Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2018, Side 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2018, Side 19
þessu hræðilega óréttlæti gegn pal- estínsku þjóðinni. Ég sé ekki fyrir mér neina lausn á málinu nema all- ir hópar samfélagsins taki þátt í því og það þarf bæði konur og menn til. Þetta er rúm hálf öld af hersetu, sem er það langmesta sem þjóð hefur þurft að þola í nútíman- um. Það er enginn samanburður eða fordæmi til,“ segir Abdelhady- Nasser og ítrekar að alþjóða- samfélagið þurfi að bregðast við. „Það þýðir að lönd þurfa að tjá sig og vera fulltrúar mannréttinda og friðar. Það þarf pólitískan vilja til. Það þarf að segja: Þetta er rangt og þessu verður að ljúka. Það hefur ekki gerst enn. Það er tími til kominn að segja við Ísraela að þeir þurfi að fara eftir al- þjóðalögum og -reglum og ef þeir geti ekki lifað í samræmi við þessar reglur muni ólögmæt hegðun þeirra hafa afleiðingar. Það hefur ekki enn gerst. Þjóðir heims eru hræddar við Ísrael og bakslagið sem fylgir því ef þjóð tekur ákvörð- un sem Ísraelum mislíkar; þá beita þeir yfirgangi og gera lítið úr við- komandi þjóð. Eftir að Ísland við- urkenndi Palestínu sem sjálfstætt ríki árið 2011 gerðu ísraelskir emb- ættismenn lítið úr landinu; hvað Ís- land væri eiginlega! Þetta er hins vegar mikilvægt fyrir okkur því hvert einasta land hefur rödd sem getur skipt máli. Hvert einasta land hefur sitt að segja í allsherj- arþingi Sameinuðu þjóðanna.“ Allir fá einn disk við borðið Hún segir að fámenn lönd megi alls ekki hugsa sem svo að þeirra af- staða skipti ekki máli. „Þetta snýst um að trúa því að rödd landsins skipti máli þótt það sé lítið, og trúa því að landið sé hluti af þessu al- þjóðasamfélagi. Alþjóðasamfélagið er fjölskylda þjóða og allir í fjöl- skyldunni skipta máli. Allir fá einn disk við borðið; þú færð ekki tíu diska þótt þú sért stór og mikill.“ Hún segir mikilvægt að fólk átti sig á að þetta snýst ekki um að vera á móti Ísrael eða gyðingum. „Maður er fylgjandi mannrétt- indum, réttlæti og friði. Þetta hef ég sagt mörgum þeim sem ég hef hitt og rætt við, að það að styðja réttindi Palestínumanna er ekki það sama og gyðingahatur. Að gagnrýna Ísraela fyrir ólöglega hegðun sína er ekki gyðingahatur. Það verður að láta þetta til hliðar í upphafi allra umræðna um málið, hvort sem þær eru diplómatískar eða persónulegar; ég er ekki á móti Ísraelum eða ástunda gyðingahatur en ég styð réttindi Palestínumanna til frelsis og réttlætis og ég styð við mannréttindi.“ Hún segir að stundum sé sagt að ekkert sé hægt að gera og Palest- ínumenn verði sjálfir að eiga í við- ræðum við Ísraelsmenn. „Við leggjum áherslu á, ekki síst í starfi okkar hjá Sameinuðu þjóð- unum, að alþjóðasamfélagið tók þátt í að skapa vandamálið sem leiddi til þessa óréttlætis og ber því skylda til að hjálpa til við að leysa málið. Veikburða og undirokuð þjóð getur ekki gert þetta sjálf. Við höf- um átt í samningaviðræðum við Ísraela í meira en 25 ár og sjáðu bara hvert það hefur komið okkur: Við erum í miklu verri stöðu nú en þá. Að semja úr veikri stöðu þar sem valdahlutföllin eru ójöfn leiðir ekki til sanngjarnrar niðurstöðu og þess vegna þurfum við alþjóðalög og alþjóðasamfélagið á bandi með réttlætinu til að tryggja sanngjarna lausn sem leiðir til stöðugleika.“ Hún segir að ástandið sé slæmt í landinu. „Hernámið hefur áhrif á alla þætti samfélagsins og líf fólks. Þetta er fólk sem á hverjum degi er brotið á og það niðurlægt, hvort sem það eru konur, menn eða börn. Fólk er að verða betur meðvitað um ástandið, ekki síst vegna til- komu samfélagsmiðla. Það er erf- iðara að fela glæpi og auðveldara að deila þeim núna. Fólk snýr sér sjaldnar undan, en það þarf að búa yfir miklu hugrekki til að segja þessar sögur,“ segir hún og bendir á að það sé gert m.a. í gegnum kvikmyndagerð. „Hver einasta manneskja á sér sögu og ef þeirri sögu er ekki deilt, ef fólk áttar sig ekki á raunveru- leikanum sem þetta fólk býr við, verður erfiðara ekki aðeins að fá fólk til að skilja heldur til að fá það til að grípa til aðgerða.“ Málefnið má ekki verða þreytandi Abdelhady-Nasser segir að hér á landi hafi margir spurt hana hvað þeir geti eiginlega gert. „Það er hægt að krefjast mann- réttinda, krefjast réttlætis og gef- ast ekki upp. Það má ekki gerast að málefnið verði svo þreytandi að fólk hugsi með sér að það geti ekk- ert gert. Hvað hefði gerst ef fólk hefði sagt varðandi aðskiln- aðarstefnuna í Suður-Afríku að það væri ekkert sem það gæti gert? Þarna var mikið óréttlæti sem þurfti að leiðrétta.“ Hún segir að orð skipti máli og það þurfi að vanda sig í allri um- ræðu. „Ísraelum hefur tekist að kalla Palestínumenn hryðjuverka- menn og stilla þessu upp sem bar- áttu gegn hryðjuverkum og stríði múslima og gyðinga en þessi deila snýst hvorki um hryðjuverk né trúarbrögð. Þetta er deila um mannréttindi, landsvæði og pólitík. Þetta snýst um þjóð sem fær ekki land til að búa frjáls á og er svipt mannréttindum. Lausnin snýst ekki um að berjast gegn hryðjuverkum eða gyðingahatri, því trú, ofbeldi og hryðjuverk eru þátt- ur í þessum átökum en ekki það sem þau snúast um svo lausnin snýst ekki um þess háttar áherslu heldur raunveruleg málefni sem tengjast mannréttindum, landi og sjálfstæði.“ Trump skref til baka Hún segir kjör Donalds Trumps Bandaríkjaforseta skref til baka í mörgum málefnum. „Afstaða Bandaríkjanna er skað- leg. Trump er afturhaldssamur og herskár í málefnum Palestínu og Ísrael en líka hvað varðar umhverf- ismál, hlýnun jarðar, innflytjendur, kjarnorkuafvopnun og kvenréttindi. Hann hlustar ekki á áhyggjur heimsins og afstaða hans er sú að sniðganga rétt fólks. Hann vill að þeir valdamiklu verði enn valda- meiri á meðan stór hluti heimsins sér frið, öryggi og mannréttindi sem nátengda hluti.“ Hún finnur fyrir því að gjörðir Trumps hræði almenning í Banda- ríkjunum. „Það opnaði augu mín að koma til Íslands því hér finn ég stöðugleika og ró sem mér finnst ég ekki upplifa sem palestínskur Bandaríkjamaður í Bandaríkjunum. Það er undarlegt að búa í landi sem á að vera í fararbroddi hins frjálsa heims en þar er ástandið í raun óöruggt. Ég finn ekki þessa ró þar því landinu er stjórnað af manni sem er baráttuglaður og herskár, ekki bara pólitískt heldur líka persónulega,“ segir hún og út- skýrir nánar: „Hvað þýðir það fyrir samfélag þegar þar er gert lítið úr fólki vegna trúar þess eða húðlitar? Hvað verður um samfélag sem leyfir þessu að gerast? Frelsið er skert þegar hluti fólks fær ekki sömu réttindi og aðrir, þessi tilfinn- ing verður æ sterkari í Bandaríkj- unum. Ég er aðeins búin að vera á Íslandi í nokkra daga en ég hugsa með mér: Vá, hér finn ég ákveðna ró,“ segir hún og bætir við glettn- islega: „Kannski hjálpa heitu laug- arnar til við það!“ Að lokum langar hana að þakka fyrir hversu vel hafi verið tekið á móti henni á Íslandi og þakkar fyr- ir stuðninginn við Palestínu. „Mér finnst stundum hafa verið gert lítið úr þeim stuðningi sem Íslendingar hafa veitt Palestínu á alþjóðavett- vangi. Ég hef heyrt aftur og aftur setninguna „en við erum bara lítið land“ en stuðningurinn skiptir svo miklu máli. Samstaðan veitir von og von gefur þeim veiku kraft því stundum eiga þeir veiku ekkert nema von. Ekki gera lítið úr þess- um stuðningi og öðrum sem Íslend- ingar veita Palestínu í gegnum mannúðaraðstoð eða skólastyrki. Ísland er eitt af 193 löndum í alls- herjarþinginu sem kjósa og þá eru Íslendingar jafnir hinum þjóðunum. Afstaða Íslands skiptir máli.“ „Samstaðan veitir von og von gefur þeim veiku kraft því stundum eiga þeir veiku ekkert nema von,“ segir Feda Abdel- hady-Nasser. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon ’Það opnaði augu mínað koma til Íslandsþví hér finn ég stöð-ugleika og ró sem mér finnst ég ekki upplifa í Bandaríkjunum. 13.10. 2018 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.