Morgunblaðið - 24.11.2018, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2018
Veronika S. Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Eftir eins og hálfs árs undirbúning
opnar Náttúruminjasafn Íslands
sýninguna Vatnið í náttúru Íslands í
Perlunni. Um er að ræða fyrstu
stóru sýninguna sem Náttúruminja-
safninu er gert kleift að hanna og
setja upp á eigin vegum frá því að
safnið var sett á laggirnar árið 2007.
Opnunin verður í Perlunni þann 1.
desember næstkomandi, á hundrað
ára fullveldisafmælisdegi Íslands.
Opnunin er liður í hátíðarhöldum
vegna þessa en á meðal gesta auk
mennta- og menningarmálaráð-
herra, sem fer með málefni safnsins,
verður forseti Íslands, Guðni Th. Jó-
hannesson, og forsætisráðherra
Danmerkur, Lars Løkke Rasmus-
sen.
Hilmar J. Malmquist forstöðu-
maður Náttúruminjasafnsins segir
að lengi hafi verið kallað eftir að-
stöðu fyrir höfuðsafn þjóðarinnar í
náttúrufræðum og markar því sýn-
ingin mikil tímamót.
„Allt frá stofnun Hins íslenska
náttúrufræðifélags, árið 1887, hefur
stefnan verið að koma upp glæsilegu
náttúrufræðisafni fyrir þjóðina. Þó
að náttúrusýningar hafi verið reknar
um langa tíð í Reykjavík má segja að
aðstæður hafi aldrei hæft slíku höf-
uðsafni, fyrr en núna.“
Á sýningunni Vatnið í náttúru Ís-
lands kennir ýmissa grasa. Á henni
verða til að mynda lifandi vatnadýr
og jurtir, risastór dýralíkön, kynning
á dýrum sem aldrei hafa sést áður og
rauntímamælingar á vatnsrennsli í
ám og veðurfarsupplýsingar frá 20
stöðum á landinu. Sýningin er að
miklu leyti sérsniðin fyrir börn og
eftir áramót munu safnkennarar
hefja störf. Þeir munu sinna mótt-
töku skólahópa og sjá um kennslu,
einkum fyrir grunnskóla.
Vatn og vatnalífverur áberandi
Vatn er undirstaða lífs á jörðinni
og jafnframt mjög einkennandi í
náttúru Íslands. Sýningin fjallar um
vatn frá ýmsum hliðum en ekki er
einungis fjallað um vatnið heldur
einnig það líf sem þrífst í því. Lifandi
jurtir og vatnadýr verða sýnileg al-
menningi í vatnsbúrum og gróður-
kúlum.
Hilmar segist vonast til þess að
safnið verði vel sótt af grunnskóla-
nemum, enda er sýningin að mörgu
leyti sérsniðin fyrir börn. Vatnskött-
urinn, lirfa fjallaklukkunnar, er ein-
kennisdýr krakkanna á sýningunni.
Hann mun skjóta upp kollinum hér
og þar á sýningunni, fræða börnin og
spyrja þau ýmissa spurninga.
„Vatnskötturinn skiptir um ham
og breytist að endingu í fullorðna
bjöllu. Þetta eru rándýr og bjöllurn-
ar geta bæði synt og flogið. Þessi dýr
eru lífseig og þrífast í pollum og
tjörnum frá fjöru til fjalls. Þau eru
gott dæmi um það að margur sé knár
þó hann sé smár,“ segir Hilmar.
Á sýningunni mun safnið einnig
standa fyrir tímabundnum sérsýn-
ingum og fjalla um afmarkað efni
sem tengist vatni. Fyrsta sérsýning-
in er kvikmyndasýning sem stendur
fram í júní á næsta ári.
„Á sérsýningunni gefur að líta
myndskeið úr ólíkum stöðuvötnum
sem varpa ljósi á umhverfi vatnanna
sem fáir hafa séð áður,“ segir Hilm-
ar. Erlendur Bogason, kafari, tók
myndirnar en hann er hvað þekkt-
astur fyrir myndir sem hann hefur
tekið af Strýtunni í Eyjafirði.
„Við reiknum einnig fastlega með
að sýningin í Perlunni verði fjölsótt
af ferðamönnum. Náttúran togar
býsna marga hingað svo það veitir
ekkert af því að upplýsa ferðamenn
um hana, gæðin sem náttúran býr
yfir og hvernig við þurfum að um-
gangast hana af skynsemi,“ segir
Hilmar að lokum.
Risalíkan Vatnskötturinn risavaxni er um 13 metrar á hæð. Vistrýmið Rýnt í votlendis- og vatnavistgerðir á Íslandi.
Ljósmynd/Vigfús Birgisson
Marfló Við borðið geta gestir fræðst um grunnvatnsflær.
Lifandi vatnadýr til sýnis í Perlunni
Sérsýning Náttúruminjasafns Íslands opnuð eftir viku, á fullveldisdegi Risalíkan og kvikmyndir
SKRIFSTOFUHÚSGÖGN
Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is
Bjóðum uppá húsgögn
eftir marga fræga
húsgagnahönnuði.
Mörg vörumerki.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Börn náttúrunnar, kvikmynd Frið-
riks Þórs Friðrikssonar, verður
sýnd á kvikmyndarás kínverska
sjónvarpsins á besta útsendingar-
tíma þann 1. desember. Sýning kvik-
myndarinnar er liður í íslenskri
kvikmyndahátíð í Kína 30. nóv-
ember til 6. desember og tengist
tímasetningin aldarafmæli fullveldis
Íslands.
Laufey Guðjónsdóttir, forstöðu-
maður Kvikmyndamiðstöðvar Ís-
lands, segir að hátíðin sé haldin í
samvinnu Kínverska kvikmynda-
safnsins (China Film Archive) og ís-
lenska sendiráðsins í Kína. Kín-
verska kvikmyndasafnið valdi
tilteknar nýlegar íslenskar kvik-
myndir. Þær verða sýndar í kvik-
myndahúsi kvikmyndasafnsins.
Kvikmyndirnar eru: Bíódagar,
Mamma Gógó og Börn náttúrunnar
eftir Friðrik Þór Friðriksson, Eld-
fjall eftir Rúnar Rúnarsson, Fúsi
eftir Dag Kára, Hrútar eftir Grím
Hákonarson og Undir trénu eftir
Hafstein Gunnar Sigurðsson.
Mjög spennandi tækifæri
Laufey fer til Kína ásamt Friðriki
Þór í tengslum við hátíðina. Hún
segir að þetta sé í fyrsta sinn sem
Kína opnist fyrir íslenskri kvik-
myndagerð með þessum hætti.
Þetta sé því stórt skref.
Laufey sagði að Kínverjar hefðu
undanfarið gert meðframleiðslu-
samninga við nokkur Vesturlönd.
Þetta væri því mjög spennandi tæki-
færi og ánægjulegt tilefni til að efla
tengslin milli Íslands og Kína og
stofna til kynna við kínverska kvik-
myndaiðnaðinn. Búið er að skipu-
leggja fundi íslensku fulltrúanna
með kínverskum fagaðilum og einn-
ig munu þau heimsækja háskóla.
Snertir strengi víða um heim
Laufey sagði að kvikmyndin Börn
náttúrunnar eftir Friðrik Þór væri
ein af sígildum íslenskum kvik-
myndum. Mjög oft er vísað til henn-
ar og einnig óskað eftir henni til
sýninga á erlendri grund.
„Með aukinni velgengni íslenskra
kvikmynda verða sögulegar
sýningaraðir algengari. Þá eru Börn
náttúrunnar alltaf ein af lykilmynd-
unum. Hún snertir strengi víða og
er óbundin af landamærum. Það
geta allir samsamað sig með henni,“
sagði Laufey.
Börn náttúrunnar sýnd á besta tíma
Íslenskar kvikmyndir sýndar í Kína
Tengist fullveldisafmælis Íslands
Börn náttúrunnar Hér eru þau Sigríður Hagalín og Gísli Halldórsson í hlut-
verkum sínum í kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar sem er orðin sígild.