Morgunblaðið - 31.10.2018, Qupperneq 21
UMRÆÐAN 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2018
Lýðveldið Kongó –
áður Zaire – fyrir
það Austur-Kongó –
þar áður Belgíska-
Kongó er eitt
náttúruauðlinda-
ríkasta svæði í allri
Afríku. Þar má finna
verðmæta málma,
dýra steina og verð-
mæt hráefni – m.a.
mestu kóbaltnámur
heimsins. Ríkið er
ekki bara auðugt að náttúru-
auðlindum á mælikvarða Afríku –
heldur jafnframt auðugt að nátt-
úruauðlindum á mælikvarða alls
heimsins.
Hvar er fátæktin mest?
Hvert skyldi vera það land í
Afríku, þar sem fátæktin er hvað
sárust og mest? Það er Lýðveldið
Kongó – áður Zaire – fyrir það
Austur-Kongó og þar áður Belg-
íska-Kongó. Land þetta er ekki
bara eitt það allra fátækasta í
Afríku – heldur eru meðaltekjur
fólks þar hvað lægstar þó horft
sé til alls heimsins. Og hver
skyldi vera ástæðan? Vopnuð
átök í landinu – vissulega. Megin-
ástæðan er þó sú, að fólkið í land-
inu nýtur einskis af hinu mikla
verðmæti náttúruauðlinda lands-
ins. Hverjir njóta þeirra þá?
Spillt stjórnvöld – en framar öllu
öðru fyrirtæki, aðallega útlend,
sem nýta sér þessar miklu nátt-
úruauðlindir sjálfum sér til ágóða
en skila engu til eigendanna,
þjóðarinnar og fólksins, sem
þarna býr. Þess vegna er fólkið í
þessu náttúruauðuga landi með
einna lægstar meðaltekjur þjóða í
öllum heiminum.
Hvað eigum við
sameiginlegt?
Hvað eiga Ísland og
Lýðveldið Kongó –
áður Zaire – fyrir það
Austur-Kongó – þar
áður Belgíska-Kongó
sameiginlegt? Þau
eiga ekki sameiginlegt
að þar ríki vopnuð
átök. Þau eiga það
hins vegar sameigin-
legt, að eiga sér mikl-
ar náttúruauðlindir.
Ekki málma, ekki kó-
baltnámur, ekki dýra steina – en
náttúruauðlindir samt. Sjóinn og
auðlindir hans. Orku fallvatna og
jarðhita, hina grænu orku, sem nú
er talin verðmætust allra orku-
linda í gervöllum heiminum. Og
hrífandi náttúrufegurð, sem hing-
að leiðir hundruð þúsunda ferða-
manna þrátt fyrir þá staðreynd að
hvergi á byggðu bóli sé neysla
ferðamanna seld þeim hærra verði
en hér hjá okkur.
Hvers nýtur svo þjóðin?
Og hvers nýtur svo þjóðin í af-
rakstri auðlinda sinna? Helstu nýt-
endur orkuauðlindarinnar eru er-
lend stórfyrirtæki – eins og í
Kongó. Hvað greiða þau þjóðinni
fyrir afnotin? Lítið sem ekki neitt.
Ágóðinn af rekstrinum er allur
fluttur út til hinna erlendu eigenda
í skjóli bókhaldsbrellna með hárri
skuldastöðu við móðurfyrirtækin,
sem íslensk stjórnvöld samþykkja.
Þjóðin fær lítinn sem engan arð af
þeim virðisauka, sem nýting ork-
unnar veldur. Einu tekjur þjóðar-
innar þar eru skattatekjur af ein-
hverjum hundruðum starfsmanna
viðkomandi fyrirtækja á Íslandi –
annað hirða hinir útlendu eig-
endur; eins og í Kongó.
Auðlindir sjávarins
Og hvað um arð þjóðarinnar af
hinum mikilvægu auðlindum sjáv-
arins? Stórútgerðarfyrirtækin á
Íslandi greiða í veiðileyfagjöld til
þjóðarinnar fyrir afnot af sameig-
inlegri auðlind brot af því, sem
þau greiða í arð til eigenda sinna
– arð, sem notaður hefur verið til
þess að kaupa upp öflug og stór
sjávarútvegsfyrirtæki í Evrópu
auk þess til þess að fjárfesta
miklar fjárhæðir í óskyldum at-
vinnurekstri. Og nú síðast er út-
lendingum – Norðmönnum – af-
hent nýting sjávarauðlindarinnar
fyrir minna en ekki neitt til fiski-
ræktar. Þjóðin er meira að segja
látin borga með þeim eins og í
þrifum vegna mengunar! Ef síð-
ustu laxaræktarumsóknirnar
hefðu verið gerðar í heimalandi
eigendanna, Noregi, hefðu þeir
þurft að greiða norsku þjóðinni og
norskum strandbæjum tugi þús-
unda milljóna króna fyrir. Skyldi
vestfirskum byggðum veita af
slíkri greiðslu fyrir afnotaréttinn
af sameiginlegri auðlind? Skyldum
við Vestfirðingar ekki vera minn-
ugir þess, að ekki fyrir svo margt
löngu ráku Norðmenn margar
hvalveiðistöðvar í vestfirskum
byggðum, greiddu Vestfirðingum
ekkert fyrir, hirtu allan arðinn,
ráku þær uns búið var að ganga
svo á hvalastofnana að rekstur
borgaði sig ekki lengur, fóru þá
umsvifalaust í burtu og skildu eft-
ir sig rústirnar einar, sem sumar
hverjar standa enn.
Og hvað um Ísland?
Og hvað um náttúruauðlindina
með stórum staf – fegurð og mik-
illeika landsins, sem við eigum öll
saman. Gestakomur hingað til
þess að fá að njóta þessarar ein-
stöku náttúrufegurðar fara að
nálgast tífalda íbúatölu landsins.
Og hvers nýtur þjóðin? Hún þarf
að kosta flutningakerfið um loft,
lönd og höf til þess að taka á móti
þessum gestum – vegi, hafnir,
flugvelli, flugstöðvar. Hún þarf að
kosta varðveislu náttúruauðlind-
anna vegna ágangs ferðaiðnaðar-
ins – græða upp skemmdir, kosta
gerð göngustíga, bæta ferða-
öryggi, kosta lýsingar á ferðaleið-
um, verja miklu fé til björgunar
erlendum ferðamönnum, sem ekki
kunna fótum sínum forráð, hjúkra
slösuðum, sinna veikum. Og hvaða
umbun fær þjóðin í staðinn?
Hverjar eru tekjur hennar fyrir
nýtingu náttúruauðlinda í þágu út-
lendinga? Komugjöld – gjöld fyrir
aðgang – fyrir varðveislu – fyrir
verndun – engin! Ferðaþjónustu-
fyrirtækin, hverju nafni svo sem
þau nefnast, selja vissulega þjón-
ustu sína dýrara verði en þekkist
annars staðar í heiminum. En hin
dýrseldu ferðaþjónustufyrirtæki
greiða sum hver engin gjöld –
engan virðisaukaskatt – til ís-
lensku þjóðarinnar. Önnur þann
lægsta sem fyrirfinnst á Íslandi.
Hvað vill þjóðin?
Vissulega eru Íslendingar ekki
sárfátæk þjóð eins og íbúarnir í
Kongó. En hvað um arðinn af auð-
lindunum? Hverjir njóta hans?
Margt er líkt með hjörtunum í
Súdan og í Grímsnesinu. Margt er
líkt með íslenskri þjóð og íbúun-
um, sem fæðast og deyja í Lýð-
veldinu Kongó – þar áður Zaire –
enn fyrr Austur-Kongó og þar áð-
ur Belgísku-Kongó. Báðar þjóðir
ríkar af náttúruauðlindum. Hvor-
ug þjóðanna nýtur þess til nokk-
urrar fullnustu. Þið, sem þetta les-
ið – umberið þið þetta? Eða
krefjist þið breytinga? Geri þjóðin
það, þá verða breytingar. Umberi
þjóðin það, þá verða þær ekki. Svo
einfalt er málið. Í lýðræðisríki
ræður þjóðin. Að vísu ekki í
Kongó. Því þar er þjóðin ekki
spurð. En hér? Hvert er þitt svar?
Ykkar? Þögn!? Stendur ykkur á
sama? Þá verður þetta svona –
áfram. Á Íslandi – eins og í
Kongó.
Ísland og Kongó
Eftir Sighvat
Björgvinsson
Sighvatur
Björgvinsson
» Báðar þjóðirnar eru
ríkar af náttúru-
auðlindum. Hvorug
þjóðanna nýtur þess til
nokkurrar fullnustu.
Höfundur var formaður Alþýðu-
flokksins, jafnaðarmannaflokks
Íslands.
Lífrænar mjólkurvörur
í fimmtán ár
Í fimmtán ár hefur Biobú framleitt lífrænar mjólkurvörur sem notið hafa mikilla vinsælda. Vöruflokkum hefur fjölgað ár frá ári
og sífellt bætast við spennandi og girnilegar nýjungar. Öll mjólk í okkar afurðir kemur frá tveimur búum, þ.e. Búlandi í Austur
Landeyjum og Neðra Hálsi í Kjós. Framleiðsla Biobú fer fram samkvæmt ströngustu reglum um lífræna landbúnaðarframleiðslu.
Kynnið ykkur vöruúrvalið á heimasíðu okkar, www.biobu.is.
Lífrænar
mjólkurvörur
www.biobu.is298.1
23
/0
5.
18
Allt um sjávarútveg