Morgunblaðið - 31.10.2018, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2018
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Donald Trump Bandaríkjaforseti
hyggst gefa út tilskipun sem hann
segir að muni afnema ákvæði fjór-
tánda viðauka stjórnarskrár lands-
ins um að öll börn sem fæðast þar fái
sjálfkrafa ríkisborgararétt í landinu.
Hægriblaðið The Wall Street Journ-
al segir að nær allir stjórnlagasér-
fræðingar í Bandaríkjunum telji að
slík tilskipun frá forsetanum sam-
rýmist ekki stjórnarskránni.
Í fjórtánda viðauka stjórnarskrár-
innar segir að allir þeir, sem fæddir
eru í landinu, séu ríkisborgarar
Bandaríkjanna og ríkisins þar sem
þeir eiga búsetu.
The Wall Street Journal segir að
mjög erfitt sé að breyta ákvæðum
stjórnarskrárinnar. Til þess þurfi
tveir þriðju beggja þingdeildanna í
Washington að samþykkja breyt-
inguna og minnst þrjú af hverjum
fjórum sambandsríkjum þurfi síðan
að staðfesta hana. Einnig sé hægt að
breyta stjórnarkránni með stjórn-
lagaþingi ef minnst tvö af hverjum
þremur sambandsríkjum óska eftir
því.
Ákvæðið um að öll börn, einnig
börn ólöglegra innflytjenda, fái sjálf-
krafa ríkisborgarétt í Bandaríkjun-
um hefur lengi verið umdeilt en
þingið í Washington hefur ekki reynt
að breyta því. Trump kvaðst hafa
ráðfært sig við sérfræðinga sína og
þeir hefðu sagt að hann gæti afnum-
ið ákvæðið sjálfur með tilskipun án
samþykkis þingsins.
„Hann getur þetta ekki,“ hefur
The Wall Street Journal eftir Lauru
K. Donohue, stjórnlagasérfræðingi
við Georgetown University. „Með
því væri hann í raun að segja að hann
væri hafinn yfir stjórnarskrána.“
Trump boðaði tilskipun um afnám
ákvæðisins í viðtali sem fréttamiðill-
inn Axios birti í gær. „Þetta er í
vinnslu. Það gerist, með tilskipun,“
sagði forsetinn. Hann bætti við að
ákvæðið væri „fáránlegt“ og fullyrti
að Bandaríkin væru eina landið sem
veitti börnum ólöglegra innflytjenda
sjálfkrafa ríkisborgararétt við fæð-
ingu í landinu. Að sögn fréttaveit-
unnar AFP er þetta ekki rétt því að
hátt í 30 lönd veita öllum börnum
slíkan rétt við fæðingu, þeirra á með-
al Kanada.
Ólöglegir innflytjendur eignuðust
alls um 275.000 börn í Bandaríkjun-
um árið 2014. Þau voru um 7% af öll-
um börnum sem fæddust þar það ár,
að sögn Pew-rannsóknastofnunar-
innar.
Hermenn sendir
að landamærunum
Trump hefur lagt áherslu á inn-
flytjendamál í yfirlýsingum sínum í
aðdraganda þingkosninganna í
Bandaríkjunum á þriðjudaginn kem-
ur. Yfirlýsingar hans hafa aðallega
snúist um 7.000 manns sem hafa
gengið í tveimur hópum um Mið-
Ameríku til Mexíkó og stefna að
landamærum Bandaríkjanna. For-
setinn hefur fullyrt að á meðal fólks-
ins séu „margir glæpamenn og
óþekktir Mið-Austurlandamenn“ án
þess að geta þess hvaðan hann fær
þær upplýsingar, að sögn The Wall
Street Journal. Blaðið segir að
margir Mið-Ameríkumannanna séu
að flýja ofbeldi glæpahópa í heima-
landi sínu.
„Þetta er innrás í landið okkar og
herinn bíður eftir ykkur,“ sagði
Trump um flóttafólkið í tísti á Twitt-
er á mánudagsmorgun. Síðar um
daginn var skýrt frá því að 5.200
bandarískir hermenn yrðu sendir að
landamærunum. Fyrir eru þar um
2.000 bandarískir þjóðvarðliðar, auk
landamæravarða.
Annar hópurinn, um 4.000 manns,
er í suðurhluta Mexíkó, rúmlega
1.400 kílómetra frá landamærunum
að Bandaríkjunum. Hinn hópurinn,
3.000 manns, er við landamæri
Mexíkó og Gvatemala. Búist er við
að gangan að landamærum Banda-
ríkjanna taki nokkrar vikur í viðbót.
Vill afnema ákvæði um
ríkisborgararétt barna
Stefnir í stjórnarskrárdeilu um boðaða tilskipun Trumps
KYRRAHAF
GVATEMALA
HONDÚRAS
SALVADOR
Rúmlega 7.000*manns stefna að landamærumMexíkó og Bandaríkjanna
Á göngu að landamærunum
Heimildir: maps4news.com/©HERE, *skv. upplýsingum frá Sameinuðu þjóðunum
29. okt.
Niltepec
Tijuana
Mexicali
MEXÍKÓBORG
BANDARÍKIN
MEXÍKÓ
MEXÍKÓ
KYRRAHAF
MEXÍKÓFLÓI
13. okt.
San Pedro
Sula
GVATEMALA-
BORG
100 km
Leið
300 km
Hugsanlegir ákvörðunarstaðir í Mexíkó
797 km frá
San Pedro Sula
Fyrrverandi
hjúkrunarfræð-
ingur í Þýska-
landi, Niels
Högel, játaði sig
sekan um að hafa
orðið hundrað
sjúklingum að
bana þegar
réttarhöld hófust
í máli hans í
borginni Olden-
burg í gær. Hann kvaðst hafa gefið
sjúklingunum banvæna skammta af
lyfjum til að valda þeim hjartaáfalli
á tveimur sjúkrahúsum í norðan-
verðu Þýskalandi á árunum 2000 til
2005.
Niels Högel er 41 árs að aldri og
afplánar nú þegar lífstíðarfang-
elsisdóm sem hann fékk fyrir að
hafa orðið sjö öðrum sjúklingum að
bana. Dómsmálinu er lýst sem
mestu raðmorðum í Þýskalandi frá
síðari heimsstyrjöldinni.
ÞÝSKALAND
Varð hundrað
sjúklingum að bana
Niels Högel leidd-
ur fyrir rétt.
Hryggdýrum fækkaði í heiminum
um 60% að meðaltali frá árinu 1970
til 2014, aðallega af mannavöldum,
samkvæmt nýrri skýrslu náttúru-
verndarsamtakanna WWF. Fækk-
unin er einkum rakin til aukinnar
matvælaframleiðslu og eftirspurnar
þjóða heims eftir orku, landi og
vatni, að sögn samtakanna.
Til hryggdýra teljast spendýr,
fuglar, skriðdýr, froskdýr og fiskar.
Skýrsla samtakanna nefnist Living
Planet, er birt annað hvert ár og
byggist á athugunum vísindamanna
sem hafa vaktað rúmlega 4.000 teg-
undir hryggdýra og rúmlega 16.700
dýrastofna. Skýrsla samtakanna frá
árinu 2016 sætti gagnrýni nokkurra
vísindamanna sem drógu aðferðir
samtakanna í efa og töldu þau draga
upp of dökka mynd af hnignun dýra-
stofnanna, að sögn tímaritsins Nat-
ional Geographic.
Vill nýjan samning
Hryggdýrum sem lifa í ferskvatni
hefur fækkað mest, eða um 81% frá
1970 til 2014, að því er fram kemur í
nýju skýrslunni. Ferskvatn nær yfir
minna en prósent af yfirborði jarðar
en tæp 10% af öllum þekktum dýra-
tegundum jarðar lifa í ferskvatni.
Villtum hryggdýrum fækkaði
mest í löndum Rómönsku Ameríku,
um 89%, ef marka má skýrsluna.
Miðað við lífmassa, eða heildar-
þyngd dýranna, eru villt dýr aðeins
um fjögur prósent af öllum spendýr-
um á jörðinni. Mennirnir eru um
36% og búfé um 60%.
Marco Lambertini, fram-
kvæmdastjóri WWF, sagði að veru-
legur árangur hefði náðst í til-
raunum til að vernda dýr á borð við
tígra, sækýr, grábirni, túnfiska og
skallaerni. „Ástandið væri miklu
verra ef þetta hefði ekki verið gert,“
hafði fréttaveitan AFP eftir Lam-
bertini. Hann bætti við að fækkun
villtra dýra stafaði einkum af veið-
um, eyðingu búsvæða þeirra, meng-
un, ólöglegri sölu og loftslagsbreyt-
ingum. Hann sagði að samningur
Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega
fjölbreytni (CBD) frá árinu 1992
dygði ekki þar sem flest markmiða
hans næðust líklega ekki, þótt þau
hefðu ekki verið nógu metnaðarfull.
„Við þurfum nýjan samning fyrir
náttúruna,“ sagði hann.
Aukin skógareyðing
í hitabeltislöndum
Í skýrslunni segir að þótt dregið
hafi úr skógareyðingu í sumum
heimshlutum hafi hún aukist í hita-
beltislöndum þar sem líffræðilega
fjölbreytnin er mest.
Nær 20% af Amazon-skógunum,
stærstu regnskógum heims, hafa
horfið frá árinu 1970. Megnið af
horfnu skógunum í hitabeltislönd-
unum er notað til að framleiða soja-
baunir, pálmaolíu eða nautakjöt, að
sögn samtakanna.
Á árunum 2000 til 2014 hurfu um
920.000 fermetrar af skóglendi
heimsins, eða svæði sem er álíka
stórt og samanlagt flatarmál Frakk-
lands og Þýskalands.
Mennirnir hafa veitt um sex millj-
arða tonna af fiski og öðrum sjávar-
dýrum frá árinu 1950, að því er fram
kemur í skýrslunni. Dregið hefur úr
fiskveiðunum frá árinu 1996 þegar
þær náðu hámarki.
AFP
Náttúruvernd Fílar í þjóðgarði í Kenía. Villtum dýrum hefur fækkað veru-
lega í heiminum af mannavöldum, samkvæmt nýrri skýrslu WWF.
Sögð um 60%
færri en árið 1970
Ný skýrsla um fækkun hryggdýra