Morgunblaðið - 24.11.2018, Side 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2018
KRÍLA
GJAFIR
mikið úrval
SMÁRALIND – KRINGLAN
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þetta er mjög falleg vináttamilli þeirra tveggja. Þeireru þvílíkir félagar, bestuvinir og óaðskiljanlegir.
Fegurðin í þessu er að vináttan spyr
ekki að því hvort þú lítir öðruvísi út
eða sért af annarri tegund. Það eru
engir fordómar hjá þessum tveim-
ur,“ segir Lilja Pálmadóttir, hesta-
ræktandi og hrossabóndi á Hofi í
Skagafirði, en einstök vinátta hefur
tekist með hesti sem hún á og geit-
hafri.
„Allt á þetta upphaf sitt í því að
uppháldsstóðhesturinn úr minni
ræktun, hann Grámann, veiktist al-
varlega í fyrrasumar þegar hann
fékk eitrun og það þurfti að hjúkra
honum dag og nótt í mjög langan
tíma. Hann var lengi nær dauða en
lífi og það hefur tekið hann heilt ár
að jafna sig, með stöðugri umönnun.
Hann var óskaplega veikburða,
þessi mikli fjörhestur og grallari
sem hann er, og þegar líða tók á
þetta veikindatímabil var hann orð-
inn þunglyndur. Hann var virkilega
dapur og þetta reyndi mikið á hans
sálarlíf. Helga Gunnarsdóttir, dýra-
læknir á Akureyri, hvatti mig til að
fá mér geit sem félaga fyrir Grá-
mann, til að gleðja hann og dreifa
huganum. Víða erlendis eru geitur
gjarnan hafðar í hesthúsum því þær
hafa góð áhrif á hesta sem eru í ein-
hverjum vandræðum, taugaveiklaðir
eða með hegðunarvandamál. Þeir fá
félagsskap af nærveru geitar og við-
fang til að dreifa huganum. Milli
hests og geitar eru engin vandamál
með samkeppni eða goggunarröð og
spennu sem við sjáum oft á milli
hesta,“ segir Lilja sem gekk í málið
og hafði samband við sveitunga sinn,
hestamann og geitahaldara, Ingólf á
Dýrfinnustöðum, sem útvegaði
henni glæsilegan ungan geithafur,
Randver.
Sambandið gekk ekki upp
„Ég fékk hann á fyrsta vetri og
hann var rosalega styggur þegar
hann var kynntur fyrir Grámanni.
Karlanginn hann Randver var
hræddur í þessum nýju aðstæðum.
Grámann hafði á þessum tíma ekki
krafta eða þolinmæði til að takast á
við þessa styggð í
skepnunni, tauga-
kerfi hans þoldi það
ekki. Samband
þeirra tveggja gekk
því ekki upp, svo ég
kom Randveri fyrir í
stíu með ungum
rauðum geldingi,
hesti sem heitir
Tími. Geithafurinn
vandist smám saman umhverfinu og
hann tók ástfóstri við þennan hest,
Tími varð hans öryggiskerfi í lífinu.
Randver hefur alltaf fengið að vera
með Tíma, líka þegar Tími fer út á
daginn með öðrum hestum, þá skott-
ast Randver með honum og víkur
ekki frá honum. Hann fylgir honum
eins og skugginn. Og þetta er gagn-
kvæm vinátta, því ef aðrir hestar
fara eitthvað að atast í Randveri, þá
hjólar Tími í þá, hann ver sinn vin af
fullri hörku. Þeir passa vel hvor upp
á annan.“
Hafur sem einn af hestastóði
Lilja segir fyndið að fylgjast
með því hvernig geithafurinn virðist
upplifa sig sem einn af hestastóðinu.
„Hann rekst með stóðinu og
kemur með í reiðtúra. Ég hef átt
aðra geit sem ég var með í hesthús-
inu fyrir nokkrum árum, og þá var
þetta eins, sú varð ein af hestunum,
varð bara hluti af þessu klani. En
tamningakonan mín hún Freyja
Amble Gísladóttir á heiðurinn af því
að hafa leyft þessu sambandi að
blómsta, því þegar hún er að þjálfa
Tíma inni í reiðhöll þá leyfir hún
Randveri alltaf að vera með. Mér
sýnist geithafurinn hafa lært þó
nokkuð af þessu, hann apar allt upp
eftir Tíma og verður örugglega far-
inn að ganga kross-
gang og sniðgang,
taka afturfóta-
snúning og hvaðeina
áður en langt um líð-
ur. Hann eltir hest-
inn og gerir allt eins
og hann,“ segir Lilja
og hlær. „Freyja hef-
ur hlúð að þessum
vinskap þeirra, nært
og gefið rými.“ Í reiðtúrum þarf
Randver að leggja þó nokkuð á sig
til að halda í við hestinn, því hann er
jú töluvert minni skepna og skref-
styttri.
„Hann er orðinn hrikalega feit-
ur núna svo það er eins gott að hann
sé tekinn með í reiðtúra, svo renni af
honum umframþyngdin,“ segir Lilja
og hlær en hún ætlar sér að nýta
Randver enn frekar í hesthúsinu, nú
þegar hann hefur sannað sig. „Ég er
að hugsa um að setja hann í stíu hjá
hesti sem er núna í frumtamningu
hjá mér og er tortrygginn og mjög
styggur, ég er sannfærð um að
Randver á eftir að hafa góð áhrif á
hann.“
Reiðtúr Randver lætur sig aldrei vanta þegar tamningakonan
Freyja fer í reiðtúr með Tíma og fylgir eins og skuggi hans.
Flott saman Allt byrjaði með veikindum Grámanns frá Hofi á
Höfðaströnd, hér með eigandanum Lilju eftir kynbótasýningu.
Brattur Randver kann vel við sig í hestastíunni og hefur kom-
ist upp á lag með að reisa sig upp á endann til að ná athygli.
Geithafur og hestur óaðskiljanlegir
„Hann verður örugglega farinn að ganga krossgang
og sniðgang, taka afturfótasnúning og hvaðeina áður
en langt um líður. Hann eltir hestinn og gerir allt eins
og hann,“ segir Lilja Pálmadóttir hrossaræktandi um
vináttu geithafursins Randvers og hestsins Tíma.
Randver rekst með stóðinu og fer með í reiðtúra.
Ljósmyndir/Freyja Amble Gísladóttir
Alltaf saman Þessir bestu vinir ganga ævinlega í takt og passa vel hvor upp á annan, bæði úti og inni.
Þetta er gagn-
kvæm vinátta, því
ef aðrir hestar fara
eitthvað að atast í
Randveri, þá hjólar
Tími í þá.