Morgunblaðið - 01.11.2018, Page 50
Marta María
mm@mbl.is
Claire Underwood hefur veitt konum um
allan heim innblástur þegar kemur að
fatavali. Í fyrri seríum hefur hún alltaf
verið framúrskarandi til fara og sýnt
fram á að einfaldleikinn er oft besta svarið
þegar föt eru valin. Í þáttunum hefur hún
alltaf klæðst vel sniðnum fötum úr góð-
um efnum. Nú virðist sem búninga-
hönnuður þáttanna, Kemal Harris,
hafi lagt sérlega mikið á sig til að ná
fram ákveðnu útliti.
Hún er þó meira en búningahönn-
uður þáttanna því hún er persónulegur
stílisti leikkonunnar Wright. Í þessari
sjöttu seríu af House of Cards er frú
Underwood orðin forsetafrú Banda-
ríkjanna og það kallar á aðeins öðru-
vísi klæðaburð, en samt ekki.
„Við göntuðumst með það á setti að
Claire Underwood væri í sömu föt-
unum og leikkonan Robin Wright
væri búin að klæðast síðan á mennta-
skólaárunum,“ segir Harris í viðtali
við Vogue.
Harris segist hafa sótt innblástur í
klæðnað kvenna í seinni heimsstyrj-
öldinni, þegar hún hannaði búninga
þessarar þáttaraðar. Hún lagði mikla
áherslu á að fötin væru algerlega klæð-
skerasniðin og það væri ekki ein ein-
asta misfella.
Ermahnappar eru líka mikið not-
aðir og settir á nánast hverja einustu
flík, bara með mismunandi hætti.
Yfirdekktar tölur eru líka áberandi
og eru þær í sama lit og fatnaðurinn
sjálfur. Það að vera í flík með yfir-
dekktum tölum þykir fínt svo því sé
haldið til haga. En það eru ekki
bara yfirdekktar tölur í sama efni
heldur sjást líka belti í sama lit
með sylgju eins og herforingjar
hafa klæðst í stríðum heimsins.
Fötin eru flest svört, grá, ólívu-
græn eða blá. Og formin eru
kvenleg, níðþröng og sýna vel
vaxtarlag leikkonunnar.
Tískuáhugamenn til sjávar
og sveita eiga án efa eftir að
læra eitthvað nýtt við áhorf
þáttanna annað en hortug-
heit og klæki.
Fyrstu myndir af forsetafrúnni Claire Underwood í þátt-
unum House of Cards, sem leikin er af Robin Wright,
benda til þess að búningahönnuður þáttanna hafi þurft
að skerpa línurnar fyrir þessa þáttaröð.
Smart Þessi mynd
var tekin af Robin
Wright þegar
House of Cards var
frumsýnt.
Valdabarátta
Claire Underwood
er eins og her-
foringi á þessari
mynd. Með stand-
kraga, gulltölur og
ermahnappa.
Níðþröngt og allt
með ermahnöppum
Valdsmannsleg
Yfirdekktar tölur
eru áberandi og
vasalok. Takið
eftir ermunum.
AFP
Herforingi Þessi
jakki minnir á
herklæðnað.
Takið eftir töl-
unum og stand-
kraganum.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2018
C
a
n
a
d
a
G
o
o
se
T
ri
lli
u
m
P
a
rk
a
k
r.
11
3
.9
9
0
NORDIC STORE
Lækjargötu 2 www.nordicstore.is
Í verslun okkar í Lækjargötu 2 er
mesta úrval af Canada Goose vörum
fyrir herra og dömur á landinu.