Morgunblaðið - 31.10.2018, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2018 25
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Félagsstarf
Félag sjálfstæðismanna í
Hóla- og Fellahverfi
Aðalfundur
Aðalfundur Félags sjálfstæðismanna í Hóla-
og Fellahverfi er boðaður formlega
miðvikudaginn 31. október og haldinn viku
síðar 7. nóvember klukkan 17:15 í
Sjálfstæðisheimilinu við Álfabakka 14 A.
Á dagskrá aðalfundar skal vera samkvæmt
ákvæði um aðalfund:
1. Skýrsla stjórnar um störf félagsins
á liðnu starfsári.
2. Reikningsskil.
3. Skýrslur nefnda.
4. Kjör stjórnar, varastjórnar og
skoðunarmanna reikningsskila.
5. Kjör fulltrúa í Fulltrúaráð
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík.
6. Tillögur um lagabreytingar.
7. Önnur mál.
Framboðum til stjórnar skal skila á netfangið
egill1990@gmail.com
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl.9:00-12:30 - Foreldramorgnar
kl.9:30-11:30 - Jóga með Grétu 60+ kl.12:30 - Söngstund kl.13:45 - Kaffi
kl.14:30-15:20 - Bókaspjall með Hrafni Jökulsyni kl.15:00.-
Árbæjarkirkja Athugið kyrrðarstund og Opið Hús, félagsstarf full-
orðinna, í Árbæjarkirkju fellur niður í dag vegna námsferðar starfs-
manna.
Árskógar Handavinna með leiðb. kl. 9-16. Opin smíðastofa kl. 9-16.
Stóladans með Þórey kl. 10. Opið hús, t.d. vist og bridge kl. 13-16.
Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45.
Heitt á könnunni, Allir velkomnir. s: 535-2700.
Boðinn Handavinnustofa opin frá 9.00-15.00. Vatnsleikfimi kl. 14.30.
Leshópur kl. 15.00. Miðdagskaffi fellur niður vegna Haustfagnaðar
Hrafnistu.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-
10:30. Boccia kl. 10:40-11:20. Spiladagur, frjáls spilamennska kl. 12:30-
15:50. Opið kaffihús kl. 14:30-15:15.
Bústaðakirkja Félagsstarfið er á miðvikudögum og hefst kl 12:05 í
kirkjunni með hádegistónleikum þar sem okkar ástkæri tenór Kristján
Jóhannsson syngur, boðið verður uppá súpu og brauð í safnaðarsal á
eftir. Enginn aðgangseyrir. Félagasstarfið heldur áfram og gestur okk-
ar á miðvikudaginn er Bjarni Harðarson en fjallar með skemmtilegum
hætti um Skálholt á 18. öld. Kaffi eins og vant er.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Upplestur kl. 10.10. Boccia kl.13.30.
Kaffiveitingar kl.14.30. Allir velkomnir!
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Morgunkaffi 9-10, bókband 9-13, postu-
línsmálun 9-12, tölvu og snjallsímaaðstoð 10-11, bókband 13-17, frjáls
spilamennska 13-16:30, myndlist 13:30-16:30, dansleikur með Vita-
torgsbandinu 14-15, söguhópur 15:30-16:15. Von er á góðum gestum
kl. 14:00 þegar Slökkviliðsstjóri og Borgarstjóri Reykjavíkur koma
vegna verkefnissins Skóhornið sem snýr að bættum eldvörnum fyrir
eldra fólk.
Garðabæ Vatnsleikf. Sjál. kl.7:30/15:00. Kvennaleikf. Sjál. kl.9:30.
Liðstyrkur. Sjál. kl.10:15. Kvennaleikf. Ásg. kl.11:30. Gönguhópur fer
frá Jónshúsi kl. 10:00. Bridge í Jónshúsi kl. 13:00. Leir í Kirkjuhvoli kl:
13:00. Smiðja Kirkjuhvoli opinar kl. 11:00 allir velkomnir. Zumba í Kir-
kjuhvoli kl: 16:15.
Gerðuberg Opin Handavinnustofan kl. 08:30-16:00. Útskurður m.
leiðbeinanda kl. 09:00-12:00. Leikfimi Helgu Ben kl. 11:00-11:30
Útskurður / Pappamódel m. leiðb. kl. 13:00-16:00. Félagsvist kl. 13:00-
16:00. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9.00 handavinna, kl. 9.00 byrjenda-boccia, kl. 9.30 gler-
list, kl. 13.00 félagsvist, kl. 13.00 postulínsmálun.
Gullsmári Myndlist kl. 9.00. Postulínsmálun/Kvennabridge/Silfur-
smíði kl. 13.00. Línudans fyrir lengra komna kl. 16.00. Línudans fyrir
byrjendur kl. 17.00.
Hraunsel Bókmenntaklúbbur kl. 10.00 aðra hverja viku. Línudans kl.
11.00. Bingó kl. 13.00. Handverk kl. 13.00. Gaflarakórinn kl. 16.00.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16, blöðin og púsl
liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, jóga með Carynu kl. 9,
útvarpsleikfimi kl. 9.45, zumba og leikfimi með Carynu kl. 10 og
hádegismatur kl. 11.30. Handavinna kl. 13, liðleiki á stólum og slökun
með Önnu kl. 13.15 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Fimmtudagur 1. nóvember kl. 12:00.
Eldri borgarar koma saman og eiga notalega stund. Súpa og brauð,
söngur og hugvekja. Allir eldri borgarar eru innilega velkomnir.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50. Við hringborðið
kl. 8.50, boðið upp á kaffi. Upplestrarhópur Soffíu kl. 9.45-11.45,
línudans með Ingu kl. 10-11, hádegismatur kl. 11, hádegismatur kl.
11.30. Zumbaleikfimi með Auði kl. 13-13.50, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30,
tálgun með Valdóri kl. 14.30-17. Allir velkomnir, óháð aldri. Nánari
uppl. í s. 411-2790.
Korpúlfar Gönguhópar Korpúlfa kl. 10 frá Borgum og inni í Egilshöll.
Félagsfundur Korpúlfa kl. 13:00 í Borgum, Korpusystkin synjga og
MPJ tríóið skemmtir. Korpúlfarnir Þórdís verður með ferðasögu um
Tansaníu, Páll flytur okkur vísnabálk og Ársæll verður með gaman-
mál. Tómas kynnir ferðahugmyndir ferðanefndar Korpúlfa. Fleira
gaman og kaffi á könnunni. Qigong með Þóru kl. 16:30 í Borgum í
dag.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl.8.30, trésmiðja kl.9-12, morgunleikfimi
kl.9.45, viðtalstími hjúkrunarfræðings kl.10-12, upplestur kl.11, félags-
vist kl.14, ganga m.starfsmanni kl.14, bónusbíllinn kl.14.40, heimildar-
myndasýning kl.16.
Seltjarnarnes Gler og glebræðsla kl. 9 og 13. Leir Skólabraut kl. 9.
Botsía Skólabraut kl.10. Kaffispjall í króknum kl.10.30. Kyrrðarstund í
kirkjunni kl.12. Timburmenn Valhúsaskóla kl.13. Handavinna Skóla-
braut kl.13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl.18.40. Í kvöld kl.20.00
verður skemmti og samverustund ungmenna og eldri borgara í Sel-
inu, félagsmiðstöð ungmenna. Allir velkomnir. Munið bingóið á
morgun kl. 14.00.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Handavinnuhópur
hittist kl. 13.00. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30-15.30. Allir vel-
komnir. Síminn í Selinu er: 568-2586.
Stangarhylur 4 Göngu-hrólfar ganga frá Ásgarði Stangarhyl 4, kl.
10.00. Enska talað mál kl. 14.00, leiðbeinandi Margrét Sölvadóttir,
Söngfélag FEB kóræfing kl. 16.30 stjórnandi Gylfi Gunnarsson.
Félagslíf
Samkoma kl. 20 í Kristni-
boðssalnum. Ræðumaður
Guðlaugur Gunnarsson.
Allir velkomnir.
Smáauglýsingar Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
með
morgun-
þú það sem
á FINNA.is
Eitt sinn verða
allir menn að
deyja eru orð að
sönnu. Við Bjarni kynntumst
fyrst er við mættum við skóla-
setningu í Barnaskóla Akureyr-
ar, þá sjö ára gamlir, og sett-
umst í sama bekk, auðvitað
A-bekkinn.
Árin á eftir var lítill sam-
gangur með okkur nema í skól-
anum því við áttum heima og
ólumst upp hvor í sínum bæj-
arhlutanum; Bjarni á Eyrinni
en ég í Innbænum.
Árin liðu og leiðir okkar
skildi, þótt í einu tilfelli værum
við báðir á vertíð í Vestmanna-
eyjum.
Síðar vissum við hvor af öðr-
um, ekki síst þegar Bjarni rak
fasteignasölu í Reykjavík með
Grétari Haraldssyni lögfræð-
ingi og átti ég þar stundum leið
um til að heilsa upp á gamlan
skólabróður.
Enn liðu árin og næst frétti
ég af Bjarna vini mínum komn-
um til Spánar að læra til við-
skipta, en hann hafði alltaf haft
áhuga á að kynnast framandi
löndum og þjóðflokkum. Það
blundaði alltaf ofurlítil ævitýra-
mennska í honum en þó á já-
kvæðan hátt.
M.a. lá leið hans líka til Eng-
lands og einnig Rússlands, þar
sem hann eignaðist viðskipta-
félaga.
Til Brasilíu fór hann líka til
að kynna og selja handfær-
arúllur en síðast en ekki síst
fóru hann og þáverandi eigin-
kona hans til Gvatemala þar
sem þau ættleiddu tvö börn;
dreng og stúlku.
Stúlkan hlaut nafnið Jórunn
Bjarnadóttir, alnafna föður-
Bjarni Jónsson
✝ Bjarni Jónssonfæddist í
Reykjavík 3. mars
1937.
Hann lést 7.
október 2018. Út-
för Bjarna fór fram
í kyrrþey 12. októ-
ber 2018.
ömmu sinnar, bú-
sett á Akureyri, en
drengurinn hlaut
nafnið Bjarni en
hann lést ungur
eða árið 2004.
Fyrir átti Bjarni
soninn Ottó Geir
Borg, sem er bú-
settur í Mos-
fellsbæ.
Í kringum alda-
mótin síðustu flutt-
um við báðir heim til Akureyr-
ar eftir langa útivist hjá báðum
og náðum við fljótt tengslum
eftir heimkomuna.
Báðir eldheitir KA-menn
(Knattspyrnufélag Akureyrar)
og mættum reglulega á völlinn
og hvöttum okkar menn. En
það var ekki nóg því við áttum
það til að hringjast á jafnvel
tvisvar til þrisvar í viku og
spjalla um hvað betur hefði
mátt fara því auðvitað vorum
við „sérfræðingarnir“.
Einnig bar pólitíkina á góma,
en á þeim vettvangi fór allt til-
tölulega friðsamlega fram þótt
við tilheyrðum hvor sínum
stjórnmálaflokknum.
Dóttursonur Bjarna er Hilm-
ar og þótti efnilegur frjáls-
íþróttamaður, þá aðallega kúlu-
varpari, og hafði Bjarni mikið
dálæti á stráknum enda fylgdi
hann honum á frjálsíþróttamót,
jafnvel í öðrum landshlutum.
Bjarni var góður drengur og
mun ég sakna hans og ekki síst
símtalanna okkar, sem fóru
gjarnan fram um miðnættið, og
munum við efalaust taka upp
þráðinn þótt síðar verði.
Bjarni minn, af því að ég
þóttist orðið þekkja þig nokkuð
vel bið ég þig lengstra orða að
verða ekki erfiður við Herrann
þegar þú kemur í Höfuðstöðv-
arnar því mér er sagt að þar
fari góð sál.
Veru sæll, vinur minn, við
sjáumst síðar.
Börnum Bjarna og ástvinum
öllum votta ég mína dýpstu
samúð.
Hjörleifur Hallgríms.
Þarf afi Hannes
ekki að nota skó
lengur, pabbi? Get-
um við ekki farið
aftur í bústaðinn,
pabbi?
Fáum við þá ekki að prófa
bátinn, pabbi? Það eru margar
spurningar sem komu frá lang-
afadrengjunum þínum, sem
voru svo spenntir fyrir að fá að
fara með þér í skúrinn, þar sem
bensíntankar af orrustuþotum
urðu að bátum og sláttuvélar
urðu að vélarafli fyrir bátana.
Það lék allt í höndunum á
þér og þarf ég ekki nema snúa
mér í hálfhring heima til að sjá
handbragð þitt og verk.
Það skipti ekki máli hvort
það var uppsláttur á vegg,
gluggakistur eða laga hluti sem
ég var búinn að gefast upp á og
voru á leið í ruslið.
Þá horfðir þú í augun á mér
og sagðir:
Við meikum þetta Binni
minn, þótt það vantaði heilu og
hálfu stykkin þá voru þau bara
meikuð, eins og þú sagðir
gjarnan.
Þú varst ekki bara afi hennar
Hildar minnar og langafi
Hannes Reynir
Sigurðsson
✝ Hannes ReynirSigurðsson
fæddist 30. júní
1939. Hann lést 13.
október 2018. Útför
Hannesar fór fram
25. október 2018.
drengjanna minna,
því við vorum góð-
ir vinir og gátum
talað saman um
allt og allar sög-
urnar sem þú hef-
ur deilt með mér,
frá gauraganginum
í Keflavík og veru
þinni á Vatnsleysu-
strönd og Skeiðun-
um.
Tala nú ekki um
ef það var komið smá glært út í
kókið þá komu öll smáatriðin
og nóttin dugði ekki, þar sem
okkur var skipað að fara í hátt-
inn.
En við kláruðum það sem
ósagt var í bíltúrnum um sveit-
ina eða á haugunum daginn eft-
ir þar sem gamlir hlutir fengu
nýtt hlutverk.
Vænst þykir mér um síðasta
bíltúrinn sem við fórum í, fyrir
fáeinum vikum austur í bústað,
þú þurftir aðeins að meika og
svo fórum við stóran hring um
Suðurlandið, fengum okkur ís,
ræddum um allt eins og oft áð-
ur, meðal annars að fara annan
rúnt fljótlega og fara þá á Suð-
urnesin, en lífsklukkan þín taldi
hraðar niður en okkur grunaði.
Ég er þess fullviss að þar
sem þú ert mun þér ekki falla
verk úr hendi og það sem þú
gerðir fyrir mig og mína verður
seint fullþakkað.
Þinn vinur,
Brynjar Már Bjarnason.