Morgunblaðið - 12.11.2018, Qupperneq 32
Menningar-,
íþrótta- og
tómstundaráð
Reykjavíkur-
borgar boðar til
opins fundar í
Tjarnarsal Ráð-
húss Reykjavík-
ur í dag kl. 14
þar sem ætlunin
er að ræða aðstöðu til tónleika-
halds í Reykjavík sem og Framtíð-
arbókasafnið. Erindi flytja María
Rut Reynisdóttir, verkefnastjóri
Tónlistarborgarinnar, Pálína Magn-
úsdóttir borgarbókavörður og Guð-
rún Lilja Gunnlaugsdóttir, deild-
arstjóri þjónustu og þróunar á
Borgarbókasafni. Borgarfulltrúar
taka þátt í pallborðsumræðum.
Fundarstjóri er Pawel Bartoszek.
Aðstaða til tónleika-
halds í Reykjavík
MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 316. DAGUR ÁRSINS 2018
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
FH-ingar sýndu mikla þrautseigju
þegar þeir lögðu Eyjamenn að velli í
Kaplakrika í gær, 28:27, eftir að hafa
verið fimm mörkum undir á tímabili í
seinni hálfleik. Með sigrinum urðu
þeir jafnir Selfyssingum að stigum á
toppi Olís-deildar karla í handbolta,
en Selfoss mætir Haukum í kvöld. Ís-
landsmeistarar ÍBV eru með sex stig
eftir átta leiki. »4
FH að hlið Selfoss eftir
dramatískan sigur
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Fimm keppendur tryggðu sér um
helgina þátttökurétt á heimsmeist-
aramótinu í 25 metra laug í Kína í
næsta mánuði, með frammistöðu
sinni á Íslandsmeistaramótinu í
Ásvallalaug í Hafnarfirði.
Eftir því sem Morgun-
blaðið kemst næst
munu fjórir keppend-
anna nýta sér farseð-
ilinn til Kína en Eygló
Ósk Gústafsdóttir
hefur glímt við þrá-
lát bakmeiðsli
og mun því
ætla að
halda sig
heima.
Heimsmet
féll í Hafn-
arfirði. » 2
Fjögur af fimm nýta
sér farseðilinn til Kína
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Eðlisfræðidoktorinn Helgi Freyr
Rúnarsson stóð aldrei á höndum
sem barn eða unglingur og hafði
ekki einu sinni reynt að standa á
höndum fyrr en hann var kominn
vel á þrítugsaldurinn. Í dag kennir
hann íþróttafólki og öðrum áhuga-
sömum handstöðulistina en um 400
manns hafa sótt námskeiðin hans
hjá Primal á því rúma ári síðan
hann byrjaði að kenna, í ágúst í
fyrra.
Gaf eðlisfræðina upp á bátinn
„Ég byrjaði aftur að hreyfa mig
þegar ég byrjaði í doktorsnáminu.
Ég bjó þá í litlum strandbæ í
Portúgal. Ég fór á netið og gúggl-
aði hvað ég ætti að gera til að verða
sterkur og fór þá að gera upphíf-
ingar, armbeygjur, vinkla og teygj-
ur. Mér byrjaði þá að líða vel í lík-
amanum og það kom mér af stað.
Upp úr því fór ég að læra að standa
á höndum,“ segir Helgi Freyr en
hann lauk doktorsgráðunni í fyrra.
„Síðasta árið í doktorsnáminu
kynntist ég Einari Carli Axelssyni
hjá Primal og hann manaði mig í að
fara að kenna. Þá var ég orðinn
frekar góður,“ segir Helgi.
„Ég gaf eðlisfræðina upp á bát-
inn og sæki núna námskeið í því
hvernig eigi aðstanda á höndum og
miðla til annarra. Það geta allir
staðið á höndum ef ég gat það,“
segir Helgi en hann náði ekki í
tærnar á sér og gat ekki gert arm-
beygjur þegar hann byrjaði.
Dóttirin tók fyrstu skrefin með
pabba standandi á höndum
„Af einhverjum ástæðum fékk ég
dellu fyrir að læra að standa á
höndum. Mér fannst gaman að æfa
mig og það opnuðust einhverjar
dyr,“ segir Helgi og bætir við að
skilningur á jafnvægi úr eðlisfræð-
inni hafi ekki skemmt fyrir. „Á
þessum tíma eignaðist ég fyrsta
barnið mitt, stelpu, og hún var að
læra að ganga á sama tíma og ég
lærði að standa á höndum. Ég sá
ákveðna speglun í þessu, hún var að
byrja að standa í lappirnar og ég á
höndum,“ segir eðlisfræðingurinn
sem blaðamaður gerir fastlega ráð
fyrir að sé best menntaði hand-
stöðukennari heims. Hins vegar
kemur á daginn að hann situr ekki
einn að þeim titli.
„Það var gestakennari hjá okkur
um síðustu helgi, með handstöður,
liðleika og fimleikaæfingar. Hún er
líka doktor í eðlisfræði,“ segir Helgi
Freyr og hlær, enda kom það bæði
honum og gestakennaranum á
óvart. „Andlitið datt næstum af
okkur. Við erum allavega tvö en lík-
lega ekki mikið fleiri,“ segir Helgi.
Hvert námskeið er fjóra sunnu-
daga í röð og fyrir allan aldur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á hvolfi Helgi Rúnarsson eðlisfræðidoktor kennir landanum að standa á höndum sér til gleði og heilsubótar.
Margir læra listina að
standa á höndum
Helgi Freyr Rúnarsson býður upp á námskeið í handstöðum
Picasso
rmúla 24 • S. 585 2800