Morgunblaðið - 02.11.2018, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2018
Veður víða um heim 1.11., kl. 18.00
Reykjavík 1 slydduél
Akureyri 1 skýjað
Nuuk -8 heiðskírt
Þórshöfn 6 skýjað
Ósló 8 heiðskírt
Kaupmannahöfn 9 léttskýjað
Stokkhólmur 5 heiðskírt
Helsinki 7 heiðskírt
Lúxemborg 7 þoka
Brussel 10 rigning
Dublin 8 léttskýjað
Glasgow 7 léttskýjað
London 8 rigning
París 10 rigning
Amsterdam 10 rigning
Hamborg 10 heiðskírt
Berlín 11 heiðskírt
Vín 16 heiðskírt
Moskva 4 súld
Algarve 18 léttskýjað
Madríd 14 léttskýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 16 skúrir
Aþena 20 heiðskírt
Winnipeg 0 alskýjað
Montreal 5 þoka
New York 19 léttskýjað
Chicago 9 alskýjað
Orlando 26 þoka
2. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:15 17:09
ÍSAFJÖRÐUR 9:33 17:01
SIGLUFJÖRÐUR 9:16 16:43
DJÚPIVOGUR 8:48 16:35
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á laugardag Norðaustan 15-23 m/s en mun hægari
á NA-verðu landinu. Slydda eða snjókoma og hiti um
frostmark, en rigning sunnan- og austantil og hiti 1
til 6 stig.
Vestan 8-15 m/s NA-til á landinu um morgun en hægari NA-læg eða breytileg. Vaxandi NA-átt í
kvöld, rignir við SA-ströndina. Frost 0-5 stig til landsins en um frostmark við ströndina.
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Í drögum að aðgerðaáætlun í plast-
málefnum, sem eru á borði um-
hverfis- og auðlindaráðherra, er
lagt til að burðarplastpokar í versl-
unum verði bannaðir frá og með 1.
janúar 2021, einnota plast verði
bannað frá og með 1. janúar 2020,
að úrvinnslugjald verði lagt á allt
plast og skilagjald á drykkjavöru-
umbúðir úr plasti, auk annarra til-
lagna. Drögin voru afhent í um-
hverfis- og auðlindaráðuneytinu í
gær en þau eru unnin af starfshópi
sem umhverfis- og auðlinda-
ráðherra skipaði 29. júní.
„Við erum að stíga mikilvægt
skref í þessum málaflokki. Við er-
um í takt við það sem er að gerast í
heiminum og það er ánægjulegt að
sjá þessar tillögur koma fram,“ seg-
ir Guðmundur Ingi Guðbrandsson,
umhverfis- og auðlindaráðherra.
Úrvinnslugjald er notað til að
greiða fyrir meðferð flokkaðs úr-
gangs á söfnunarstöðvum, en Guð-
mundur segir álagninguna skapa
góðan hvata: „Með þessum aðgerð-
um er verið að draga úr eftirspurn
eftir þessum gerðum af plasti, sem
eru einnota, og það skiptir miklu
máli fyrir markaðinn.“
Lagt er til að notkun burðar-
plastpoka verði minnkuð í þremur
þrepum, fram að banninu. Þeim er
lýst þannig að hinn 1. janúar 2019
verði engir plastpokar afhentir án
endurgjalds. Hinn 1. janúar 2020
yrði skattur lagður á burðar-
plastpoka og loks myndu burðar-
plastpokar vera bannaðir 1. janúar
2021.
Bann ESB innleitt á Íslandi
Fyrirhugað bann við plasti er
liður í tilskipun ESB sem kom út í
maí síðastliðinn en lagt er til að
innleiða hana að fullu á Íslandi hinn
1. janúar 2020. Hún kveður á um að
plasthnífapör, plastdiskar og annað
einnota plast verði bannað, auk að-
ferða til að takast á við þær tíu
plastvörur sem oftast finnast á evr-
ópskri strönd eða í hafi ásamt að-
gerðum sem sporna við mengun
vegna veiðarfæra. Í henni er einnig
lagt til að aðildarríkjum verði skylt
að draga úr notkun matarumbúða
og drykkjarbolla úr plasti, merkja
skuli dömubindi, blautþurrkur og
blöðrur til að upplýsa að varan sé
úr plasti og hafi neikvæð um-
hverfisáhrif.
Í tillögu starfshópsins er lagt
til að hafist verði handa eftir að til-
lagan hefur verið samþykkt af hálfu
Evrópusambandsins, sem áætlað er
að verði árið 2019.
Þá er lagt til að sveitarfélög og
rekstraraðilar verði skyldugir til að
flokka úrgang, a.m.k. lífrænan úr-
gang, pappír, plast, málma og gler
og koma til endurnýtingar, en lagt
er til að umhverfis- og auðlinda-
ráðherra leggi fram frumvarp þess
efnis.
Lagt til að banna einnota
plast og plastburðarpoka
Tillögur í plastmálefnum komnar á borð ráðherra
Morgunblaðið/Hari
Tillögur Guðmundur Ingi Guðbrandsson við hlið kassa sem sýnir meðal-
plastmagn fjögurra manna fjölskyldu sem er um 13 kg í hverjum mánuði.
Efnt var til sérstakrar ljósastundar í Víkurgarði í
tilefni af allraheilagramessu þar sem genginna
Reykvíkinga og þeirra sem hvíla í Víkurgarði var
minnst. Hófst athöfnin á stuttri helgistund í Dóm-
kirkjunni kl. 18 og gengu gestir síðan saman í
garðinn og lögðu kertaljós á leiði þar. Þeir Friðrik
Ólafsson stórmeistari, Ómar Ragnarsson, Jör-
mundur Ingi Hansson og Kjartan Magnússon voru
á meðal þeirra sem tóku þátt í stundinni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kertaljós lögð á leiði í Víkurgarði
Hafnarbraut 25 | 200 Kópavogi | Sími 554 0000 | www.klaki.is
HVOLFARARKARA
Handhægir ryðfríir karahvolfarar
í ýmsum gerðum.
Tjakkur vökvadrifinn með
lyftigetu frá 900 kg.
Halli að 110 gráðum.
Vinsælt verkfæri í
matvælavinnslum
fiski – kjöti – grænmeti
Tillaga Minjastofnunar um friðlýs-
ingu Víkurgarðs í miðborg Reykja-
víkur er enn ekki komin á borð
Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og
menningarmálaráðherra, sam-
kvæmt upplýsingum Kristrúnar
Heiðu Hauksdóttur, upplýsingafull-
trúa ráðuneytisins. Það er ráðherra
sem tekur ákvörðun um það hvort
af friðlýsingu verður.
Það var í byrjun október sem
Minjastofnun ákvað að hefja undir-
búning tillögu til ráðherra um frið-
lýsingu hins forna Víkurkirkju-
garðs við Aðalstræti í Reykjavík.
Miðast tillagan við þann hluta
kirkjugarðsins sem er innan svæðis
sem nú er nefnt Víkurgarður eða
Fógetagarður, en tekur ekki til
þess hluta garðsins sem grafinn var
upp við fornleifarannsókn á Lands-
símareitnum 2016 til 2017. Víkur-
garður nýtur þegar verndar sam-
kvæmt lögum um menningar-
minjar, en friðlýsing er víðtækari
aðgerð.
Í samræmi við ákvæði stjórn-
sýslulaga var bréf um áform Minja-
stofnunar sent til allra hagsmuna-
aðila. Var þeim veittur frestur til
15. október til að bregðast við til-
lögunni, Reykjavíkurborg óskaði
eftir framlengingu á fresti og var
hann veittur til 22. október. Hefur
Minjastofnun unnið að lokagerð til-
lögunnar að undanförnu.
gudmundur@mbl.is
Friðlýsingin ekki enn
á borði ráðherra