Morgunblaðið - 24.11.2018, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 24.11.2018, Qupperneq 31
UMRÆÐAN 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2018 Ég vil þakka Kolbrúnu Bergþórs- dóttur fyrir góða grein í Frétta- blaðinu með yfirskriftinni „Mistök í borginni“. Mig langar einnig að benda á að það eru einnig gerð mörg mistök þegar kemur að umferðar- málum þar á bæ. Sigrún Sigurþórs. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Mistök í borginni Vandræðaástand getur skapast á Miklubraut og Kringlumýrarbraut. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, iðnaðar- ráðherra, helgar sunnudagspistil sinn í Morgunblaðinu 18.11. 2018 Þriðja orkupakk- anum. Því miður er af- staða ráðherrans til „pakkans“ að forskrift Pollýönnu. Slíkt gagn- rýnisleysi gengur ekki þegar gríðarlegir hagsmunir landsmanna eru í húfi, eins og í orkugeiranum, og and- spænis stendur orkuhungrað stór- veldi, sem sjálft setur allar leikregl- urnar. Það leiðir til hrapallegrar niðurstöðu að píra augum á umbúð- irnar án þess að kryfja innihaldið og setja það í samband við EES- samninginn, fjórfrelsið og sam- keppnisreglurnar. Fortíðin Á árunum 2014-2016 upplýstu ráðuneyti 3 nefndir Alþingis um Þriðja orkupakkann. Af „álitum“ nefndanna í kjölfarið má ráða, að upplýsingarnar voru „matreiðsla“ úr ESB-eldhúsinu. Þó kemur fram að skiptar skoðanir voru í nefndunum og efasemdir um heimildir Alþingis til samþykkis „pakkans“ m.t.t. Stjórnarskrár. Engir tilburðir voru þá sjáanlegir af hálfu embættis- manna um greiningu afleiðinga. Það er út í hött að gefa í skyn núna, þeg- ar fjölþættari upplýsingar eru fyrir hendi, að Alþingi verði á einhvern hátt bundið af þessum „nefnda- álitum“, þegar kemur að afgreiðslu málsins. Forræðið og markaðurinn Þegar ráðherrann fjallar um for- ræði yfir auðlindinni og orkumark- aðinum, lítur hún framhjá því að eft- ir innleiðingu Orkupakka 3 og stofnun embættis Landsreglara, sem verður alfarið undir stjórn ESA/ACER, verður ekki lengur undan því vikizt að koma hér á lagg- irnar orkukauphöll að hætti ESB, en samkvæmt núgildandi Orkupakka 2 er slíkt valkvætt. Hlutverk Lands- reglara er að fylgjast með því, að reglum ESB-réttar verði framfylgt í orkugeiranum, þ. á m. á raforku- markaðinum. Það stríðir gegn þess- um reglum, að eitt fyrirtæki, og rík- isfyrirtæki í þokkabót, hafi ráðandi markaðshlutdeild, hér allt að 80%, á heildsölumarkaði, og skiptir þá engu, þótt megnið sé samkvæmt langtímasamningum. Engum vafa er undirorpið við þessar aðstæður að frá samkeppn- isaðilum eða að frumkvæði ESA mun fljótlega koma fram athuga- semd við þetta og krafa með vísun í ESB-rétt um að kljúfa Lands- virkjun, svo að ríkisfyrirtækið hafi í mesta lagi þriðjungshlut á markaði, eða svipað og Statkraft í Noregi. Við sölu á hlutum úr Landsvirkjun má ekki mismuna eftir þjóðernum innan EES. Þannig mun löggjöfin varða veginn fyrir fjársterk evrópsk orku- fyrirtæki að afnotarétti yfir íslenzk- um orkulindum. Orkumarkaðskerfi ESB er hann- að til að gagnast notendum þar, en við þær gjörólíku aðstæður, sem hér ríkja, bæði í orkukerf- inu og á orkumarkaði, er líklegasta sviðs- myndin sú, að fá- keppni, ólík samkeppn- isstaða vatnsorku- og jarðgufuvera og dynt- ótt náttúra muni á „frjálsum“ markaði leiða til orkuverðs- hækkunar og tíðari orkuskorts en við höf- um átt að venjast á þessari öld. Rétt er, sem ráðherrann skrifar, að „Sjálfstæðis- flokkurinn er flokkur frjálsrar sam- keppni“ með vöru og þjónustu, en hængurinn er sá, að margir sjálf- stæðismenn efast um að skyn- samlegt sé að fara að dæmi ESB og skilgreina rafmagn sem vöru fremur en afurð auðlindar. Til að hámarka verðmætasköpun á Íslandi með þessari náttúruafurð þarf miðlæga auðlindastýringu, sem er óheimil í markaðskerfi ESB. Hún er neyt- endavernd í verki, en neytenda- vernd mun snúast upp í andhverfu sína á Íslandi með innleiðingu upp- boðskerfis á raforku. Aflsæstrengur til útlanda Ráðherrann tekur talsvert upp í sig í téðri grein og kveður það „fjar- stæðukennt“, að einhverjir aðrir en íslenzk stjórnvöld og Alþingi muni eiga síðasta orðið um það eftir inn- leiðingu Orkupakka 3, hvort hingað verður lagður sæstrengur. Það er hættulegt að stinga hausnum í sand- inn í þeirri stöðu, að „fjórfrelsið“ muni spanna utanlandsviðskipti með rafmagn eftir innleiðinguna, sem það gerir ekki nú. Það þýðir að ís- lenzkum stjórnvöldum verður óheimilt að leggja stein í götu fjár- festa, sem óska eftir að tengja sæ- streng frá einhverju EES-landi við raforkukerfi Íslands. Þessu til sann- indamerkis skal hér vitnað í skrif norsks sérfræðings í Evrópurétti, prófessors Peter Örebech, sem birzt hafa opinberlega: „Ef Þriðji orkupakkinn verður samþykktur, verður orkuvinnsla og samkeyrsla, þ.e.a.s. orkuflutningur á milli landa, hluti af EES- samninginum. Orka er vara, sbr gr. 24 og Viðauka IV. Samkvæmt gr. 11 og 12 er í gildi bann við útflutnings- hindrunum. Ef Ísland setur upp „þröskulda“, sem takmarka fram- leiðslu, getur það brotið gegn „frjálsu vöruflæði“.“ Landsreglarinn á að hafa eftirlit með, að reglur EES-samningsins og ESB-réttar séu virtar. Honum ber að tilkynna brot á þeim til ACER, sem úrskurðar í deilumálum um millilandatengingar. Þarf frekari vitna við um brot á „tveggja stoða kerfi“ og um framsal fullveldis? Neitunarvaldið Neitunarvald Alþingis gagnvart lagabálkum frá ESB er ótvírætt. Þingið er óbundið af fortíðinni þegar það metur hvort ástæða er til að beita neitunarvaldinu og engra sér- stakra skýringa á neitun er krafizt í EES-samningnum. Neitunarvaldið er grundvallaratriði sem aðgreinir samninginn frá ESB-aðild og hefur veitt honum lögmæti á Íslandi hing- að til. Ráðherrann og markaðurinn Eftir Bjarna Jónsson » Alþingismenn verða að horfa til framtíð- ar og sívaxandi valda Orkustofnunar ESB- ACER, þegar þeir gera upp afstöðu sína til Þriðja orkupakka ESB. Bjarni Jónsson Höfundur er rafmagnsverkfræðingur á eftirlaunum. Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700 Opið: 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.alno.is SÉRBLAÐ –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Í blaðinu verður kynnt fullt af þeim möguleikum sem í boði eru fyrir þá sem stefna á heilsuátak og bættan lífsstíl. PÖNTUN AUGLÝSINGA: Fyrir fimmtudaginn 20. desember fylgir Morgunblaðinu miðvikudaginn 2. janúar 2019 Heilsa& lífsstíll Atvinna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.