Morgunblaðið - 31.10.2018, Síða 36
Fljúgðu til
Akureyrar
á Kabarett
Menningarfélag Akureyrar og
Air Iceland Connect kynna
Kabarett í Samkomuhúsinu.
Bókaðu flug norður á Kabarett.
airicelandconnect.is
Kornið nefnist kammerópera eftir
Birgit Djupedal sem flutt verður á
Kjarvalsstöðum í dag kl. 12.15 í
samstarfi við Óperudaga í Reykja-
vík. Tónleikarnir eru hluti af há-
degistónleikaröð söngbrautar
tónlistardeildar Listaháskóla Ís-
lands. Birgit Djupedal útskrifaðist
úr meistaranámi í tónsmíðum frá
LHÍ í vor. Aðgangur er ókeypis.
Kammeróperan Kornið
flutt á Kjarvalsstöðum
MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 304. DAGUR ÁRSINS 2018
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
Sumarið 2016 lék fótboltalífið við
Hauk Heiðar Hauksson. Þessi ey-
firski hægri bakvörður fór með ís-
lenska landsliðinu á fyrsta stórmót
þess, EM í Frakklandi, og virtist hinn
augljósi næsti kostur á eftir Birki Má
Sævarssyni í sinni stöðu. Þá lék hann
líka alla leiki með einu besta og
sögufrægasta liði Norðurlanda, AIK í
Svíþjóð. Staðan hjá honum hefur
breyst talsvert síðan. »1
Breytt staða hjá Hauki
Heiðari Haukssyni
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
„Um leið og flautað var til leiksloka
í Graz á sunnudagskvöldið fór mað-
ur að spá í næsta leik gegn KA í
deildinni heima. Meðan maður hef-
ur gaman af því sem maður er að
gera og sér árangur af starfinu er
engin ástæða til þess að kvarta
þótt álagið sé talsvert,“ segir Pat-
rekur Jóhannesson, þjálfari karla-
landsliðs Austurríkis
og toppliðs Olís-
deildarinnar, Sel-
foss. »4
Engin ástæða til að
kvarta undan álagi
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
„Vatn hefur ofsalega góð áhrif á
okkur. Maður sér það að fólk sem
fer í laugarnar og heitu pottana upp-
lifir sig endurnært eftir á. Ég vil
meina að sundlaugarnar sem við bú-
um að séu algjörar heilsulindir, sí-
fellt fleiri eru að uppgötva hvað
sundið gerir fyrir okkur,“ segir
Brynjólfur Björnsson sundkennari.
Ná betri tökum á skriðsundinu
Brynjólfur kennir á skriðsunds-
námskeiði einu sinni í viku í Breið-
holtslaug, þar sem hann hjálpar
áhugasömum sundmönnum að ná
betri tökum á skriðsundinu. Flestir
nemendanna eru yfir 40 ára gamlir
en sá elsti er 85 ára, sem leiðir í ljós
breidd hópsins. Algengt er að sund-
fólk hafi ekki náð fullum tökum á
skriðsundi og komi á námskeiðið til
að skerpa kunnáttuna í því, að sögn
Brynjólfs. Að auki heldur hann
sundæfingar fyrir ósynda, en hann
telur þann hóp vera mun stærri en
margur geri sér grein fyrir.
„Með því að synda með öllum að-
ferðum virkjum við nánast alla
vöðva, sem felur í sér meira álag á
liði en önnur líkamsrækt veldur, en
þetta er skemmtileg hreyfing. Við
höfum alltaf verið sundþjóð og full-
orðnir eru farnir að synda skriðsund
í mjög auknum mæli.
Svo eru margir að æfa þríþraut og
koma á sundnámskeið til að æfa sig í
þeim þætti. Þetta er skemmtileg
hreyfing. Hreyfing í vatninu mýkir
liði og það styrkir vöðvana að synda,
kemur blóðinu á hreyfingu.“
Skriðsund er algengasta keppnis-
greinin í sundi og jafnframt það
sund sem synt er hraðast, þó reynir
það ekki eins mikið á mjaðma- og
hnjáliði og bringusund. Hreyfingin
er það sem Brynjólfi finnst mestu
máli skipta í sundinu en hann hefur
stundað sund síðan hann var ungur.
Hann heldur úti vefsíðunni syndasel-
ur.com þar sem nálgast má frekari
upplýsingar.
Sundið er gott fyrir
líkama og sál
Hreyfingin sem felst í sundiðkun
er ekki einungis góð heldur hefur
vatnið sér í lagi góð áhrif á andlegu
og líkamlegu hliðina. Heitu pottarnir
og eimbaðið eru vinsælir slökunar-
staðir, en ekki síður köldu pottarnir.
Fleiri eru farnir að stunda köld böð
vegna verkjastillandi áhrifa þeirra.
Sundmenningin á Íslandi er engu lík,
að sögn Brynjólfs:
„Sundmenningin er óvíða eins og
hún er á Íslandi. Heitu laugarnar og
skólasundskyldan þekkist ekki jafn
vel erlendis, og sama á við um þann
langa tíma sem opið er fyrir almenn-
ing. Mér líður mjög vel í vatninu,
syndi daglega og fer í kalda og heita
potta.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Syndaselur Brynjólfur hefur stundað sund síðan hann var ungur. Hann heldur úti vefsíðunni syndaselur.com
Sundlaugarnar á Íslandi
„algjörar heilsulindir“
Skriðsundsnámskeiðið vinsælt Elsti nemandinn 85 ára