Morgunblaðið - 01.11.2018, Síða 64
64 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2018
Rebekka Þráins-dóttir, aðjunktí rússnesku við
Háskóla Íslands, á 50
ára afmæli í dag. Hún
kennir rússnesku,
rússneskar bók-
menntir og sögu og
menningu Rússlands.
„Rússneska er magnað
tungumál og lykill að
merkilegri menningu
og undraheimi rúss-
neskra bókmennta.
Þetta eru yfirleitt litlir
hópar en öflugir hjá
okkur í náminu. Við
erum tveir kennarar
sem störfum við deild-
ina en svo koma líka
stundakennarar að
kennslunni.“
Að sjálfsögðu fer
Rebekka í saumana á
bókmenntum helstu
stórskálda Rússa í
kennslunni eins og Dostojevskí, Tolstoj, Gogol að ógleymdu þjóð-
skáldinu Aleksander Púskhín auk yngri skálda. En svo hefur
Rebekka líka fengist við þýðingar.
„Ég er í þessum töluðu orðum að ljúka við þýðingu á smásögu
eftir Púshkín. Annars hef ég lítið fengist við þýðingar, en hef þó
þýtt örfáar smásögur, eftir t.d. Púskhín, Ísaak Babel og Ljúdmílu
Úlitskaju. Þetta er algjör aukabúgrein.“
Rebekka er Akureyringur en hefur búið á Eyrarbakka frá 2005
og segir yndislegt að vera þar. „Það er eins og að vera í enda-
lausri sumarbústaðaferð að búa hér.“
Rebekka er í sambúð með Örlygi Benediktssyni, tónskáldi og
tónlistarkennara við Tónlistarskóla Árnesinga. Foreldrar Reb-
ekku eru Þráinn Karlsson leikari, sem er látinn, og Ragna
Garðarsdóttir, sem vann lengst af við miðasölu hjá Leikfélagi
Akureyrar.
„Ég ætla að bjóða systur minni, sonum hennar og einum góðum
frænda út að borða í tilefni dagsins. Í kvöld ætla ég svo í fyrsta
tíma á námskeiði um Dostojevskí sem haldið er á vegum Endur-
menntunar HÍ, og sækja í leiðinni málverk sem ég eignaðist fyrir
skömmu. Það er verkið Kona tekur slátur eftir Þránd Þórarins-
son og ég hlakka rosalega til að fá það verk heim til mín.“
Háskólakennarinn Rebekka ætlar út að
borða í tilefni dagsins.
„Rússneska er
magnað tungumál“
Rebekka Þráinsdóttir er fimmtug í dag
I
ngibjörg Styrgerður Har-
aldsdóttir, listvefari og
myndlistarmaður, fæddist í
Reykjavík 1. nóvember
1948. Foreldrar hennar
voru hjónin Haraldur Gíslason,
húsasmíðameistari og kaupmaður í
Reykjavík og Grindavík, f. 9. júlí
1915, d. 17.9. 1979, og Sigríður
Vava Björnsdóttir, húsmóðir í
Reykjavík, f. 22.5. 1921, d. 30.3.
2003.
Ingibjörg Styrgerður ólst upp
við gömlu sundlaugarnar í Laugar-
neshverfinu og stundaði nám í
Laugarnesskóla og Gagnfræða-
skóla Austurbæjar. Þegar hún var
11 ára gömul fór hún í sveit á
Heiði í Sléttuhlíð. Þar var lagður
grunnurinn að lífsstarfi hennar.
„Á Heiði var ekki rafmagn,“
segir hún. „Dvölin þar hafði mikil
áhrif á mig þar sem ég kynntist
einstaklega vel fornum vönduðum
vinnubrögðum við heyskapinn og
við heimilisstörfin. Gleðin fólst í vel
unnu dagsverki.“
Ingibjörg Styrgerður stundaði
nám við Húsmæðraskólann á
Varmalandi þar sem hún kynntist
vefnaði undir handleiðslu Snjólaug-
ar Guðmundsdóttur. Eftir það lá
Ingibjörg Styrgerður Haraldsdóttir vef- og myndlistarkona – 70 ára
Samhent Ingibjörg Styrgerður Haraldsdóttir og Smári Ólason á línakri undir Vestur-Eyjafjöllum árið 2000.
„Vefnaðurinn og hörrækt-
in hafa átt hug minn allan“
Listaverk Ingibjörg kláraði þetta teppi, sem er 230x110 cm , nú í haust.
Svörtu flet irnir eru úr handspunnum hör en rauði flöturinn er íslensk ull.
Bakkakot, Skorradal
Haukur Axel Ólafsson
fæddist 13. desember
2017 kl. 13.09. Hann
vó 2.084 g og var
44,5 cm langur. For-
eldrar hans eru Lilja
Rannveig Sigurgeirs-
dóttir og Ólafur Daði
Birgisson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Ein öflugustu meltingarensím ámarkaðnum í dag
● Ensím eru nauðsynleg fyrir meltingu og
öll efnaskipti líkamans.
● Betri melting, meiri orka!
● Inniheldur ATPro (ATP (orkuefni líkamans),
Magnesíum Citrate, Coensime Q10, Phytase).
● Söluhæsta meltingarvaran í Bandaríkjunum.
● 100% vegan hylki. Án fylliefna, bindiefna eða
annarra flæðiefna.
Fæst í flestum apótekum, heilsubúðum og Fræinu Fjarðarkaupum.
Mér finnst gott að fá mér bjór með pizzu
en því miður þá verð ég alltaf útþaninn
eftir það. Ég að prófaði að taka „Digest
Gold“ fyrir máltíðina og viti menn, það bara
svínvirkaði!
Haraldur Egilsson, 46 ára sjómaður og
ævintýragjarn matgæðingur
Það bara svínvirkaði!
Digest Gold
Ensím geta hjálpað til við að slá á óþægindi svo sem,loftmyndun,
uppþembu, meltingartruflanir og meltingaróreglu