Morgunblaðið - 01.11.2018, Qupperneq 1
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Það fer eftir því hvernig gos
verður í jöklinum og þá hvaða
leið vatnið kemur niður, en hér
gæti vatnið náð allt að 11 metra
dýpi,“ segir Aron Einarsson frá
Hofsnesi í Öræfum, og vísar í
máli sínu til þess að eitt stærsta
eldfjall Íslands, Öræfajökull, hef-
ur frá áramótum 2016-2017 þan-
ist út og eru engin merki um að
hraði þenslunnar fari minnkandi.
Komi til goss má vænta hlaupa
og er hús Arons og fjölskyldu
hans á svæði sem skilgreint er
sem „ótryggur staður“.
Mjög óvenjulegt ástand
„Allir elstu bæirnir, þ.e.
Hnappavellir, Hof og Svínafell,
eru rétt utan flóðasvæðisins. Það
er hins vegar ekki pláss fyrir alla
uppi í hlíðunum og því er ég til
að mynda ekki á mjög góðum
stað hér ef það kemur flóð,“
segir Aron í samtali við Morgun-
blaðið.
Kristín Jónsdóttir, hópstjóri
náttúruvárvöktunar á Veðurstofu
Íslands, segir þörf á að taka
merki eldstöðvarinnar alvarlega.
„Við vitum ekki til þess að svona
skjálftar hafi fundist áður og það
segir okkur að þetta ástand er
mjög óvenjulegt.“
Húsið færi allt undir jökulflóð
Þensla og skjálftavirkni í Öræfajökli eykst stöðugt
MSkjálftavirkni aldrei … »36 og 37
Morgunblaðið/RAX
Hofsnes „Hér gæti vatnið náð allt að 11 metra dýpi,“ segir Aron Einarsson.
F I M M T U D A G U R 1. N Ó V E M B E R 2 0 1 8
Stofnað 1913 257. tölublað 106. árgangur
ATVINNUBLAÐ
MORGUN-
BLAÐSINS
FJÁRFEST Í
SKUGGA TAP-
REKSTRAR
RÍSANDI STJARNA
KEMUR FRAM Á
AIRWAVES
VIÐSKIPTAMOGGI NADINE SHAH 80SÉRBLAÐ 8 SÍÐUR
MJÚKA DEILDIN ÍSLENSK HÖNNUN SJÚKRAÞJÁLFARI AÐSTOÐAR
SÆNGUR-
FATNAÐUR
SÆNGUROG
KODDAR
HEILSURÚM
ALLARSTÆRÐIR
FUSSENEGGER
Kristín Gísladóttir
sjúkraþjálfari aðstoðar
við val á rúmdýnum.
Í DAG 16-18 Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
Stefán Gunnar Sveinsson
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
Óttast var að maður og kona hefðu
farist í miklum eldsvoða sem kom
upp í einbýlishúsi við Kirkjuveg á
Selfossi um fjögurleytið í gær, með
þeim afleiðingum að þau hafi orðið
innlyksa á efri hæð hússins. Taldi
slökkvilið sig hafa komist að því
hvar fólkið var mögulega staðsett á
efri hæðinni laust fyrir klukkan níu í
gærkvöldi en farið var varlega í allar
aðgerðir með tilliti til rannsóknar-
hagsmuna.
Samkvæmt tilkynningu frá Lög-
reglunni á Selfossi voru húsráðandi
og gestkomandi kona handtekin
vegna rannsóknar á eldsupptökum,
en ekki fengust frekari upplýsingar
um ástæður handtökunnar þegar
leitað var eftir þeim í gærkvöldi.
Þá sagði í fréttatilkynningu lög-
reglunnar á Selfossi að sérfræðing-
ar tæknideildar Lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu hefðu verið
kallaðir til aðstoðar við rannsókn
málsins.
Erfiðar aðstæður fyrir leit
Pétur Pétursson, slökkviðsstjóri
hjá Brunavörnum Árnesinga, sagði
við mbl.is í gær að húsið hefði verið
algjörlega alelda þegar slökkviliðið
bar að garði. „Þá var eldur og reyk-
ur út um alla glugga þannig að það
var einn eldhnöttur þegar við
komum,“ sagði Pétur. Bjóst Pétur
jafnframt ekki við að hægt yrði að
fara inn í húsið fyrr en í dag vegna
aðstæðna.
Þá gerði það slökkviliðinu erfitt
fyrir að húsið var orðið það veik-
burða að innan að hætta lék á því að
slökkviliðsmenn og reykkafarar
gætu fallið á milli hæða ef þeir at-
höfnuðu sig á efri hæð hússins. Var
því talið að styrkja þyrfti efri hæð-
ina áður en hægt yrði að ganga þar
um.
Að sögn Péturs var húsið gamalt,
frá árinu 1950. Var talið að asbest
hefði verið í einangruninni í þakinu
og beitti slökkviliðið því stórum
vatnsbyssum til þess að minnka
reykinn frá húsinu.
Óttast að tvennt hafi farist
Mikill eldsvoði á
Selfossi Karl og
kona handtekin
Morgunblaðið/Hari
Eldur á Selfossi Húsið var alelda þegar slökkviliðið bar að garði. Voru aðstæður mjög erfiðar á vettvangi og stóð slökkvistarf yfir langt fram eftir kvöldi.