Morgunblaðið - 02.11.2018, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2018
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
Hannes Jón Hannessonhljómlistarmaður á70 ára afmæli í dag.
Hann hefur starfað við hljóm-
list nær sleitulaust frá 15 ára
aldri, með hljómsveitum á
dansleikjum, konsertum,
hljómplötum og í sjónvarps-
og útvarpsþáttum, bæði á Ís-
landi og í átta öðrum löndum.
Auk þess hefur Hannes Jón
lagt gjörva hönd á gítar- og
músíkkennslu á Íslandi, í Sví-
þjóð og Bandaríkjum. Einnig
hefur hann leiðbeint í ensku
og stærðfræði.
„Ég fæddist líklega syngj-
andi, man ekki eftir mér
öðruvísi, og er alltaf með músík í heilahvelinu; fæ líka lög og texta
send til mín í hugann, bæði í svefni og vöku. Hlýði mestmegnis þessum
hugmyndum sem koma svona til mín, oftast sterklega gerðar, en
nokkrum sinnum hef ég verið beðinn um að semja lög við texta og við
lestur fyrstu línu ljóðsins hafa lögin birst og heyrst fullmótuð, með til-
heyrandi kaflaskiptum; og upptakan hefst strax, núna.“
Hannes lærði á blokkflautu 6-7 ára, svo tók gítarinn völdin frá 14
ára aldri og fór hann fljótlega að spila með hljómsveitum: Molar 15
ára, Tónar 16 ára, síðan Sfynx, MR-skólahljómsveitin Næturgalar,
tríóið Fiðrildi, var sóló um skeið, m.a. í Útvarpi Matthildi, og stofnaði
svo Brimkló.
Hannes nam örlítið tónheyrn og píanó upp úr tvítugu. Tók Guitar
and Music Professional diplóma frá GIT í Hollywood 1990, kláraði
BA-próf í músík- og kvikmyndafræðum frá Stockholm Universitet í
Svíþjóð 1998 og lauk MA-gráðu í Music/Composing & Arranging frá
California State University í Los Angeles 2003. „Mér hefur fundist
gaman að spila, syngja og kenna músík, sérstaklega með gítarinn í
höndunum, og einkum og sér í lagi að leiðbeina þeim sem eru strand-
aðir og þurfa áttavita fyrir sínar næstu nótur, hljóma og aðferðir í
músíkiðkun sinni. Það er mjög gefandi að finna gleði, lausnir og ár-
angur í músík, bæði í spili og söng. Þannig líður mér best.“
Börn Hannesar eru fimm: Guðmundur, Ásta Katrín, Heimir Örn,
Andrés Frímann og Kristófer Jón, og fósturbörnin eru tvö: Ruth
Noemi og Hector Antonio. „Ég hef unnið mörg mismunandi störf um
ævina og sinnt afkomendunum af kostgæfni í gegnum tíðina; það hef-
ur tekið sinn tíma. Nú tek ég upp þráðinn, þar sem frá var horfið, og
framkvæmi aðaláhugamálin: músíkiðkun og manneskju-gæsku, til
áframhaldandi hás aldurs, það sem eftir er af tilvist minni hér á jörð.“
Hannes Jón býður ættingjum og vinum, að matast & gleðjast með
sér á afmælisdaginn. Hljóðfæri og raddbönd eru velkomin.
Fær músík til sín í hug-
ann, í svefni og vöku
Hannes Jón Hannesson er sjötugur í dag
Hljómlistarmaður Hannes Hannesson.
T
roels Bendtsen fæddist 2.
nóvember 1943 í Reykja-
vík. Hann var á þriðja
degi tekinn í umsjón og
ættleiðingu fósturfor-
eldra sinna, hjónanna Þórunnar og
Bendt Bendtsen. „Lífmóðir mín, sem
kom fram árið 2008, er Dora Christ-
ensen frá Kaupmannahöfn. Hún kom
til Íslands ásamt vinkonum sínum til
að vinna „i huset“ eins og hún sagði,
en varð innlyksa vegna stríðsins og
komst fyrst heim til Danmerkur
1945.“
Troels er alinn upp í Vestur-
bænum, nánar tiltekið í Skjólunum
þar sem hann bjó í 55 ár samtals.
Troels dvaldi í sveit á sumrin, meðal
annars á Grund í Kolbeinsstaða-
hreppi á Mýrum og í Hvallátrum á
Breiðafirði. Hann vann einnig tölu-
vert á Eyrinni við uppskipun og
Troels Bendtsen, tónlistarmaður og frkvstj. – 75 ára
Savanna-tríóið Frá vinstri: Björn G. Björnsson, Troels Bendtsen og Þórir Baldursson.
Var í landsþekktum
þjóðlagasveitum
Þrjú á palli Troels, Edda Þórarinsdóttir og Halldór Kristinsson ásamt
Jónasi Árnasyni, en Þrjú á palli sungu mörg lög við kvæði Jónasar.
Í dag, 2. nóvember, eiga gullbrúðkaup hjónin Ingólfur Kristmundsson, vélfræð-
ingur og fyrrum innkaupastjóri Olís, og Elín Magnúsdóttir sjúkraliði. Þau voru
gefin saman 2. nóvember 1968 í Langholtskirkju af séra Árelíusi Níelssyni. Dóttir
þeirra er Svava Kristín Ingólfsdóttir söngkona og dætur hennar eru Elín Edda
Sigurðardóttir læknir og Jóhanna Sigurðardóttir nemi.
Árnað heilla
Gullbrúðkaup
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is