Morgunblaðið - 24.11.2018, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 24.11.2018, Qupperneq 4
skiptum. Svikararnir spili inn á það. Svikin fara fram hjá viðskiptavin- um bankanna án aðkomu þeirra og bera bankarnir ekki ábyrgð á þeim. Hákon segir þó að Landsbankinn búi yfir ýmsum kerfum og að- ferðum til að greina svik og koma í veg fyrir þau. Einnig leggi bankinn áherslu á samfélags- lega ábyrgð sína með því að fræða við- skiptavini sína sem best um þessar hættur og hjálpa þeim að verjast. Við- að fela slóðina eða taka peningana út í reiðufé. Þórir Ingvarsson, lögreglu- fulltrúi hjá Lögreglunni á höfuðborg- arsvæðinu, segir að svikararnir séu fagmenn á sínu sviði, noti útibú sem ekki er fylgst mikið með og feli slóð sína. Þórir segir að okkar sam- félag sé því miður nokkuð viðkvæmt gagnvart slík- um svikum. Kostur sé að búa í litlu samfélagi en það bjóði jafnframt upp á þá galla að stjórnendur og fjár- málastjórar séu oft í miklum og óform- legum sam- fjármálastjóra og hver annist greiðslur, nöfnum og netföngum. Einnig geta þeir komið fyrir óværum í tölvum stjórnenda. Ekki þarf tækni- kunnáttu eða að fjárfesta í dýrum búnaði til að ná árangri, aðeins að vera góður í því að semja svikapósta og senda sem víðast. Upplýsingarnar eru notaðar til að senda gjaldkerum eða fjármálastjór- um trúverðug fyrirmæli í nafni hátt- setts stjórnanda um greiðslur inn á erlenda reikninga. Þetta eru gjarnan afar óformleg tölvubréf og þá sett með að þau séu send úr síma til þess að afsaka smávægilegar villur. Oft eru netföngin höfð lík netfangi við- komandi stjórnanda. Beðið er um að þetta sé gert fljótt og þrýstingnum haldið áfram með ítrekunum. Erfitt að endurheimta féð Ef gjaldkeranum verður á að trúa þessu og framkvæmir greiðsluna en svikin uppgötvast fjótlega hefur bankinn möguleika á að stöðva yfir- færsluna til erlenda bankans. Sá tími telst í klukkustundum. En ef búið er að leggja inn á erlenda reikninginn eru hverfandi lík- ur á að hægt sé að ná pening- unum til baka. Þrjótarnir hafa stöðugan aðgang að reikning- unum og millifæra strax eitt- hvað annað og áfram eftir þörfum til BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Svokölluð stjórnendasvik eða fyrir- mælafölsun, þar sem erlendum glæpamönnum tekst að plata fjár- málastjóra eða gjaldkera fyrirtækja, félaga eða stofnana til að leggja fjár- muni inn á erlenda reikninga, eru al- gengustu fjársvikin á netinu nú um stundir. Það er væntanlega vegna þess að svikin heppnast oft. Lögregl- an hefur ekki yfirlit yfir umfangið, ekki einu sinni þau tilvik sem eru til- kynnt, en það skiptir örugglega hundruðum milljóna. „Þetta hefur aukist mikið eftir að gjaldeyrishöftin voru afnumin, eins og við gerðum okkur grein fyrir að myndi gerast. Að undanförnu hafa verið gerðar hnitmiðaðar árásir á fyr- irtæki og íþróttafélög,“ segir Hákon Lennart Aakerlund, netöryggissér- fræðingur hjá Landsbankanum. Hann staðfestir að svikatilraunirn- ar komi í hrinum. Þrjótarnir einbeiti sér greinilega að Íslandi núna en færi sig hratt á milli landa. Þrjótarnir nota einkum tvær að- ferðir til að undirbúa svikin, sam- kvæmt upplýsingum Hákonar. Þeir leita á vefsíðum fyrirtækja og félaga eftir upplýsingum um forstjóra og skiptabankarnir hafa sérstaka heim- ild hjá samkeppnisyfirvöldum til að vinna saman í baráttunni við fjársvik á netinu. Þeir hafa samvinnu við lög- regluna og eru með tengslanet er- lendis. Númerum reikninga sem not- aðir eru í þessum svikum og öðrum upplýsingum er safnað og þeim miðl- að. Þannig tekst að stöðva margar til- raunir til svika. Stærsta fjárhæðin sem þannig tókst að koma í veg fyrir að færi til svikara var nærri 60 millj- ónir kr. Ekki treysta á tölvupóstinn Stórar eða litlar upphæðir geta haft slæm áhrif á fjárhag fyrirtækja og félaga, allt eftir aðstæðum. Þórir Ingvarsson segir mikilvægt að fyrir- tæki, stofnanir og félög sem oft sýsla með mikið fé hafi skýrt verklag um það hvernig greiðslur eru fram- kvæmdar. Ekki sé treyst á tölvupóst eingöngu heldur athugað á annan hátt hvort fyrirmælin komi sann- arlega frá réttum aðila. „Ekki trúa skrítnum beiðnum sem þú færð heldur hringdu í viðkom- andi eða farðu inn á skrifstof- una til hans og spurðu hvort hann sé virkilega að biðja um þetta. Það er besta vörnin,“ segir Hákon. Mikilvægt sé að hafa samband við viðskipta- bankann sem allra fyrst. Fölsun fyrirmæla algengustu svikin  Brotin færðust mjög í aukana eftir að gjaldeyrishöftin voru afnumin  Hrina gengur nú yfir  Bankarnir hafa samvinnu innanlands og utan til að reyna að koma í veg fyrir að svikin heppnist Svik Glæpamennirnir sitja við tölvu í öruggri fjarlægð og herja á fyrirtæki. Thinkstock.com 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2018 Veður víða um heim 23.11., kl. 18.00 Reykjavík 4 skýjað Hólar í Dýrafirði 1 skýjað Akureyri -4 léttskýjað Egilsstaðir -4 heiðskírt Vatnsskarðshólar 5 skýjað Nuuk 0 skýjað Þórshöfn 4 skýjað Ósló -5 alskýjað Kaupmannahöfn 1 súld Stokkhólmur -4 þoka Helsinki 1 skýjað Lúxemborg 5 heiðskírt Brussel 7 þoka Dublin 7 skýjað Glasgow 6 skýjað London 7 þoka París 4 þoka Amsterdam 5 þoka Hamborg 2 þoka Berlín 3 þoka Vín 6 skýjað Moskva -4 heiðskírt Algarve 17 léttskýjað Madríd 10 léttskýjað Barcelona 11 þoka Mallorca 18 léttskýjað Róm 15 heiðskírt Aþena 12 skýjað Winnipeg -1 þoka Montreal -11 skýjað New York -4 heiðskírt Chicago 6 þoka Orlando 24 heiðskírt  24. nóvember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:26 16:04 ÍSAFJÖRÐUR 10:56 15:44 SIGLUFJÖRÐUR 10:40 15:26 DJÚPIVOGUR 10:01 15:28 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á sunnudag Hæg breytileg átt og yfirleitt létt- skýjað, en austan 5-10 m/s og stöku skúrir syðstl Á mánudag og þriðjudag Suðaustan 5-10 og dálítil væta sunnan- og vestanlands, hiti 1 til 6 stig. Hæg breytileg átt en austan 5-10 syðst á landinu. Skýjað með köflum um sunnanvert landið. Hægir vindar, þurrt og bjart veður og kólnar heldur. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Lífrænt metangas, sem er öflug gróðurhúsalofttegund, streymir frá Sólheimajökli í miklum mæli. Frá þessu var greint nýverið í Scientific Reports. Talið er að um 48 tonn af metani verði til daglega undir jökl- inum þar sem jarðhiti skapar góðar aðstæður fyrir metanframleiðslu. Frá Jökulsá á Sólheimasandi losnar um 41 tonn af metani á dag að sumri, samkvæmt mælingum vísindamanna frá breskum og bandarískum há- skólum. Losunin og framleiðslan er mest yfir sumarið. Undir jöklum og ísbreiðum geta verið góðar aðstæður fyrir metan- myndun. Þungi jökulsins og þéttur ísinn valda því að metanið getur safnast upp og sleppur svo út í and- rúmsloftið þegar ísinn bráðnar eða með leysingavatni. Andri Stefánsson, prófessor í jarðefnafræði við Háskóla Íslands, segir að metan og koltvísýringur séu í öllu jarðhitavatni. Menn hafi greint á um hver uppruni metansins sé. Sumir telji að það sé ólífræn afurð af koltvísýringnum. Aðrir telji að metanið verði til við niðurbrot á líf- rænu efni. Ekki ólíkt því sem gerist við metanvinnslu í Sorpu „Lífræn efni geta borist í svona kerfi á margan hátt og svo er alltaf smá uppleyst lífrænt efni í vatni,“ segir Andri. Hann sagði að metanið sem kemur undan Sólheimajökli væri greinilega lífrænt að uppruna og útstreymið frekar mikið miðað við önnur svæði á Íslandi. Andri sagði að menn hefðu séð lífræn efni koma undan jöklum eins og í Gjálp- argosinu 1996 þegar mikið lífrænt efni kom undan jöklinum. Það voru leifar frá því áður en jöklar huldu svæðið. „Menn eru farnir að hallast að því að yfirleitt sé metangas í jarðhita- kerfum lífrænt ættað. Útstreymið er mjög breytilegt á milli staða og svæða,“ sagði Andri. Mælingar á jarðhitasvæðum sýna breytileika í útstreymi metans yfir tíma, þótt sveiflur í útstreyminu séu ekki mjög miklar. Andri sagði að það sem væri að gerast undir Sólheimajökli væri ekki mjög frábrugðið því ferli sem gerðist í metanstöð Sorpu. Þar brytu bakt- eríur niður lífræn efni við rotnun og þá myndaðist m.a. metangas. Sama væri að gerast undir jöklinum. Það væri háhita niðurbrot vegna hita og einnig kæmu bakteríur við sögu. Umhverfið er loftfirrt og margar bakteríur kunna vel við það. Þetta umhverfi hvetur því til myndunar metans. Metan streymir undan Sólheimajökli  Breskir og bandarískir vísindamenn með nýja rannsókn á Sólheimajökli  Um 41 tonn af metangasi losnar frá Jökulsá á sumardegi  Svipað og Gjálpargosið  Losunin og framleiðslan mest yfir sumarið Morgunblaðið/RAX Sólheimajökull Metangas, sem er öflug gróðurhúsalofttegund, kemur und- an jöklinum með leysingavatni og losnar úr Jökulsá á Sólheimasandi. i Hreinsum sófaáklæði og gluggatjöld STOFNAÐ 1953

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.