Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2018, Síða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2018, Síða 12
Ö rn Árnason hefur brugðið sér í mörg hlutverk á ferl- inum. Nú er hann búinn að taka að sér nýtt hlutverk en hann er kom- inn með leiðsögumannspróf og líka meirapróf og sýnir nú útlendingum Ísland í rútuferðum um landið. Aðdáendur þessa eins ástælasta leikara þjóðarinnar þurfa samt ekki að óttast, hann er alls ekki að hverfa af sviðinu. Hann frumsýndi á dögunum Ronju ræningjadóttur þar sem hann er í hlutverki Matthíasar, föður Ronju, en hann er líka í sirk- ussöngleiknum Slá í gegn en báðar þessar sýningar eru í Þjóðleikhús- inu. Eitt er víst; Örn er ekki maður sem situr auðum höndum. Áratuga reynsla gerir honum kleift að halda mörgum boltum á lofti samtímis. Leikhúsið er tarnavinna í takt við árstíðirnar, rétt eins og vinnan sem Íslendingar hafa unnið í gegnum aldirnar á engjum og baðstofu- loftum. Áhugi á sögunni hefur vaknað í ríkari mæli með hækkandi aldri hjá Erni sem er hérna megin við sextugt, stórafmælið er ekki fyrr en á næsta ári, á sjálfan kven- réttindadaginn Eftir viðtalið er hann að fara að skemmta eldri borgurum. Þar er hann einn með gítarinn, syngur og fer með gamanmál. Hann fléttar líka söngnum inn í leiðsögumanns- starfið og syngur fyrir ferðamenn- ina. Maður getur ekki annað en öf- undað útlendingana sem kaupa sér Gullhrings-pakkaferð og fá Örn Árnason í kaupbæti. Ekki víst að þeir viti að við stýrið og hljóðnem- ann sé einn þekktasti leikari lands- ins. Nema kannski þeir sem hafa séð hann í eins manns sýningunni How to become Icelandic in 60 min- utes í Hörpu. Örn er á skjá og sviði stór per- sónuleiki en í viðkynningu er hann einstaklega þægilegur og þol- inmóður, tilbúinn til að deila gam- anmálum og sögum úr alvöru lífs- ins. Eitt af því sem kemur fram í við- talinu er að honum finnst gott að stíga úr þægindarammanum og læra eitthvað nýtt. Hluti af því er að takast á við nýtt hlutverk utan sviðsins, leiðsögumannshlutverkið. „Mig langaði að komast strax í þetta og tók meiraprófið í leiðinni þannig að ég er ökuleiðsögumaður. Það er skondið þegar maður situr í 20 manna rútu og er að keyra og kjafta og þú ert með kannski tíu þjóðarbrot í rútunni og þá þarft þú að finna einhverja miðju fyrir alla. Svona ferðalag getur aldrei verið öllum til fullrar gleði. Sumum finnst maður stoppa of stutt og öðrum of lengi og svo framvegis.“ Skondin sýn á samfélagið Upplifirðu það sem mikla ábyrgð að vera leiðsögumaður? „Ég oft verið spurður: Er ekki alltaf ógeðslega gaman hjá þér? Ertu ekki bara að djóka eitthvað í liðinu? Það er nefnilega svo skrýtið að ég er bara aldeilis ekkert í því. Ég kannski gauka einhverjum, kannski ekki bröndurum heldur frekar skondinni sýn á samfélagið okkar bæði áður fyrr og í dag, en ég er ekkert að djóka í því. Þetta fólk er í fríi og það er komið til Ís- lands og ég vil að það fái bara nokkuð rétta mynd af því hvernig við erum og hvað við erum. Ég segi gjarnan í rútunni að við séum ekk- ert öðruvísi en annað fólk, við erum bara fólk eins og þau nema við er- um kannski með einhverja öðruvísi siði eða venjur. Við erum bara venjulegt fólk sem ólum okkur sjálf upp hér úti í Norður-Atlantshafi. Mér finnst það alveg nógu spenn- andi,“ segir Örn sem hefur gaman af því að tengja sögulega viðburði saman eins og Skaftárelda, sem ollu uppskerubresti og tengjast því beint frönsku byltingunni. „Það er svo gaman að tengja þessa hluti saman,“ segir Örn sem hefur gaman af því að segja ferða- mönnum sögur. Örn syngur lög frá þessum tíma þegar „Mozart var að spranga um götur Vínarborgar að semja Töfra- flautuna og Beethoven að semja Óðinn til gleðinnar. Flest okkar lög frá þessum tíma eru svona fornir söngvar, ekki margar nótur, frekar fátæklegur tónskali á móti þessum gífurlega íburði. Fólki finnst gam- an að því að heyra um þessar skrýtnu tengingar og bera saman Evrópu á þessum tíma og svo bara Ísland í dag.“ Örn er uppfullur af ýmsum fróð- leik sem hann hefur gaman af að deila. „Þegar við keyrum útúr bænum framhjá skóginum við Rauðavatn segi ég fólki frá því að þetta sé elsti gróðursetti skógur á Íslandi, frá 1901. Þetta finnst fólki rosa gaman að heyra og svo þegar ég keyri framhjá Rauðhólum segi ég frá því að þetta séu gervigígar. Svo bæti ég við til að kanna hvort fólk hafi húmor, sérstaklega þegar ég er með Bandaríkjamenn: „I know these are kalled pseudo- craters but Donald Trump would probably call them FAKE craters“.“ Húmor hjálpar til við að tengjast fólki Hann segist alls ekki vera með stöðugt uppistand fyrir ferðamenn- ina en það sé alveg hægt að leika sér aðeins. „Húmor hjálpar manni að tengjast fólki og svo segi ég bara við gesti mína aðeins um Ísland, eitthvað um land og sögu, en fyrst og síðast bið ég þá um að spyrja mig.“ Hann segir að fólk mæti oft þreytt í skoðunarferðir. „Stundum steinsofnar fólk í rútunni. Það er að koma erlendis frá um morguninn og fer beint í gullhring. Ég segi bara Örninn flýgur Örn Árnason vill alls ekki staðna í hugsun og hefur einstaklega gaman af fánýtum fróðleik, sem nýtist honum vel í nýju starfi sem leiðsögumaður og rútubílstjóri. Þrátt fyrir nýtt hlutverk er hann alls ekki hættur að leika og getur aldrei hugsað sér að setjast í neitt sem hægt væri að kalla helgan stein. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is „Heill heimur opnast fyrir manni þegar maður setur sig í fótspor sögunnar,“ segir Örn. VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13.10. 2018

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.