Morgunblaðið - 01.11.2018, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2018
Hágæða kristalglös
frá Þýskalandi
Vefverslunokkarprogastro.iser alltaf opin!
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi | Sími 540 3550
progastro.is | Opið alla virka daga kl. 9–17.
Allir velkomnir einstaklingar og fyrirtæki
Ekki bara glas heldur upplifun
Allt fyrir eldhúsið
Þóra Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Uppskrift fyrir fjóra
Lambaskankar
4 lambaskankar
2 l lambasoð
Meðlæti
5 stórar kartöflur
150 g af reyktu beikoni
3 laukar
2 tsk. ferskt timjan
150 g andafita
salt og pipar
Sósa:
8 hvítlauksrif
50 g fersk steinselja
50 g maizena
vatn
lambasoð
Fyrst skal undirbúa lamba-
skankana.
Hitið ofninn í 200° C. Þegar ofn-
inn hefur náð þeim hita skal setja
lambaskankana í bökunarform og
baka þar til þeir ná brúnum lit.
Þegar því er náð skal bæta lamba-
soðinu við og elda í eina klukku-
stund.
Meðlætið:
Skerið kartöflurnar, laukinn og beik-
onið í 2 cm bita. Bætið andafitunni,
timjan, salti og pipar saman við.
Blandið vel saman með höndunum.
Eldið í 45 mínútur í ofninum á 200° C.
Eldið sósuna:
Þegar lambaskankarnir eru eldaðir,
takið þá upp úr soðinu. Hellið lamba-
soðinu í pönnu og sjóðið, bætið hvít-
lauknum og ferskri steinselju saman
við og blandið saman. Undirbúið mai-
zena með vatni og hellið því út á
pönnuna með soðinu til þess að
þykkja sósuna.
Framsetning:
Setjið meðlætið á diskinn og lamba-
skankana ofan á, hellið sósunni vel
yfir og dreifið smá ferskri steinselju
yfir.
Et voilà!
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss
Lambaskankar
á Le Bistro
Meistarakokkarnir á Le Bistro á Laugaveginum
kunna að reiða fram kræsingar eftir kúnstarinnar
reglum. Við fengum þá til að deila með okkur einni af
sínum vinsælustustu uppskriftum, sem ætti eflaust
að gleðja marga. Hin fullkomna haustmáltíð myndu
margir segja og það má taka heilshugar undir það.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kunnáttumaður Arnór Bohic er annar eigenda Le Bistró. Arnór er hálf-
franskur og veit meira en margur um franska matargerðarlist og menningu.
Vinsælir Lambaskankarnir á Le
Bistro þykja afskaplega góðir enda
einn vinsælasti réttur staðarins.