Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2018, Side 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2018, Side 4
INNLENT 4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13.10. 2018 Árangur á æ fjölbreyttari sviðum Listmeðferðarfræðingar hafa íáratugi hjálpað börnum ogfullorðnum við að vinna úr ýmiss konar alvarlegum áföllum, erf- iðleikum og streitu og rannsóknir sýna æ betur hvað sálræn meðferð í gegnum listsköpun getur hjálpað stórum og ólíkum hópum. Hérlendis hafa fjölmargir náð styrk í gegnum listmeðferð en þjónustan hefur m.a. verið veitt í gegnum spítala, skóla og stofnanir svo sem Ljósið, Stígamót og Foreldrahús og listmeðferð hefur oft verið það sálfræðilega úrræði sem ungir þolendur kynferðisofbeld- is geta helst nýtt sér. Nú um helgina koma listmeðferð- arfræðingar víða að úr heiminum saman hérlendis á norrænni ráð- stefnu en ráðstefnan fór fyrst fram árið 1975 að íslensku frumkvæði Sig- ríðar Björnsdóttur. Sérstakur gesta- fyrirlesari er hinn virti bandaríski listmeðferðarfræðingur Lisa Hinz sem flytur erindi ásamt landa sínum Kathy Gottshall. Auk þeirra tveggja hitti blaðamaður Sunnudagsblaðs Morgunblaðsins hollenska list- meðferðarfræðinginn Dimphy Fikke og Carlolinu Schindler sem er frá Þýskalandi en hún býr og starfar hér á landi og notar listmeðferðar- aðferðir í starfi sínu með leikskóla- börnum. „Það sem ég og Kathy ræðum í okkar erindi og kynnum er svokallað ETC-módel (Expressive Therapy Continuum), en það hjálpar list- meðferðarfræðingum að velja viðeig- andi listsköpunarleiðir fyrir skjól- stæðinga sína og þær ótal leiðir sem hægt er að fara í efnisvali fyrir mis- munandi hópa. ETC-módelið fer einnig yfir hvernig og hvers vegna listmeðferð virkar,“ segir Lisa. Skjólstæðingahópurinn sístækkandi „Margir halda að listmeðferð sé að- eins fyrir börn sem eiga auðveldara með að tjá sig í gegnum teikningar og fólk sem á erfitt með munnleg tjá- skipti. Það er vissulega ein leiðin en hægt er að nota list til margs konar meðferða og til að aðstoða með ótal vandamál. Hún veitir útrás, eykur einbeitingu, hjálpar til við tilfinn- ingatjáningu en líka við að ná stjórn á tilfinningum sínum. Þá hafa rann- sóknir sýnt að listmeðferð þroskar ýmsa eiginleika í fari fólks, svo sem sjálfstæði, að eiga auðveldara með ákvarðanatöku og í þessu felst líka heilmikil sjálfsskoðun þar sem fólk sættist við sjálft sig og hluti sem það fyrirleit áður í eigin fari og nær að lifa betra lífi. Listmeðferð er því mun flóknari en bara að aðstoða fólk sem á erfitt með að nota orð við tjá- skipti.“ Sem dæmi um fjölbreytt vanda- mál sem listmeðferðin vinnur með þá hefur Lisa Hinz náð góðum árangri með fólk sem hefur glímt við átrask- anir en hún var prófesor í list- meðferð við Saint Mary-of-the- Woods háskólann og rekur nú eigin stofu og sinnir ráðgjafastörfum um víða veröld fyrir fagstéttina í heild. „Ég var svo heppin að kynnast í námi og vinnu með listmeðferðar- fræðingnum Vija Lusebrink en hún er höfundur ETC-kenningarinnar sem var fyrst kynnt á 8. áratugnum. Hún er upprunalega frá Lettlandi en fluttist til Bandaríkjanna en þar sem móðurmál hennar er ekki enska var þörf fyrir að koma kenningu hennar á ensku sem væri auðvelt að skilja. Ég og Kathy kenndum saman og ég sagði oft að það þyrfti einhver að skrifa bók um kenninguna svo að ég endaði á að gera það.“ Lisa segir að það sé ekki aðeins al- menningur heldur jafnvel list- meðferðarfræðingar sem átti sig ekki á hversu víðtækt er hægt að nota listmeðferð. Nýjustu tíðindi úti í heimi eru til dæmis hvernig með- ferðin getur unnið gegn einkennum parkinsons-sjúkdómsins. „Listmeðferð á í raun árþúsunda- sögu, þar sem fólk notaði mynd- skreytingar til að losa um tilfinn- ingar og bara það að skrifa í sand er auðvitað viss losun. En að vinna í sál- fræðimeðferð, þar sem fagaðilar eru menntaðir til að taka á móti og leið- beina skjólstæðingum áfram í gegn- um listina, er fag sem á sér sögu frá um 1930-1940 í Bandaríkjunum. Í upphafi voru listmeðferðarfræðingar gjarnan listamenn sem fóru að starfa með sálfræðingum á geðsjúkra- húsum og þar varð listin tungumálið í meðferðinni. Í kringum 1967 var al- þjóðlegt félag listmeðferðarfræðinga stofnað,“ segir Kathy. Í dag er gjarnan talað um Holland sem helstu þróunarmiðstöð list- meðferðar, þar sem margar stærstu rannsóknir samtímans í fræðunum eiga sér stað. Dimphy Fikke sem lærði og starfar í Hollandi segir við- horf yfirvalda gagnvart listmeðferð mjög gott. „Það er litið á meðferðina sem sjálfsagðan hluta heilbrigðis- þjónustunnar og þannig eru list- meðferðir niðurgreiddar. Fyrir lítið land á evrópskan mælikvarða, eins og Holland er mikla vinnu að hafa fyrir listmeðferðarfræðinga,“ segir Dimphy. Hinz segir að í Bandaríkjunum starfi listmeðferðarfræðingar víða innan heilbrigðiskerfisins, við umönnun krabbameinssjúkra, á geð- deildum, almennum sjúkrahúsum, skólum og í fangelsum. Góður árangur í baráttu gegn átröskunum En af hverju listmeðferð í stað hefð- bundinnar sálfræðimeðferðar með orðum? „Ef fólk er opið fyrir listmeðferð þá virðist vera að við náum oft fyrr að kjarna vandamálsins en í gegnum hefðbundna talmeðferð. Þegar þú segir sögu þá notarðu þau orð sem þú ert vön að nota, segir söguna allt- af á sama hátt. Svo hún er okkur kunnugleg og í frásögninni getum við auðveldlega byggt okkur varnir. Þegar við sköpum eitthvað með höndunum leggjum við slíkar varnir niður og við erum því opnari. Við er- um því berskjaldaðri í meðferðinni svo það verður mun fyrr ljóst hvað það er sem angrar okkur,“ segir Liza. Um leið og fyrsta myndin eða listaverkið verður til á meðferðar- stofu eru fyrstu skrefin tekin í að fá botn í það sem skjólstæðingurinn þarf að fá hjálp með. „Ef við tökum dæmi af skjólstæð- ingum sem þjást af átröskunum, en þar hefur náðst góður árangur í gegnum listmeðferð, þá eru ein- staklingar með anorexíu yfirleitt mjög feimnir og til baka í tjáningu. Þeir eru feimnir við að einhver sjái í gegnum þá og vilja ekki að fólk kynnist þeirra leyndarmáli. Í byrjun er líklegt að viðkomandi tjái sig aðeins með einföldum blýanti og teikni eitthvað smálegt og telji sig ekki geta gert meira en það. List- meðferðarfræðingar ýta ekki á eftir því þetta þarf að gerast á eigin hraða skjólstæðingsins en við hvetjum þó varlega áfram. Þannig stækka teikn- ingarnar smám saman að umfangi, litir bætast við og það yfirfærist á líf og átmynstur viðkomandi. Matar- skammtarnir stækka smám saman að umfangi líkt og listaverkin á stof- unni,“ segir Lisa. Vandmeðfarin meðferð Síðustu árin er það æ betur að koma í ljós að geðheilbrigðisþjónustan þarf að bjóða upp á fjölbreytt úrræði þar sem sömu úrræði henta ekki öllum. „Það sama á við um efnin. Sumir vilja frekar vinna í leir eða við en með litum, og stundum þarf smá- stund til að finna hvaða efniviður hentar þeim,“ segir Kathy. Í starfi sínu í Þýskalandi sá Car- oline það margoft sem listmeðferðar- fræðingur hve mikilvægt var að fag- fólk sæi um listmeðferð og bendir á að hérlendis sé það ekki komið í lög að starfsheitið sé löggilt. Fólk með engan sálfræðibakgrunn geti því titl- að sig listmeðferðarfræðing. „Fólk sem er að vinna úr alvar- legri áföllum er að fara í gegnum mjög erfiðar tilfinningar og þar skiptir mikla máli hver vinnur með viðkomandi. Það getur í raun mjög margt gerst og komið upp á í með- ferð þar sem unnið er úr sárri reynslu og því ákaflega mikilvægt að þar sé fagaðili með í för,“ segir Car- olina. Öflugt fyrir lífsstílssjúkdóma Hinz starfar meðal annars á heilsu- stofnun vestanhafs og aðstoðar fólk með mataræði, að koma hreyfingu inn í líf sitt og fólk sem þarf að breyta lífsháttum til að ná tökum á of háu kólesteróli, sykursýki og ýmsum lífsstílssjúkdómum. „Listmeðferðin kemur þar sterk inn þar sem fólk er beðið að sjá fyrir sér myndrænt líf sitt eins og það gæti verið sem heilsusamlegast og hvaða hindranir gætu verið á veg- inum og hvað það hefur til að nýta sér til að komast á betri braut. Þetta er fólk sem er undir álagi og þjáist af streitu því mjög oft er það streita sem er undirliggjandi orsök fyrir slæmum lífsháttum,“ segir Lisa. Listmeðferðin fylgir meirihluta fólks út lífið. Fólk geymir myndirnar sínar sem áminningu um árangurinn og benda listmeðferðarfræðingarnir á að það að eiga myndirnar sé dýr- mætur minnisvarði en eftir munn- lega meðferð sé eitthvað áþreifan- legt af því tagi, áminning um hvað fólk vill verða og gera, ekki til. „Það að geta boðið upp á list- meðferð, nýja upplifun, fara með ein- hverjum í þetta ferli í gegnum hend- urnar á viðkomandi er einstakt. Að geta róað hugann við streitu og náð tengslum við tilfinningar sínar í sorg eða áföllum og skilja betur hvað er að gerast innra með sér er það sem listin gerir svo vel. Ég vinn á mjög breiðu svæði listmeðferðar, með ungu fólki og fullorðnum og oft með fólki sem hefur fengið einhvers kon- ar greiningar,“ segir Dimphy Fikke. Lisa starfaði í upphafi sem klín- ískur sálfræðingur og segir að þegar hún var 27 ára gömul hafi hún starf- að með listmeðferðarfræðingi og orðið fyrir uppljómun. „Það sem var svo magnað að sjá og er svolítið lykillinn í þessu öllu er að það er skjólstæðingurinn sjálfur sem kemst að niðurstöðu, við leiðum hann áfram, en í gegnum sína vinnu áttar hann sig á vandamálinu og átt- ar sig sjálfur á hvað þarf að gera, ég áttaði mig á því þá að ég yrði að ná mér í aðra gráðu og verða list- meðferðarfræðingur! Það gerast magnaðir hlutir á hverjum degi í list- meðferðarfræðinni og við erum alltaf að sjá nýja hluti, í rannsóknum og vinnu okkar.“ Listmeðferðarfræðing- arnir Kathy Gottshall, Dimphy Fikke, Carolina Schindler og Lisa Hinz. Morgunblaðið/Hari Listmeðferðarfræði er fag sem er í sífelldri þróun og vexti. Nýjar rannsóknir leiða æ betur í ljós kosti meðferðarinnar og hversu breiður hópur getur nýtt sér hana. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Listmeðferð getur unnið gegn einkennum parkinsons-sjúkdómsins.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.