Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2018, Síða 24
GettyImages/iStockphoto
Sætustu
kartöflurnar í
réttinum
Sætar kartöflur er hægt að nota á marga mis-
munandi vegu en þær gefa réttum bæði
fallegan lit og gott bragð. Hér eru fjórar ólíkar
uppskriftir sem allar innihalda þessa
appelsínugulu hnúða, sem eru í raun ekki
kartöflur heldur flokkast sem rótargrænmeti.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
MATUR
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13.10. 2018
Þessi girnilega uppskrift er af
grgs.is og gera sætu kartöflurnar
réttinn matarmeiri og hollari en
ef hann er gerður með nachos-
flögum.
2-3 meðalstórar sætar kartöflur
1 msk ólífuolía
tacokrydd
1 dós pintobaunir, vökvi fjarlægður
mozzarellaostur, magn að eigin
smekk
2 tómatar, saxaðir
jalapenosneiðar, magn að eigin
smekk
3-4 vorlaukar, saxaðir
safi af 1 límónu
kóríander (má sleppa)
Skrælið karöflurnar og skerið í
þunnar sneiðar. Blandið ólífu-
olíunni saman við og kryddið
með tacokryddi (hér er gott að
setja olíu og krydd í plastpoka,
bæta kartöflunum saman við og
hrista vel). Raðið kartöflunum á
ofnplötu með smjörpappír (tek-
ur líklega tvær ofnplötur) og
setjið í 200°C heitan ofn í um 15
mínútur. Snúið kartöflunum við
og eldið í fimm mínútur í við-
bót.
Raðið því næst kartöflunum á
eina plötu og setjið baunir og
ost yfir og setjið í ofn í aðrar
fimm mínútur.
Blandið tómötum, jalapeno,
vorlauk, límónusafa og kóríand-
er saman í skál. Takið kartöfl-
urnar úr ofninum og hellið
blöndunni yfir þær. Gott er að
toppa þetta með avókadó/
gvakamóle og sýrðum rjóma.
Ofurnachos