Morgunblaðið - 01.11.2018, Side 32

Morgunblaðið - 01.11.2018, Side 32
32 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2018 VIÐTAL Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Hótel rís með undraverðum hraða í landi jarðarinnar Heysholts í Land- sveit sem tilheyrir Rangárþingi ytra. Þótt húsið sé enn í byggingu og hafi ekki fengið varanlegt útlit er ævin- týraljómi yfir því í morgunsólinni þegar blaðamaður nálgast bæinn eft- ir Landvegi. Þarna verður gististaður og heim- ili 300 manna innan fárra missera og enn fleiri ef taldir eru með gestir sem sækja einungis veitingar og aðra þjónustu. „Við erum búnir að fara á milli ferðaskrifstofa og sýninga og höfum fundið að mikil eftirspurn er eftir gistingu á fjögurra stjarna hóteli hér á svæðinu,“ segir Ólafur Þorgeirs- son, nýráðinn hótelstjóri Landhótels, sem opnar dyr sínar fyrir gestum á komandi vori. Óli Guðmundsson, markaðs- og sölustjóri, bendir á að nú þegar sé búið að bóka 3.000 gisti- nætur næsta sumar. „Það er mjög gott miðað við að við tókum til starfa fyrir einum mánuði og byrjuðum að kynna þjónustuna,“ segir hann. Hótel og kjarnar gistihúsa Verið er að reisa fyrsta áfanga byggingarinnar, 69 herbergja hótel með veitingasal, fundasölum og líkamsræktarstöð ásamt heitum og köldum pottum og gufuböðum og gistiaðstöðu fyrir starfsfólk, auk ann- arrar aðstöðu sem hótelrekstur krefst. Innan þriggja ára á að bæta við hótelálmu með 21 herbergi og í framhaldinu þremur kjörnum sem hver er með sjö gistihúsum með mis- munandi mörgum herbergjum, öllum með baði. Húsið er mikið til byggt úr límtré og kemur það tilsniðið frá Lettlandi. Hótelbyggingin sjálf er upp á þrjár hæðir og stendur á voldugum stein- steyptum kjallara. Baðherbergin koma í heilu lagi og þarf aðeins að tengja tækin. Það tekur undra- skamman tíma að reisa húsið og því gefst færi á að nota veturinn til frá- gangs innanhúss og búa hótelið nauðsynlegum innréttingum og hús- búnaði. Af hverju er verið að byggja hótel uppi í Landsveit, nokkuð frá hring- veginum? Óli svarar því til að þarna sé hjarta Suðurlands og mikil þörf hafi verið á fjögurra stjarna hóteli á þessu svæði. Stutt sé í helstu ferða- mannastaði, svo sem Gullfoss og Geysi, einnig Landmannalaugar. Þá sé hægt að fara í dagsferðir til Víkur og vinsælla áfangastaða þar í kring, og jafnvel Vestmannaeyja. Ýmis af- þreying sé í boði innan seilingar. Hótel vantaði á svæðið Ólafur hótelstjóri segir að vantað hafi hótel á þessu svæði og kveðst hann bjartsýnn um reksturinn. Hann hefur ekki áhyggjur af að ferðamannastraumur til landsins aukist hægar en verið hefur. „Flestir erlendu ferðamennirnir fara um Suðurland. Það á ekki eftir að breytast,“ segir Ólafur. Við byggingu hótelsins er einnig hugað að aðstöðu til að skoða norð- urljósin. Fyrst má nefna að tiltölu- lega langt er í næstu bæi og lýsing er hófleg í kringum hótelið og því truflar ljósmengun ekki norður- ljósaskoðun að marki. Þá er stór útiaðstaða á þaki einnar álmunnar sem sérstaklega er hugsuð fyrir fólk sem vill njóta norðurljósanna og útsýnis til Heklu. Ólafur nefnir að aðstaða sé til að láta alla gesti hótelsins vita þegar norðurljósin sýna sig. ARKÍS arkitektar sem teikna húsið vinna með þrjú litaþemu að innan; vatn, láglendi og hálendi. Límtréð fær að njóta sín og frekar létt yfirbragð á að vera yfir innrétt- ingum og húsgögnum. Þótt stefnt sé að fjögurra stjarna hóteli vill Ólafur bæta plús við, 4+. Vísar hann til þess að talsvert sé lagt í hótelið þótt ekki sé gengið alla leið með þeirri þjónustu sem fimm stjarna hótel krefst. Nefnir hann aðstöðu til heilsuræktar og tiltölulega stór herbergi og góða hljóðvist. Veitingastaður verður fyrir rúm- lega 100 gesti og það verður eitt af mörgum verkefnum stjórnendanna að finna góðan matreiðslumann til að aðstoða þá við þann undirbúning. Ráða þarf um þrjátíu starfsmenn fyrir næsta sumar. Þeir byrja á því að leita fyrir sér í sveitinni og hér- aðinu og segjast þegar hafa fengið nokkur viðbrögð við því. Fundur yfir veturinn Þótt allt sé fullt af erlendum ferðamönnum á Suðurlandi á sumr- in og ferðamannatíminn hafi verið að lengjast fækkar þeim mjög yfir háveturinn. Ólafur og Óli hafa hug á því að leita þá að tækifærum á innlenda markaðnum. Þá koma fundasalirnir sér vel fyrir fundi og smærri ráðstefnur. Fjögurra stjarna hótel rís í Landsveit  Landhótel opnar 69 herbergi á komandi vori  Búið að bóka 3.000 gistinætur fyrir næsta sumar  Unnið að stækkun næstu árin  Heysholt verður gististaður og heimili 300 manna Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Landhótel Hótelbyggingin sem nú rís í landi Heysholts blasir við af Landvegi. Hún breytist á hverjum degi enda byggð úr límtréseiningum. Á næstu árum verður bætt við hótelálmu með 21 herbergi og jafnmörgum íbúðum í þremur gistihúsakjörnum. Í fjarska sést í gamla rauða burstabæinn í Heysholti. Ólafur Þorgeirsson hótelstjóri og Óli Guðmundsson, sölu- og markaðs- stjóri, eru báðir reynsluboltar í ferðaþjónustu, eins og þeir sjálfir taka til orða. Aðeins er rúmur mánuður frá því að þeir tóku til starfa og eru ærin verkefni fram undan við að koma rekstrinum af stað næsta vor. Ólafur var fyrsti framkvæmdastjóri Fosshótela og var seinna hótel- stjóri á Hótel Borg í þrettán ár, svo eitthvað sé nefnt úr ferilskránni. Óli var sölu- og markaðsstjóri Hótel Arkar í Hveragerði um tíma og síðan Hótel Selfoss í áratug. Síðustu árin hefur hann unnið við umfangsmikla íbúðaleigu í Reykjavík. Hvorugur er banginn við þau krefjandi verkefni sem eru fram undan. „Það verður gaman að takast á við þetta,“ segir Óli. „Við höfum mikla trú á þessu. Annars hefðum við ekki tekið þetta að okkur,“ bætir Ólafur við. Reynsluboltar í ferðaþjónustu STJÓRNENDUR LANDHÓTELS Stjórnendur Ólafur Þorgeirsson hótelstjóri og Óli Guðmundsson markaðs- og sölustjóri undirbúa opnun hótelsins og munu annast reksturinn. HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is exton™ heyrnartækin opna nýjar leiðir í samskiptum auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu. Við hjálpum þér að bæta lífsgæðin R og og

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.