Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2018, Side 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2018, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13.10. 2018 LESBÓK Ljósmyndakeppni Bílablaðs Morgunblaðsins Kosning og nánari upplýsingar á Facebook.com/bilafrettir Leiðbeiningar fyrir ljósmyndara: • Ljósmyndir skal senda í tölvupósti á bill@mbl.is • Frestur til að skila inn myndum í keppni október er til kl. 23:59 laugardaginn 6. okt. • Myndina skal senda sem viðhengi, á jpg-sniði og skal myndin vera í hámarksupplausn • Fullt nafn rétthafa myndarinnar og símanúmer skal fylgja með auk lýsingar á myndefninu • Keppnin fer fram í fjórum lotum og verður sú síðasta haldin í nóvember. • Fyrir þrjár bestu myndir hvers mánaðar eru veittar gjafakörfur með Meguiar bón- og bílaþvottavörum frá Málningarvörum • Hver þátttakandi getur aðeins sent inn eina mynd í hverjum mánuði • Sérstök dómnefnd velur síðan bestu ljósmyndina í desember Fyrsti vinningur er ferð fyrir tvo á bílasýning- una í Genf í mars í boði Toyota á Íslandi. www.mbl.is/bill Nýlegir breskir þættir um banda- ríska strangtrúaða mormóna í Ut- ah í Bandaríkjunum hafa nú bæst við flóru þátta efnisveitunnar Net- flix. Þættirnir heita Three Wives and a husband og eru vel unnir heimildaþættir, fjórir alls, sem lýsa lífi nokkurra óvenjulegra fjöl- skyldna. Þrátt fyrir að fjölkvæni sé nú bannað nánast alls staðar í Bandaríkjunum eru lítil samfélög strangrúaðra mormóna sem enn trúa því að til að komast nær Guði þurfi karl að eignast sem flest af- kvæmi. Ekki sé leggjandi á eina konu að eignast öll börnin og því sé fjölkvæni af hinu góða. Í þáttunum er fylgst með dag- legu lífi fjölskyldna á Rockland- búgarðinum í Utah. Þrátt fyrir að aðstæður og sambönd fólksins séu ákaflega framandi þá er ekki laust við að áhorfendur fái örlitla sam- úð með þessari lífssýn. Þættirnir eru unnir af virðingu við fólkið sem þar birtist og engir sleggju- dómar felldir. Útkoman er fínasta sjónvarpsefni og innsýn í veröld sem almennt er hulin. Catrina, Enoch, Lydia og Lillian Foster. Catrina er fyrsta eig- inkona Enochs, Lillian önnur og Lydia sú sem hann biður að giftast sér í þáttunum. Þrjár konur og eiginmaður Þættirnir veita innsýn í lífið á Rock- land-búgarðinum í Utah sem er um 100 manna samfélag strangtrúaðra. Stundin okkar aftur á skjáinn RÚV Stundin okkar er komin aftur á dagskrá eftir sumarfrí. Þessi aldni barnaþáttur ber með sér fjör, slímgusur, spennandi spurninga- keppnir og ýmislegt fræðandi og skemmtilegt fyrir krakka og ekki síður fullorðna. Sögur eftir krakka lifna við í þáttunum og áhersla er sem fyrr á að fá krakka sem mest að þætt- inum; bæði sem skapara efnis og sem viðmælendur og leikara. Stundin okkar byrjaði árið 1966 en ber aldurinn sannarlega betur en flestir aðrir sjónvarpsþættir. STÖÐ 2 Grey’s Anatomy með Meredith Grey í broddi fylkingar er farið aftur af stað. Þáttaröðin sem nú er hafin er sú fimmtánda af þessu sívinsæla læknadrama. Enn er heilbrigðisstarfsfólkið á Grey Sloan Memorial-spítalanum að vandræðast með einkalíf sitt og flækja því saman við vinnuna, áhorfendum til ánægju. Flókið ástarlíf læknanna Áhrifavöld stórstjarna meðumfangsmikla fylgj-endahópa á samfélags- miðlum komu vel í ljós eftir innlegg tónlistarkonunnar Taylor Swift á In- stagram í byrjun vikunnar. Þar hvatti hún Bandaríkjamenn til að kjósa í þingkosningunum framundan og að velta vandlega fyrir sér þeim gildum sem frambjóðendurnir standa fyrir. Viðbrögðin létu ekki á sér standa, enda er Swift með 112 milljón fylgj- endur á Instagram, hvorki meira né minna. Kippur kom í skráningu kjósenda í kjölfarið og samkvæmt fjölmiðlum vestra bættust 65 þúsund nöfn á kjörskrá í Bandaríkjunum á fyrsta sólarhringnum eftir að færsl- an birtist. Á tveimur sólarhringum var talan yfir nýskráða kjósendur komin í rúm 169 þúsund. Til sam- anburðar má nefna að í öllum sept- embermánuði bættust 190 þúsund manns á kjörskrá í Bandaríkjnum. Swift segir sjálf að hún hafi fundið sig knúna til að stíga fram og lýsa stuðningi við tvo frambjóðendur Demókrata í Tennesse-fylki, þar sem hún býr. Phil Bredsen styður hún til setu í öldungadeild og Jim Cooper í fulltrúadeild þingsins. Mikið hefur verið fjallað um málið í bandarískum fjölmiðlum en stjórn- málaskýrendur virðast á einu máli um að stuðningsyfirlýsing Swift sé líkleg til að hafa veruleg áhrif á nið- urstöður kosninga, ekki síst í Ten- nessee-ríki sem fram til þessa hefur verið sterkt vígi Repúblikana, en jafnvel víðar í Bandaríkjunum. Swift virðist allavega hafa nú þeg- ar hreyft allhressilega við kjós- endum og sérstaklega yngri kyn- slóðinni. Talið er að um 60% nýju Swift-kjósendanna á kjörskrá sé á aldrinum 18-29 ára, hópur sem hefur ekki verið sá duglegasti fram til þessa við að mæta á kjörstað. „Ég hef alltaf og mun alltaf verja mínu atkvæði í þágu frambjóðanda sem verndar og berst fyrir þeim mannréttindum sem ég trúi að við eigum öll skilið að njóta í þessu landi,“ segir í yfirlýsingu Swift sem hún birti á Instagram. Demókratar í Tennesse eru hæstánægðir með stuðninginn frá stórstjörnunni en það kemur svo ekki í ljós fyrr en í sjálfum kosningunum í byrjun nóv- ember hvort Swift-sveiflan skilar raunverulegum atkvæðum. Taylor Swift kom mörgum á óvart þegar hún blandaði sér í pólitík á dögunum. AFP Swift sýnir mátt sinn Nær 170 þúsund Bandaríkjamenn bættust á kjör- skrá á tveimur sólarhringum eftir að Taylor Swift hvatti fólk til að kjósa með færslu á Instagram. Hún hefur fengið nóg af misrétti í landinu og lýsti stuðningi við tvo frambjóðendur Demókrata í heimafylki sínu, Tennessee. Stjórnmálaskýrendur telja að yfirlýsing hennar geti breytt miklu. Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is Með pólitískri yfirlýsingu sinni bætist Taylor Swift í hóp fjöl- margra stórstjarna sem í gegn- um tíðina hafa beitt áhrifavaldi sínu í þágu tiltekinna stjórn- málamanna eða hugsjóna. Frank Sinatra, Sammy Davis Jr. og Dean Martin, sem saman mynduðu The Rat Pack, voru til að mynda ötulir stuðningsmenn Johns F. Kennedy í forsetakosn- ingum 1960. Frægt dæmi um stuðning stórstjörnu sem munaði um er þegar Oprah Winfrey lýsti yfir stuðningi við Barack Obama fram yfir Hillary Clinton í bar- áttunni um útnefningu Demó- krataflokksins á forsetaefni árið 2008. Telja rannsakendur við University of Maryland að stuðningur Winfrey hafi skilað Obama allt að milljón atkvæð- um sem hann annars hefði ekki fengið. Ekki alveg ný hugmynd

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.