Morgunblaðið - 01.11.2018, Qupperneq 41
Hæð:
182 m
(að meðtöldum
25 m háum stalli)
Flatarmál yfirborðs:
22.000 m2
Styttan var reist til minningar um indversku
sjálfstæðishetjuna Sardar Vallabhbhai Patel
Steypa:
140.000 m3
Brons:
2.000 tonn
Starfslið við
framkvæmdirnar:
3.500
Kostnaður:
29,89 milljarðar rúpía
(48 milljarðar króna)
Ljósmynd: AFP/Sam Panthaky
Risastytta á Indlandi
NÝJA DELHÍ
INDLANDGUJARAT
KÍNA
PAKISTAN
Sardar Sarovar. AFP. | Hæsta stytta
heims var vígð með pomp og prakt á
Indlandi í gær. Mikill öryggis-
viðbúnaður var við hana vegna mót-
mæla andstæðinga hennar og deilu
um kostnaðinn við framkvæmdirnar.
Stjórn Narendra Modi, forsætis-
ráðherra Indlands, hafði gert stytt-
una að einu af forgangsverkefnum
sínum. Hún var reist til minningar
um indversku sjálfstæðishetjuna
Sardar Vallabhbhai Patel, sem var
fyrsti aðstoðarforsætisráðherra Ind-
lands eftir að það fékk sjálfstæði.
Þjóðernissinnaðir stuðningsmenn
stjórnarinnar segja að hann hafi of
lengi verið í skugga Nehru-Gandhi-
ættarinnar, valdamestu ættar lands-
ins síðustu áratugi, og vilja að minn-
ingu hans verði sýndur meiri sómi.
Styttan er við Sardar Sarovar-
stífluna í Gujarat-ríki og hefur feng-
ið nafnið Einingarstyttan. Hún er
meira en helmingi hærri en Frelsis-
styttan í New York. Næsthæsta
stytta heims er 128 metra há búdda-
stytta sem reist var yfir hofi í
Henan-héraði í Kína á árunum 1997
til 2008.
Nýja styttan var reist á tæpum
fjórum árum og kostaði 29,89 millj-
arða rúpía, jafnvirði tæpra 48 millj-
arða króna. Hundruð Kínverja voru
meðal 3.500 manna sem störfuðu við
verkefnið. Stjórnvöld í Gujarat segja
að 185 fjölskyldur hafi fengið fjár-
bætur og 475 hektara af nýjum lóð-
um fyrir að flytja af svæðinu til að
hægt yrði að reisa styttuna. Rúm-
lega 80% íbúanna á þessum slóðum
tilheyra ættbálkum sem njóta sér-
stakrar verndar samkvæmt ind-
verskum lögum.
Um 5.000 lögreglumenn voru við
styttuna þegar hún var vígð. And-
stæðingar hennar sögðu að tólf
menn hefðu verið færðir á lög-
reglustöð til að koma í veg fyrir að
þeir stæðu fyrir mótmælum. Lög-
reglan neitaði því að þeir hefðu verið
handteknir en sagði að hún hefði
aukið öryggisviðbúnað sinn vegna
mótmæla íbúa og leiðtoga nálægra
þorpa. Þyrlur og flygildi voru notuð
til að fylgjast með fólki í grennd við
styttuna.
Ættbálkaleiðtogar í 22 þorpum
höfðu skorað á Modi að mæta ekki á
vígsluathöfnina. „Ríkisstjórnir Ind-
lands hafa beitt ættbálkahópana
misrétti og stórnarflokkurinn BJP
endurtekur það nú,“ sagði Chotu Va-
sava, þingmaður á svæðinu. „Ég er
ekki á móti Sardar en hvaða gagn er
að styttu ef fólkið á landinu þarf að
þjást og er flutt frá heimilum
sínum?“
Unnið að 212 m hárri styttu
Forsætisráðherrann varð ekki við
áskoruninni og vígði styttuna. Skotið
var á loft flugeldum sem mynduðu
fánaliti Indlands við athöfnina, her-
þota flaug yfir svæðið og þyrlur létu
blómum rigna yfir styttuna. „Þessa
dags verður minnst í sögu Ind-
lands,“ sagði forsætisráðherrann.
Hann bætti við að Sardar Patel hefði
átt stóran þátt í því að sameina þjóð-
ina eftir að Indland fékk sjálfstæði
árið 1947 og Einingarstyttan væri
„tákn um verkfræði- og tæknisnilld“
Indverja.
Aðgangsmiði að útsýnispalli á
styttunni kostar jafnvirði tæpra 600
króna. Indversk stjórnvöld vona að
dag hvern skoði um 15.000 manns
styttuna.
Indversk stjórnvöld ætla að reisa
enn hærri styttu til minningar um
stríðskonunginn Chhatrapati Shivaji
við strönd Mumbai. Gert er ráð fyrir
því að hún verði 212 metra há og
verði vígð árið 2021.
Hæsta stytta heims vígð á Indlandi
Mikil öryggisgæsla vegna mótmæla íbúa nálægra þorpa
Kostaði 48 milljarða króna Unnið að enn hærri styttu
AFP
Vígsla Narendra Modi, forsætisráð-
herra Indlands, við athöfnina í gær.
FRÉTTIR 41Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2018
✤ NÁTTFÖT
✤ NÁTTKJÓLAR
✤ SLOPPAR
FULL BÚÐ
AF NÝJUM
NÁTTFATNAÐI
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena
undirfataverslun • Næg bílastæði
HA
PPATALA
•
D
AGSINS
ER
•41
TIL HAMINGJU - ÞÚ HEFUR FUNDIÐ HAPPATÖLUNA!
Farðu inn ámbl.is/fimmtudagur, fylltu út upplýsingar um þig og sláðu inn Happatöluna.
Vinningshafar verða dregnir út í þættinum Ísland vaknar á K100 í fyrramálið.
Að sjálfsögðu hvetjum við þig til að taka þátt á hverjum fimmtudegi, því það er til mikils að vinna.
Hæstiréttur Pakistans hnekkti í gær
dauðadómi yfir Asiu Bibi, kristinni
konu sem hafði verið dæmd fyrir guð-
last og óvirðingu við Múhameð spá-
mann. Harðlínumenn úr röðum músl-
íma mótmæltu sýknudómi réttarins í
stærstu borgum landsins og kröfðust
þess að konan yrði tekin af lífi.
Undirréttur dæmdi konuna til
dauða árið 2010 eftir að múslímskar
konur sökuðu hana um að hafa talað
af óvirðingu um Múhameð spámann
þegar þær kröfðust þess að hún sner-
ist til íslamskrar trúar í orðasennu
þegar þær voru við uppskerustörf á
akri. Hún hefur alltaf neitað sakar-
giftunum.
Dauðadómurinn vakti mikla at-
hygli. Ríkisstjóri Punjab, Salman Ta-
seer, var myrtur í Íslamabad árið
2011 fyrir að lýsa yfir stuðningi við
konuna og krefjast þess að lög um
guðlast yrðu milduð. Í fangelsum
landsins eru um 40 manns sem hafa
fengið dauða- eða lífstíðardóm fyrir
guðlast.
AFP
Mótmæli Stuðningsmenn strangra laga í Pakistan um guðlast loka götu í
Karachi til að mótmæla sýknudómi í máli kristinnar konu, Asiu Bibi.
Dauðadómi fyrir
guðlast hnekkt
Kristin kona sýknuð í Pakistan