Morgunblaðið - 01.11.2018, Page 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2018
Útifuglafóður
Mikið úrval, gott verð
Smáratorg · Bíldshöfði · Grandi · Hafnarfjörður
FRÉTTASKÝRING
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Kostnaður Alþingis vegna alþjóða-
starfs nemur 68,4 milljónum króna
fyrstu 9 mánuði ársins 2018. Þessar
upplýsingar fékk Morgunblaðið hjá
Helga Bernódussyni, skrifstofu-
stjóra Alþingis.
Blaðið leitaði til Alþingis til að
varpa ljósi á umfang alþjóðastarfs-
ins og þann kostnað sem af starfinu
hlýst. Óskað var upplýsinga um
kostnað vegna fimm síðustu ára, þ.e.
árin 2014 til og með 2018. Nemur
hann tæplega 430 milljónum króna.
Kostnaður vegna þriggja síðustu
mánaða þessa árs á eftir að bætast
við. Mestur var kostnaðurinn árið
2015 eða 134,3 milljónir. Það ár var
Norðurlandaþing haldið í Reykjavík
og var kostnaður við þinghaldið 44,7
milljónir það ár.
Kostnaður við að kalla inn
varaþingmenn ótalinn
Inn í þessar tölur vantar kostnað
við varamenn sem kallaðir eru inn
vegna trúnaðarstarfa aðalmanna er-
lendis. Fram kom hér í blaðinu ný-
lega að fyrstu 9 mánuði ársins voru
varamenn kallaðir inn í 57 skipti og
stefnir í metár. Kostnaður vegna
varamanna það sem af er árinu 2018
er 23 milljónir króna. Þess ber að
geta að ekki eru allir varamenn kall-
aðir inn vegna alþjóðastarfsins.
Aðrar ástæður koma til, svo sem
veikindi o.fl.
Steingrímur J. Sigfússon, forseti
Alþingis, sagði í viðtali við Morgun-
blaðið nýlega að það væri ánægju-
efni þegar íslenskir þingmenn væru
valdir til trúnaðarstarfa á erlendum
vettvangi og slíkt kallaði á ferðalög
og fjarveru frá þinginu. Hann full-
yrti að ekkert bruðl væri í gangi og
oft væri Ísland með minnstu sendi-
nefndirnar á alþjóðavettvangi.
Alþjóðastofnanir og samtök sem
Alþingi/þingmenn eru aðilar að eru
átta talsins. Fundi þeirra sækja á
bilinu 3-7 íslenskir þingmenn:
Alþjóðaþingmannasambandið
(IPU). Þrír þingmenn. Sambandið
heldur tvö þing á ári; að vori í
aðildarríki og að hausti í Genf.
Evrópuráðsþingið. Þrír þing-
menn. Kemur saman til þingfunda
fjórum sinnum á ári í Strassborg.
Þingmannanefndir EFTA og
EES. Fimm þingmenn. Þingmanna-
nefnd EFTA kemur að jafnaði sam-
an fjórum sinnum á ári og þing-
mannanefnd EES tvisvar á ári.
NATO-þingið. Þrír þingmenn.
Heldur tvo árlega þingfundi að vori
og hausti.
Norðurlandaráð. Sjö þing-
menn. Heldur fjóra stóra fundi á ári,
í janúar, apríl, september og um
mánaðamótin október/nóvember
þegar Norðurlandaráðsþing fer
fram.
Vestnorræna ráðið. Sex þing-
menn. Heldur tvo árlega fundi,
þemaráðstefnu í janúar og ársfund í
ágúst eða september.
Þingmannaráðstefnan um
norðurskautsmál. Þrír þingmenn.
Ráðstefnan er haldin annað hvert ár.
Þing Öryggis- og samvinnu-
stofnunar Evrópu. Þrír þingmenn.
ÖSE-þingið heldur þrjá árlega
fundi, vetrarfund í febrúar, ársfund í
júlí og haustfund í september eða
október.
Auk þessa er föst venja að þing-
menn fari á allsherjarþing Samein-
uðu þjóðanna árlega; nú fjórir þing-
menn í tvær vikur, segir Helgi.
Alþjóðastarf forseta er sér á parti;
það er fólgið í þátttöku í reglu-
bundnu samstarfi forseta þjóðþinga,
í opinberum heimsóknum til annarra
þinga og einstökum öðrum við-
burðum erlendis. Þá er annað slagið
efnt til þátttöku alþingismanna í sér-
stökum fundum erlendis, svo sem
umhverfisþingum (t.d. í París),
kvennafundum SÞ o.fl. Loks sé rétt
að nefna að taki íslenskir þingmenn
að sér trúnaðarstörf (formennska,
framsaga) hefur þeim verið veitt rík-
ari heimild til þátttöku í fundum er-
lendis.
Kostnaður við alþjóðastarfið er
greiddur af fjárheimildum Alþingis.
„Ég veit ekki til þess að neinar
tekjur komi þar á móti. Nokkur
dæmi eru til þess (helst hjá Norður-
landaráði) að alþjóðasamtökin greiði
ferðakostnað alþingismanna sem
eru þá í erindum þeirra. Og eitthvað
er um endurgreiðslu kostnaðar
(túlkaþjónustu, t.d.), en þá er slíkur
kostnaður ekki gjaldfærður hjá Al-
þingi,“ segir Helgi.
Nákvæmt yfirlit um þátttöku í al-
þjóðastarfi Alþingis má finna á vef
þingsins, sem nær allt aftur til árs-
ins 2010. Allar ferðir eru taldar upp
og hægt er að lesa frásagnir af sum-
um fundanna. Á yfirlitinu má sjá að
farnar hafa verið 80 ferðir það sem
af er þessu ári, flestar í maí, 16 tals-
ins. Keyptar hafa verið flugferðir
fyrir 9,8 milljónir og dagpeninga-
greiðslur það sem af er ári nema
17,4 milljónum.
Hæstar voru greiðslurnar árið
2015. Greiddar voru 23,3 milljónir
króna fyrir flugferðir, dagpeningar
voru 25,5 milljónir og dvalarkostn-
aður 64,4 milljónir.
Umfangsmikið alþjóðastarf
Alþingi og/eða alþingismenn eru aðilar að samtals átta alþjóðastofnunum og samtökum
Kostnaður vegna alþjóðastarfs þingmanna fimm síðustu ár nemur tæplega 430 milljónum króna
Morgunblaðið/Hari
Setning Alþingis Þingmenn þurfa að sinna umfangsmiklu alþjóðastarfi, sem felst m.a. í fundahöldum erlendis.
Kostnaður við alþjóðastarf Alþingis 2014 til 2018* *Fyrstu 9 mán. 2018Heimild: Alþingi
2014 2015 2016 2017 2018*
Erlent samstarf fastanefnda 7.896.144 12.853.245 5.871.018 4.450.678 5.544.900
Sendinefnd á Allsherjarþing SÞ 4.019.983 3.788.035 4.546.067 2.244.387 1.321.810
Íslandsdeild Norðurlandaráðs 21.477.718 14.830.715 15.195.033 16.284.386 18.391.512
Noðrðurlandaráðsþing í Rvk. 44.706.223 946.692 195.327
Íslandsdeild NATO-þingsins 4.746.335 6.969.214 4.245.314 3.335.605 2.236.893
Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins 8.100.983 7.440.218 7.656.005 3.253.419 8.544.179
Íslandsdeild þingmanna EFTA 6.066.604 7.553.567 6.407.382 8.100.234 2.744.371
Íslandsdeild Alþjóðaþingm.samb. 6.849.285 7.478.311 7.803.198 6.671.801 3.964.232
Íslandsd. Vestnorræna ráðsins 4.087.360 18.478.296 17.714.309 27.107.145 21.469.409
Íslandsd. ÖSE-þingsins 4.845.342 5.039.619 4.455.180 3.530.573 2.923.450
Þingmannan. Norðurheimsk.ráðsins 3.179.249 1.378.845 1.890.775 2.215.118 706.974
Annað alþjóðastarf 1.434.305 117.257 771.660 553.282
Ráðstefnur á Íslandi 2.390.373 500
Samtals 71.269.003 134.340.966 76.848.230 78.160.833 68.401.012
Engir þingfundir verða á Alþingi
í þessari viku. Ástæðan er m.a.
sú að margir þingmenn eru á
fundum erlendis. Nefndir starfa
á fimmtudag og föstudag.
Norðurlandaráðsþing fer
fram í Ósló dagana 29. október
til 1. nóvember. Þingið sitja fyrir
Íslands hönd alþingismennirnir
Anna Kolbrún Árnadóttir, Kol-
beinn Óttarsson Proppé, Oddný
G. Harðardóttir, Ólafur Ísleifs-
son, Steinunn Þóra Árnadóttir
og Vilhjálmur Árnason. Með í
för er Helgi Þorsteinsson,
starfsmaður skrifstofu Alþing-
is. Þá situr Guðjón S. Brjánsson
þingið sem fulltrúi Vestnorræna
ráðsins. Með honum í för er
Bylgja Árnadóttir, starfsmaður
skrifstofu Alþingis.
Í Ósló fer einnig fram fundur
norrænna þingforseta. Hann
situr þingforsetinn Steingrímur
J. Sigfússon og tveir starfs-
menn Alþingis eru með í för,
Helgi Bernódusson og Jörundur
Kristjánsson.
Loks fer fram í vikunni fundur
formanna utanríkismálanefnda
þjóðþinga Norðurlanda og
Eystrasaltsríkjanna. Fundinn,
sem fram fer í Vilníus, sækja
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
og Stígur Stefánsson, starfs-
maður skrifstofu Alþingis.
Ekki fundað
á Alþingi
þessa viku
ALÞJÓÐASTARFIÐ