Morgunblaðið - 01.11.2018, Page 42

Morgunblaðið - 01.11.2018, Page 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Tæknibylt-ingar eru al-mennt gagn- legar, áhugaverðar og jafnvel skemmti- legar. Þær hafa í gegnum aldirnar og árþúsundin lyft lífskjörum fólks upp úr nán- ast samfelldri örbirgð þar sem aldrei var á vísan að róa með næstu máltíð, upp í þær alls- nægtir sem heimurinn, í það minnsta stór og vaxandi hluti hans, þekkir nú á tímum. En tæknibyltingar geta verið varhugaverðar og þegar þróun- in er gríðarlega hröð, líkt og nú, þá er sjálfsagt að fara að með gát. Í Morgunblaðinu í gær var sagt frá vaxandi notkun þess sem kalla má internet hlutanna, eða Internet of Things (IoT) á ensku. Með því er átt við að margskonar tæki, jafnvel ryk- sugur og ísskápar, eru farin að tengjast internetinu og tala saman eða við eigandann. Þetta getur verið gagnlegt, til dæmis fyrir þá sem vilja vita hvort mjólkin er búin til að geta kom- ið við í búð á leiðinni heim, eða vilja setja ryksuguróbótann af stað á meðan þeir eru fjarri heimilinu. Þetta eru dæmi um mögulega kosti, en gallarnir eru einnig fyrir hendi, eða í það minnsta hætturnar. Fólk er farið að kaupa tæki til að tala við, sem geta þar með tekið upp samtöl sem fram fara á heimilinu. Þessi tæki eru tengd við internetið og jafnvel þó að fólk hafi ekkert að fela er næsta víst að enginn hefur áhuga á að aðrir geti hlustað á það sem fram fer innan veggja heim- ilisins. Tæknin á að koma í veg fyrir þetta, en er hún örugg? Hingað til hefur flest tækni brugðist og brotist hefur verið inn á örugg- ustu stöðum. Og það er ekki að- eins að fólk sé með hljóðnema í íbúðum sínum, sumir hafa þar öryggismyndavélar. Það er skiljanlegt, en vissara að ganga úr skugga um – ef hægt er – að þær tengist ekki öðrum en ætl- að er. Í fyrrnefndri umfjöllun Morgunblaðsins kom raunar fram að tölvuöryggisfyrirtækið Syndis sem hér starfar veit af meira en sjö hundruð mynda- vélum hér á landi sem tengdar eru vefnum og eru aðgengilegar hverjum sem er. Sumar þeirra eiga að vera opnar, en að sögn tæknistjóra fyrirtækisins á það fjarri því við um þær allar. Þá hefur sýnt sig að fólk get- ur verið berskjaldað á sam- félagsmiðlum, sem það treystir fyrir miklu magni af upplýs- ingum um sig og sína, en miðl- arnir hafa ekki alltaf reynst traustsins verðir. Mikið hefur vantað upp á að fólk vari sig á þessari gerð samskipta. Tæknibylting síðustu ára hef- ur verið svo hröð að eðlilegt er að fólk eigi erfitt með að átta sig á henni og vari sig þess vegna ekki. Afar brýnt er orðið að fólk hugi að þessum nýju hættum í tilveru nútímans. Vefurinn er mikið þarfaþing, en fólk verður að vara sig} Nýjar hættur Ríkisstjórninsýnir eindreg- inn brotavilja varð- andi „þriðja orku- pakkann“ og pantar sér ótæk „lögfræðiálit“ til réttlætingar. Í minni er hve auðkeyptir „sérfræðingar“ voru í hinu ömurlega Icesave- máli. Ekkert hefur laskað Sjálfstæðisflokkinn eins og það mál. Og orkupakkinn, „Icesave, taka tvö,“ er skrítnara, og það að horfa á varaformann flokks- ins gerast þar merkisberi! Það veldur óendanlegum von- brigðum. Við blasir að vísa því máli til þjóðarinnar. Annað furðumál er framferði Landsvirkjunar sem gerir sér mat úr blekkingum í niðurlægj- andi þjónkun við ESB um að Íslendingar noti kjarnorku að verulegu leyti til orkuöflunar! Í Bændablaðinu segir: „Enn er ekkert lát á sölu hreinleika- vottorða íslenskra orkufyrir- tækja úr landi. Það er þrátt fyrir að ráðherrar og þingmenn hafi lýst furðu sinni á þessu at- hæfi fyrir þrem árum. Eru slík vottorð í hávegum höfð hjá jarðefnaeldsneytis- knúnum erlendum raforkuverum. Enda geta þau með slíkum vottorðum sagst framleiða raforku með hrein- um og endurnýjanlegum orku- gjöfum. Þrátt fyrir að þetta sé vitað neitar hið opinbera fyrir- tæki Landsvirkjun að upplýsa hvert vottorðin eru seld og hvað fáist nákvæmlega greitt fyrir þau.“ Og blaðið bætir við: „Í stað- inn fyrir útflutning uppruna- vottorða verða Íslendingar að taka á sig og skrá það inn í bókhaldið hjá Orkustofnun um orkuframleiðslu að íslenska orkan, sem framleidd er með vatnsafli og jarðvarma, sé menguð í takt við það sem er- lendu fyrirtækin losa sig við á pappírunum. Þannig voru ein- ungis 13% af raforku sem fram- leidd var á Íslandi 2017 sögð vera framleidd með endurnýj- anlegri orku í gögnum Orku- stofnunar. Hins vegar voru 58% orkunnar sögð eiga upp- runa sinn í jarðefnaeldsneyti og 29% í kjarnorku.“ Valdafeimnir ráð- herrar og valda- sæknar stofnanir er vond blanda} Óvænt kjarnorkunotkun? F orsætisráðherra sagði í þingræðu fyrir skömmu að því miður væru „engar töfralausnir“ til í gjald- miðlamálum á Íslandi. Í sömu setningu kom fram sá skilningur ráðherrans að því miður lytu allir gjaldmiðlar fyrst og fremst hagstjórninni. Þannig tókst að koma tvennum áhugaverðum skilaboðum á framfæri á örfáum sekúndum. Skoðum yfirlýsingu forsætisráðherrans betur. Greinilegt er að henni finnst það mjög miður að hagstjórn sé ekki galdrar þar sem hægt er að veifa töfrasprota og leysa málin eitt skipti fyrir öll. Undirliggjandi er að fyrst engar töfralausnir séu til hafi ríkisstjórnin afsökun fyrir því að láta reka á reiðanum í efnahags- málum. Fyrir fimmtán árum birtist frétt í Morgun- blaðinu um að í Norður-Kóreu væri búið að finna upp tæki sem læknaði næstum öll mannanna mein. Gimsteinn gæti breytt geislum sólarinnar í rafsegulmagnaða strauma. Tækið læknaði, að sögn fréttastofu Norður-Kóreu, 98,8% sjúklinga á nokkrum klukkustundum, meðal annars fólk sem fengið hafði heilablóðfall og hjartaáfall. Fréttin endaði á því að heilbrigðiskerfið í Norður-Kóreu væri reyndar hrunið til grunna. Hjörtun slá kannski ekki alveg í takt í vinstristjórnunum í Reykjavík og Pyongyang, en uppgjöfin er svipuð, þó að hagkerfið sé ekki hrunið til grunna á Íslandi. Hættumerkin hrannast þó upp. Lausatök í ríkisfjármálum og gjaldmiðill sem fellur um 10% á tveimur mánuðum. Við bætast kröfur verkalýðsfélaga um rúmlega 100% hækkun lægstu launa og hækkun skattleysismarka sem leiðir af sér hrun tekjuskattkerfisins. Æi, hvað það væri gott að hafa töfralausn. Skoðum hinn hlutann í yfirlýsingu forsætis- ráðherra um að allir gjaldmiðlar lúti fyrst og fremst hagstjórninni. Hvað segir þá 10% gengisfall á tveimur mánuðum um hagstjórn- ina? Evran lýtur samt sem betur fer ekki ís- lenskri hagstjórn. Í annarri nýlegri ræðu vill forsætisráðherra „breyta samfélaginu yfir í að vera hugvitsdrifið hagkerfi en ekki auðlindadrifið“. Þetta er vissu- lega göfugt markmið, en á undanförnum árum hafa íslensk hugbúnaðar- og þekkingarfyrir- tæki flutt störf úr landi. Hvers vegna? Jú, vegna þess að gengi krónunnar hefur valdið því að það er ódýrara. Þannig leiðir óstöðugleiki krónunnar til færri starfa á því sviði sem forsætisráðherra vill réttilega efla. Seinna í sömu ræðu sagði ráðherrann: „Gjaldmiðillinn er tækið en hagstjórnin þarf að hanga á fleiri þáttum.“ Bíðum við. Hvort skyldi gjaldmiðillinn vera tæki til hagstjórnar eða lúta hagstjórninni? Ef yfirmaður Seðlabankans er ekki viss, þá er ekki von á afrekum í efnahagsmálum. Vonandi eru næringarráðgjafar og áfengisfulltrúar ekki á sömu línu og ríkisstjórnin: „Veistu, það eru engar töfra- lausnir til og þess vegna skaltu bara halda áfram að borða og drekka eins og þér sýnist.“ Benedikt Jóhannesson Pistill Leitin að töfralausninni Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Greint var frá því í Morgun-blaðinu í byrjun vikunnarað ríflega sextíu tegundiraf jólabjór yrðu boðnar til sölu í Vínbúðunum í ár. Sala á jóla- bjór hefst fimmtudaginn 15. nóvem- ber næstkomandi og úrvalið hefur aldrei verið eins mikið og nú. Ekki er enda skrítið að framleiðendur og innflytjendur færi sig sífellt upp á skaftið því salan eykst með hverju árinu sem líður. Í fyrra seldust 757 þúsund lítrar af jólabjór í Vínbúð- unum. Er þá ótalið það sem selst á börum og veitingastöðum eða í frí- höfninni í Leifsstöð. Alls er 61 tegund af jólabjór í boði að þessu sinni. Það er umtalsverð fjölgun frá því í fyrra en vert er að geta þess að úrvalið er misjafnt eftir verslunum. Hægt er að fá ágæta yfirsýn yfir úrvalið á vefsíðu Vínbúð- anna og þar er líka hægt að leggja inn sérpöntun, vilji áhugasamir vera öruggir um að ná að smakka ákveðnar tegundir. Meira en helmingur innlendur Vinsælasti jólabjórinn hefur verið hinn danski Tuborg sem þó er fram- leiddur hér á landi. Hins vegar hafa minni framleiðendur notið sífellt meiri vinsælda, enda gefst þarna ágætistækifæri til tilraunastarfsemi. Þekkt er að margir vinnustaðir og hópar koma saman fyrir jólin og smakka jólabjórana og margir eru þá spenntir fyrir nýjungum. Þegar rennt er yfir bjórana sem í boði verða kemur í ljós að 29 teg- undir eru innfluttar en 32 eru fram- leiddar hér á landi. Þar af er hlutur örbrugghúsa þó nokkur. Af þeim þekktu sem verða með í ár má nefna Ölvisholt, Gæðing, Borg brugghús, Kalda, Steðja, Einstök, Segul 67 og Bryggjuna brugghús. En svo bætast nokkur glæný í hópinn. Þar ber fyrst að nefna Brothers Brewery frá Vestmannaeyjum sem hefur getið sér gott orð fyrir bjóra á borð við Gölla og Eldfell. Nú tekur brugghúsið í fyrsta sinn þátt í jóla- bjórflóðinu í Vínbúðunum með bjórnum Lepp. Sama gildir með Malbygg, sem hóf fyrr á árinu að selja bjóra í Vín- búðunum. Hafa tegundir á borð við Galaxy IPA og Sopa mælst vel fyrir. Nú er komið að Jólakisa. Brugghúsið Austri kynnir til leiks jólabjórinn Röndólf en Austri hefur vakið nokkra athygli eftir að opn- aður var bar í brugghúsinu á Egils- stöðum. Þá verður RVK Brewing með forvitnilegan bjór á boðstólum; Co. & Co sem er tunnuleginn bakk- elsis Stout. Mikill áhugi á handverksbjór Þessir litlu framleiðendur eru til marks um þá miklu grósku sem er í bjórheiminum og fjallað hefur verið um í Morgunblaðinu. Sífellt fleiri framleiðendur og veitingastaðir spretta upp og mikill áhugi virðist vera til staðar fyrir svonefndum handverksbjórum. Er hann bæði að finna hjá Íslendingum en ekki síður hjá erlendum ferðamönnum sem sækja í að smakka innlenda og spennandi framleiðslu. Auk þessara nýju framleiðenda verða þeir eldri einnig með spenn- andi úrval. Víking býður upp á þrjá nýja jólabjóra, auk þeirra sem flestir þekkja. Þeir nýju kallast Flibba- hnappur mandarínu White Ale, Jóla- fökker IPA og Kakóhóhó. Borg brugghús verður með fjóra bjóra. Þrjá eldri, þar á meðal Hurðaskelli nr. 54 sem naut mikilla vinsælda í fyrra og seldist fljótt upp, og hinn nýja Skyrgám nr. 60. Æ fleiri örbrugghús bætast í jólabjórflóðið Morgunblaðið/Hari Jólabjórinn Tvær vikur eru í að hillur og gólf Vínbúðanna verði hertekin af jólabjór. Úrvalið hefur aldrei fyrr verið jafnmikið. 61 tegund verður í boði. Samfara því að úrval jólabjórs hefur aukist jafnt og þétt í gegnum árin hafa þeir fengið sí- fellt forvitnilegri nöfn. Í ár geta áhugasamir til að mynda nælt sér í flösku af Flibbahnappi Mandarínu White Ale, Jólafökker IPA eða Kakó- hóhó. Nú eða þá einn ískaldan Snjókarl, Jólakisa, Röndólf eða Lepp. Jólakisi og Kakóhóhó FORVITNILEG NÖFN Í ÁR Jólabjór Úrvalið hefur aðeins aukist síðasta áratuginn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.