Morgunblaðið - 12.11.2018, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2018
Veður víða um heim 11.11., kl. 18.00
Reykjavík 7 skýjað
Akureyri 5 alskýjað
Nuuk -4 heiðskírt
Þórshöfn 8 rigning
Ósló 10 rigning
Kaupmannahöfn 9 þoka
Stokkhólmur 7 þoka
Helsinki 5 alskýjað
Lúxemborg 11 rigning
Brussel 11 skúrir
Dublin 8 skúrir
Glasgow 8 rigning
London 11 skúrir
París 12 rigning
Amsterdam 12 léttskýjað
Hamborg 13 léttskýjað
Berlín 10 heiðskírt
Vín 10 léttskýjað
Moskva -4 heiðskírt
Algarve 19 skýjað
Madríd 15 skýjað
Barcelona 19 léttskýjað
Mallorca 19 léttskýjað
Róm 19 heiðskírt
Aþena 19 skýjað
Winnipeg -8 snjókoma
Montreal -2 snjóél
New York 5 heiðskírt
Chicago 1 skýjað
Orlando 27 léttskýjað
12. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:47 16:38
ÍSAFJÖRÐUR 10:10 16:25
SIGLUFJÖRÐUR 9:54 16:07
DJÚPIVOGUR 9:21 16:03
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á þriðjudag Austan 5-13 m/s. Skýjað og úrkomulít-
ið, en þurrt og bjart að mestu vestanlands. Hiti 0 til
5 stig. Á miðvikudag Norðaustan 5-13 m/s og dálít-
il rigning eða slydda, en þurrt að kalla vestanlands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Víða norðaustan 2-12 m/s og rigning eða slydda, en lengst af þurrt um
landið suðvestanvert. Heldur kólnandi veður, hiti 0 til 7 stig, mildast suðaustanlands.
Nýtt umhverfi blasir við vegfarendum sem
aka fram hjá gangamunna Vaðlaheiðar-
ganga. Mörgum brá í brún fyrstu dagana
þegar þeir komu skyndilega að nýju malbik-
uðu hringtorgi. Nú er búið að merkja hring-
torgið vel og gengur umferðin snurðulaust
fyrir sig, að sögn eftirlitsmanna.
Mikilvægum áfanga í framkvæmdum við
Vaðlaheiðargöng lauk sl. laugardag þegar
tókst að ljúka malbikun spottans út úr göng-
unum Eyjafjarðarmegin og að nýja hring-
torginu og leggja vegklæðningu Fnjóskadals-
megin. Tókst að nýta góðviðriskaflann til að
ljúka því. Valgeir Bergmann framkvæmda-
stjóri segir mikilvægt að þeirri óvissu sem
fylgir framkvæmdum utan ganga á þessum
árstíma hafi nú verið aflétt. Enn er stefnt að
því að opna göngin fyrir umferð fyrir jól en
Valgeir tekur fram að opnunardagur hafi
ekki verið ákveðinn. helgi@mbl.is
Ljósmynd/Jón Haukur Steingrímsson
Hringtorg við Vaðlaheiðargöng tekið í notkun
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Forystumenn innan ASÍ segja könn-
un SA um hvernig eftirspurn eftir
vinnuafli muni þróast á næstu mán-
uðum hefðbundinn hræðsluáróður í
upphafi kjaraviðræðna.
Björn Snæbjörnsson, formaður
SGS, segir könnun SA fjölmiðlasirk-
us í aðdraganda kjarasamninga og til
þess gerða að hræða launþega frá því
að leggja fram réttamætar kröfur.
Hann segist þó alltaf bjartsýnn í
samningaviðræðum þar til annað
komi í ljós. Það sé sameiginlegt verk-
efni að klára samningana og eigi það
að nást fyrir áramót þurfi samnings-
aðilar að vinna vel.
Hilmar Harðarson, formaður
Samiðnar, segir iðnaðarmenn ekki
hafi orðið vara við uppsagnir upp á
síðkastið en hins vegar hafi vænt-
ingavísitalan farið talsvert niður og
eigi grátkór atvinnurekenda sinn
þátt í því auk þess sem útspil seðla-
bankans um hækkun vaxta hafi ekki
verið gott innlegg.
Drífa Snædal, forseti ASÍ, segir
ábyrgðarhluta hjá SA að draga upp
þá mynd að allt sé að fara í kaldakol
og afvegaleiða umræðuna í stað þess
að gera sér grein fyrir þeim vanda
sem samfélagið standi frammi fyrir.
Hún segir að ekki sé vitað um óeðli-
lega margar uppsagnir hjá fé-
lagsmönnum ASÍ og tölur Hagstof-
unnar um þátttöku á vinnumarkaði
gefi aðra mynd en könnun SA.
Greiðslukortavelta minnkar
„Viðbrögð verkalýðshreyfingar-
innar voru fyrirséð. Það var alveg
skýrt að í könnun SA var ekki verið
að kanna nýráðningar heldur sneri
hún að því hvernig eftirspurn eftir
vinnuafli myndi þróast á næstu mán-
uðum og ef einhverjir eru dómbærir
á það þá eru það atvinnurekendur,“
segir Halldór Benjamín Þorbergs-
son, framkvæmdastjóri SA. Hann
bendir á að mikilvægt sé að fylgjast
með mörgum og mismunandi breyt-
um. Hann segir að væntingavísitala
hafi ekki verið lægri í nálægt áratug
og hið sama sé hægt að segja um
væntingar heimilanna sem lækkað
hafi mjög hratt. Greiðslukortavelta
heimilanna hafi einnig minnkað mjög
hratt en skynsemi ráði á íslenskum
heimilum þegar blikur séu á lofti. Það
skipti miklu málið að vanda um-
ræðuna um stöðu mála og það sé
nauðsynlegt að vera með margar
mælingar í gangi hverju sinni, það sé
eina leiðin til þess að fá heildarmynd-
ina rétta.
Halldór segir að SA og verkalýðs-
hreyfingin séu sammála um styttingu
vinnuvikunnar og að aðgerða sé þörf í
húsnæðismálum en það verði einung-
is leyst með byggingu fleiri íbúða.
Telja könnun SA hræðsluáróður
SA segja viðbrögð verkalýðshreyfingarinnar fyrirsjáanleg Verkalýðsfélögin og Vinnumálastofnun
ekki orðið vör við miklar uppsagnir Væntingavísitalan hefur lækkað Samhljóma um húsnæðismál
Gissur Pétursson, forstöðumaður
Vinnumálastofnunar, segir að
Vinnumálastofnun hafi ekki orðið
vör við uppsagnir í þeim mæli sem
fram kom í könnun SA um upp-
sagnir 3.100 starfsmanna fyrir-
tækja innan SA síðustu 90 daga og
áformum um uppsagnir 2.800
starfsmanna næstu 90 daga.
„Þetta fólk streymir ekki allt inn
á atvinnuleysisskrá góðu heilli,
þannig að fólk virðist vera að finna
sér önnur störf eða er á uppsagn-
arfresti,“ segir Gissur sem bendir á
að það taki Vinnumálastofnun
lengri tíma að finna fyrir upp-
sögnum en stofnunin myndi finna
fyrir því ef ástandið væri að versna
til muna. Enn sé mikil eftirspurn
eftir fólki í byggingarvinnu og um-
sóknir um atvinnuleyfi streymi inn.
„Við reiknum alveg með því að
það geti fjölgað á atvinnuleysisskrá
um nokkur hundruð manns líkt og
gerist oft yfir hörðustu vetrarmán-
uðina en ekki þúsundir. Vinnu-
málastofnun hefur ekki búið sig
undir áfall á vinnumarkaði og það
eru engin stórkostleg teikn á lofti
hvað varðar Vinnumálastofnun um
að samdráttur sé framundan,“ seg-
ir Gissur.
Meira atvinnuleysi á vetrum
ENGIN TEIKN Á LOFTI UM ÁFÖLL Á VINNUMARKAÐI