Morgunblaðið - 24.11.2018, Qupperneq 32
32 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2018
AUTHORISED DEALER
Victoria Parka
114.990 kr.
Carson Parka
124.990 kr.
Langford Parka
119.990 kr.
Sumir stjórn-
málamenn tala um
kjósendur sína og al-
menning allan sem
„skattstofn“. Séu
skattar ekki í löglegu
hámarki eða svíðandi
og svimandi hæðum
er talað um „ónýttan
skattstofn“ sem má
vitaskuld nýta, sé
áhugi á því.
Svona tungutak kemur ekki á
óvart því stjórnmálamenn hafa um
annað og betra að hugsa en mat-
arútgjöld þín og önnur forgangs-
atriði þegar kemur að eyðslu
launatekna þinna.
Leiðirnar sem stjórnmálamenn
nota til að féfletta almenning eru
margar og blasa ekki allar við.
Sjálfir skattarnir eru auðvitað
augljósir. Þú vinnur þér inn 1000
krónur og hið opinbera – ríkið og
sveitarfélagið – hirðir stóran bita í
tekjuskatt og útsvar. Þú kaupir
þér vöru eða þjónustu og ríkið fær
hluta af kaupverðinu í gegnum
virðisaukaskattinn og þú færð
minna fyrir vikið. Þú stofnar fyrir-
tæki og ríkið hirðir hluta velt-
unnar í gegnum tryggingagjaldið
og væna sneið af hagnaðinum í
gegnum fjármagnstekjuskatt. Allir
þessir skattar og fleiri blasa við
og þá skilja flestir.
Það eru hins vegar hinar óbeinu
leiðir til að mjólka almenning sem
gagnast oft betur. Hinar óbeinu
leiðir eru minna í um-
ræðunni og sleppa
jafnvel við allt umtal.
Sem dæmi má nefna
rekstur fyrirtækis í
eigu hins opinbera.
Hérna er Orkuveita
Reykjavíkur gott
dæmi. Þetta fyrirtæki
er svo gott sem í ein-
okunaraðstöðu og get-
ur því hækkað gjald-
skrár sínar ítrekað án
þess að nokkur geti
að því gert. Hagn-
aðinn má svo hirða í formi arð-
greiðslna í borgarsjóð. Þannig
borga viðskiptavinir Orkuveitu
Reykjavíkur bæði hæstu mögu-
legu skatta og svimandi afnota-
gjöld og láta þannig mjólka sig
tvisvar í borgarsjóð en telja sig
bara hafa verið mjólkaða einu
sinni.
Önnur óbein leið er að skatt-
leggja eitthvað sem hlutfall af
verðmati og knýja svo verðmatið í
hæstu hæðir. Hér þekkja flestir til
fasteignaskattanna. Með því að
takmarka aðgengi að lóðum og ný-
byggingum má þrýsta upp fast-
eignaverði en halda innheimtu-
Hvernig féfletta
skal almenning
Eftir Geir
Ágústsson
» Flestir stjórn-
málamenn líta á þig
sem ónýttan skattstofn.
Það er því ráð að koma
þeim út úr hvers kyns
rekstri.
Geir Ágústsson
Landlæknisemb-
ættið hefur birt fréttir
þess efnis að bið eftir
varanlegri búsetu í
hjúkrunarrými hafi
fjölgað milli ára. Í sept-
ember 2018 biðu að
meðaltali 411 ein-
staklingar eftir hjúkr-
unarrými, en í sept-
ember árið 2017 biðu
342 eftir hjúkr-
unarrými. Fjölgun á landsvísu er því
20%.
Þrátt fyrir stóryrtar yfirlýsingar
stjórnvalda um nauðsyn þess að gera
stórátak í fjölgun hjúkrunarrýma
gerist allt of lítið í þeim efnum.
Á sínum tíma var samþykkt að
stofna sérstakan sjóð til að standa að
uppbyggingu, Framkvæmdasjóður
aldraðra.
„Sjóðurinn er fjármagnaður með
sérstöku gjaldi sem skattstjórar
leggja á þá sem skattskyldir eru á
aldrinum 16-70 ára, samkvæmt lög-
um um tekjuskatt. Sjóðnum er ætlað
að stuðla að uppbyggingu og efla
öldrunarþjónustu um allt land og skal
fé úr honum varið til byggingar stofn-
ana fyrir aldraða, þjón-
ustumiðstöðva og dagd-
vala, að mæta kostnaði
við nauðsynlegar breyt-
ingar á slíku húsnæði og
til viðhalds húsnæðis
dagdvalar-, dvalar- og
hjúkrunarheimila, auk
annarra verkefna sem
stuðla að uppbyggingu
öldrunarþjónustu.“
Samkvæmt þessu eru
tekjur sjóðsins á ári
rúmir 2 milljarðar.
Ríkið hefur notað rúma
4 milljarða í rekstur
Það er alveg á hreinu að tilgangur
með stofnun Framkvæmdasjóðs
aldraðra var að stuðla að uppbygg-
ingu hjúkrunarheimila í landinu. Það
er því slæm staðreynd að frá árinu
2011 hefur alltaf árlega verið sam-
þykkt á Alþingi ákvæði til bráða-
birgða.
„Framkvæmdasjóði aldraðra er
heimilt að verja fé úr sjóðnum til að
standa straum af rekstrarkostnaði
hjúkrunarrýma fyrir aldraða.“
Með þessu ákvæði var
framkvæmdafé skert um rúmar 600
milljónir árlega.
Það er því ljóst að Alþingi á að
greiða til baka til Framkvæmdasjóðs
aldraða a.m.k. rúmlega 4 milljarða
sem notaðir voru í rekstur.
Ríkisstjórnin lofaði stórátaki
Núverandi ríkisstjórn Framsókn-
arflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstri
grænna lofaði að ráðist yrði í stórátak
í uppbyggingu hjúkrunarheimila.
Tölur Landlæknisembættisins sýna
það svart á hvítu að þörfin er gífur-
lega mikil nú þegar og mun aukast
verulega á næstu árum. Það væri
stórt skref í rétta átt að Alþingi
myndi samþykkja að greiða Fram-
kvæmdasjóði aldraðra til baka þá
upphæð sem notuð hefur verið í
rekstur á síðustu árum og að fram-
vegis rynnu allar skatttekjur sem
eiga fara til uppbyggingar hjúkr-
unarheimila óskertar til málaflokks-
ins. Með því væri hægt að stíga stórt
skref til frekari uppbyggingar hjúkr-
unarheimila í landinu.
Fjármagn til upp-
byggingar hjúkrunar-
heimila notað í rekstur
Eftir Sigurð
Jónsson » Það er því ljóst að
Alþingi á að greiða
til baka til Fram-
kvæmdasjóðs aldraðra
a.m.k. rúmlega 4 millj-
arða sem notaðir voru í
rekstur.
Sigurður Jónsson
Höfundur er varaformaður Lands-
sambands eldri borgara.
Allt um sjávarútveg