húsafelli
flytur tónlist í anda dagsins á
birkiflautu sína og Gunnlaugur
Júlíusson sveitarstjóri opnar sýn-
inguna. Þá flytur Bergur Þorgeirs-
son forstöðumaður ávarp og dag-
skránni stjórnar Jónína Eiríks-
dóttir.
Við undirbúning þessa viðburðar
hefur Snorrastofa notið liðsinnis
víða í héraði og afmælisnefnd
aldarafmælis fullveldis Íslands
styrkti framtakið. Meðal annars
var leitað til Félags eldri borgara í
uppsveitum Borgarfjarðar, Safna-
húss Borgarfjarðar – byggða- og
Skjalasafns, Ljósmynda- og bóka-
safns Akraness, Ljósmyndasafns
Reykjavíkur og einstaklinga hér í
héraði og víðar. Hönnuðir sýning-
arinnar eru þau Birna Geirfinns-
dóttir, Chris Petter Spilde og Lóa
Auðunsdóttir sem reyndust vera
góðir liðsmenn stofnunarinnar.
Eftir opnunardaginn verður sýn-
ingin opin helgina 1.-3. desember
og enn fremur verður hægt að
panta aðgang að sýningunni hjá
gestastofu Snorrastofu.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Reykholt Sýningin verður í hinu
gamla og fallega héraðsskólahúsi.
Fullveldissýning í
Snorrastofu í Reykholti
Stemning, tilfinning, ljósmyndir og sendibréf