Morgunblaðið - 02.11.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Stefán Gunnar Sveinsson
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
Freyr Bjarnason
Hallur Már Hallsson
Héraðsdómur Suðurlands úrskurðaði
í gærkvöldi að karl og kona, sem
handtekin voru í tengslum við elds-
voðann á Kirkjuvegi 18 á Selfossi,
myndu sæta gæsluvarðhaldi í eina
viku að kröfu lögreglustjórans á
Suðurlandi vegna fyrirliggjandi rann-
sóknarhagsmuna í málinu. Maðurinn
er húsráðandi þar sem brann og er
fæddur árið 1965, en konan var gest-
komandi og fædd árið 1973.
Samkvæmt upplýsingum frá Lög-
reglunni á Suðurlandi voru þau bæði
yfirheyrð í gær en ekki hafði verið
unnt að yfirheyra þau í fyrrakvöld
vegna ástands þeirra.
Taldi lögreglan að rökstuddur
grunur væri um að eldsupptök hefðu
verið af mannavöldum. Tvennt fórst í
eldsvoðanum og munu þau hafa verið
kunningjar fólksins sem var hand-
tekið.
Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn
hjá Lögreglunni á Suðurlandi, sagði í
samtali við mbl.is í gær að verið væri
að rannsaka hvort eldurinn hefði
kviknað af ásetningi eða vegna gá-
leysis. Vildi Oddur hins vegar ekki
gefa neitt upp um það hvernig rann-
sókn málsins hefði miðað áfram eða
hvort yfirheyrslur yfir fólkinu hefðu
varpað ljósi á atburðarásina. „Við ætl-
um að halda spilunum þétt að okkur
með þær upplýsingar og almennt ein-
stök atriði rannsóknarinnar,“ sagði
Oddur.
Slökkvistarfi í húsinu lauk um átta-
leytið í gærmorgun en glæður höfðu
blossað upp alla nóttina. Fékk lög-
reglan í kjölfarið húsið afhent en
slökkviliðið hafði áfram viðbúnað við
húsið þar sem enn rauk úr því. Þurfti
einnig að tryggja að aðstæður væru
öruggar á efri hæð hússins, en lík
fólksins sem fórst í brunanum voru
þar.
Mikið asbest í húsinu
Tæknideild Lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu veitti aðstoð sína við
rannsókn málsins ásamt sérfræðing-
um Mannvirkjastofnunar, en rann-
sókn á vettvangi lauk um þrjúleytið.
Var húsið í kjölfarið afhent trygginga-
félagi til vinnslu. Sagði Oddur að það
myndi taka nokkurn tíma að vinna úr
þeim gögnum sem aflað var í gær.
Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóri
hjá Brunavörnum Árnessýslu, sagði í
samtali við mbl.is í gær að það yrði
flókið mál að rífa húsið vegna þess
hversu mikið asbest væri í því. Mun
því þurfa heimild frá bæði Heilbrigð-
is- og Vinnueftirlitinu áður en það
verður rifið.
Húsið var reist einhvern tímann á
fimmta áratugnum og voru asbest-
plötur innan járnklæðningarinnar.
Asbest er talið lífshættulegt efni og er
ekki lengur notað í húsbyggingum.
Sagði Pétur að finna þyrfti sérmennt-
aða menn til þess að meðhöndla efnið.
„Við höfum ekki lent í þessu síðan ég
byrjaði í þessu starfi að það séu kall-
aðir til sérmenn vegna þessa, þannig
að þetta er nýtt ferli fyrir mér,“ sagði
Pétur.
Sagði hann jafnframt að slökkvi-
starfið hefði reynt nokkuð á menn, og
að útköll á borð við þetta væru mjög
erfið fyrir viðbragðsaðila. Svonefndur
viðrunarfundur var haldinn seinni-
partinn í gær fyrir slökkviliðsmenn
þar sem farið var yfir starf slökkvi-
liðsins vegna eldsvoðans og gátu
menn þar greint frá sinni hlið málsins
og komið með spurningar. „Þetta
miðar að því að allir séu upplýstir og
geti þá gengið sáttir frá verkinu. Ef
eitthvað meira er að hjá mönnum og
þeir finna eitthvað að í sinni sál þá
komum við því að sjálfsögðu í farveg
til fagaðila.“
Djúp áhrif á samfélagið
„Þetta er skelfilegt og hörmulegir
atburðir,“ sagði Gísli Halldór Hall-
dórsson, bæjarstjóri á Selfossi, í sam-
tali við mbl.is í gær. Sagði hann málið
snerta beint marga af starfsmönnum
bæjarins og aðra bæjarbúa. Bætti
hann við að mál þar sem fjórar mann-
eskjur kæmu við sögu og tvær þeirra
hefðu farist með þessum hörmulega
hætti hefði djúp áhrif á samfélagið.
Fólk væri því slegið vegna atburð-
anna.
Kjartan Björnsson rakari sagði í
samtali við mbl.is að hann hefði lagt
leið sína að húsinu sem brann en hann
ólst upp beint á móti því. Sagði hann
húsráðanda vera æskuvin sinn og
gamlan bekkjarbróður og hugðist
Kjartan því athuga með líðan hans.
Náði Kjartan þó einungis að ræða ör-
stutt við húsráðanda áður en lögregl-
an kom og handtók hann.
Sagði Kjartan að það hefði verið
erfitt að koma að húsinu, sem eitt sinn
gekk undir heitinu Sólheimar, í ljós-
um logum. Bætti hann við að saga
þeirra sem þarna ættu hlut að máli
væri bæði flókin og sorgleg.
Morgunblaðið/Eggert
Eldsvoðinn Tæknideild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu tók þátt í að rannsaka eldsupptökin í gærmorgun.
Úrskurðuð í viku gæslu-
varðhald vegna brunans
Talið víst að eldsupptök hafi verið af mannavöldum Tvennt fórst í eldinum
i
20% af hreinsun á sófaáklæðum
og gluggatjöldum til 16. nóvember.
STOFNAÐ 1953
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Atvikið þegar 13 kindur, níu ær og
fjögur lömb, lokuðust inni og
drápust í hrörlegu og aflögðu fjár-
húsi á eyðibýli á ríkisjörðinni Eyri
í Mjóafirði í Súðavíkurhreppi í
sumar kann að breyta því hvernig
opinberu eftirliti með slíkum fast-
eignum er háttað. Þetta segir
Snævar Guðmundsson, forstjóri
Ríkiseigna, í svari við fyrirspurn
Morgunblaðsins í framhaldi af
frétt blaðsins um málið í gær.
Vísað til ábúðarlaga
Svo virðist sem kindurnar hafi
leitað inn í fjárhúsið fyrir tilviljun
einhvern tíma í sumar sem leið en
inngangurinn síðan hrunið og
varnað þeim útgöngu. „Þær hafa
drepist úr þorsta,“ sagði Sigríður
Inga Sigurjónsdóttir, dýralæknir
á Ísafirði, sem kölluð var á stað-
inn.
Snævar segir að gerður hafi
verið almennur leigusamningur
um jörðina við nágrannabónda að
Látrum í nóvember 2000.
Leigutakinn nýtti jörðina til
slægna, var með geldneyti í fjár-
húsi, geymdi vélar í hlöðu og nýtti
jörðina að öðru leyti til beitar. Í
leigusamningnum sé vísað til
ábúðarlaga um meðferð á landi og
viðhald mannvirkja á jörðinni, eft-
ir því sem við ætti.
„Samkvæmt því ber ábúanda að
sinna almennu viðhaldi húsakosts
og koma í veg fyrir að hætta stafi
af, svo sem að loka dyrum og
fergja efni sem getur fokið. Í
samningnum er ekki kvöð um að
leigutaki fari í kostnaðarsamar
endurbætur,“ segir Snævar.
Úttekt og mat á hvaða hús-
eignir megi ef til vill selja
Hann segir að Ríkiseignir hafi
ekki skipulagt eftirlit með útleigð-
um bú- eða eyðijörðum. Atvikið á
Eyri kunni að breyta því. Ríkis-
eignir hafi nýverið efnt til sam-
starfs við Minjastofnun um úttekt
á fasteignum eyðibýla í ríkiseigu.
Tilgangurinn sé að stuðla að
verndun menningarminja og meta
hvaða húseignir megi e.t.v. selja.
Húsakostur eyðijarðarinnar Eyrar
sé þar á meðal.
Eftirlit
endur-
skoðað
Ekki eftirlit með
húsakosti á eyðijörðum
Lögreglan á Suðurlandi greindi í
gærkvöldi frá nöfnum þeirra sem
fórust í eldsvoðanum. Konan hét
Kristrún Sæbjörnsdóttir, fædd 1.
október 1971 og búsett í Reykjavík.
Hún lætur eftir sig þrjá syni.
Maðurinn sem lést hét Guðmundur
Bárðarson, fæddur 29. nóvember
1969. Hann var búsettur á Selfossi,
ókvæntur og barnlaus. Þau voru
bæði gestkomandi í húsinu.
Segir í tilkynningu lögreglunnar
að aðstandendur þeirra færi við-
bragðsaðilum sérstakar þakkir fyrir
störf þeirra á vettvangi.
Kristrún
Sæbjörnsdóttir
Guðmundur
Bárðarson
Létust í elds-
voðanum
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
„Þetta hefur gerst í örfá skipti á
þessu ári, en við erum að vonast til
að þetta sé nú úr sögunni,“ sagði
Funi Sigurðsson, sálfræðingur og
forstöðumaður Stuðla, meðferðar-
stöðvar ríkisins, þegar hann var
spurður um nýlegt atvik þar sem
ungur fíkill fékk ekki inni í
neyðarvistun á heimilinu vegna
plássleysis daginn sem viðkomandi
átti að mæta.
Funi sagði að borist hefðu til-
mæli frá velferðarráðuneytinu um
að bregðast þannig við að þetta
gerðist ekki aftur. Hann sagði að
nú væri unnið að því annars vegar
að auka heilbrigðisþjónustuna á
Stuðlum og jafnframt væri að
hefjast könnun á því hvort hægt
væri að nýta húsnæði lokuðu
deildarinnar betur en gert er í
dag. Mundu arkitektar skoða það í
næstu viku.
„Við erum þá bara að tala um
bráðabirgðalausnir, en það þarf að
finna varanlega lausn á húsnæðis-
málunum til frambúðar.“
Ekki aukin aðsókn
Funi sagði að hann hefði ekki
merkt aukna aðsókn að neyðar-
vistun Stuðla þrátt fyrir þær
breytingar sem orðið hefðu á
neyslumynstri ungs fólks í fíkni-
vanda að undanförnu. Starfsemin
á Stuðlum skiptist í tvennt: Með-
ferðardeild, þar sem fram fer
greining og meðferð, og lokuð
deild. Á hvorri deild geta sex
dvalist í einu. Á lokuðu deildinni
geta barnaverndarnefndir bráða-
vistað börn á aldrinum 13-18 ára.
Lokaða deildin er ætluð til að
barnaverndarstarfsfólk geti tryggt
öryggi barna vegna meintra af-
brota eða alvarlegra hegðunarerf-
iðleika meðan önnur úrræði eru
undirbúin. Hámarkstími vistunar
er 14 dagar.
Ungir fíklar njóta forgangs
Valgerður Rúnarsdóttir, yfir-
læknir á SÁÁ, segir að ungir fíklar
njóti forgangs til meðferðar á
Vogi. Yfirleitt líði ekki nema örfáir
dagar þar til þeir séu teknir inn og
þá sé það gert í samráði við for-
eldra eða forráðamenn. Allir sem
eru undir 20 ára aldri njóta þessa
forgangs.
Fíklum verði ekki vísað frá
Fékk ekki inni í neyðarvistun þótt hann ætti þar tíma