Morgunblaðið - 01.11.2018, Síða 46
46 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2018
Verkamenn sem
byrjuðu á vinnumark-
aði 1940 þurftu að
vinna án lífeyrisrétt-
inda til 1970, eða í 30
ár, sem veldur því að
þeir fá drjúgan hluta
lífeyris í gegnum
Tryggingastofnun
ríkisins. Þetta veldur
því að stofnunin
ákveður hvað þessir
lífeyrisþegar fá greitt og má segja
að mannréttindum þess aldraða sé
hent út í horn og eingöngu stuðst
við hugdettuákvarðanir starfs-
manna Tryggingastofnunar, út frá
ákveðnum fyrirmælapunktum frá
ráðherrum.
Aldraður sem býr í eigin íbúð
hefur ekki rétt á því, að mati
Tryggingastofnunar, að nota íbúð-
ina nema í samráði við stofnunina.
Eignarrétturinn er raunverulega
tekinn af honum og færður yfir á
stofnunina án þess að fram hafi
farið nein lögmæt aðgerð sem
heimili slíkt. Eitt af því sem alveg
er bannað þeim gamla er að hafa
einhvern í íbúðinni hjá sér, hlýði
hann því ekki, er lífeyririnn lækk-
aður. Hvernig þeir finna þetta út
er bara einhver hugdettuákvörðun,
því aldrei er rætt við
þann aldraða um
svona breytingar áður
en lækkun er sett á,
heldur bara einfald-
lega, lífeyririnn lækk-
aður.
Ef við lítum aðeins
á aðferð Trygginga-
stofnunar þá er hún
eitthvað á þessa leið.
Ættinginn hjá þeim
aldraða lætur hann fá
3.000 kr. uppí matar-
kaupin og sá gamli
kaupir mat fyrir þá báða á 6.000
kr. Þegar Tryggingastofnun kemst
að því að ættinginn hafi borgað
það sem hann borðaði lækkar
stofnunin lífeyri þess gamla sem
nemur því er ættinginn borgaði
fyrir sig. Þetta veldur því að
maturinn fyrir þann gamla kostaði
6.000 kr. en 3.000 kr. fyrir ættingj-
ann. Þetta byggist á hinu nasíska
stjórnsýslukerfi stofnunarinnar.
Það er sorglegt að við Íslend-
ingar beitum svona kúgunaraðferð
gegn öldruðum alveg að ástæðu-
lausu, því miðað við hvernig mok-
að er peningum í yfirstéttina þá er
þarna verið að sækja molakaffi-
aura í vasa aldraðra, sem er þó
peningur fyrir þá.
Áður en ég skrifaði þessar línur
hringdi ég í Tryggingastofnun til
að kanna þeirra álit á málinu.
Þegar starfsstúlkan heyrði um
hvað samtalið snerist sagði hún
með þjósti – þú býrð ekki einn.
Aðeins þeir sem búa einir fá fullan
lífeyri. Ég spurði hana hvort ég
ætti að reka konuna út, hún ætti
jafnmikið í íbúðinni og ég. Hún
svaraði þessu ekki og sagði ekkert
eftir þetta svo ég talaði smástund
við sjálfan mig og sagði síðan að
ég væri ekki að skamma hana
persónulega, heldur tala um
kerfið. Hún svaraði þessu ekki
heldur og þegar ég kvaddi, sagði
hún – bless.
Eitt breytist ekki, menn skulu
borga öll opinber gjöld fullu verði
þó lífeyririnn sé skertur. Er ekki
komin tími fyrir ríkisvaldið að
skoða þessi vinnubrögð Trygg-
ingastofnunar? Hversvegna þurfa
aldraðir að búa við svona mann-
vonsku síðustu æviárin?
Sá gamli skal búa einn
Eftir Guðvarð
Jónsson
Guðvarður Jónsson
» Aldraður sem býr í
eigin íbúð hefur ekki
rétt á því, að mati
Tryggingastofnunar, að
nota íbúðina nema í
samráði við stofnunina.
Höfundur er eldri borgari.
Hefurðu spáð í það
að Jesús Kristur af-
máði dauðann og inn-
leiddi óslökkvandi
ljós og eilíft líf með
upprisu sinni frá
dauðum?
Ég er einmitt alltaf
að reyna að ná þessu
og tileinka mér þetta
því að mér finnst
þetta virkilega at-
hyglisvert og spennandi og hrein-
lega verulega mikið til koma.
Hvers vegna haldið þið annars
að fólk sé enn að tala um þennan
Jesú Krist 2.000 árum eftir að
hann var uppi? Og hvers vegna
ætli það sé að kirkjan heldur velli
eftir allan þennan tíma? Þá er ég
ekki að tala um einstakar kirkju-
deildir heldur almennt. Haldið þið
að það sé vegna þess að vígðir
þjónar kirkjunnar eða kirkjunnar
fólk almennt geri aldrei mistök og
viti alltaf allt best? Haldið þið að
það sé vegna þess að þetta fólk
hafi í gegnum tíðina verið svo
miklir yfirburða andlegir snill-
ingar sem hafa svör
við öllum spurningum
og sé því vel til þess
fallið að eiga síðasta
orðið í öllum sam-
skiptum eða málum
sem upp kunna að
koma?
Nei, það er að sjálf-
sögðu ekki þess
vegna. Jafnvel ekki
þrátt fyrir alla trúu og
góðu þjónana sem
hugsanlega gjalda
þess sem aðrir kirkj-
unnar þjónar hafa brotið af sér
með einum eða öðrum hætti í
gegnum aldirnar eða gert einhvers
konar mistök sem við jú öll gerum
á einhverjum tímapunkti á ævinn-
ar göngu.
Kirkjan lifir og fólk er enn að
tala um og leita eftir handleiðslu,
stuðningi og styrk frá Jesú Kristi.
Það er vegna þess að hann lifir
enn í dag og vegna þess að hinn
heilagi andi hans andar á þá dag-
lega ferskum andblæ lífsins vonar
sem þiggja vilja og þrá að fá að
hvíla í.
Við erum að tala um anda upp-
risu lífsins sem megnar að græða
sár, uppörva skaddaðar sálir sem
orðið hafa fyrir vonbrigðum, mis-
rétti, kúgun eða hvers konar of-
beldi eða mismunun. Andann sem
veitir hjörtunum huggun og eilífan
frið. Andann sem stendur með
þeim sem hallað er á. Andann sem
reisir upp og fyrirgefur og gott er
að hvíla í hvernig sem allt velkist í
henni veröld.
Ást Guðs
Ást Guðs er nefnilega eins og
galdur sem við skiljum ekki en
getum upplifað, fáum að meðtaka
ef við viljum og megum hvíla í og
njóta hvernig sem stendur á. Og
það sem er svo óendanlega
þakkarvert og dýrðlegt er að okk-
ur býðst að vera farvegur þess-
arar ástar Guðs í umhverfi okkar
dag hvern, jafnvel þótt við séum
bara eins og við erum.
Því er svo nauðsynlegt að
staldra reglulega við og horfa inn
á við. Rækta sjálfan sig, hugleiða
Guðs orð, áætlanir og vilja, veru
okkar hér og tilgang. Hvaðan við
komum, hver við erum, hvert við
raunverulega viljum stefna og
vera á bæn fyrir sjálfum okkur,
okkar dýrmæta umhverfi, náttúru,
möguleikum og gjöfum hennar og
fyrir ástvinum okkar og sam-
ferðafólki yfirleitt. Okkar daglegu
þörfum, áætlunum, draumum og
þrám og því sem á hugann kann
að leita hverju sinni og á hjarta
okkar er lagt.
Með kærleiks- og friðarkveðju í
fullvissu þess að höfundur og full-
komnari lífsins, kærleikans og
friðarins muni vel fyrir sjá og
leiða okkur inn til dýrðarinnar
þegar yfir lýkur.
Lifi lífið!
Hvers vegna?
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson » Við erum að tala
um andann sem
megnar að græða sár,
uppörva skaddaðar
sálir sem orðið hafa
fyrir vonbrigðum,
misrétti, kúgun eða
hvers konar ofbeldi.
Sigurbjörn Þorkelsson
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur
og aðdáandi lífsins.
Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is
HLÍFÐARHÚÐ Á RÚÐUR
u Kemur í veg fyrir að óhreinindi safnist
á rúðuna / sólaselluna
u Eykur öryggi og útsýni allt að
tvöfalt í bleytu og rigningu
u Kemur í veg fyrir að flugur, drulla,
snjór og ísing safnist á rúðuna
u Heldur regnvatni frá rúðunni
u Býr til brynju á rúðunni fyrir
leysiefnum og vökvum
u Þolir háþrýstiþvott
u Virkar við -30°C til + 30°C
u Endingartími er 6 – 12 mánuðir
Frábært á bílrúður – gluggarúður – sólasellur
Á netinu les ég um
baráttu foreldra fyrir
því að fá að skíra dóttur
sína Alex. Nafninu var
hafnað af manna-
nafnanefnd, í fullu sam-
ræmi við manna-
nafnalögin. Það ákvæði
í lögunum sem kveður
á um þetta hljóðar
svona:
Gr. 5.3: Stúlku skal
gefa kvenmannsnafn
og dreng skal gefa karlmannsnafn.
Alex er hefðað sem karlmannsnafn
en ekki sem kvenmannsnafn og því
var úrskurður mannanafnanefndar sá
eini sem til greina gat komið að
óbreyttum lögum.
Þessu þarf að breyta (sbr. Blæ-
málið) og það er afar einfalt, með eft-
irfarandi orðalagi:
„Stúlku skal alla jafna gefa hefð-
bundið kvenmannsnafn og dreng skal
alla jafna gefa hefðbundið karlmanns-
nafn. Æski forráðamenn barns þess
sérstaklega er þó heimilt að víkja frá
þessu. Ósk þessa efnis skal beint til
Þjóðskrár.“
Það eru engin rök fyrir því að telja
Alex vera karlmannsnafn fremur en
kvenmannsnafn önnur en einmitt
hefðarrök. Nú skal ég ekki fullyrða
um „réttlætistilfinningu almennings“,
svo að notaður sé algengur orða-
leppur, en lög sem banna Alex sem
kvenmannsnafn særa mína réttlætis-
tilfinningu og ég er greinilega ekki
einn á þeim báti.
Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp
til nýrra mannanafnalaga. Þetta
frumvarp er ekki vel hugsað. Það
gengur of langt í sumum greinum og
er of óljóst í öðrum greinum. Ekki
dreg ég í efa góðan vilja flutnings-
manna, en að leggja fram slíkt frum-
varp torveldar og tefur skynsamlega
lausn á mannanafnavandanum –
frumvarpið er svo gallað (sbr. álits-
gerðir um það á heimasíðu Alþingis)
að líklegast verður að
teljast að það verði
svæft í meðförum þings-
ins og þar með er verr af
stað farið en heima setið.
Vilji menn ná fram
nauðsynlegum breyt-
ingum á manna-
nafnalögunum þurfa
menn að leggja fram til-
lögur sem einhverjar lík-
ur eru á að þingheimur
geti sameinast um.
Samþykkt núgildandi
laga um mannanöfn fól í
sér mjög aukið frjálsræði miðað við
fyrri mannanafnalög. Lögin gengu
eins langt í framfaraátt og unnt var,
árið 1996. En lögin eru barn síns tíma
– það er löngu orðið tímabært að gera
á þeim nauðsynlegar breytingar.
Þau ákvæði sem helst þarfnast lag-
færinga varða kenninöfn, umfram allt
ættarnöfn, málfræðilegt form og rit-
hátt eiginnafna og einmitt algera kyn-
greiningu eiginnafna. Skilgreining á
því hvað geti talist tækt eða viðeig-
andi sem eiginnafn, millinafn eða
kenninafn krefst yfirlegu. En það er
einfalt að breyta kyngreiningar-
ákvæðinu. Í stað þess að bíða þess til
eilífðarnóns að fram komi heildstætt
frumvarp um mannanöfn sem sam-
staða getur náðst um væri óskandi að
einhverjir velviljaðir þingmenn legðu
fram einfalda breytingartillögu við
lögin, til lagfæringar á kyngrein-
ingarákvæðinu. Slík tillaga ætti auð-
veldlega að geta náð fram að ganga á
yfirstandandi þingi og þá er mikið
fengið.
Alex: Særð
réttlætiskennd
Eftir Halldór Ár-
mann Sigurðsson
Halldór Ármann
Sigurðsson
» Lög sem banna Alex
sem kvenmannsnafn
særa réttlætistilfinng-
inguna.
Höfundur er fyrverandi formaður
mannanafnanefndar.
halldor.sigurdsson@nordlund.lu.se
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.