Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2018, Síða 26

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2018, Síða 26
hentuga til stálflutninga. Brýrnar munu vera fleiri en 300 talsins! Ann- ars eru þéttir skógar það sem fyrst grípur augað við komuna til Penn- sylvaniu. Eins og ávallt við komuna vestur um haf vorum við hálfringluð af þreytu og tímamismun við komuna á Omni William Penn-hótelið sem á sér meira en hundrað ára sögu. Þar mun sjónvarpsstjarnan Bob Hope hafa beðið eiginkonu sinnar og menn á borð við John F. Kennedy gerðu sér glaðan dag í glæsilegum sal- arkynnum hótelsins. Þau hafa líklega lítið breyst á öllum þessum árum. Það er alltaf eitthvað sérstakt og kunnuglegt við að upplifa þessa hlið Bandaríkjanna. Þrátt fyrir flug- þreytu var lítið annað í stöðunni en að taka léttan skoðunargöngutúr um nágrennið og panta sér svo drykk á Speakeasy-barnum í kjallaranum. Tveimur dögum skyldi eytt í að kanna Pittsburgh, söfn og verslanir áður en haldið yrði til Fallingwater. Fyrsta verkið var að kíkja á Andy Warhol-safnið en listamaðurinn, sem setti líklega mark sitt umfram aðra kollega sína á 20. öldina, ólst upp í borginni. Safnið er því nokkuð veg- legt og hefur að geyma mikið af verk- um og persónulegum munum popp- Það er ekki langt síðan það kost-aði mánaðarlaun verkamannsað komast til Bandaríkjanna en sem betur fer er raunin nú önnur. Virk samkeppni í flugsamgöngum hefur aukið lífsgæði hér á landi mik- ið. Áður en hún kom til hefði verið langsótt fyrir mig að láta gamlan draum konunnar minnar rætast, að heimsækja hið sögufræga og ægi- fallega Fallingwater-hús í Pennsylv- aniu-ríki í Bandaríkjunum, í tilefni af stórafmæli. Í leiðinni væri hægt að heimsækja tvær bandarískar stór- borgir, Pittsburgh og Cleveland í Ohio-fylki. Stálborgin á milli fljótanna Flogið var til og frá Pittsburgh í seinnihluta maímánaðar með stoppi í Cleveland. Pittsburgh hefur eins og svo margar stórborgir gengið í gegn- um endurnýjun lífdaga á und- anförnum árum þar sem gamlar byggingar fá ný hlutverk og atvinnu- lífið þroskast. Borgin byggðist upp í kringum öflugan stáliðnað og ber þess merki. Gamlar gotneskar stór- byggingar byggðar á uppgangs- árunum á fyrri hluta síðustu aldar eru áberandi en einnig fjöldi brúa sem liggja yfir stórfljótin sem mæt- ast við borgina og gerðu hana m.a. arans sérvitra. Sérstaklega var innsetningin Silfurpúðar frá árinu 1966 með svörtum veggjum, silfr- uðum gaspúðum og kraftmiklum vift- um eftirminnileg. Á safninu er einnig aragrúi af frábærum teikningum Warhols sem hafði mikið dálæti á að teikna prívatparta samferðamanna sinna, enda drátthagur með eindæm- um. Safnið var líklega hápunktur Pitt- sburgh-dvalarinnar ásamt máltíðum á Ace-hótelinu, fyrrnefndu William Penn-hóteli og á veitingastað sem heitir því látlausa nafni Meat & Po- tatoes. Þar þurftum við reyndar að fylgjast með raunum ólánsamrar ungrar konu á næsta borði og lífsvilj- anum fjara úr augunum á henni með hverri setningu sem sjálfhverfur sessunautur hennar lét út úr sér. Líklega hefur ekkert orðið af stefnu- móti númer tvö þar. Rúma klukkustund tekur að keyra frá Pittsburgh til Fallingwater- hússins sem að margra mati er það fallegasta sem byggt var á 20. öld- inni. Þeirri heimsókn voru gerð ít- arleg skil á mbl.is fyrir stuttu. Á Lau- rel Highlands-svæðinu þar sem húsið stendur er þó hægt að gera margt fleira. Flúðasiglingar eru vinsælar og þá ætti hjólreiðafólk að finna eitt- Bandarískar stór- borgir í endurnýjun Bandarískar stórborgir hafa verið í mikilli endurnýjun á undanförnum ár- um. Í norðaustri hafa gömlu iðnborgirnar: Cleveland í Ohio og Pittsburgh í Pennsylvaníu, breyst mikið og laða nú að sér ungt og vel menntað fólk. Texti og ljósmyndir: Hallur Már hallurmar@mbl.is Glæsilegri glerhvelfingu var bætt við listasafnið í Cleveland á síðasta áratug. Séð yfir miðborgina í Cleveland. Torgið er nýlegt og þar er mikið líf. Verk eftir flesta stóru meistarana er að finna á listasafninu í Cleveland. 26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13.10. 2018 FERÐALÖG

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.